Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 15.09.1906, Blaðsíða 1

Reykjavík - 15.09.1906, Blaðsíða 1
e y> fc í a v í k. VII. 40 Útbreiddasta blað landsins. Upplag yfir 3000. Laugardaginn 15. September 1906. :rifendur í b æ n u m yfir 900. VII., 40, m FÆST 1 THOMSENS MACASfW, 4 ttlia Og íavblar ælar Kristján Þorgrimsson. Ofnajr og eldavélar „EDINBORG". $tur er kolaskip komið. Pegar vér auglýsum, að hver skiftavinur fái full 320 dönsk pund í skippundinu, þá er það ekki af því að neinum hafi dottið í hug að véfengjavigt vora, heldur af því, að sumir hafa spurt oss,hvort vér vægjum iíka pokana með. Það gerum vér ekki, og þurfum því ekki að geta þess, hvort þeir sé þungir eða léttir. Dálítið af Cokes er enn ópantað. Verzl. Edinborg*. oooooooooooooooooooooooooooooooooc c/luglýsing um að sýslanirnar sem skólastjórar við ina fyrirltuguðu bændaskóla séu lausar, og um rekstur skólabúanna. í næstkomandi fardögum verða settir á stofn samkvæmt lögum nr. 48 frá 10. nóvbr. 1905 tveir bændaskólar, annar á Hólum í Hjaltadal og hinn á Hvanneyri f Borgarfirði. Umsóknir um sýslanirnar sem skólastjórar við hvorn af skólum þess- um verða að vera komnar til stjórnarráðsins fyrir 1. desbr. næstkomandi. Laun skólastjóra eru 1500 kr. á ári og leigulaus bústaður í skóia- húsinu. Hver sem sækir um skólastjórasýslanina, verður að taka það fram í umsókn sinni, hvort hann vilji takast á hendur að reka fyrir eigin reikn- ing hæfilega stórt bú á skólajörðinni. Aðrir, sem kynnu að óska að reka fyrir eigin reikning bú handa skólunum á jörðum þessum, verða að hafa sent tilboð um það til stjórn- arráðsins einnig fyrir 1. desbr. þ. á. Stjórnarrád Islands, 7. seftbr. 1906. Átvinnu geta duglegir drengir og stúlkur fengið frá 1. Okt. við að selja daglega (virka daga) dagblaðið »Reykjavík.« — Stöðug, dagleg ársatvinna fyrir þá sem dugur er í. — Lysthafar snúi sér sem fyrst til afgreiðslunnar. „REYKJAVÍK“ Árg. [60—70 tbl.] kostar innanlands 1 kr.; erlendis kr. 1,60—2 8h.—60 cts. Borgist fyrir 1. .Túlí. Auglýsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,26; á 2. bls. 1,16; á 3. og 4. bls. 1,00 [á fastákveðnum stað á 3. og 4. bls. 1,15]. — Útl. augl. 33*/s*/o hærra. — Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst. Útgef.: Hlutafélagið „Reykjavík“. Ritstjóri, afgreiðslumaður og gjaldkeri: «J6n Ólttísson. Afgreiðsla Laufásvegi 5, kjallaranum. Ritatjórn: ---„ stofunni. Telefónari 29 ritstjóri og afgreiðsla. 71 prentsmiðjan. Hagskýrslur landsstjórnarinnar, —0 — II. Eitt átakanlegt dæmi þess, hve óábyggilegar og meinvitlausar sumar skýrslur þessar eru, má sjá í verzl- unarskýrslnaheftinu af Landshags- skýrslum ný-útkomnum, töflunni G, skýrslu um skipakomur 1904, bls. 97. Þar segir, að til Reykjavíkur hafi það ár komið 67 gufuskip, samtals 23,276 tons, og 16 seglskip, samtals 1046 tons. Þeim sem slíkar skýrslur semja og gefa út, kemur auðsjáanlega aldrei til hugar að hugsa, skygnast á bak við dauðu tölustafina og hugleiða, hvað þeir eiga að tákna, hverju þeir lýsa. Annars hlytu þeir að sjá, að þetta er hringlandi endileysa, sem tii einskis er að vera að skrifa upp, því síður eyða pappír og prentsvertu tii að gefa út. Ef vér deilum tonnatölu eimskipanna (23,276) með tölu eim- skipanna (67), þá sjáum vér, að eim- skipin hafa átt að vera að meðaltali 3472/5 tons, þau er til Rvíkur komu. Þetta nær engri átt. Vafalaust má vel telja á fingrum