Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 09.02.1907, Blaðsíða 2

Reykjavík - 09.02.1907, Blaðsíða 2
30 REYKJAVIK sá maður, sem ætlar Dönum slíka varmensku, bæri til þeirra þungan hug. En höf. tekur það fram, að svo sé ekki. „Langt er frá því“, segir hann, „að þetta sé talað af nokkuru Dana- hatri, og því síður til að æsa það upp hjá öðrum“. En þau verk hafa oft verstar afleið- ingar, er menn þykjast gera í góðum tílgangi, og hér varðar það mestu, að trauðla getur nokkur sannur íslend- ingur lagt fullan trúnað á það, sem höf. segir um Dani, svo að ekki vakni um leið hatur til þeirra í hjarta hans. Hvernig getur hann annað en hatað Dani, ef hann sannfærist um, að þeir sitji á svikráðum við ísland? En það segir ritstj. Breiðablika afdráttarlaust, með ofangreindum orðum. Hann gerir fyililega ráð fyrir því, að Danir sé blóðsugur, er með fleðu- látum leiti lags að festa sig svo á inn íslenzka þjóðlíkama, að þeir megi sjúga úr honum hvern blóðdropa. En — „fyrir danskri menning og ágætum þjóðarkostum höfum vér einlæga lotn- ing“, segir haníl. Engum mun tjá að véfengja það, að maðurinn segi þetta i hjartans ein- lagni, og telji það málstað sínum mjög til gildis. — Hann um það. — En hitt má óhætt fullyrða, að sannir Islend- ingar munu fáir vera þann veg skapi farnir. Nokkur vorkunn er höf. að visu, þó hann geti ins versta til um Dani. Þeir hafa áður reynst íslandi illa, og má því enn ills af þeim vænta, ef þeir hafa ekki breytzt til ins betra. En það Iætur hann sér ekki nægja, heldur segir hann enn fremur: „í vorum huga er það vafasamt mjög, hvort nokkur þjóð önnur myndi betur reynast. Hlut- skifti íslands myndi líkt þessu verða, hvaða þjóð sem í hlut ætti“. Að ætla sér að telja mönuum trú um, að t. d. Englendingar, ef þeir hefðu ísland til yfirráða, mundu setjast að öllum auðsuppsprettum og atvinnu- vegum íslendinga og bola þeim út, svo að þeir yrðu að leggja árar í bát, það virðist oss undarlegt tiltæki, þó það væri ekki gert af manni, sem bú- settur er í enskri lýðlendu og hlýtur því að hafa náin kynni af því, hvem- ig Englendingar breyta við þau lönd, er þeim lúta, og segir sjálfur að þeir láti „Kanada naumast vita af öðru en það só sjálfstætt og óháð land“. „í hættu fyrir yfirgangi annara þjóða myndi ísland (þegar það er sjálfstætt orðið) eigi verða héeti fremur en nú“, segir hann. „Verndin, er Danir láta í té, er sama sem engin. Eitt herskip ættu íslendingar að geta eignast" o. s. fr. f*etta eina herskip ætlast hann auð- sjáanlega til, að sé af skárra tæi, þvi að hann nefnir engar aðrar landvarnir, en gerir þó ráð fyrir að þjóðin geti „borið hönd fyrir höfuð sér og haldið uppi rétti sínum, án þess að þurfa að sækja til annara“. Og það telur hann „frumskilyrðiandlegssjálfstæðis". Þetta er ið eina skilyrði þess, að þjóðin geti verið sjálfstæð, sem nefnt er í allri greininni. — Þetta eina herskip! (Niðurl.) Heimsendanna milii. Bretland-írland. Um mörg ár befir stjórnarbann Jegið á því, að menn •-------------------------------» ÚRSMÍBl-VINNUSTOFA. Vönduð Úr og Hlukkur, Bankastræti 12. Helgi Hannesson. mættu bera vopn í írlandi, nema með sérstöku leyfi. Þetta kom af ótta Breta við uppreisn og spellvirki. Irar hafa jafnan unað þessu afarilla, ekki fyrir það, að þeir væru svo uppreistarfúsir eða sakir þess að þeim yrði nein vand- ræði úr að gera spellvirki þegar þá