Reykjavík - 16.10.1909, Side 2
196
REYRJAVIK
Vinnustofur
eru ffluttar í
Bankastræti 7,
og fást þar margs-
konar liiisgögii.
Sömuleiðis eru
■nynclir seltar í
ramma.
Nýi kvennaskólinn.
Hann var vígður 6. þ. m. og voru
þar viðstaddir svo margir boðnir gestir
sem inni gátu rúmast.
Forstöðukona skóians frk. Ingibjörg
Bjarnason afhjúpaði fyrst mynd af
frú Thoru Melsted og ávarpaði hana
hlýjum og snjöllum orðum; nefndi
hana, sem rétt er, móður skólans, sem
fyrst hefði unnið að því að koma hon-
um á fót og síðan stýrt honum og
borið hann fyrir brjósti. Hún benti
inum ungu námsmeyjum að líta upp
til þessarar konu, sem fremur öllum
öðrum hefði látið sér hughaldið um
mentun íslenzkra kvenna. En þær
ættu einnig að heiðra hana og taka
sér hana til fyrirmyndar sakir mann-
kosta hennar og eftirdæmis í siðgæði
og sannri sálargöfgi.
Allir stóðu upp og hiýddu standandi
á þetta ávarp.
Því næst iýsti forstöðukonan húsinu,
„sem á að vera skóli okkar og heimili".
Loks ávarpaði forstöðukonan náms-
meyjarnar, skólanefndina og velgerðar-
menn skólans. Gat þess sérstaklega,
að Melsteðs-hjónin hefðu nýlega gefið
skólanum ið vandaðasta hljóðfæri,
auk alls ins mikla annars, er siðar
muni í Ijós koma, og loks þakkaði
hún hússmiðnum og eiganda hússins,
herra Steingrími Guðmundssyni, alla
hans ósérplægni, og hve vel honum
hefði farið við skólann.
Því næst þakkaði frú Thora Melsted
fyrir heiður þann, er sér hefði verið
sýndur, og flutti kveðju frá Páli sagna-
meistara manni sínum, en hann skortir
nú 3 ár á tírætt.
Hundrað og þrjár stúlkur hafa sótt
um nám í skólanum í vetur; af þeim
undir 40 úr Rvík; 22 hafa sótt um
heimavist.
Kvennaskólinn stendur austan við
tjörnina og er 301/* al. á lengd, en
18 á breidd; úthýsi að húsabaki 53/'r
al á lengd og 6 al. á breidd. Undir
húsinu öllu er hár og loftgóður kjall-
ari, þar er hússtjórnardeild skólans,
skólaeldhús (9X8 al.), borðstofa (12X8
al.), þar geta 30—40 manns setið að
borðum í einu; þar er og búr, vista-
klefi, þvottahús og keflingarstofa með
h'nsterkjuáhöldum. Þar er og rúm
fyrir kerlaug og steypuböð, þá er efni
skólans leyfa að koma þeim upp.
Á næsta gólfi yfir kjallara eru 4
skólastofur með kensluáhöldum, kenn-
arastofa, fatabúr og tveir gangar og
anddyri með stigum upp á næsta loft.
Á því lofti eru tvær kennarastofur, en
önnur verður fyi st um sinn höfð fyrir
dagstofu handa heimavistarstúlkum.
Þar eru og íbúðir forstöðukonu og
kenslukonu hússtjórnardeildarinnar, en
þær hafa 2 herbergi hvor til íbúðar;
þar er og skrifstofa skólastýru; en
fram af þessu gólfi eru veggsvalir, 17
álna langar og 2 al. á breidd.
Á efsta gólfi eru 8 svefnstoíur með
í Iðnskólanum (Lækjargötu 14)
má fá gott fæði með sanngjömu verði.
uppbúnum rekkjum og öllum áhöld-
um, og er þar rúm fyrir 25—30
heimavistar-stúlkur. ~ Á hanabjálka-
lofti er þerrirúm. — í öllu húsinu er
vatnsleiðsla og miðstöðvarhitun.
