Alþýðublaðið - 02.10.1963, Síða 6

Alþýðublaðið - 02.10.1963, Síða 6
^niiiiiMiiiiniiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiniiiiiniiiiiiiiiiiii-HuniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiuinuniiiiMiiiiuMiMiiinunuiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiMMMSiMM 111111111111111111111111111111111111 ,Konan hættulegust NÝR trúflokkur hefur vakið geisilegar deilur á Norðurlönd- um. Þetta er hinn svokallaði Maranata-söfnuður. Sértrúar- flokkur þessi á upptök sín í Svíþjóð, hefur hann síðan haf- ið nokkra starfsemi í Noregi og nú munu meðlimir hans hafa í hyggju að koma fótum und- ir starfsemi Maranata-safnað- ar í Danmörku. Scsnsku blöðin hafa vægast sagt farið óblíðum orðum um þennan nýja trúflokk. Nú munu um tuttugu slíkir söfn- uðir vera starfandi í Svíþjóð. Oft hefur fundum hjá söfnuð- unum lokið með slagsmálum og meiri háttar látum. Einn a£ sænsku söfnuðunum hefur meira að segja stefnt sænsku dagblaði fyrir ærumeiðandi ummæli og blaðamönnum hefur verið fleygt út af sam- komum, þá sjaldan þeim hef- Frainh. á 13. síðu Tuttugasta öldin er öld kven- réttindanna. Þær eru ófáar blaðagreinarnar og bækurnar, sem á undanförnum árum hafa verið ritaðar um kvenréttind- in og allt ber þar að sama brunni: Konan berst með oddi og egg fyrir auknum rétti sín- um í þjóðfélaginu og hefur öðlazt hann smátt og smátt. Fyrir skemmstu er komin út í Noregi ný bók um þetta efni og er hún eftir Margarete Bonnavie. Þar er rakin skil- merkilega píslarsaga konunnar í aldaraðir og vitnað í um- mæli heimsfrægra snillinga um konuna og stöðu hennar í þjóðfélaginu. Þar er meðal annars þetta að finna: ★ Þegar gullöld Grikkja hófst, varð konan að láta sér lynda að vera fyrirlitin og út- skúfuð. Perikles sagði: „Kven- fólkinu er fyrir beztu, að það sé nefnt eins lítið á nafn í hópi karlmanna og frekast er kostur — hvort heldur er til lofs eða lasts.” ★ Aristoteles sagði: „Konan er ófullkomin vera. Hún stend- ur á lægra þroskastigi en karl- maðurinn. Karlmaðurinn hef- ur til að bera frá náttúrunnar hendi ótvíræða yfirburði yfir hana.” ★ Þegar kristindómurinn hélt innreið sína, skánaði staða konunnar lítið. Paulus vék máli sínu að konunum einhverju sinni í prédikunarstólnum og sagði: „Þið eiginkonurnar eigið að vera mönnum ykkar hlýðnar og undirgefnar. Því að maðurinn er höfuð konunnar á sama hátt og Kristur er höfuð safnaðarins.” ★ Heilagur Jóhannes frá Antioehia sagði: ,,Konan er svarinn fjandmaður vináttunn- ar. Hún er stöðug uppspretta sorgar og tára. Hún er hinn illi skerfur náttúrunnar, í- klædd fegurð og yndisþokka.” ★ Til er bók frá miðri þrett- ándu öld, sem nefnist „Lífs- reglui” og er saman tekin af Chevalier de Beauvanoir. Þar allra dýra" segir meðal annars: „Sérhver eiginmaður hefur rétt tíl að berja konu sína, ef hún ó- hlýðnast honum. Það verður þó aö gerast það hóflega, að bar- smíðin dragi hana ekki til dauða.” ★ Lúther kom til sögunnar og prédikaði forakt á konum. Hér eru nokkrar umsagnir um konuna frá þeim tímum: — Náttúran hefur gefið konunni breiðar mjaðmir og sterkt bak af af því getum við dregið þá ályktun, að til þcss sé ætlazt að hún sitji heima og gæti bús og barna.” Og að lokum: ,,Ef konan verður þreytt af stöðug- um barneignum og lætur líf sitt af þeim sökum, þá er ekk- ert við því að gera. Látum hana bara deyja, því að hún er í heiminn komin til þess að geta af