Óðinn - 01.01.1920, Síða 40

Óðinn - 01.01.1920, Síða 40
40 ÓÐINN Steinhljóð — steinhljóð. Hann styður kinn að strengjum, horfir í lönd sín inn, dreymir hann guðsmóður? Drottinn minn! Við grafir krossfara. (Tempel church, London). Sem Dettifoss falli, í fjarska, með friðdjúpum undrasöng, borganna borgar dunur berast um súlnagöng. Ómþungans öldur falla yfir marmararið; hugann í dularheim dreymir við dagstrauma undranið. Hjer hvíla þeir — kross á brjósti, kesja og skjöldur við arm; við sólarheim ungir þeir sóru að sefa ógnir og harm. Úr borg og fjalldal þeir fóru að frelsarans blessuðu gröf, og íluttu friðmál og sættir um framandi lönd og höf. Úúsundir fjellu á foldu fyrir hið góða mál; austrænir geislar kyntu þeim ungum helfararbál. Aðra bylgjurnar báru til baka, með von yfir sorg, frá æfinnar dulardraumi þeir dóu í ættarborg. — Aftaninn liðinn. Hvar erum við? steig Eden til jarðar, með lónafrið? Nú myrkvast höllin og hljóðna svið. Meistari, þokan má þyngja geim, þúsundir sljarna þjer lýsa heim: tár, sem fæddust við himneskan hreim. Skógarkyrð. Eins og ljósálfasnekkjur, sem liggja við strengi, liljur á vatninu hvítar blunda; skuggarnir horfa um akur og engi augum svörtum úr fylgsnum lunda. Alt bíður — bíður í ró eftir brosi mánans í þöglum skóg. — Nú hækkar hafniður dagsins og hitinn, með stígandi sól, en hjer bjóða umliðnar aldir örmæddum frið og skjól. Jeg krýp á marmarann kalda, sem krossfarar táknið ber, — bið um þá dularblessun, sem breiðir vængina hjer. Á heimleið. (í Whitley Bay). Vor og skóga kært jeg kveð, kyssi sandinn ljósa; þakka gefin gull og Ijeð, glóð og angan rósa.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.