Óðinn - 01.01.1920, Síða 17

Óðinn - 01.01.1920, Síða 17
ÓÐINN 17 skyndilega hrundið harkalega upp á gátt. Dísa sjer fyrst engan og undrast. — En þegar hún gætir betur að, þá sjer hún að Bokki litli stendur við hlið hennar og togar í hana. »Mamma þín er svo lúincc, sagði hann. Disa starði á hann með viðbjóði og skildi að hann vildi hún færi út að raka. Og henni ofbauð frekjan og óhæverska hans. Hún gat ekki stilt sig um að svala reiði sinni á honum. — Og gullspanga jung- frúin sparkaði fjögurra þumlunga skóhælnum sín- um svo hraustlega í bakið á búálfinum að hann þeyttist út um dyrnar og langt fram í göngin. Dísa skelti aftur hurðinni og gekk um gólf í æsingi. Hún var lengi að jafna sig eftir þetta. En nú tók hún ákvörðun. Hún fann að hún gat ekki notið sín í sveitinni. Hún varð að fara »suður« aftur. Hún gæti sjálfsagt komist þar í vist hjá einhverjum kaupmanni, til dæmis sem »formidags«- stúlka og haft svo síðari hluta dagsins til skemtana. Og þá fór hún alt í einu að hugsa um kafi'ihúsin og ýmsa »voðalega sæta« herra í höfuðstaðnum. Hún spenti greipar um hnakkann og snjeri sjer hvatlega á háum stígvjelahælunum. Hún fann að hún var ung og hraust og yndisleg. »Ef til vill verð jeg líka botnvörpungs-skipstjórafrúcc, sagði Dísa við sjálfa sig. »Þær held jeg að sjeu fínarcc sagði Dísa. Og alt í einu var hún farin að syngja einn og einn tón, sinn úr hverju lagi, alt í einum graut eins og mentunarvindurinn hvíslaði að henni. Bokki litli sat grátandi úti á leitinu. Hann horfði saknaðaraugum heim að kotinu. Hann var nú að fara þaðan alfarinn. »Enginn búálfur getur verið þar sem hann er barinn og honum sparkað út á stígvjelahælcc, sagði Bokki og nuddaði sárt bakið. Hann fór að hugsa um, hver nú myndi sækja kýrnar á kvöldin og gjöra alt það sem hann hafði gjört til þrifnaðar. »Og hver ætli hvísli nú í eyra karls og kerlingar, þegar eitthvað fer aflaga, sem þau gæta ekki að?«, sagði Bokki. Hann stóð nú á fætur, þurkaði sjer um augun og tritlaði út göturnar. Hann ætlaði út í Fagrahvamm. Dísa fór »suður« um haustið og kom aldrei aftur. í kotinu karls og kerlingar gekk búskapurinn aftur í basl og barndóm, — en þó eitthvað færi aílaga, tóku þau nú varla eftir því — Bokki var farinn. Gamlar hendur þukluðu köldum fingrum um hlóðarsteina og litla heystabba. Gamlar hend- ur kreptu stirðum fingrum um hrífu og orf. Og gamlir fætur höltruðu í leit eftir einni kú. — En um svæflana, sem Dísa hafði heklað í orðin: Sov godt min Ven — svifu gamlir draumar um hlöðu, kerru og eldavjel, sem aldrei komu í kotið. Og mentavindurinn fór um allar sveitir. 0 Työ kvæði A vordegi björtum. Á vordegi björtum jeg vita þín, vina mín — sæll í hjarta — er sólin rennur, þú svifur til mín — er síðasti geislinn á djúpið skín mjer færðirðu’ i faðminn skrautið hans blikandi [bjarta. Svo vermum við okkur við ylinn hans, er andvarinn blæs sem kaldast og stígur á blómkrónum döggvotum dans, og draumskuggar vaka við strendur lands á djúpinu þögla og dottandi í hendur haldast. En~það er svalt eftir sólarlag og síðustu geislarnir kaldir; við munum með sársauka sólbjartan dag, er söngfuglinn kvað sinn gleðibrag — því verður mjer kalt, þótt blítt þú í hönd mína [haldir. Regn. Droparnir falla á foldu, foldina snævi hulda, foldina mína fögru, foldina elds og kulda. Leitast þeir við að leysa landið úr fjötrum mjalla, en seint gengur það, því sólin sefur, að baki fjalla. Gnðm. G. Hagalín. 0 Trytssvi Hveinbjörnspon, höfundur leikritsins, sein hjer fer á eftir, var einn þeirra, sem skáldastyrk fengu nú um siðastl. ára- mót, og var liann veittur lionum íyrir þetta leikrit, Stóð til, að það yrði sýnt lijer i vetur, en íórst fyrir. Ilöf. tók lijer stúdentspróf fyrir nokkrum árum, fór svo á háskólann i Iihöfn, en er nú starfsmaður á isl. stjórnarskrifstofunni þar. Hann er ættaður úr Svarfaðardal.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.