Verkamaðurinn

Issue

Verkamaðurinn - 16.06.1936, Page 1

Verkamaðurinn - 16.06.1936, Page 1
VERKA URINN Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands. XVIV. árg. Akureyri, ^riðjudaginn 16. júní 1936. 48. tbl. Sami sjómanna knyja tram kröfu peirra um200kr. lágmarkstningu. HelmiDgur síldveiðaflotans heflr þegar lögskráð upp á 200 króna trygginguna, þrátt fyrir hinar svivirðilegu til- raunir Álþýðufl.forkólfanna. Sjómannafundur útgerdar- manna. Það er gömul reglá atvinnurek- enda að reyna að komast hjá því í lengstu lög, að viðurkenna sam- tök verkafólksins. t yfirstandandi deilu hafa útgerðarmenn hér fylgt þessari reglu, og lagt sig fram um að komast hjá að viður- kenna Sjómannafélag Norður- lands. Ein tilraunin til þess og til að sundra sjómönnum, var hinn „frægi“ fundur í Samkomuhúsinu s. 1. laugardag. Utgerðarmenn þóttust vilja tala við sjómennina sjálfa, og boðuðu fund í Samkomuhúsinu kl. 4 s. 1. laugardag. Öllum skipstjórum, stýrimönnum, vélamönnum og matsveinum, sem vitað var að væru á móti lágmarkstryggingu, var smalað á fundinn og svo fjöl- menntu útgerðarmenn sjálfir. En stjórn Sjómannafélagsins átti ekki að leyfa inngöngu, eftir mikið þref fengu þó þrír úr stjórninni að koma inn, en formaðurinn einn fékk málfrelsi — takmarkað þó —. Útgerðarmenn báru fram tillögur sínar um 150 króna lág- markstryggingu og var hún auð- vitað samþykt, enda greiddu út- gerðarmennirnir sjálfir atkvæði um hana. Meirihluti fundarmanna taldi réttilega atkvæðagreiðslu þessa hinn mesta skrípaleik og vildi ekki taka þátt í henni. Tryggvi Helgason, form. Sjó- mannafélagsins, flutti tillögu um að sjómenn héldu sér við taxta Sjómannafélagsins, en sú tillaga var aldrei borin undir atkvæði. Það hefir vakið mikla athygli, að á fundinum kom Erlingur Friðj- ónson með símskeyti frá stjórn Alþýðusambands Islands, þar sem honum er gefið umboð til að semja um 150 króna lágmarks- tryggingu fyrir sjómenn. Þessi framkoma Erlings — undir hand- leiðslu afturhaldsbrodda Alþ.fl. — verður ekki lögð út nema á einn veg, sem bein verkfallsbrjóta- starfsemi, tilraun til að lækka kaup og tilraun til að drepa sam- tök sjómanna. Sjómenn og verka- fólk hér er mjög gramt við Erling og hefir hann fyrirlitningu allra heiðarlegra manna í bænum. Það er líka almanna mál hér, að með

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.