Skólahúsið er virt til brunabóta liðl.
59 þús. kr., en til peningaverðs 76,-
783 kr.
Hr. Steingr. Guðmundsson trésm.
hefir bygt húsið, alt úr vandaðri stein-
steypu. Hann leigir skólanum það
næstu 5 ár fyrir einar 2300 kr. á ári.
En til er ætlast, ef efni leyfa, að skól-
inn kaupi húsið, og væri þávelborgið
samjafnaðarlaust bezta og stærsta
kvennaskóla landsins, inum eina
kvennaskóla, sem er sann-neíndur
skóli fyrir ált landið.
íi Konsu
Reykjavik, 14. Okt. 1909.
Herra ritstjóri! — í blaði yðar 9. p. m.
liefir herra konsúll Brillouin ritað all-
langa grein um það, sem greinin kallar
deilumál milli byggingar-nefndarinnar
og hans.
í grein þessari er svo mikið mishermt,
að ég hlýt til leiðréttingar, að biðja yður,
að Ijá eftirfylgjandi línum rúm í blaði
yðar.
Það er mishermi, að byggingar-full-
trúinn hafi átalið það i bréfi dags. 26.
Júní, að bitarnir í húsi konsúlsins væru
styrkari en byggingar-samþyktin heimtar,
þ. e. 3" x 9" í stað 3" x 6". Pað var á-
talið, að þeir væru veikari, en byggingar-
samþyktin fyrirskipar. í bréfi byggingar-
fulltrúans er ekki með einu orði mínst
á, að bitarnir megi vera 3" x 6", enda
kæmi það í bága við 21. gr. byggingar-
samþyktarinnar.
Jafn-mikið mishermi kemur fram i
skýrslu konsúlsins um, hvað okkur hafi
farið á milli viðvíkjandi húsbyggingu
hans. Sannleikurinn er þessi: Pegar
farið var að byggja íbúðarhúsið, varð
byggingar-fulltrúinn þess var, að húsið
fnllnægði ekki að öllu leyti ákvæðum
bj'ggingar-samþyktarinnar. Petta átaldi
hann, en honum var neitað um, að fá
lagfært það er þurfti. Byggingar-nefnd-
inni var skýrt frá þessu, en þar sem
hér átti í hlut starfsmaður annars ríkis,
vildi byggingarnefndin komast hjá allri
deilu, og sýna alla þá tilhliðrunarsemi,
sem hægt var. Eg heimsótti því kon-
súlinn persónulega, bauð honum mína
milligöngu til að fá ágreininginn jafn-
aðan, benti honum á, að undanþágu
mætti fá frá byggingar-samþyktinni, og
fullvissaði hann um, að hann mundi fá
hana, ef hann pá vildi sækja. En hann
þóttist ekki þurta að fá neina undan-
þágu, og kvaðst óska deilu við bæjar-
stjórnina. Við það skildum við. Síðan
hefir hann ekki sótt um neina undan-
þágu. í grein sinni segir hann reyndar,
að hann hafi sótt um undanþáguna í
bréfi til stjórnarráðsins dags. 29. Júní.
En þetta er ekki rétt. Bréf þetta var
sent bæjarstjórninni til umsagnar og er
mér því kunnugt um, að i því bréfi
var þess ekki farið á leit, að fá neina
undanþágu, enda átti hann líka að sækja
um hana til bæjarstjórnar og byggingar-
nefndar. Af þcssu má sjá, að það er
gagnstætt sannleikanum, að bæjarstjórn-
in hafi haft að engu fullyrðingar mínar
í þessu efni, eins og konsúllinn kemst
að orði.
Iðnaðarmenn T
Munið eflir að ganga JoSjúltrasjóð Iðnaðarmannn,«
Sveinn Jónsson gjk.
Heima kl. 6 e. m. — Bókhlöðustíg 10.
