Óðinn - 01.01.1922, Blaðsíða 7
OÐINN
7
Konungur afhendir glímuverðlaun á Þingvöllum 30. júní 1921.
Því næst hófst söngurinn á ný. Voru nú sungnir þrír
síðari flokkar konungsljóðanna. Einn söng Pjetur
Jónsson operusöngvari. Haraldur Sigurðsson ljek undir.
Alt Kirkjustræti og mestur hluti Austurvallar var
alþakinn fólki, sem heilsaði konungsfylgdinni, er hún
fór til móttökuhátíðarinnar. Að lokinni ræðu sinni fór
konungur ásamt fjölskyldu sinni út á svalir Alþingis-
hússins og ávarpaði fólkið. Kvað hann sjer það mikið
gleðiefni, að geta nú, eftir margra ára bið, fetað í fót-
spor föður síns og afa og komið í fram-
kvæmd heimsókn sinni til íslands, sem
ákveðin hefði verið fyrir löngu.
KI. 7 um kvöldið hófst veitsla, sem
landið kostaði. Var hún haldin í Iðn-
aðarmannahúsinu og slegið upp skála
til viðbótar sunnan við það. Var háborð
að sunnanverðu og sátu við það kon-
ungshjónin og prinsarnir, en á aðra
hönd þeim forseti sameinaðs Alþingis,
Jóh. jóhannesson bæjarfógeti, og frú
hans, en forsætisráðherra og frú hans
á hina. Það vakti mikla gleði, er kon-
ungur kom inn með drotninguna við
hlið sjer klædda í íslenska skautbún-
inginn. Forseti sameinaðs Alþingis bauð
gestina velkomna. Sagði hann það ein-
róma ósk og von íslensku þjóðarinnar,
að hingaðkoma konungsfjölskyldunnar
og dvöl hennar hjer á landi mætti verða
henni til ánægju og að náttúran gerði
sitt til þess, að svo mætti verða, en
undir því væri mikið komið. Á eftir var
sungið kvæði eftir Hannes S. Blöndal.
Konungur svaraði og óskaði að vinátta
og samstarf mætti eiga sjer stað fram-
vegis milli Islands og Danmerkur. Undir
borðum afhenti konungur forseta sam.
þings minningargjöf til Alþingis, stórt
og vandað skrautker, mjög fagran grip,
og þakkaði forseti gjöfina. Því næst
mælti Sveinn Björnsson sendiherra fyrir
minni Danmerkur, en ]ón biskup Helga-
son fyrir minni Suður-]ótlands sjerstak-
lega.
Næsta morgunn ók konungsfjölskyldan
inn að Elliðaám, og opnaði konungur
þar rafmagnsstöðina, sem þá var full-
gerð. Lýsti borgarstjóri stöðinni og sagði
m. a. að virkjun fossanna væri fram-
tíð íslands, en hjer væri nú gerð fyrsta
byrjunin til þess að nota vatnsaflið til orkugjafa á
okkar landi svo að nokkru næmi. Þegar konungur
kom heim úr þessari för, hjelt hann ríkisráðsfund í
Mentaskólanum og staðfesti yfir 70 lög frá síðasta
Alþingi. Kl. 3 um daginn komu þeir konungur og
krónprinsinn á sameiginlegan fund í Stúdentafjelögum
Reykjavíkur. Formaður Stúdentafjelags Rvíkur, dr.
Alexander Jóhannesson, bauð konung velkominn með
nokkrum orðum, en á eftir var sungið kvæði eftir
Konungur kemur fram á svalir Alþingishússins eftir móttökuhátíðina og ávarpar
þaðan fólkið, er fyllir götuna þar fyrir framan og Austurvöll.