Óðinn - 01.07.1920, Síða 22

Óðinn - 01.07.1920, Síða 22
70 ÓÐINN Sárþreytta mannkynsins sál hlýtur frið, sáttmálann, birtuna, vissu um grið. Stjörnurnar birtast sem ljósenglalið lífs um svið. Ljómar í kertisins loggeisla rós: Ljós! »Verði ljós! Verði hjer Ijós! Leitandi þrá, yfir úthöf og ós eilífa kall þitt er: »Meira 1 jós!« Öllum þú gefur þín elskandi jól, öllum þá nýfæddu blessandi sól — Æfintýrsheimum sem hjörtum manna. Hósianna! hljóma þú lætur til allra ranna. Guðsdýrð þín berst yfir býlið við skóg, borgirnar geislar og fjallanna snjó. Inni hjá börnunum unaðinn þó æðstan hún birtir í hátíða-ró, hlustandi’ á brimnið frá hljóðfæra-sjó hljómandi: »In dulci jubilok Endurhljómsvakningin englunum frá: Allelújá! Föður og móður málið þýtt mælir hann hægt af vörum, blítt: »Vak þú minn Jesú, vak í mjer, vaka lát þú mig eins í þjer; sálin vaki þá sofnar líf; sje hún ætíð í þinni hlíf«. Látum oss biðja. Látum oss biðja. Drottinn! Látum oss biðja. Andvarpið hinsta — hvíldin vær himnesku friðarbrosi slær ásjónu fölva yfir hans, sem arfinn geymdi föðurlands. »Bænin má aldrei bresta þig, búin er freisting ýmisleg; þá líf og sál er lúð og þjáð, lykill er hún að drottins náð«. Látum oss biðja. Látum oss biðja. Drottinn! Látum oss biðja. [1914]. * Djúp-þung hvelfist in dimma nótt dag yfir liðinn er hvílist rótt. Berst út í eilífa húmdjúpið hljótt hljómur frá vörum uns röddin dvín: »Hærra, minn guð, til þín, hærra til þin!« Látum oss biðja. (»Ora pro Nobis«). íslenskum ströndum aleinn fjær, öldungur dauða kominn nær, bænir, sem lærði’ hann barns í trú, barn aftur, fram hann segir nú: »Bænin má aldrei bresta þig, búin er freisting ýmisleg; þá líf og sál er lúð og þjáð, lykill er hún að drottins náð«. Látum oss biðja. Látum oss biðja. Drottinn! Látum oss biðja. Geislandi bernsku heimur hýr honum í dauða móti snýr. Sira Jóhannes Lárus Lynge Jóhannsson er fæddur á Hesti í Borgarfirði 14. nóvember 1859. Foreldrar hans voru síra Jóhann Tómasson, síðast prestur í Hestþingum og síðari kona hans Arnbjörg Jóhannesdóttir1). Var síra Jóhann gáfumaður og skáldmæltur vel, en fátækur jafnan. Hann var launson Tómasar stúdents Tómassonar á Slóru- Ásgeirsá í Víðidal (f 1811) og Ásu Gísladóttur. En foreldrar Tómasar stúdents voru: Tómas hrepp- stjóri Guðmundsson á Þóroddsstöðum í Hrútafirði og Guðrún Sveinsdóttir bónda á Óspaksstöðum Sveinssonar, komin af hinni svonefndu Rauð- brotaætt, sem orðinn er afarfjölmennur kynþáttur, sjerstaklega í vesturhluta Húnavatnssýslu og víðar. Hefur Tómas stúdent, er var gáfumaður mikill og fræðimaður, ritað fyrstur manna um ættbálk þennan á 17. og 18. öld, og er sú ættfærsla hin vandaðasta og áreiðanlegasta, enda var Tómas 1) Meðal barna síra Jóhanns aí' fyrra hjónabandi var Valgerður kona Guðmundar Pórðarsonar bæjarfulltrúa á Ilólnum hjer i Reykja- vik. Síra Jóhannes er því móðurbróðir Helga læknis á Sigluflrði og frú Sigþrúðar konu Björns Kristjánssonar fyrrum bankastjóra.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.