Skeggi - 24.03.1920, Side 2

Skeggi - 24.03.1920, Side 2
SKEGGI »Skeggi« kemur venjulega út e i n u sinni í viku, og oftar ef ástæður leyfa. Verð: 5 kr. árg. (minst 50 blöð). Auglýsingaverð: 1 kr. pr. « m.; kr. 1,50 á 1. bls, Útgefandi: Nokkrir eyjarskeggjar. Afgreiðslu- og innheimtum. Gunnar H. Valfoss, Ritstjóri og ábyrgðarm. Páll Bjarnason. Hjá •*ov 'p kaupa aliir ^ sínar Tóbaksvörur. komna fyrirlitningu. það er sennilegt að einhver biðji fyrir þeim — á óki.rkjulegan hátt — ef að því dregur að menn verða að sitja í landi frá mokfiski, og jeta alt hrátt t þokkabót. Dýraverndun. I 8. tbl, „Skeggja" sje jeg minst fáum orðum á aldur og starfsemi „Dýraverndunarfjelags fslands“. Af því að mjer er málefnið kært, langar mig að fara fáum orðum um meðferð dýra hjer í Vestm.eyjum, þann tíma, sem jeg hef dvalið hjer. Ekki svo að skilja að jeg álíti að dýrum sje misþirmt hjer frekar en í öðrum bygðarlöguin landsins, heldur til þess að 'benda á það er jeg álít að betur mætti fara og auðvelt væri að bæta um í meðferð dýranna. Tvær ástæður ættu að knýja menn til að fara sem best með alidýrin. Önnur er mannúðar- skyldan, sem ætti að vera skrifuð í brjóst hverjum heilvita manni, meðaumkunin og kærleikurinn. Hin ástæðan er hagsmunavonin, því að það er margreyndur sann- leikur, að þau alidýrin, sem best er farið með, gefa mestan arðinn. þetta veit hver bóndi í sveit, og enda allir þeir er hafa umgengis fjenað, en samt skortir mikið á að breytt sje eftir þessu. Mjer hefur oft blöskrað kæru- leysið sem sumir sýna um með- ferð búfjár síns, og oft hef jeg furðað mig á að nokkur maður skuli tíma að fara svo með fjenað sinn, hvað sem miskun- seminni líður. H e s t a r. það er ekki sjald- gæft að sjá hjer hross, ung og . fullorðin, á algerðum flækingi á I Líftryggingafjelagið „T H U L E“ iangstærsta líftryggingafjelag á íforðurlöndum Allur meginhluti árságóðans í „THULE“ fer til hinna líf- tryggðu sem Bonus á hverju ári, eftir fimm ára tryggingu, enda nemur hann stundum 40—50% af ársiðgjöldunum. „THULE“ ' hefur mjög hagkvæmt tryggingafyrirkomulag, og ættu allir sem hug hafa á því að tryggja líf sitt, að leita upplýsinga hjá undirrituðum umboðsmanni fjelagsins í Vestmannaeyjum. Jóhann P. Jóseísson. I Verslun A. Bjarnasen kaupir tómar steinolíufunnur háu verði. vetrardaginn. Allir þekkja hag- lendið hjer á götunum og þá ró er óskilagripir hafa inni í bæn- um. Margir munu minnast hestanna sem voru að flækjast hjer út harða veturinn, nótt og dag, ýmist inni í rotum, eða um göturnar. Svangir voru þeir oft og alt útlit þeirra bar vott úm þjáningu sem nærri má geta. þesskonar dæmi hafa ekki gefist síðan, en margt hef jeg sjeð á næturferðum mínum, sem mjer líkar ekki í meðferð hrossanna. Jeg skil fekki í hvern hag eða ánægju menn geta haft af því að eiga hjer óþörf hross og trippi. Hjer er þó sannarlega ekki pað haglendi að hafandi sje til hrossa- göngu. Nær væri að láta annan fjenað njóta þessa litla gróðurs, sem hjer er. Jeg veit að mörg- um fleirum en mjer rennur til rifja að sjá sárhungruð hrossin og mögur hima undir húsveggj- unum viku eftir viku, eigendum þeirra til litils gagns nje sóma. K ý r. Alment er svo talið að betur sje farið með kýr í kaup- stöðum en til sveita hjerálandi, en ekki veit jeg hvort það er satt. Ýmsar ástæður eru taldar fyrir því, og sumar ekki ósenni- legar. Hjer koma nokkrar: Eig- endur kúa í kaupstöðum eru oft efnaðri en alment gerist til sveita og hafa oftast ekki nema eina kú hver. þessi eina