Skeggi - 19.01.1918, Page 2
SKEGGI
»Skeggí< kemur venjulega út e i n u
sínni í viku, og oftar ef ástaeður
leyfa. Verð: 5 kr, árg. (minst 50
b!öð).
Auglýsingaverð: 50 aur. pr.
e.m,; 60 aur. í 1. bls.
Ú t g e f a n d i: Nokkrir eyjarskeggjar.
Afg'eiðslu- og innheimtnm. Gunnar
H. Valfoss.
Ritstjóri og ábyrgðarm,
Páll Bjarnason.
okkur hjerna, að næringarjurtirnar
vantar á báðum stöðunum, og
mjólkina líka, en munurinn er
sá, að þar er landið þrotið en
hjer bíða módrnir eftir blessun
plógjárnsins. þetta er lands-
stjórnin lakari landsdrottinn heldur
en Reykjavíkurbær.
í haust kom kapp í báða, þegar
sjeður var skortur á kartöflum,
og sendu mann í landaleit um
nesin við Faxafióa; það var Einar
Helgason gárðyrkjumaður. Hann
gerði ráð fyrir að taka mikið
land í tveimur stöðumt á Kjalar-
nesi og á Skaganum, alt að 100
dagsl. í hvorum stað. það varð
ekki úr að bærinn tæki land til
að rækta fyrir sinn reikning, en
hlutafjelag ýar myndað til að
nema land og rækta hjá Brautar-
holti á Kjaiarnesi. Hlutir í því
kosta 50 kr- og þar yfir. Hlut-
hafar ganga fyrir öðrum með
kaup á kartöflum. Útboðið stóð
til 10. þ. m.
Landsstjórnin mun ekki hafa
svarað því ennþá hvort hún tekur
land til kartöfluræktunar; til máia
hefur það komið.
Sá tími er í nánd, að menn
hætta að horfa með geðró á
óræktað land við nefið á sjer,
án þess að hreyfa við þvt.
Skemtanirnar.
Aðalskemtun okkar Eyjar--
skeggja er, eins og ailir hjer vita,
B t ó i ð, með sínum fjöibreyttu
glæpamannasýningum og fárán-
legu ástaræfintýrum, og er svo
sem auðvitað ekkert út á það að
setja, því allar myndirnar er áður
búið að sýna í Reykjavík.
þá eru „böllin“ bærileg skemtun
þar sem meyjar og sveinar í
innilegum faðmlögum — einsog
,plagar“ að vera — hrindast,
nuddast og akast áfram um salar-
gólfið. því miður er ekki hægt
að segja, að fólkið svífi í
dansinum um gólfið, en það er
víst af þessari framúrskarandi
góðu stjórn, sem er á dansleikj-
um hjer.
En það er nú ekki meining
mín, að fara að skeggræða um
böllin eða bíóið. Heldur ætlaði
jeg að segja fáein orð um þá
einu raunverulegu skemtun, sem
við eigum kost á að njóta, og
það er „hornamúsíkin". Horn-
leikaraflokkurinn okkar hefir
tekið svo miklum framförum nú
á siðustu mánuðurUj að undrura
OÞARFT
er að taka það fram, því það er
fyrir löngu alkunnugt, og það
vita aliir, að allar vörur til
útgerðar, fá menn b e s t a r
og ó d ý r a s t a r í verslun
S. 3*
. ■■■-•o UF itTÆTrfhYjc
wll,
-iSfc
Símstöðin opin virka daga kl.
8 árd. til 9 síðd. Heiga daga
10 — 12 árd. og 2—7 síðd.
Póstafgr. opin aila virka daga kl.
10—6.
Lyfjabúðin alla daga kl. 9—10.
íshúsið aiia virka daga kl, 4—7
• j síðd,
: ; Sýslubókasafnið ^urinud. 9 — 11
r’rd.
Hjeraöslæknirinn heima daglega
12-2.
verður afhent í Ishúsinu, frá kl. 9—lOx/a f h. og
frá kl. 4—6 e. m hvern virkan dag;.
A sunnudögum frá 4- 6 Q. h.
S- 3
Kjöt verður afhent á hverjum virkum
degi frá ki. 7-8 e. h.
sætir, og er það efalaust hr.
Helga Helgasyni að þakka. Er
víst óhætt að segja, að þeir spili
orðið Ijómandi vel, eftir íslenskum
mælikvarða.
