Verkamaðurinn - 16.06.1936, Side 1
VERKA
URINN
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XVIV. árg.
Akureyri, ^riðjudaginn 16. júní 1936.
48. tbl.
Sami sjómanna knyja tram kröfu peirra
um200kr. lágmarkstningu.
HelmiDgur síldveiðaflotans
heflr þegar lögskráð upp á
200 króna trygginguna, þrátt
fyrir hinar svivirðilegu til-
raunir Álþýðufl.forkólfanna.
Sjómannafundur útgerdar-
manna.
Það er gömul reglá atvinnurek-
enda að reyna að komast hjá því
í lengstu lög, að viðurkenna sam-
tök verkafólksins. t yfirstandandi
deilu hafa útgerðarmenn hér
fylgt þessari reglu, og lagt sig
fram um að komast hjá að viður-
kenna Sjómannafélag Norður-
lands. Ein tilraunin til þess og til
að sundra sjómönnum, var hinn
„frægi“ fundur í Samkomuhúsinu
s. 1. laugardag.
Utgerðarmenn þóttust vilja tala
við sjómennina sjálfa, og boðuðu
fund í Samkomuhúsinu kl. 4 s. 1.
laugardag. Öllum skipstjórum,
stýrimönnum, vélamönnum og
matsveinum, sem vitað var að
væru á móti lágmarkstryggingu,
var smalað á fundinn og svo fjöl-
menntu útgerðarmenn sjálfir. En
stjórn Sjómannafélagsins átti ekki
að leyfa inngöngu, eftir mikið
þref fengu þó þrír úr stjórninni
að koma inn, en formaðurinn
einn fékk málfrelsi — takmarkað
þó —. Útgerðarmenn báru fram
tillögur sínar um 150 króna lág-
markstryggingu og var hún auð-
vitað samþykt, enda greiddu út-
gerðarmennirnir sjálfir atkvæði
um hana. Meirihluti fundarmanna
taldi réttilega atkvæðagreiðslu
þessa hinn mesta skrípaleik og
vildi ekki taka þátt í henni.
Tryggvi Helgason, form. Sjó-
mannafélagsins, flutti tillögu um
að sjómenn héldu sér við taxta
Sjómannafélagsins, en sú tillaga
var aldrei borin undir atkvæði.
Það hefir vakið mikla athygli, að
á fundinum kom Erlingur Friðj-
ónson með símskeyti frá stjórn
Alþýðusambands Islands, þar sem
honum er gefið umboð til að
semja um 150 króna lágmarks-
tryggingu fyrir sjómenn. Þessi
framkoma Erlings — undir hand-
leiðslu afturhaldsbrodda Alþ.fl. —
verður ekki lögð út nema á einn
veg, sem bein verkfallsbrjóta-
starfsemi, tilraun til að lækka
kaup og tilraun til að drepa sam-
tök sjómanna. Sjómenn og verka-
fólk hér er mjög gramt við Erling
og hefir hann fyrirlitningu allra
heiðarlegra manna í bænum. Það
er líka almanna mál hér, að með