langaði til; það hefir þeim oft tekist; heldur af því að þeim þótti þetta móð- gun og tortryggni við þjóðina í heild sinni, að þeir skyldu gerðir í þessu að undantekning frá öðrum brezkum þegnum. Nú hefir brezka stjórnin numið bann þetta úr gildi, og mælist það vel fyrir með írum. Símskeyti til Blaðskeytasamlagsins f„Austri“, „Frækorn11, „Reykjavík“). Kaupm.höfn, 8. Febr., 9,3 árd. Rúsland. Fangelsin í Póllandi eru svo full orðin, að til vandræða horfir, og þvi hefir landsstjóri afráðið að rann- saka nákvæmlega mánaðarlega, hvern- ig á stendur hverjum fanga, sem í Yarðhald hefir verið settur án dóms og laga. í Odessa eru friðsamir borgarmenn margir myrtir um bjarta daga á stræt- um úti eftir undirlagi stjórnarinnar, og er sá tilgangurinn með þessu hátta- lagi, að skjóta kjósendum af andstæð- ingaflokki stjórnarinnar svo miklum skelk í bringu, að þeir þori ekki að mæta á kjörfundi, er kosið verður til dúmunnar [19. þ. m.]. Danmörk. Skáldkonan frú Jenny Blicher-Clausen er látin. Þýzkaland. Nú er aðalkosningum og endurkosningum lokið, og hafa sósíalistar alls mist 36 þingsæti, er aðrir flokkar hafa frá þeim náð. í Berlín hefir manngrúi flutt keisara og Bulow dýrlegustu fagnaðar-kveðjur. — Ríkiskanzlarinn boðar frumvarp um aukinn kostnað til hers og flota og hækkun skatta. Dagbók. 4. Febr. Lækna-prófs síðari hluta hafa þeir okið Halldór Stefánsson og Sigurmund- ur Sigurðsson, báðir með 2. eink. Háskóla-próf. Fullnaðarpróf í lœkni- frœði tók í f. m. Sigurður Jónsson (Eyrarbakka) með góðri 2. eink. — Fyrri hlut prófs í lógum: Magnús Ouð- mnndsson (Húnav.sýslu) með góðri 1. eink. og Sveinn Bjórnsson (ritstjóra) með 2. eink. — Málfrœði-prófs fyrri hluta (enska aðalgrein): Sigurður Sig- tryggsson, Reykjavík, með 1. eink. Morðið. Morðinginn Bjerkan er Norðmaður, en ekki Svíi; hann hafði og aldrei unnið á dráttbrautinni hér. Drukknir höfðu þeir báðir verið Bjerkan og Christiansen. Bjerkan þykist ekk- ert muna og ekkert vita hvað fram hafi farið. Ekki sá þó á honum í göngulagi, þá er hann gekk með lög- regluþjónunum upp í fangahúsið. Nokk- rir aðrir Norðmenn vóru við, er mað- urinn var drepinn. Sátu þeir að brenni- vínsdrykkju í herbergi i Sáluhjálpar- hers kastalanum. Mannalát. 26. f. m. Pétur Þor- steinsson á Grund í Skorradal, fyrv. hreppstjóri og sýslunefndarm., mesti sæmdarmaður og dugnaðarmaður. — — 22. f. m. Einar Einarsson á Ós- koti í Mosfellssveit. Botnvörpung, 6 ára gamalt skip, hafa þeir nú keypt í Englandi Jes Zimsen konsúll og fleiri menn í félagi með honum. Hjalti skipstj. Jónsson (einn eigandinn) er væntanlegur á skip- inu hingað undir mánaðamótin. Veðurathuganir eftir Knud Zimsen. Febr. 1907 Loftvog ; millim. j d. p Pc *o si t-i 3 *o o > C3 -*-> 'OS u *o <v > Fd. 1. 7 757.5 2.5 sv 9 Skýjað 1 757.8 f- 1.0 sv 8 Alsk. 4 756.9 f- 1.5 sv 5 Alsk. 10 744 4 2.8 NA 6 Snjór Júd. 2. 7 739.5 f- 1.0 V 1 Hálfsk. 1 745.6 0.6 NV 3 Skýjað 4 745.3 r- 0.8 A 3 Alsk. 10 742.2 0.2 ANA 2 Snjór Sd. 3. 7 744.3 3.6 NV 6 Snjór 1 747.2 f- 4.0 V 5 Alsk. 4 748.8 =- 4.5 sv 6 Skýjað 10 754.9 r- 7 2 vsv 6 Hálfsk. Md. 4. 7 759.7 6.6 VNV 3 Skýjað 1 762.7 r- 6 6 A 1 Snjór 4 76).4 8.4 A 7 Alsk. 10 754.4 r- 2.4 ANA 5 Alsk. Þd. 5. 7 747.4 3.9 SA 5 Alsk. 1 745.8 3.0 Logn 0 Skýjað 4 745.2 1.6 ssv 4 Alsk. 10 745.1 05 ssv 6 Hálfsk. Mvd. 6. 7 743.7 - 2.0 ASA 3 Smásk. 1 743.0 - 1.4 sv 3 Hálfsk. 