Skeggi - 10.08.1918, Blaðsíða 4
SKEGGI
Frá útlöndum.
—o—
Nýkomnar vörur.
Uppreisnin í Síberíu
heldur stöðugt áfram, en fregnir
af henni allar óljósar. Svo mikið
er þó víst að uppreisnarmenn
hala rekið Maximalista af hönd-
um sjer, með tiistyrk Japana, að
haldið er. í Rússlandi sjálfu er
og heldur agasamt. Maximalista-
stjórnin á í vök að verjast fyrir
uppreinsarflokkum. Nýtur hún
nú aðstoðar þýskra hersveita,
sem leggjast á eitt með henni til
að bæla niður uppreisnina og
stöðva frainrás bandamanna á
Murmansströndinni. Finnar hafa
einnig sent lið þangað norður
eftir.
Bændauppreisn varð á
dögunum í Ukraine gegn þjóð-
verjum þar í landi. Hún var enn
eigi bæid niður er síðast frjettist.
F r a m s ó k n í t a 1 a í Al-
baníu er nú stöðvuð. Miðvelda-
herinn komst í veginn fyrir þá
á miðri leið og tóku hvorir af
öðrum marga fanga. Á Ítalíu er
alt kyrt síðan sókninni miklu
við Piave lauk.
Á vesturvígstöðvun-
u m hafa þjóðverjar verið hraktir,
sá herfleigurinn, sem lengst var
kominn vestur milli Soissons og
Rheims. þjóðverjar hörfa enn
undan og er nú orðin bein her-
lína þeirra milli áðurnefndra
borga. Bandamenn hafa nýlega
tekið Soissons og nokkur þorp
þar í grend. Sóknin er um það
bil hætt. Fanga hafa þeir tekið
afarmarga og hergögn mikil.
Frjetfir.
—:o:—
Embættí. Bæjarfógetaem-
bættið á Seyðisfirði og sýslu-
mannsembættið í N.-Múlasýslu
er veitt Ara Arnalds sýslum.
Húnvetninga,
Sýslumannsembættið í Skaga-
fjarðarsýslu er veitt Kr. Linnet,
málafl.manni í Reykjavík.
Sýslumannsembættið í Barða-
strandarsýslu er veitt Einari M.
Jónssyni aðstoð^rmanni í Stjórn-
arráðinu.
Húnavatnssýsla er auglýst laus.
Umsóknarfrestur til 10. sept
Lausn frá embætti hefur
próf. Björn M. Ólsen fengið frá
1. okt. en Sigurður Nordal mag-
ister skipaður í embættið frá
sama tíma.
Rifstjóraskifti eru orðin
við „þjóðólf*, Sig. Guðmunds-
son mag. hættur, en Magnús
Björnsson cand. pil. tekinn við.
Morgunkjóla- Svuntu- og Skyrtu-tvistar.
Ljereft — Vasaefni — Ermafóður.
ftST Smávörur ailskonar.
— Keypt beint frá verksmiðjunnl —
Fagurt úrval af Gullstássi (8 & 14 karat):
Kapsei — Keðjur — Hringar — Nælur (guli og silfur)
Snúrur (kvenna og karia) — Úrfestar.
Versl. Páll Oddgeirsson.
„AGLEJ A“.
Sjúkratrygging alþýðu.
Engin læknisskoðun.
Upplýsingar gefur Páll Bjarnason Kirkjubóii.
Heirna kl. 9-11 f. h. — Sími 62.
útlanda. Hún er í Svíþjóð um
þessar mundir.
Orðabókarhöfundur Sigf.
Blöndal bókavörður er farinn
heim til K.hafnar eftir rúma árs-
dvöl í Reykjavík. Orðabók hans
mun nú því sem næst búin til
prentunar og kemur út svo fljótt
sem mögulegt er. Honum var
haldið kveðjusamsæti í Reykja-
vík áður en hann fór þaðan.
Skólastjóri við barnaskól-
ann á Akureyri er ráðinn Stein-
þór Guðmundsson guðfræðingur.
reiki með suma barnaskólana
ennþá, kennurum sumstaðar sagt
upp störfum. Öráðið er enn með
kenslu til sveita, en búist er við
að hún verði fyrirskipuð í haust.