kýr nýtur þá alls þess fóðurs er til felst frá því heimili og stundum fleirum. Mjólkin í kaupstöðunum er dýr, og því er lagt sem mest kapp á að láta kúna framleiða sem mest af henni að mögulegt er; það borgar sig best. En hvort sem þessar ástæður valda því að kýr hafi betri með- ferð í kaupstöðunum yfirleitt en i sveitum, þá er jeg viss um að sá samanburður kemst ekki að hjer í þessum bæ. Mjer virðast kýrnar miklu ósjálegri hjer en flestar sveitakýr sem jeg hef sjeð og eítir því er nytin í þeim mörgum hverjum, um sumar- tímann að minsta kosti. Og því skyldi það ekki( vera? þær verða að reika, hjer vorlangan daginn um graslausa móana, þaul nagaða efiir fje og hross, hvar sem þær fara, er grimmum og óvöndum hundum að mæta, glespandi vörgum, og oft ganga þær blóðrisa undan þeim. þær gerast órólegar þegar hvergi finst haglendi nje friðland, og slangra þá niður á götur, stund- um til að leita sjer vatns til að svala þorstanum eftir'.langan sól- skinsdag; það mun nefnilega brenna %dð að þeim er ekki æfinlega vatnað rækilega heima á sumardaginn. Og hvað finna þær? Græna fýlupolla sem safnast saman í skúmaskotum bæjarins, og annað óþverra-grugg, stundum það sem helt er út úr húsum; það hef jeg sjeð oftar en einu sinni. þess á miili snuðra þær í sorphaugum og meðfram görðum, og það grunar mig, að í þeim leitum fái þær ýmsan þann „fóðurbætir", t. d. gamla öngla og vírbúta, sem síðar finnast í innýflum þeirra á banadægri. Gæti ekki þarna iegið ein ástæða til hins mikla kúadauða, sem hjer liggur í landi ? Kýr geta drepist af fleiru en flugnabiti. það er fyrir löngu kominn tími til að bæta eitthvað um líðan kúnna á sumrin. Drepist eins margar kýr næsta sumar eins og síðastl. sumar, þá verður hjer mjólkurlaus bær næsta vetur, og allir vita hversu þægi legt það er, ekki síst þegar sóttir ganga. Ráð mundi það vera að koma upp sameiginlegu kúa- gerði fyrir bæinn, áður en öll lönd eru tekin undir tún og fiskreiti. Meðferðin á kúnum, meðan, þær standa á bás, er mjer ekki kunnug, jeg býst við að hún sje góð hjá öllum þeim sem getuna hafa, en hitt er líka víst að meðferðin á sumrin er miskunarlaus, og síst fallin til þess að kýrnar gefi góðan arð. (Framh.). 'Símslitin. —o— Landsímastöðin hjer hefur ný- lega auglýst að tekið verði á nióti skeytum, og þau send annaðhvort í pósti eða í loftinu Ekkert heyrist um hvenær gert verði við símann, nje heldur hvort nokkurt verkefni til þess sje til í landinu; stöðin hjer' fær ekkert að vita. Ekki heldur fær stöðin hjer neitt at því sem hana vantar til þess að geta haldið talsímakerfinu hjer í lagi, og er hart fyrir símanotendur að lýða það bótalaust. Gefst ef til vill tóm til þess bráðum að minnast frekar á það og annað er viðkemur ólagi á símanum. Stöðvastjóri er nú^kvaddur til R.víkur með fyrstu ferð til „skrafs og ráðagerða“ um rekstur símans. Nýr hellir. —o— Síðastl. föstudag fundu þeir Guðni J, Johnsen og Árni Sigfús- son kaupmenn, nýjan hellir, fyrir sunnan Helgafell, skamt frá svo nefpdum Haugahelli. Eigi vita þeir til að aðrirj hafi fundið hanrt áður. Hellirinn er lágur, ekki mann- gengur og beldur mjór, en nokkuð langur á að geta 50-55 álnir. Dömur! Peysufataklæði SvUntU-SÍlkí sv.ogmisl. Efni f Rykfrakka er tallegast í versl. Qddgewsson Peningabudda (með um 60 kr.) hefur tapast. Afgr. v. á. Prent»m. Veatmannaeyja.

x

Skeggi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skeggi
https://timarit.is/publication/208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.