sér afkvæmi.” Þannig hljóðar í örstuttum setningum píslarsaga konunn- ar, éins og hún er rakin í áð- urnefndri bók. Nú er öldin önnur. Réttindi kvenfólksins aukast með hverjum degi sem líður, hvort sem karlmönnum líkar það betur eða verr. .. ......................................................................................................................MIIMIIII...................................MMMIIMII......... ONA SINNA UM ALLA EVROPU í RÚMLEGA eitt hundrað daga hefur óhamingjusöm móðir, prins- essan Ica von Fiirstenberg, leitað tveggja sona sinna um Evrópu þvera og endilanga. Á. öllum helztu flugvöllum og víða viíi landamæri eru leynilög- regluþjónar, sem fylgjast með allri umferð. Þrátt fyrir vökul augu þrssara lögregluþjóna og á- kafa leit móðurinnar, hefur ekki sést tangur né tetur af drengjun- ura. Fyrrv»randi eiginmaður frúar- innar, /• lfons fursti, er talinn hafa syni -þeirra einhvers staðar á sín ! um vegum, en ekkert er vitað um ! það, hvar hann heldur sig. Sú til- ! gáta er uppi, að hann feli dreng- j ina, Christoff, sex ái'a, og Hu- bertus, fjögurra ára, i höll ein- ! livers staðar í Austurríki. Á Wörther-vatni sáust í sumar tveir drengir í mótorbát. Svipaði þeim mjög til hinna horfnu prinsa. Er farið var að rannsaka málið virtust þeir hafa horfið sporlaust Dómstóll dæmdi furstanum yf- irráð yfir drengjunum, er móðir. þeirra sótti um skilnað. En jafn- framt kvað dómstóllinn svo á, að hún skyldi mega heimsækja þá með ákveðnu millibili, en nú er liðið meira en ár síðan hún hefur séð þá. Síðastliðna lf)0 daga hefur hún vonað statt og stöðugt, að þeir 200 leynilögreglumenn, sem nú- verandl eiginmaður hennar, millj- ónamæringurinn „Baby” hefur á sínum snærum, mundu geta fund- ið drengina, en sú von verður daufari með hverjum deginum sem ! líður. Hún vill að skilnaðará- I kvæðunum verði framfylgt, og fá að hitta syni sína, sem reyndar 1 er ekki nema vonlegt. 1 • • Oldungar í Sovét í SOVÉTRÍKJXJNUM eru rúm- lega 21 þúsund manns, sem eru 100 ára og eldri. Ekki munu í nokkru landi vera jafnmargir menn og konur, sem náð hafa svo háurix aldri. Sovézki heilbrigðismálaráð- herrann Sergej Kurasjov, sem nýlega var á ferð í Stokkhólmi minntist þar meðal annars á þessi mál. Kurasjov, er sjálf- ur læknir, og auk þess prófess- or í heilsufræði við læknahá- skólann í Moskva. Það er einkum í Kákasus, sem fólk verður svona gamalt, sagði hann, þegar hann var á ferð í Stokkhólmi. Nýlega lézt í Kákasus maður sem var 146 ára gamall. Sjálfur sagði hann um þennan háa aldur sinn: Eg varð svona gamall vegna þess að það hefur aldrei neinn ráð- ið yfir mér, ég hef aldrei ver- ið öfundsjúkur, — og svo hef ég verið kvæntur þrisvar sinn- um. Þessar röksemdir eru nú ekki sérlega vísindalegar. Læknar óg vísindamenn vilja finna ein hverjar raunhæfari og vísinda- legri skýringar á þessum háa aldri, Augljóst er þó, að flestra dómi, að loftslag og mataræði skiptir miklu máli í þessu sam- bandi. í Kákasus er mjög mik- ið af næringarefnaríkum jurt- um, sem mjög eru notaðar til matargerðar, og sem fyrr seg- ir, þá verður fólk hér á jörðu hvergi eldra en einmitt í Ká- kasus. í bænum Carlos í Salas, sem er í námunda við Buenos Aires, hafa sjö bræður gifzt sjö systr um. Ástæðan; Fjölskyldurnar hafa eldað grátt silfur saman í áraraðir. £ 2. okt. 1963 — ALpÝÐUBLAÐIÐ • m

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.