Óðinn - 01.01.1920, Side 33

Óðinn - 01.01.1920, Side 33
ÓÐINN 33 jókst nú aðsókn að honum með ári hverju. Eink- um þótti hann vera sjerlega glöggur að þekkja hvað að sjúklingum gekk og kunna góð ráð við lungnabólgu og barnasjúkdómum. Oft var það, að sjúklingar dvöldu langdvölum í Garði til lækninga, stundum langt að komnir, og sumir þeir, sem áður höfðu árangurslaust leitað hjálpar til hjeraðslækna. Veittust þeim þar oft bætur meina sinna fyrir læknis-ástundan Baldvins og nærfærna aðhjúkrun Guðnj'jar, sem henni var frábærlega lagin. Hafa þau hjón þann veg áreiðan- lega áunnið sjer hlýjan þakkarhug margra manna. Baldvin þótti nokkuð ölkær. Fór hann og mjög með áfengi til meðalagerðar. En þó kunni hann svo með að fara, að lítt olli það misbrestum í heimilislífi hans. Enda naut hann þar enn að stillingar og skapkosta sinnar góðu konu, og voru samfarir þeirra jafnan fyrirmynd. Vorið 1914 brugðu þau Baldvin og Guðný búi og fengu alla jörðina sonum sínum í hendur. En næsta vor, nálægt miðjum maí, tók Baldvin snögg- lega þunga lungnabólgu, er Ieiddi hann til bana. Hann andaðist á Hvítasunnumorgun, 23. maí 1915. Fór jarðarför hans fram að Nesi 5. júní með viðhöfn og að viðstöddum þrem hundruðum manna. Baldvin Sigurðsson var í hærra lagi á vöxt og rjettvaxinn, þrekmaður og ljettvigur á yngri árum, fríður sínum og vel farinn í andliti, móeygur, jarpur á hár og skegg og fór hvorttveggja vel. Hárið þykt og sterkt og hjelt hann því óskemdu til dauða- dags, en varð síðast nær hvítur fyrir hærum. Hann var oftast málhreyfur og glaður í viðmóti, málrómurinn hár, en þó viðfeldinn, djarflegur og fyrirmannlegur í framgöngu, örgeðja og hreinn i lund. Guðný í Garði er smá kona vexti, en hin frið- asla sýnum. Hún hefur verið »ljóshærð og ljett undir brún«. Nú er hárið hvítt orðið, en svipurinn er og verður ætíð liinn sami — heiður og hreinn. Augun blá og greindarleg og stöðugt tillitið. Skýr i orði og hugsun og rómurinn hreinn og fagur. — Að öðru leyti verða myndir þær, er hjer fylgja, að lýsa þeim bjónum. Eru þær þó miður gerðar en skyldi, en aðrar voru ekki fyrir hendi. Var Baldvin rúmlega sextugur, en Guðný vel fimtug, er þær voru teknar. Þeim Baldvin og Guðnýju varð alls 6 barna auðið. 3 þeirra dóu á ungum aldri en 3 synir þeirra lifa og eru fulltíða og kvæntir: 1. Jón, trjesmiður í Húsavík. Á Aðalbjörgu Benediktsdóttur frá Auðnum. 2. Sigurður, bóndi í Garði. Kvæntur Mallliildi Halldórsdóttur Kálfa- strönd við Mývaln. Auk þess ólu þau lijón upp Guðrúnu, dótlur Odds, bróður Baldsvin. Hún er kona Guðmundar skálds Friðjónssonar á Sandi. Guðný nýlur nú rórrar elli bjá sonum sínum í Garði. — Nágrannar þeirra Garðshjóna og aðrir þeir, er sáu þau og reyndu, munu lengi minnast þeirra með hlýleik og virðingu. — Slík hjón sem þau þyrftu að vera mörg í hverri sveit lands vors, — en því miður er ekki svo vel. K. V. i€ Sveinn Sveinsson trjesmiður. Fæddur 2. jan. 1846. Dáinn 22. nóv. 1918. Hann var fæddur á Staðarbakka í Miðfirði. Foreldrar hans voru Sveinn prófastur Níelsson og síðari kona hans Guð- rún Jónsdóttir. Barn að aldri íluttist hann með foreldrum sínum að Staðastað og ólst þar upp. Árið 1870 kvæntist hann Kristjönu Agnesi HoíTmann, dótlur HansHofimannsversl- unarm. á Búðum. Hún andaðist árið 1905. Þau eignuðust 4 börn, af þeim lifa 2 dætur, Hanna, gifl Jóni kaup- manni Zoega í Reykja- vík, og Guðrún Metla, gift Sigurði presli Jónssyni í Lundi í Borgarfirði. Ef lýsa ætli til hlítar þessum manni og hans mikla æfistarfi, væri margs að minnast, en það verður eigi gert nema að litlu leyti í þessum fáu minningarorðum. Hann var að mörgu leyti óvenju- lega vel gerður maður og hagnýtti svo vel sína góðu hæfileika. En kunnastur er hann almenningi sem afbragðs starfsmaður, mátti svo heita að flest störf ljeki í

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.