sínum (ef ekki á fingrum annarar handar) þau eim- skip, er hingað koma svona smá. Ailur hávaðinn er stærri, flest miklu stærri. Auk þess er hér varla talinn meira en helmingur skipanna. „Hólar" og „Skálholt" hafa t. d. komið hvort um sig 1 sinn frá útlöndum (=2 skip), og bæði til samans 13 sinnum úr strandferð frá Akureyri (13 + 2 = 15). Þessi tvö skip gera þannig 15 skip. Og ef öll skip samein. fél., sem koma beint frá út- löndum, eða kring um land, eða vest- an af ísafirði, eða úr Hafnarfirði eða af Akranesi, sem þau oftast fara héð- an á (annan eða báða staðina) eru öll talin, aðalferðir og aukaskip, í hvert sinn, eins og vera ber, skyldi þá ekki vera farið að saxast upp í þessi 67 eimskip, sem embættis- skýrslan telur? Og hvað verður þá eftir fyrir Thore-fél.-skipunum, sem líka eiga að teljast í hvert sinn, eða „Reykjavíkinni", sem alt af er á skjöktinu, og öllum öðrum skipum, „ísafold", hrossaskipum, kolaskipum og öðrum vöruskipum? Sér ekki hver maður, hve fjarri allri átt og einskis nýtar að slíkar skýrslur eru? Eins að sínu leyti mun skýrslan reynast um seglskipin. Hún telur þau það ár hafa komið hingað ein 16, samtais 1046 tons, eða 65s/8 tons hvert. Smærstu seglskipin, sem hingað koma, eru kúttararnir, sem keyptir eru frá Bretlandi. En sárfáir þeirra munu svona smáir, því síður smærri. Auk þess munu þeir alls ekki taldir hér með, fremur en fiskiskipin; heldur munu hér að eins talin farmskip ein. En flest þau farmskip, er hingað koma, eru svo stór að hundruðum tonna skiftir hvert um sig (timbur- skip, alm. vöruskip). Að seglskipin öll, sem hingað koma, séu að eins 653/8 tons hvert að meðaltali, nær því engri átt. Það má sjálfsagt tvö- falda, þrefalda eða fjórfalda þá tölu. Lögreglustjórarnir, sem eiga að semja aðrar eins skýrslur og þessar, hljóta að kasta alveg höndum til þeirra (e/ þær eru svona frá þeirra hendi), þar sem þær bersýnilega ná engri átt; og stjórnarráðsskrifstofan, sem hér á hlut að máli, hlýtur að nota einhverja skynlausa samlagn- ingar-vél, en ekki hugsandi mann, til að semja og gefa út þessa endi- leysu. Annars hlyti hún að sjá, hve vitlausar frumskýrslurnar eru, og mundi þá senda höfundum þeirra þær heim aftur og halda þeim til að gera bragarbót. En í þess stað fer hún að semja og gefa út vísdómslegt hugleiðinga- fimbulfamb og samanburð á ’sigling- um fyrrum og nú, skipa og tonna tölu, fimbulfamb, sem ásamt skýrsl- unum er ekki virði eins pennadropa af bleki. Annaðhvort ætti landsstjórnin að gera gangskör að þvi, að slíkar skýrsl- ur sé svo rétt og nákvæmt gerðar, sem kostur er á, eða hætta alveg við að safna þeim. Hitt er óverjandi meðferð á fé landssjóðs, að verja því til prentunar, pappírs og ritlauna fyrir annan eins staðleysu-þvætting, sem að eins er til spotts og athlægis öilum, sem vit hafa á, en skapraunar einnar hinum öllum, er þurfa að afla sér þeirrar vitneskju, sem í skýrslunum ætti að mega finna, en finst þar álls ekki. Alt þetta, sem vér höfum fundið hér að hagskýrslum stjórnarinnar, með hlífðarlausuro orðum, er svo sem ekkert nýtt. Hirðulausri vanafestu og hugsunarleysi er einatt hætt við að fá hefð á sig með árunum á öll- um stjórnarskrifstofum. Með því getum vér afsakað vora íslenzku mandarína, og ritum því ekki þetta svo mjög til að sakast um orðinn hlut, eins og til að reyna að stuðla til þess, að bót verði á þessu ráðin

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.