Reykjavík - 14.05.1908, Side 1
1R e y> fc 1 a v í k.
IX, 20
Útbreiddasta blað landsins.
Upplag yfir 3000.
Fimtudag 14. Maí 1908
Áskrifendur
yfip
í b se n u m
IOOO.
IX, 20
ALT FÆST í THOMSENS MAGASÍNI.
4sr^^^<^^iMmmsmuimmmmMmimrmmtmmBBmmammmmmmmmmmmKmmmmBBmmmmmmmmm^maBmmBBai
< <><£ <7*1(1MVlíll' selur Kristján Þorgrimsson.
„REYKJAYÍK"
Árg. [minnst 60 tbl.] kostar innanlands 2 kr.; orlnndia
kr. 3,00—3 sh.— 1 áoll. Borgist fyrir 1. .Túlí. Klla 3 kr.
Auglýaingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,60;
I. «g 4. bls. 1,26 — Útl. augl. 33*/»#/o hwrra. —
Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst.
Útgef.: Hlutafélagið „Reykjavík“.
RitstjAri, afgreiðslumaður og gjaldkeri
Magnús 13. JEHönd.a.1
Pingholtsstræti 23. Talsími 61.
Ritstj. er áreiðanl. að hitta heima
á Tirkum dögum
kl. 12—1 og 4—5 sídd.
Peir kaupendur „Reykja-
vikur“ sem skifla um bústað
nú um krossmessuna, eru
bednir að tilkynna það sem
allra fyrst d skrifstofu blaðs-
ins i Þingholtsstræti Nr. 23.
Skrifstofa og afgreiðsla „Ryíkur“
er fiutt í
Þingholtsstræti Jú 23.
U ppkast
að lögum 11 in
I. ísland er frjálst og sjálfstætt land, er eigi verður af hendi látið.*)
Það er í sambandi við Danmörku um einn og sama konung og
þau mál, er báðir aðilar hafa orðið ásáttir um að telja sameiginleg
í lögum þessum. Danmörk og ísland eru þvi i ríkjasambandi, er
nefnist veldi Danakonungs. í heiti konungs komi eptir orðið Dan-
merkur — og íslands.
II. Skipun sú er gildir í Danmörku um ríkiserfðir, rétt konungs til að
hafa stjórn á hendi í öðrum löndum, trúarbrögð konungs, mynd-
ugleika hans og um ríkisstjórn, er konungur er ófullveðja, sjúkur
eða fjarstaddur, svo og um það, er konungdómurinn er laus og eng-
inn ríkisarfi til, skal einnig gilda, að því er til íslands kemur.
III. Þessi eru sameiginleg mál Danmerkur og Islands.
1. Konungsmata, borðfé ættinanna konungs og önnur gjöld til
konungsættarinnar.
2. Utanríkismálefni. Enginn þjóðarsamningur er snertir ísland
sérstaklega, skal þó gilda fyrir ísland nema rétt stjórnarvöld
íslenzk samþykki.
3. Hervarnir á sjó og landi ásamt gunnfána samanb. þó 57. gr.
stjórnarskrárinnar 5. jan. 1874.
4. Gæzla fiskiveiðaréttar þegnanna. að óskertum rétti íslands til
að auka eftirlit með fiskiveiðum við ísland eftir samkomulagi
við Danmörku.
5. Fæðingarréttur. Löggjafarvald hvors lands um sig getur þó veitt
fæðingarrétt með lögum og nær hann þá til beggja landa.
6. Peningaslátta.
7. Hæstiréttur. Þegar gjörð verður breyting á dómaskipun lands-
ins getur löggjafarvald íslands þá sett á stofn innanlands æðsta
dóm í íslenzkum málum, meðan sú breyting er eigi gjörð, skal
þess gætt, er sæti losnar í hæstarétti, að skipaður sé þar mað-
ur, er hafi sérþekkingu á íslenzkri löggjöf og kunnugur sé ís-
lenzkum högum.
8. Kaupfáninn út á við.
IV. Öðrum málefnum sem taka bæði til Danmerkur og íslands,
svo sem póstsambandið og ritsímasambandið milli landanna ráða
dönsk og islenzk stjórnarvöld í sameiningu, sé um löggjafarmál að
ræða, þá gera löggjafarvöld beggja landa út um málið.
