Óðinn - 01.01.1920, Síða 11

Óðinn - 01.01.1920, Síða 11
ÓÐINN Rjúkan II. Svo að þar, sem fyrir 12 árum var einungis fá- tæklegur fjallabær, er nú risinn upp heill kaup- staður, sem ber langt af mörgum öðrum og honum eldri. Fyrri orkustöðin, Rjúkan I, er bygð lítið eitt fyrir ofan kaupstaðinn við hinn nafnfræga Rjúkan- foss, er myndast við það, að Mánaáin steypist fram af alt að því 300 metra háum stalli í hrika- legu fjallagili. Nægilegt vatnsmagn fær orkuslöðin gegnum miðlun frá tveimur stórvötnum. Vatnið er leitt eflir göngum inn í afarmikinn miðlunar- geymi, sem hefur verið grafinn inn í fjallið fyrir ofan orkustöðina og er leitt þaðan eftir 10 heljar- miklum pípum fram með fjallshlíðinni niður á niðurfallshjólin; fallhæðin er 282 m. Þegar svo vatnsmagnið hefur lokið starfi sínu, er því aftur veitt inn í fjallið. Ný göng flytja vatnið inn í annan miðl- unargeymi, 5 km. neðar í dalnum, og úr honum er það leitt í pípum niður að Rjúkan II, og eftir það sjest forna áin aftur, sem áður rann með smáfossum frá Rjúkanfossinum og niður eftir dalnum. Áður en hún rennur út í Tinnvatnið myndar hún aftur nokkra smáfossa, svo að vatnið frá Rjúkan II má enn leiða inn í göng og nota við vænlanlega aflstöð III við Tinnvatnið. Frá Rjúkan I er raforkan send gegnum heilt net af loftþráðum niður að verksmiðjunum við kaup- staðinn Rjúkan. Þar eyðist hún í heljarmiklum bræðsluofnum, sem draga köfnunarefnin út úr súrefni loftsins. í Rjúkan II, sem er að sjá eins og livítblikandi risahöll við ár- bakkann, eru rafofnarnir undir sama þaki sem orkustöðin, svo að köfn- unarefnið er sent, jafnskjótt og það er útdregið, eftir pípum til sjálfrar saltpjetursverksmiðjunnar. Rjúkan I er sömuleiðis mjög myndarleg bygging, en landslagið umhverfis er harðara og óblíðara. Þessi orkuver eru eins og æfintýri, þau eru bygð með undraverðum flýti, og með mikilli dirfsku og áræði, þrátt fyrir afarmikla örðugleika, eins og við var að búast, uppi til fjalla og í eyðilegum og afviknum dal. En nú er svo komið, og það fyrir löngu, að Rjúkan hefur járnbrautar- samband við járnbrautakerfi Noregs austanfjalls. Rjúkanverin eru dæmi upp á heppilega samein- ingu tveggja hluta, því þau eru bygð 1) fyrir út- lent fjármagn mestmegnis, og 2) með frjálsum aðgangi til virkjunar án nokkurs sjerleyfis. En virkið sjálft og allar framkvæmdir hafa Norðmenn haft með höndum, athafnamiklir menn, með trú á sjálfum sjer og framtiðinni. III. Mörk- og Sólberg-fossar. Þó það væri nógu fróðlegt í sjálfu sjer að athuga afstöðu bæjarstjórnarinnar i Kristjaníu í raforku- málinu í sambandi við fossamálið, þá verður þó að Nýjustu hibýli vcrkamauna (eign þeirra) við Rjúkan.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.