4 743.2 - 2.4 sv 4 Alsk. 10 744.0 - 5.5 A 1 Hálfsk. Fmd. 7. 7 748.5 - 3.8 ANA 1 Skýjað 1 744.9 - 3.9 Logn 0 Smásk. 4 745.8 - 3.9 Logn 0 Skýjað 10 747.4 - 8.5 Logn 0 Sk laust Arðvænlegt fyrirtæki. * Kaupmaður kér í bænum vill nú þegar selja einum eða fleirum helming verzlunar sinnar, sömuleiðis helming verzlunarhúsa. Verzlunin heflr að allra dómi mjög gott orð á sér, og er ef vel er á haldið i miklum uppgangi. Um verzlunarhúsin er það að segja, að þau eru án nokkurs efa á allra bezta stað í bæn- um og seljast þó fleirum þúsundum króna undir þvi verði, sem þau nú eru (eigi þarf einn eyri í þeim að borga næsta l1/^ ár). Vörubirgðir nú ca. 50,000 kr.; fastir viðskifta- menn ca 400; ágæt sambönd við ensk, þýsk og dönsk verzlunarhús og verksmiðjur. ör- fá þúsund krónur út að borga. Ættu því þeir sem 1000 kr. og þar yfir vilja leggja, að send tílboð i lokuðu umslagi, mrk. „Busi- ness“ til ritstj. þessa blaðs, og mun seljandi þá heimsækja þann og skýra nákvæmlega frá öllu. Ef einhver vill taka ungan pilt, sem er við nám, ti) að segja til börnum, snúi sér til Jóhannesar Stcfdnssonar, Smiðjustíg 6. Budda týnd frá Bakaríinu á Bræðraborg- arstíg niður Brunnstíg að Nýlendugötu 13. Skilist á Nýlendugötu 13. Skemtun heldur „Hring-urinn** í Good- templarahúsinu á Fimtudaginn 14. þ. m. Sjónleika o. fl. Til ágóða fyrlr berklaveika. Nánar á götuauglýsingum. I Bakkabúð er Margarínió, sem flestir kaupa. Þar er kæf'a og ostur, þarer uijólk frá Engey. Þar eru epli og appel« sínur. — Mikið úrval af leirtaui, og emailleraðar mjög góðar steinolíumask- ínur. Skótauíd nýkomið, rnikið úr- val, hvergi eins ódýrt í bænum. Þar eru til sokkar, nærföt, sjöl, fín svuntu- tau og ýmsar fleyri tegundir af ódýr- um tauum. Skoðið úrvalið og spyrjið um verðið. tJr og klukkur, að eins frá vönduðum verksmiðjum. Hvergi ódýrara eftir gæðum. J»I HEKHIANM§§»W, Hverfisgötu 6. Til leigu óskast, frá 14. Maí næstkomandi 4 herbergi, eldhús og geymslurúm, helzt á 1. gólfi. Ritstjóri ávísar. Sjóstigvéi »8 götustigvél af vönduðustu gerð fást Yesturgötu 24. Gunnar H. Yigfússon. Leikfélag Reykjavíkur. SlerlBcí lolies verður leikinn Nuuiiud. lO. í'ebr. kl. § síðd. Tekið á móti pöntunum í afgreiðslu ísafoldar. Ekkert eldhús ætti að vera án okkar góða emailleraða varnings. Meira og betra úrval en ann- arstaðar, sömuleiðis feiknin öll af alls konar íns d íngi. Þá má eigi gleyma okkar stóra úrvali af Járnvörum & byggingarefnum. 3000 króna virði i viðbót af ágætis M sem án nokkurs efa eru þau beztu á þessu landi, en seljast eins og alt annað stórkostlega óðýrt. C. L. Lfaon d Co. Laugaveg 1. [-12 Kr. Knudsen, Skibsmægler. Christianssand S., Norge. Við undirskrifaðar tökum að okkur alls konar kjólasaum og barnaföt. Þingholtsstræti 24. lAatrm duðbrandsdóttir. Gruðfinna Einarsdóttir. Fundin zinkhvítudós á götunni. Vitja má á HveríÍ8götu 6 ' Regnhlíf tapaðist á Laugardaginn í Iðn- mannahikinu. Skilist í Báruhús. Nordisk Handelskalender omfattende N’orge, Danmark, Sverige udkommer i Foraaret 1097. Ethvert Firma (Haudel, Haandværk. Industri etc.) bliver gratis optaget i Kalenderen, naar Meddelelse herom snar- est indsendes til Redaktionskontoret, Kronprinsessegade 34, Kebenhavn K. Onskes Firmaets Navn fremhævet med fed Skrift, maa 2'Kr. samtidig indsendes. Vilhelm Prior kgl. Hofboghandel. Kobenhavn K

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.