Óðinn - 01.01.1920, Qupperneq 12

Óðinn - 01.01.1920, Qupperneq 12
12 ÓÐINN sleppa því hjer, því það mundi verða of langt mál. Vjer skulum láta oss nægja að taka það fram, að afstaða hennar hefur að ýmsu leyti verið mjög óheppileg. Mörgum sinnum hefur bænum gefist kostur á að ná eignarráður yfir þýðingarmiklum orkuverum og fossum, en hann lálið tækifærið ónotað. Hversvegna? Jú, bæjarfjelaginu er stjórnað af mörgum, og þeir hafa ekki það lag, sem einstakl- ingurinn hefur, og jafnvel fáir menn í samfje- lagi, til þess að nota tækifærið, þegar það gefst, og handsama það. Og bæjarstjórnin í Kristjaníu, sem selur raforku til heimilisþarfa og stærri og smærri iðnaðar, er nú sem stendur svo laklega stödd, að hún verður að leigja hjá einkafjelögum meirihlutann af þeirri raforku, er bærinn þarfnast. 20,000 kílówatt leigir bærinn hjá »Kykkelsrud«-verinu, sem hann gat fyrir nokkrum árum fengið keypt fyrir þá sann- gjarnt verð, sem nú mundi talið hlægilega lágt verð. í gufumiðstöð bæjarins framleiða ensk kol 12,000 kw., og í safngeymum felast 4000 kw., og í því einasta vatnsorkuveri, sem bærinn á nú, eru fram- leidd að eins 2000 kw. Alls ræður því bærinn yfir 38,000 kw., eða hjer um bil 57,000 hestöflum. Eftir lauslegri ágiskun mundi tvöfalt meira orku- magn tæplega hrökkva til að fullnægja bæjarins núverandi þörf fyrir raforku. Bærinn hefur þess vegna keypt nokkra fremur stóra fossa, sem eru áætlaðir að hafa 235,000 hestöfl, en virkjun þeirra er ekki lokið. Fyrst verður sú virkjun fullgerð, sem framkvæmd er í sambandi við ríkið, í »Mörkfossum og Sólbergsfoss- um« í Glommen, sem er stærsta og vatnsríkasta vatnsfallið í Noregi. Fossarnir liggja neðarlega í ánni, 40—50 km. í suðaustur frá Kristjaníu. Upphaflega gerði bæjarstjórnin ráð fyrir að virkja foss einn, sem kendur er við Sólbergsey. Bað var árið 1909. En alt lenti í endalausum umræðum og tali um kaup á annari raforku, og þegar alt þetta umstang strandaði 1913, var byrjað á virkjun Sólhergsfossins. Árið 1915 gaf rikið lil kynna, að það vildi gjarnan taka þátt í sameigin- legri virkjun hans og Mörkfossins, sem liggur and- spænis hinum fyrnefnda, og er eign ríkisins. Árið 1916 komst samkomulag á um slíka sameiginlega virkjun, en með nýjum áætlunum, svo að ýmisleg mannvirki urðu ónýt. Nú er samt verkinu haldið áfram, auðvilað með hæfilegu uppihaldi við og við vegna verkfalla, sem á þessum tímum eru talin sjálfsögð. Virkjuninni á að vera lokið 1922, en hún er mjög erfið í framkvæmdinni vegna mikilla sprenginga, sem þarf að gera, eink- um í árfarveginum; alls hefur orðið að sprengja um Y2 niiljón tenings- metra. Fallið verður 24 m. mest. Það er Iíkt ástatt hjer eins og í Pjórsá, smáfossar og mikið vatnsmagn. í hinu sameiginlega orkuveri, sem liggur beint undir uppistöðuvalninu, má með jafnri vatnsleiðslu, 220 teningsmelrar á sekúndu, framleiða 54,000 hest- öfl, og enda þrefalda þau, með ítarlegri virkjun. Orkustöðin verður heljarmikil bygging, 150 m. að lengd, og alt að 50 m. á hæð. Hvað hún muni kosta fullgerð að öllu leyti, er ekki hægt að segja neitt ákveðið um, þar sem bæði vinnukraftur og efni verður æ dýrara. En það var áætlað 1916, að hún mundi kosta hjer uin bil 20 miljónir króna, IV. Vamma orkuver. Vamma-orkuverið liggur neðan til í Glommen, við næst neðsta fossinn, áður en hún fellur í hafið. Neðstur er hinn nafnkunni Sarpsfoss við Borregaard. Eigandi orkuversins var áður fyr fjelag eitt, en aðalframkvæmdastjóri og mestur hluta- eigandi var Sam Eyde, áður aðalforstjóri fyrir fjelagið »Norsk Hydro«. Vamma var einn af þeim fossum, sem Kristjanía illu heilli slepti af, því árið 1912 átti bærinn kost á að kaupa hann, Orkustöðin við Sólbergsfoss, eftir teikningu byggingameistarans.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.