V. Danir og íslendingar á íslandi og íslendingar og Danir í Danmörku
njóta fulls jafnréttis, þó skulu forréttindi islenzkra námsmanna til
hlunninda við Kaupm.h. háskóla óbreytt, svo skulu og heimilis-
fastir íslendingar á íslandi hér eftir, sem hingað til, vera undan
þegnir herþjónustu á sjó og landi. — Um fiskiveiðar í landhelgi
við Danmörku og ísland skulu Danir og íslendingar jafnréttháir
meðan 4. atriði 3. gr. er í gildi.
VI. Þangað til öðruvísi verður ákveðið með lögum, er ríkisþing og al-
þingi setja og konungur staðfestir, fara dönsk stjórnarvöld einnig
fyrir hönd íslands með mál þau, sem eru sameiginleg samkv. 3.
gr„ að öðru leyti ræður hvort landið að fullu öllum sínum málum.
VII. Meðan ísland tekur engan þátt í meðferð hinna sameiginlegu mála,
tekur það heldur engan þátt í kostnaði við þau. Þó leggur ís-
land fé á konungsborð og til borðfjár konungsættmenna hlutfalls-
lega eftir tekjum Danmerkur og íslands. Framlög þessi skulu á-
kveðin fyrirfram um 10 ár í senn með konungsúrskurði, er for-
sætisráherra Dana og ráðherra íslands skrifa undir. Ríkissjóður Dan-
merkur greiðir landssjóði íslands, eitt skifti fyrir öll, 1,500,000 kr.
og eru þá jafnframt öll skuldaskifti sem verið hafa að undanförnu
milli Danmerkur og íslands fullkomlega á enda kljáð.
VIII. Nú rís ágreiningur um hvort málefni sé sameiginleg eða eigi, og
skulu þá stjórnir beggja landanna reyna að jafna hann með sér,
takist það eigi skal ieggja málið í gjörð til fullnaðarúrslita. Gjörð-
ardóminn skipa Qórir menn, er konungur kveður til, tvo eftir til-
lögu ríkisþingsins (sinn úr hvorri þingdeild) og tvo eftir tillögu
Alþingis. Gjörðamennirnir velja sjálfir oddamann. Verði gjörða-
menn ekki á eitt sáttir um kosningu oddamannsins, er dómsfor-
seti hæstaréttar sjálfkjörinn oddamaður.
IX. Ríkisþing og Alþingi geta hvort um sig krafist endurskoðunar á
lögum þessum þegar liðin eru 25 ár frá því er lögin ganga í gildi.
Leiði endurskoðunin ekki lil nýs sáttmála innan þriggja ára frá
því, er endurskoðunar var krafist, iná heiinta endurskoðun af nýju
á sama hátt og áður að 5 árum liðnum frá því nefndur 3 ára
frestur er á enda. Nú tekst ekki að koma á samkomulagi meðal
löggjafarvalda beggja landa innan tveggja ára frá því endurskoðun-
ar var krafist í annað sinn, og ákveður konungur þá með tveggja
ára fyrirvara, eftir tillögu um það frá Ríkisþingi eða Alþingi, að
sambandinu um sameiginleg mál þau er ræðir uin í 4., 5. 6. og
8. tölulið 3. gr. skuli vera slitið að nokkru eða öllu leyti.
Úr ncfndaráliti:
Island er stillet ved Siden af Danmark som en særlig Stat.
Island udöver udelukkende Raadighed over alle sine övrige Anliggender,
deriblandt Sagernes Foretagelse for Kongen samt de islandske Ministers
Udnævnelsesmaáde.
Á íslenzku:
ísland er sérstakt ríki við hlið Danmerkur.
ísland hefir fullveldi í öllum öðrum málum sínum ineðal ann-
ars um það, hvernig málin eru borin upp fyrir konungi og livernig ís-
lenzkir ráðherrar skulu skipaðir.
*) Samhljóða ákvæði stendur í grundvallarlögum Norðmanna, sem
talin eru einhver beztu og frjálslyndustu stjórnarlög sem til eru.
Þelta nefndarálit ATar símað hingað í dag kl. 2.