En galiinn er sá hjer hjá okkur,
að enginn góður staður er til fyrir
þá til þess að spila á, og fyrir
fólkið að hlusta á þa, því þó
þeir sjeu svona einhverstaðar inni
á milli húsa, eða úti á götum,
þá eru svo fáir sem komast að
til að heyra og njóta skemtunar-
innar, en hornasöngs njóta menn
ekki, ef menn verða að vera
mjög nálægt honum. Staður sem
hornleikamennirnir þurfa að vera
á, þarf helst að vera hóll eða
dálítil hæð og umhverfis í hæfi-
legri fjarlægð sje breiður gang-
stígur fyrir áheyrendur að reika
eftir. það er eitt af mörgu
sem við Eyjarskeggjar þyrftum
að gjöra, og það er að búa til
góðan stað fyrir hornaflokkinn.
Svo ættu þeir að skemta fólkinu
þegar veður og ástæður leyfðu,
og við ættum að greiða þeim
eitthvað fyrir.
Svo ættu þeir að auglýsa fyrir-
fram hvenær þeir spiluðu til þess
að fleiri gætu notið en nú á sjer
stað.
Einsog er, gætu þeir jafnvel
búist við að einhver gárunginn
sendi þeim þakkarávarp núna í
þakkarávarpatíðinni, fyrir það hve
oft þeir spila fyrir miklu fjöl-
menni. Hornamúsík er einhver
besta skemtun í svona bæ einsog
hjer, og óiíkt heiibrigðari og
hollari ungdóminum en „böllin“
og Bíoið í þeirri mynd, sem það
hvorttveggja er nú í.
það að búa til stað fyrir horna-
fiokkinn með vorinu, einhver-
staðftr á góðum stað, fyndist mjer
vera ágætt verkefni fyrir öng-
mennafjelagið hjerna sem sjáif-
sagt er bráðlifandi í blóma lífsins
hjer sem annarstaðar.
Á gamlárskvöld ifeku „horn-
leikar" nokkur iög fyrir utan
stóra gluggann á rafmagnsstöðinni,
og Ijeku prýðisvel, en staðurinn
er slæmur, því fáir komast fyrir
á götunni fyrir framan. Jeg gat
sárvorkent aumingja stúlkunum
glæsilegum og fagurlega búnum,
iðandi af ungdómsfjöri, verða að
standa þarna eir.sog myndastyttur.
þær þorðu varla að gjóta horn-
auga til piJtanna, sem stóðu skamt
frá, hvað þá heldur að ganga
nokkuð með þeim. Já, en hvert
átti að ganga? því segi jeg það,
það er nauðsynlegt að búa til
stað fyrir hornaflokkinn.
r -/1.
Aths.:
„Skeggi er ekki samþykkur
ofanritaðri grein í öllum atriðum.
Ritstj.
Sjómenn!
Færeyskar
Peysur
og hlýjan og haidgóðan
nærfatnað
fáið þjer bes4 og édýrast
í verslun
G. J. Johnsen.
Bæjarqiálafjela r;
nýtt var stofnað í Reykjavík á 4
fjölmennum fundi, sem haidinu
var f K. F. U. M. kvöldið 2. jan.
fyrir tilstilli nokkurra borgara.
Fjelagið heitir „Sjálfstjórn®. Stefna
þess er ákveðin þannig í 2. gr.
fjelagslaga, er samþykt voru á
fundinum: „Tilgangur fjelagsins
er að starfa að bæjarmálum ;
Reykjavíkurkaupstaðar í þá stefnu:
a ð vera á verði gagnvart tilraun -
um af hálfu löggjafarvalds eða
stjórnarvalda lands og bæjar til að
raska atvinnufrelsi einstakling-
anna, a ð beita sjer fyrir því viö
kosningar, að kosnir verði hæfir
menn ti! opinberra starfa í þarfir
bæjarfjelagsins.
Með fundarsarnþylýt má ákveða
að fjelagið taki önnur mál tii
meðferðar, en bæjarmálefni
Reykjavíkur, enda sje tillaga um
það samþykt með 2/s atkvæða
fundarmanna að minsta kosti“
í fjelagið gengu fyrsta kvöidið
á annað’hundrað kjósendur.
(»,Lögr.“).
Boinia og Lagarfoss
voru bæði á Austfjörðum í
fyrradag og eru væntanleg hingað
bráðum með póst og farþega
annaðhvort eða bæöi.
jarðbönn
eru sögð um alt Norðurland
nenia vestast í Húnavatnssýslu.
Reykjavíkurhöfn á ís.
Gengið er úr Viðey til Reykja-
víkur og að Kieppi.
Simslit.
Landssímirifl hefur veriö slit-
inn miili Miðeyjar og Reykja-
víkur, svo að naumast hefur
orðið náð frjettum síðan fyrir
helgi.