!
Síidveiðin var orðin dágóð í
um síðustu helgi, einkum við
ísafjarðardjúp og á Ströndum, i
minna á Siglufirði og við Eyja- I
fjörð, enda mesta gangan fyrir |
austan Horn. Seinni part vik- !
unnar tók fyrin veiðina því að
snarpa norðanátt gerði. Veiddu i
menn þá nokkuð af ufsa við ísa-
fjörð.
Kennari við gagnfræðaskól-
ann á Akureyri, er ráðinn Bryn-
leifur Tobíasson student, í stað
sr. Jónasar Jónassonar frá
Hrafnagili.
Eitt blað kvað hafa tjáð sig
mótfallið samningum millilanda-
nefndanna. það er „Njörður" á
ísafirði. Áttu menn helst von
athugasemda þaðan.
Forsætisráðherra hefur
sent fyrirspurn til Hafnar um það
hvernig samningunum sje tekið
á Norðurlöndum yfirleitt, og
fengið það svar, að víðast sje
þeim tekið mæta vel.
Úr sveitum landsins ersagt
að samningunum sje tekið hið
besta þar sem þeir eru kunnir
orðnir. Enginn vafi talinn á að
þeir eiga vísan sigurinn við at-
kvæðagreiðsluna í haust.
Heyskapur gengur illa um
alt land að sögn nema í einstaka
votlendissveitum. Hörmulegar
horfur eru sagðar úr Breiða-
fjarðareyjum og vallendissveitum
yfirleitt.
Smjörlíki kom allmikið með
„Lagarfoss* síðast frá Ameríku.
Nokkuð af því hefur verið flutt
hingað í vikunni. Svínafeiti kom
líka að vestan. Smjörið er enn
að hækka „á landi".
Fuglatekjan gengur með
tregara móti í sumar, tíðin ekki
hagstæð segja kunnugir.
Tfðarfarið hjerna hefur verið
örðugt undanfarnar vikur, sífeldir
óþurkar og þó örsjaldan rigningar.
EOPAR
Skólar verða haldnir næsta
vetur í líku sniði og í fyrra.
Flestir „æðri skólarnir* hafa
verið augiýstir og sumir hinna
„óæðri* líka. Eitthvað er enn á
keyptur háu verði
í verslun
Magnúsar Þórðarsonar.
Strand.
„Chrisiena* kom hjer inn
aftur í gær og lenti upp á
Hörgaeyri. Nú er verið að rífa
úr henni farminn því að skipið
er orðið laskað.
Skipafregnir.
Mb. Asdís kom að sunnan
á miðv.d. með hveiti, smjörlíki,
svínafeiti, sykur og olíu til versl.
G. J. Johnsen. Var orðin mikil
þörf á vörum þessum, því að
feitmeti fjekst ekki um nokkurn
tíma ; var margur farinn að kvarta
um það.
Villemoes er kominn til
Reykjavíkur, setur þar upp 1000
tn af olíunni, en fer með af-
ganginn vestur og norður handa
síldarskipunum.
Hjer með vottum við okkkar
innilegasta hjartans þakklæti öll-
um þeim, sem hafa sýnt okkur
hluttekningu við frárall okkar
elskulegu móður og eiginkonu,
Málfríðar Ólafsdóttur, og biðjum
guð að launa þeim það á hinsta
degi.
Jensína, Karólína, Sigríður, Jó-
hannes, Guðmundur börn hinnar
látnu. Jóhannes Benediktsson
eiginmaður.
MÝKOMIÐ:
Hengilásar,
Gólfsópar,
Þjalir, margar teg.
Lamir, margar teg.
Vasahnífar fjöldateg.
Mafskeiðar,
Teskeiðar.
Beislisborði,
Fataburstar,
Skóburstar,
Lugtargiös,
Lampakveikir.
Ferðatöskur,
Spegiar,
Sieifar,
Pottar,
Tjörukústar,
Þvottabretti,
Málarapenslar
og mikið af allskonar smá-
vöru, nýkomið í stóru úr-
vaii í verslun
s. 3 3°^set\.
Fossanefndin er farin til
Prentsm. \'e»tmannaeyja.