Óðinn - 01.01.1920, Page 22

Óðinn - 01.01.1920, Page 22
22 ÓÐINN Olöf: Hvenær hef jeg ásakað pig? Ragnar: Þú ásakar mig ekki með orðunum, en með tómleikanum, sem liggur í þeim. Og hreyfingar þínar cru orðnar þungar, eins og líkami þinn væri af steini. Aður var eins og söngur svifi í loftinu, þegar þú gekst. Alt þetta vitnar á móti mjer! Jeg þoli ekki að sjá þig fara svona illa með það. Mjer sýnist það vaxa með hverjum degi. Olöf: f’að er gömul saga sem segir, að hár konunnar vaxi með ástinni. (Glettin), Eftir því að dæma, ætti mjer að þykja vænna og vænna um þig. Ragnar: Veitstu hvað jeg bað mömmu um áðan? Olöf (horfir spyrjandi á Ragnar). Ragnar: Jeg bað hana að banna þjer að koma hingað. Ólöf: Ragnar! Ragnar: Jeg get ekki annað — og vilji hún ekki gera það, geri jeg það sjálfur. Ólöf (biturt): O, vertu rólegur! Pað er ekki víst þú þurfir að hafa fyrir því. Ragnar (eins og honum standi það á miklu): Fáið þið þá jörðina? Ólöf: Við vitum það ekki fyrir vissu ennþá. (Hún nálgast hann). Jeg vil heyra það af þínum eigin munni, að þú elskir mig ekki lengur. Ragnar: Jeg hefi aldrei elskað þig. Nú veitstu það. Ölöf (horfir á hann um stund): Nú lugu varir þinar. Ragnar: Jeg vildi óska að þú hefðir ekki komið liingað i kvöld. Ólöf: Dansinn og kossar Hildar munu friða sálu þína. En jeg ætla líka að skemfa mjer. Jeg stend fyrir utan húsið og hlusta! Ragnar: f*að gerirðu ekki. Ólöf: Er mjer of gott að hlusta á gleðina? Heldurðu að mig langi ekki til þess að skemta mjer eins og aðrir? Er jeg ekki ung eins og þú? Tilheyrir ekki gleðin öll- um jafnt? Ragnar (þegir — gengur fram og aftur um gólfið). Ólöf: Mjer finst svo kalt heima síðan þú hættir að koma þar. Manstu i fyrra, þegar þú í fyrsta sinni varn- aðir mjer ástar þinnar? Rað var dansleikur það kvöld. Jeg stóð fyrir utan gluggann. Ragnar (stansar): Stóðstu fyrir utan húsið? Ólöf: Pað var grenjandi frosthríð. En alt í einu varð mjer heitt. Gleðiópin og hlátrarnir að innan hituðu mjer. (Gengur nær honum). Jeg heyrði þig hlæja. Stuttu eftir komst þú og Hildur út. Pað beið vagn eftir ykkur — og þið ókuð á stað. Jeg ranglaði4Tíka á stað. Storm- urinn hratt mjer áfram — eitthvað áfram. Svo dalt jeg. Jeg gat ekki staðið upp aftur. (Pað er hringt, en þau taka ekki eftir þvi). Pað snjóaði yfir mig — mjer fanst það eins og þegar mamma breiðir yfir mig hvíta sæng. Jeg sofnaði. (Frost í röddinni). Pá sá jeg hvítan mann í snjónum, scm þrýsti sjer að vörum mínum. Pað var dauðinn, sem kysti mig. (Leggur hendur um háls hon- um). Pó er mjer kaldara núna en þá. Kystu mig — og mjer mun verða heitt. Ragnar (færist undan): Nei. Ólöf: Pú sagðir einu sinni, að öll blómin í túninu á Koti hefðu beðið þig að færa mjer koss — einn frá hverju. Heldurðu ekki að þú hafir gleymt einhverri sóleynni, sem óx í skugganum norðan við bæinn? Kystu mig einu sinni — þá hefurðu efnt heit þitt við öll blómin. (Hringingin heyrist aftur). Ragnar (stjakar henni frá sjer): Pað er hringt! Ólöf (ísköld): Áðan var jeg soltinn rakki, sem bað um mola af borðum þínum. Nú er jeg mett og jeg fyrirlít allan þinn auð! Vertu svo glaður í kvöld, að jeg geti heyrt hlátur þinn gegnum storminn. Góða skemtun, ha, ha! (Fer). Ragnar (horfir á eftir lienni). Hildur (kemur — dansklædd): Ragnar, að hverju varstu að hlæja. Eða var það kannske ekki þú sem hlóst? Ragnar (utan við sig): Til hvers kemur þú? Hildur: Til hvers jeg komi — hahaha! Ragnar: Já — það er satt — dansleikurinn! Hildur: Pú er þó heldur skemtilegur núna — stendur þarna eins og trjedrumbur á gólfinu. Ætlarðu ekki að heilsa mjer? Ragnar (kyssir hana): Sæl, Hildur! Hildur: Petta var mikill inndælis koss. Pú kyssir mig út undir eyra eins og jeg væri gömul kerling. Þú hefur gleymt aðferðinni. (Kyssir liann alt í einu). Svona er hún — beint á munninn. Ragnar’(glaðari): Já, beint á munninn! Hildur: b’jekstu ekki sendingu frá mjer? Ragnar (verður aftur alvarlegur): Jú. En jeg nota ckkert af þvi í kvöld. Hildur: Nú ertu tekinn til. Jeg bíð þjer á ball. Jeg sendi þjer gjafir — jeg kem í bifreið til þess að sækja þig. Pað hefði einhver látið svo lítið að þakka fyrir það. Jeg leyfi mjer að segja svo mikið. Ragnar: Jeg er þjer óendanlega þakklátur bæði fyrir þetta og alt annað. En þú verður að fyrirgefa — í kvöld get jeg ekki dansað — get það ekki. Hildur: Lilti Ragnar, sem allar stúlkurnar öfunda mig af — vertu nú væni drengurinn í kvöld! Ragnar: Jeg hef svo mikið að gera — margt að hugsa! Hildur: Uss. Pu getur alveg eins vel hugsað á morgún — eða hinn daginn. Nei. — Ragnar! Hlustaðu nú bara á! Pað vita svo margir að við erum trúlofuð. Er það ekki skrítið — ha ha! Ragnar: Pú vildir einn sinni halda því leyndu þangað til jeg tækí prófið. Hildur: Já. Pá. En jeg er svo hreykin af þjer. Það horfa allir á okkur, þegar við erum á gólfinu. Er það ekki skrítið? Ragnar: Hjegómi — vina mín! Hildur: Æ, vertu nú ekki svona leiðinlegur! O, hann Stefán! Jeg get ekki þolað að sjá hann einu sinni hvað þá . . . svei! Ilann hjelt víst að jeg mundi bjóða sjer, fiónið! Pú ert miklu fallegri en hann! Og þú ert hundrað sinnum gáfaðri en hann. Ragnar: Og liann er dálítið ríkari en jeg! Hildur: Pað gerir ekkert til. Jeg er nógu rík. l’abbi minn er rikasti maðurinn í bænum. Nei — heyrðu — það er satt! Ottó og Geiri og — þú vist líka. Jeg tók þau með mjer. Jeg kalla á þau. Við höfum gott af að æfa okkur dálítið undir dansinn. (Kallar). Heyrið þið, börnin góð! Farið úr yfirhöfnunum og komið inn. (Ottó, Geiri, Stína, Magga, koma inn dansklædd. Kveðjur.)

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.