Pá er það ekki rétt hermt í greininni,
að konsúllinn hafi fengið bænum að gjöf
lóð undir skipaklöpp og veg. Hitt er
rétt, að bærinn hefir látið konsúlnum
ókeypis í té afnotarétt lóðar, er hann
taldi mjög mikilsverðan fyrir sig.
í grein sinni neitar konsúllinn því,
að hann hafi bygt hesthús hjá íbúðar-
húsi sínu, en segir það vera trékofa, er
ætlaður sé til vagnskýlis. í brunabóta-
virðingu hússins, er svo að orði komist:
»Fyrir vestan húsið á sömu lóð er bygt
hesthús úr binding, kl[ætt] utan m.
pl[ægðum] borðum og pappa á borða-
súð; i því er loft og plankagólf«.
Undir þetta hefir konsúllin sjáfur rit-
að nafn sitt, og kemur það þvi undar-
lega fyrir, að hann nú skuli neita þvi
að hafa bygt hesthús.
Loks get ég þess, að það verður lagt
undir dóm yfirboðara kúnsúls Brillouin
eða íslenzkra dómstóla, hvort rétt sé
vottorð það, er hann gefur sjálum sér
um hlýðni og auðsveipni við íslenzk lög.
Meðan beðið er þess dóms, verður mál-
ið af minni hálfu ckki rætt í blöðunum.
Páll Einarsson
[borgarstjóri].
--- M I ■ ■ ----
Ókeypis lögfræðislegar leiðbeiningar.
Kennendur Lagaskólans ætla að
haida þessu þarflega fyrirtæki uppi í
vetur eins og í fyrra.
Það er nokkur kostnaður fyrir fá-
tæka menn, að leita aðstoðar mála-
flutningsmanna, þá er þeir þurfa að
fá leiðbeiningar um rétt sinn eða
skyldur í einhverju efni.
Afleiðingin verður oft sú, að fá-
tækir menn leita sér alls ekki lög-
fræðislegrar aðstoðar, þar sem þeir
þyrftu á henni að halda, og bíða ein-
att tjón við það.
Það er því ið mesta þarfa-verk,
sem kennararnir vinna með þessu,
og getur komið mörgum að haldi, til
að bjarga rétti þeirra.
Þess þarf naumast að geta, að leið-
beining þessi er veitt öllum ókeypis án
manngreinarálits, hverjir sem þeir eru.
Og enginn þarf að efast um það, að
ekki mun völ á öðrum færari mönn-
um í þessu efni, heldur enn kennur-
unum við lagaskóla landsins.
Leiðbeiningin er veitt í Lagaskólan-
um 1. og 3. Laugardag í hverjum
mánuði að vetrinum til meðan skól-
inn stendur, kl. 7—8 á kvöldin.
Herbergi ágætt með húsbúnaði,
fyrir einhleypan í góðu húsi á bezta stað i
bænum, ódýrt til leigu þegar eða frá 1. Nóv.
Ritstjóri eða afgrm. ávísar.
Hvað er aö íreUnV
Prestsembættinu öðru (séra Har-
aldar) hér í dómkirkjusöfnuðinum gegn-
ir til næstu fardaga Friðrik Friðriks-
son.
Cíaulverjabæjar-söfnuður (allur?)
heflr sagt sig úr þjóðkirkjunni og
gerst fríkirkjusöfnuður; tekið Runólf
nokkurn Runólfsson, fyrv. Mormóna
frá Ameríku, sér fyrir prest.
Alþingistíðindin. Prentun á um-
ræðum neðri deildar, 125 örkum,
er Gutenberg tók að sér, var
lokið nú um mánaðamótin. — Um-
LÁRUS FJELDSTED,
yflrréttai-mAlafærzlu inaður
Lælíjurgata ð.
Heima kl. 11—12 og 4—5.
ræður í e. d. og sam.þingi (á að gizka
65—70 arkir) tók ráiðherra-prentsmið-
jan að sér, en varla er talið líklegt
að þeirri prentun verði lokið fyrri en í
lok þ. m. — ef eigi siðar. Sá dráttur
kostar landssjóð ærið fé, því að eftir
14. þ. m. verður burðargjald undir tið-
indin út um iand miklu dýrara.
