Verkamaðurinn - 29.02.1936, Blaðsíða 1
VERKA
URINN
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XVIV. árg.
Akureyri, laugardaginn 29. febrúar 1936.
17. tbl.
Frá SiglMfirfH.
Fáhcyrð ósvíáni.
Verkamannafélagið »Þróttur« á
Siglufirði hefir ákveðið að gera
tilraun til að útiloka alla verka-
menn frá vinnu, aem ekki eru
meðlimir í »Þrótti« eða öðrum
félögum í Alþýðusambandinu.
Herferð þessa á að byrja í
ríkisverksmiðjunum og fara síð-
an um allar vinnustöðvar kaup-
staðarins. Kaupsamningar þeir,
sem voru fyrra ár, gilda einnig
fyrir yfirstandandi ár svo ekki
verður hægt að fá þetta ákvæði
i samningana að þessu sinni, en
i samningunum er það tekið
fram, að allir þeir, sem hafa
unnið í verksmiðjunum sjtji fyr-
ir vinnu áfram.
Nú mun vera í ráði að ríkis-
verksmiðjurnar byrji á karfa-
vinslu með vorinu og heflr
heyrst að stjórn þeirra muni
fara fram á að verkamenn lækki
kaup sitt. Formaður »Þróttar«,
Kristján Sigurðsson, heflr haft
við orð, að við þá »samninga-
gerð« myndi útilokunarákvæðið
fást í samningana, ef sýnd væri
samningalipurð á öðrum sviðum
frá »Þróttar« hálfu. Með öðrum
orðum, ef »Þróttur« lækkar kaup-
ið þá sé hægt að fá i staðinn
þvingunarákvæðið.
Þessi ákvörðun »Þróttar« er
gerð að ráði Jóns Sigurðssonar
»erindreka«. Maður þessi, sem
gengur með mikilmenskubrjál-
æði (Storhedsvanvid) á háu stigi,
telur sig sjálfkjörinn foringja
norðlenska verkalýðsins, en þrátt
yrir gáfnaíar hans — er ekki
verður gert hér að umtalsemi —
sér hann þó að líkur eru litlar
til að honum takist að vinna
verkalýðinn til fylgis við sig, og
þvi hygst hann að kúga menn
til fylgis við sig með því að
skapa sér aðstöðu til að geta
flæmt þá verkamenn burtu úr
Siglufirði, er ekki vilja játast
undir hans pólitísku trúarjátn-
ingu.
Jóni Sigurðssyni var mútað í
iyrrasumar af atvinnurekendum
til að lækka kaupgjald hér, roeð
því að semja við klofningsféiög-
in. Verkamenn hér voru of ósam-
taka til að geta eyðilagt þá samn-
inga. En það er öðru máli að
gegna nú og ekki líklegt að
verkamenn láti bjóða sér slikt
oftar.
ósvifni forráðamanna »Þróttar«
hefir þegar gengið svo langt, að
þeir eru farnir að hóta verka-
mönnum í Verkamannaíél. Siglu-
fjarðar, sem vinnu eiga lofaða i
verksmiðjunum, því að þeir verði
reknir úr verksmiðjunum ef þeir
ekki gangi úr Verkamannafél.
Siglufjarðar og í »Þrótt«, og hafa
fullyrt að framkvæmdastjórinn
Gisli Halldórsson myndi standa
með »Þrótti« i þessu máli.
Stjórn Verkamannafél. Siglu-
Alþýðuhúsið á Siglufirði
Um miðjan þessa mánaðar var
lokið við endurbyggingu Alþýðu-
hússins á Siglufirði.
Stærð hússins er 11x21 m.
Fundarsalurinn er 10,5x12 m. og
er bygður i funkisstíl. Við aust-
urenda salsins er leiksvið og
buningsherbergi, en undir leik-
sviðinu er geymsla.
1 vesturenda hússins er for-
stofa og er gólfið klætt þykkum
og vönduðum gúmmidúk. Úr
forstofunni liggur snúinn stigi
upp á svalirnar og er hann sömu-
leiðis klæddur gúmmidúk.
Auk forstofunnar eru í vestur-
enda hússins eldhús, ráðskonu-
herbergi, fatageymsluherbergi,
mjög haganlega útbúið, tvö snyrti-
herbergi og tveir klósettklefar.
Úr eldhúsinu er lyfta upp á
svalirnar.
Yfir forstofu, og öðrum her-
bergjum i vesturenda hússins eru
svalir, en þeim er hægt að loká
með stoppuðum krossviðshurð-
um svo hægt er með þvi að
breyta svölunum í allstóran
fundarsal.
Undir vesturenda hússins eru
2 kjallarar, annar fyrir miðstöð
og kolageymslu en hinn fyrir
ýmsa aðra geymslu.
Veggir salsins og svalanna eru
klæddir að neðan Oregon-pine-
krossvið, en að ofan panel og
striga, sem á er límdur pappir
og síðan málað yfir. Gólfið er
klætt Oregon-pine-borðum. Máln-
ing á húsinu er mjög smekkleg
og ljósaútbúnaður þess mjög
vandaður, er hann tvennskonar
i salnum, annar fyrir dans en
hinn fyrir fundahöld.