Verkamaðurinn - 22.09.1928, Blaðsíða 3
VERKAMAÐURINN
3
Borðteppi frá kr. 4.50
Dívanteppi 9.50
Undirlök mislit 2.00
Undirlök hvít 3.00
Gólfmottur
(»forleggere«) . 3.00
Gólfdreglar metr. 2.20
Brauns Verslun.
Páll Sigurgeirsson.
Skósmíðaverkstæðið
í Aðalstræti 10
er nú fyrir alvöru tekið til starfa. — Leður- og gúmmískófatn-
aður tekin til aðgerða. — Vatnsleðurstígvél smíðuð eftir máli. —
Verð á aðgerðum og nýsmíði er það lægsta fáanlega, miðað
við vandað efni og góða vinnu.
Virðingarfylst.
GUNNAR S. HAFDAL.
Vegna hreinsunar rafveitupollsins, verður
rafstraumur tekinn af frá klukkan fjögur
árdegis til klukkan fjögur síðdegis fjóra
daga, eða frá næstkomandi Sunnudags morgni
til Miðvikudags.
Akureyri 21. September 1928.
Rafveitustjórinn.
Hárgreiðslustofa.
Laugardaginn 22. þ. m. opna jeg hárgreiðslustofu í Hafnarstræti 35
(gengið inn að norðan). Hárgreiðslustofan verður opin alla virka daga
frá kl. 9 f. h. til kl. 7 e. h.
Þar geta dömur fengið m. a.:
Klipping, Ondulation, Vatns-ondulation, Andlitsböð, Nudd, Hárkúrar,
Manicure og allskonar hárvinna.
Pantið í sfma 62.
Virðingarfylst.
ída G. Björnsson.
Jakob Möller,
bankaeftirlitsmaður, hefir fengið
greitt af opinberu fé árið 1926,
samkv. skýrslu ríkisgjaldanefnd-
ar:
Laun og dýrtíðar-
uppbót kr. 16.733.00
Þingmannskaup — 1987.92
Ferðakostnaður —. '2119.00
Frá útb, á Selfossi — 122.00
Samtals kr. 20961.92
— tuttugu þúsund níu hundruð
sextíu og ein króna níutíu og tveir
áurar. — Aukastörf hafði hann
engin fyrir það opinbera, svo vit-
að sé.
Jakob segist ekki vera íhalds-
maður.
------o-------
Úr bœ og bygð. \
Kirkjan. Messað á morgun kl. 2.
bæjarstjórnarfundi fyrir 5 ný íbúðar-
hús. Þorsteinn Thorlacius og Elín Ein-
arsdóttir byggja við Oddeyrargötu,
Kristján Markússon við Gilsbakkaveg,
Guðrún Sigurgeirsdóttir við Bjarmastíg
og Magnús Einarsson við Eiðsvallarg.
Skipagöngur. Síðustu daga fiafa kom-
ið hingað 3 farþegaskip: Brúarfoss,
Esja, og Dr. Alexandrine. Hið síðast-
nefnda liggur hér í dag. Með Brúar-
fossi fór Magnús Kristjánsson, fjár-
málaráðherra. Hann hefir dvalið hér
um tíma, sjer til hressingar eftir á-
fallið í sumar. Er hann nú orðinn nokk-
urnveginn heill heilsu.
Bæjarstjórnarfundurinn, sem frestað
var á Þriðjudaginn var, var haldinn í
fyrradag, og stóð rúmlega 4 stundir.
Urðu allharðar umræður um kaupin á
bryggju og húseignum Wathne á Odd-
eyrartanga. Loks var samþ. tillaga
hafnarnefndar, að kaupa eignina, ef
hún fæst fyrir 25 þús. krónur. Veröur
þá væntanlega bryggjan stækkuð og
bætt, og gerð að nýtilegri stórskipa-
bryggju til allrar afgreiðslu* Verði af
kaupunum, eignast bærinn þar þarfa
eign, sem líkleg er til að gefa höfninni
góðar tekjur í framtíðinni.
Slátrun byrjaði í nýja sláturhúsintt
í gær. Ekk verður þó fullur kraftnr á:
slátruninni fyr en á Mánudag.