Regnsamt og’,stormasamt heflr verið
þessa viku. Aðfaranótt Þriðjudags
gekk í ofsa norðanveður um alt land.
„Flora" og „Ceres" báðar ókomnar
enn. „Ceres“ heflr legið mestalla vik-
una á Sauðárkróki og ekki getað að-
hafst. „Flora" fór af Akureyri á Laug-
ard. og til HúsavíkurJ(hafði, farið þar
framhjá), en þaðan fór hún vestur á
hingaðleið Sunnud.-kvöldið. Síðan hefir
ekki til hennar frétst. Auk margra
farþega hafði hún flutt nokkuð af
dýnamíti. Er það leyfilegt á farþega-
skipum?
„Pjóðólfur" stendur til að skifti
eigendum við áramótin. Hr. Hannes
Þorsteinsson n. d. forseti selur hann
banka assistent hr. Pétri Zophónías-
syni (frá Yiðvík).
Mótorbátur frá Yestm.eyjum fór
nýlega með vörur til Víkur; þar varð
komist út i hann og eitthvað af vör-
unum flutt í land. En 2 menn vóru
eftir í bátnum um kvöldið, og lá hann
þá fyrir akkerum. Morguninn eftir
var hann horfinn. Harin rak mann-
lausan á land í Landeyjum. Til mann-
anna tveggja ekkert frétst.
»Smásaxast á limina hans Björns
míns!« — Hr. Kristján Jónsson há-
yfirdómari hefir sagt sig úr miðstjórn
ráðhcrra-ilokksins (meirihl. -flokksins
á þingi).
Hver fer næstur?
t Frá Iða Halldórsdóttir, Frið-
rikssonar yfirkennara, eiginkona séra
Kristins Daníelssonar á Útskálum,
varð bráðkvödd í svefni aðfaranótt 12.
þ. mán. Lagðist alheil til svefns um
miðnætti, en var örend í sæng sinni
um morguninn.
Hr. Gunnar Hafstein, er um 15
ár hefir verið í Landmandshanken í
Höfn, nú um allmörg ár bankafulltrúi,
er nú orðinn bankastjóri við Fœreyja-
bankann. Er það betri staða, en
bankastjóra-staða við Landsbankann
hér. Gamli Glúckstad lítur öðrum
augum á hæfileika hr. G. H. heldur
en ráðherra íslands.
Síminn til Bolungavíkur er nú
fullger og opnaður almenningi til af-
nota 7. þ. m.
Yæn jarðepli. tsaf. segir, að úr
gróðrarstöðinni hér hafi komið 1 jarð-
epli, er óg 91 kv., o: 2 kv. þyngra en
það er Bvík hefir haft til sýnis úr
FJjótshlíðinni.
Árness-prestakall í Strandasýslu
er veitt séra B'óðvari Eyjölfssyni, að-
stoðarpr. þar, samkvæmt kosningu.
2. dómkirkju-prestakallið er laust
frá næstu fardögum. Umsóknarfrestur
til 15. Desbr.
Yextir í þjóðbankanum danska
hækkuðu 13. þ. m. um Vj °/o upp í
5—51 2 °/o. í þýzka þjóðbankanum
komust. vextir nýlega upp í 6%-
Ísl. banki hefir skýrt oss frá, að
bankarnir hér muni eklci hækka vöxtu
að sinni. — Búist við, að vaxtahækk-
unin ytra verði að eins um stundar-
sakir.
•>mmm > .. -
Oaman og alvara.
Hftnsavíxl á skilnÍTiffftrviluimm. —
»Barnablaðið« ráðherrans hálf-dróttar
pví að ritstj. »Lögréttu«, að hann muni
ef til vill vera »ólœs á mœlt mál«,
Hingað lil hafa menn nú heyrt með
eyrunum pað sem talað (mœll) var, en