Óðinn - 01.01.1936, Síða 63

Óðinn - 01.01.1936, Síða 63
Ó Ð I N N 63 ekki var eftir gefið, að vinna heimilinu inn alt, sem unt var. — Að þeirri mentun, sem Bjarni naut í Flensborgarskóla, hefur honum notast vel. Stundaði hann barnakenslu um nokkur ár, og veitti jafnframt piltum tilsögn í ensku o. fl. námsgreinum; ætla jeg, að honum veitist enn ljett að tala og rita sæmilega enska tungu; hann mun og geta fleytt sjer nokkuð í þýsku. Fjekk hann nokkra æfingu í að tala ensku, er hann reri hjá Þorbirni frá Nesi í Selvogi, en hann sótti oft afla í enska togara, eins og alsiða var á þeim árum; var Bjarni þá jafnan »túlkurinn«. — Heyrt hef jeg þá sögu, að þýskan ferðalang hafi borið að garði hjá Bjarna, og undraðist ferðamaður- inn að hitta fyrir bónda svo langt upp í sveit, sem bæði talaði ensku og þýsku, og var vel heima á fleiri sviðum. Verslunarmál hefur Bjarni nokkuð fengist við. Var hann um skeið starfsmaður við kaupfjelagið »Hekla« á Eyrarbakka. Þar, sem annarstaðar, komu hæfileikar hans skýrt í ljós: trúmenska, lipurð og áreiðanleiki; og er Kristján Jóhannesson kaupfjelagsstjóri fjell frá, mun Bjarni fyllilega hafa komið til greina sem eftir- maður hans. En hann hafnaði boðinu, »moldin kallaði* hann til starfa aftur að Meiri-Tungu. Þar var blettur- inn, sem hann unni. Þegar stofnaður var »Sparisjóður Holta- og Asa- hrepps*, var Bjarni þar aðal-hvatamaður, ásamt sjera Ólafi heitnum Finnssyni í Kálfholti, og var lengi í stjórn hans. I stofnun kaupfjelags við Rauðalæk átti Bjarni og góðan þátt. í stjórnmálum hafa þeir Meiri-Tungu-bræður lítinn þátt tekið opinberlega, en slíkt þykja ekki meðmæli með mönnum nú á tímurn. Er þar máske að finna skýringuna á því, hve lítið þeir eru þektir utan síns hjeraðs. Það er þó ekki sökum þess, að þeir hafi ekki dómgreind til jafns við ýmsa þá menn, er við stjórnmál fást, heldur mun hift valda afskiftaleysi þeirra um þau mál, að þeim mun hafa fundist vopnin, sem stjórnmálaflokkarnir berjast með, ekki ávalt svo skygð, sem æskilegt væri. Ef til vill hafa þeir líka verið of frjálslyndir til þess, að vilja láta »stimpla« sig með flokks-merki eða bindast flokksböndum, enda hafa þeir ekki hlotið nein pólitísk bein eða bitlinga. Við erum mis-aðlaðandi mennirnir; heimilin engu síður. Meiri-Tungu-heimilin eru mjög aðlaðandi. Þar er sem andi á móti gestinum hlýju og vingjarnleik. Þar líður manni strax vel eftir fyrsta handtak hús- bændanna. Þaðan fer gesturinn hress og glaður, eftir hlýtt og glaðlegt viðmót, og eiga þar bæði heimili þeirra hjóna óskilið mál. G. Æfiminning. Hinn 29. jan. síðastliðinn andaðist merkiskonan Guðrún í Vtra-Vallholti. Hún var fædd í Djúpadal 22. febr. 1848, og skorti því fæpan mánuð á 88. aldursár. Móðir Guðrúnar var Hólmfríður Jónsdóttir bónda Einarssonar, frá Flatatungu, Sveins- sonar prests í Goð- dölum (d. 1757), Pálssonar prestsþar. En faðir hennar var Eiríkur hreppstjóri (d. 4. des. 1872) Eiríksson prests á Staðarbakka (d. 27. febr. 1843) Bjarna- sonar, Eiríkssonar (Mera-Eiríks) Bjarnasonar, og höfðu þeir feðgar, hver fram af öðrum, búið í Djúpadal. Guðrún ólst upp í Djúpadal hjá for- eldrum sínum, og var snemma vanin við vinnu, sem þá var títt. Ekki var hún nema á 12. árinu, er hún var látin fylgja ánum, og voru þær þó margar, sem fært var frá, því faðir hennar bjó stórbúi. Voru ærnar hafðar í seli fram á dalnum, og var hún drifin á fætur kl. 5—6 á morgnana til ánna. Sagðist hún oft hafa mátt ganga mikið áður en hún var búin að hafa þær sam- an, og ekki ætíð sem best klædd að skófötum. En til þess var snemma tekið, hve hún var fádæma skörp, unglingurinn. Gekk þetta fram yfir fermingaraldur. Eftir að Valgerður systir hennar giftist og þau hjón fóru að búa í Djúpadal, var Guðrún í selinu með systur sinni á sumrum. En er hún þroskaðist, vildi systir hennar ekki taka hana til þess frá hrifunni. Því hún var með afbrigðum dugleg við heyvinnu. Guðrún var hjá systur sinni uns hún giftist Guð- mundi (f. 15. febr. 1838) Sigurðssyni frá Miðgrund. Guðmundur var alinn upp í sárri fátækt, og komið í dvöl á 8. ári. Atti hann oft við slæma líðan að búa á þeim árum, fram yfir fermingu. Laust fyrir lvífugs- aldur fór hann með Vilhjálmi Oddsen söðlasmið frá Húsey austur að Hofi í Vopnafirði og var hjá hon- um í 4 ár og nam þar söðlasmíði. Leið honum þar ágætlega. Eftir það fór hann aftur vestur í átthagana.og Guðníti Eiríksdóitir ®»®
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.