Óðinn - 01.01.1920, Page 35

Óðinn - 01.01.1920, Page 35
ÓÐINN 35 María sál. Hannesdóttir var hin mesta atgervis- kona bæði til sálar og líkama, og hið mesta góð- kvendi; hún dó háöldruð. Pað var gæfa Rögnvalds að hljóta svo góða fóstruna, sem að öllu leyti gekk honum í móður- stað, enda mintist hann þess jafnan með þakklæti. Um fermingarskeið fluttist Rögnvaldur með fóstru sinni yfir i Blönduhlíðina og dvaldist þar upp frá því. Um 1880 gekk hann að eiga Freyju Jóns- dóttur, dóttir síra Jóns Norðmanns á Barði, bjuggu þau bjónin mestan sinn búskap í Rjettarholti. Keypti hann þá jörð og gerði henni mikið til góða, svo að hún ber þess lengi menjar. Því að þótt Rögnvaldur sál. væri enginn auðmaður, þá hafði hann jafnan gagnsamt bú, og veitti því góða for- stöðu. Börn eignuðust þau hjónin 8, dó eitt í æsku, og 3 upp komin, Jón, Katrín, Filippía. Fjórar dætur eru á lífi, Margrjet kona Rorsteins Björns- sonar á Hrólfsstöðum, María kona Gamalíels Sigur- jónssonar í Rjettarholti, Sigríður og Valgerður, heima hjá móður sinni. — Heimilisástæður Rögn- valds sál. voru oft erfiðar, einkum stríddi á hann beilsuleysi barna hans, þeirra sem dóu — þjáðust þau um mörg ár, en alt bar hann það með þessari stöku geðprýði og stilling, sem honum var gefin í ríkum mæli. Á velli var Rögnvaldur ekki mikill fyrir manni að sjá, með lægri meðal- mönnum á vöxt og grannvaxinn, dálítið lotinn í herðum, kvikur á fæti og fríður sýnum. Ennið hátt, augun skýr, blíðleg og brosandi, nefið beint og bros um varir, alskeggjaður, fölleitur. Hendur voru smáar og fætur eins. Yfirleitt mátti furðu sæta hve miklu hann gat afkastað, ekki meiri maður að burðum en hann var, en þar mun mest um hafa valdið stakur áhugi og vinnuhagsýni. Hygg jeg það, að Rögnvaldur hafi fremur búið við veika heilsu alla æfi, þó ekki bæri mikið á, því að hann var ókvartsár maður. Rögnvaldur var af gáfufólki kominn, enda eigi illa í ætt skotið að því leyti. Alment var hann talinn með mestu gáfumönnum hjer. Ekki dáðust menn þó mest að gáfnamagninu, heldur þýðleika og lipurð gáfna hans. Greindin var Ijós, skýr hugsun og gott næmi. Því var líkt farið um hann eins og marga gáfaða alþýðumenn, sem ekki eru til bóka settir, að það var undravert hvernig honum hefði unnist tími til að afla sjer jafnmikils fróðleiks og þekkingar, eins og hann hafði til brunns að bera i flestum almennum málum. Hann var víðlesinn í íslenskum bókmenlum, og kunni manna best að meta, hvað feitt var á stj'kkinum í þeim efnum. Pað var sama um hvað við hann var rætt, um búskap, um pólitík, um skáldskap, um trúmál, alstaðar var hann með og alstaðar áhuginn jafn, alstaðar Ijósir kostir og lestir. Hagmæltur var hann vel og orti talsvert á yngri árum sínum, og var ljett um að kasta fram stöku. Rögnvaldur var barnavinur, og kunni hvergi betur við sig en í hópi æskulýðsins, skemtinn í samkvæmi og hrókur alls fagnaðar. Hófsemdar- maður var hann i hvívetna, en hataði öll ófrelsis- bönd, sætti sig illa við bindindisöfgar og bann- stefnur. Trúmaður var hann, en hallaðist mjög að frjálsum skoðunum í trúarefnum. Vinsæll maður var hann með afbrigðum. Ekki vissi jeg til þess að hann ætti nokkurn óvildar- menn, og tvímælalaust er það, að enginn naut jafn óskoraðs trausts samsveitunga sinna sem hann. Öll veigameiri mál sveitarfjelagsins vóru honutn annaðhvort falin eða hann við þau riðinn. í sýslu- nefnd var hann 30 ár, safnaðarfulltrúi milli 30 og 40 ár, hreppsnefndarmaður og hreppsnefndar- oddviti milli 10 og 20 ár, fræðslunefndarmaður 7 ár. Öll þessi trúnaðarstörf leysti liann vel af hendi og ávann sjer hylli samvinnumanna sinna fyrir viturlegar tillögur og samvinnuþýðleik. Þó Rögn- valdur sál. hefði svona mörgum opinberum störf- um að gegna, vanrækti hann ekki heimili sitt, en var sístarfandi og hugsandi um heill þess og sóma. Heimilið var þungamiðja athafna hans Og umhugsana, og engan blett þótti honuni jafn vænt um og Rjeltarholt, enda mun það jafnan geyma nafn hans. Talið var það eitt af góðu gestrisnu heimilunum, þar sein allir mættu hlý|u. Vjer Akrahreppsmenn hölum m st einn al okk u bestu mönnum, þar sem við mistum Rögmald sál., mann sem hafði verið leiðandi maður sveit- arinnar um 40 ára skeið, góðan mann og afbragðs- vinsælan. Pótt hann væri hniginn að aldri. nær 68 ára, voru andlegu kraftar hans óskertir. Bana- legan var löng og þjáningar miklar, en þá sýndi hann best, hvílíkt andlegt mikilmenni hann var. Bar hann þjáningar sínar með þeirri stillingu og kristilegri þolinmæði, sem fáum er gefin. Þó hann lægi þjáður í rúminu, stjórrrfiði hann heimili sínu, talaði með áhuga um almenn mál við vini sína, sem að garði bar, og augun voru broshýr og skær nálega til hins síðasta. Hann var jarðaður hinn 17. ágúst að viðstöddu óvenju-miklu fjölmenni. B. J.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.