Verkamaðurinn - 03.10.1936, Side 1
YERKMHAOURiniI
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XVIV. árg.
Akureyri, laugardaginn 3. október 1936.
79. tbl.
Álmenn hervæðing í ffladrid
Stjórnarherinn veitir harðvítuga mótspyrnu.
Alllengi undanfarið hefir út-
•varpið íslenska þvi nær eingöngu
birt fréttir frá fasistunum á Spáni,
eða skoðanabræðrum þeirra, uns
nú 2—3 síðustu dagana að birt-
ar hafa verið fregnir frá spænsku
stjórninni.
Fyrir nokkrum dögum síðan
náðu uppreistarmenn Toledo aft-
ur á sitt vald. Þessi sigur þeirra
varð til þess að borgaraleg blöð
hafa nú Iátið svo ummælt, að
úrslitabaráttan sé alveg á næstu
grösum, enda hafa uppreistar-
menn ekki sparað gifuryrði i
sambandi við þennan sigur sinn
og tilkynna nú stöðugt, eins og
þeir hafa raunar gert, alveg frá
því að þeir hófu uppreistina, —
að þeir muni nú taka Madrid
innan fárra daga.
Samkvæmt siðustu fregnum
veitir stjórnarherinn öfluga mót-
spyrnu, bæði suðaustan og norð-
austan við borgina.
Rýr stjórnarherinn sig kapp-
samlega undir að verja borgina
og hefir stjórnin gefið út tilskipun
um almenna hervæðingu.
Spænska þingið kom saman
i fyrradag og sampykti þar trausts-
yfirlýsingu á stjórnina. Auk þess
samþykti þingið m. a. að flytja
þjóðbankann úr borginni og i
gær voru flutt 100 miljón ster-
lingspund til Alicante og Carta-
gena. Þá samþykti þingið að
veita Baskahéruðunum sjálfstæði.
Fyrir fáum dögum síðan undir-
ritaði Ázana íorseti tilskipun um
að jarðeignir allra þeirra, er veittu
uppreistarmönnum stuðning,
skyldu gerðar upptækar.
Við Oviedo og Huesca sækir
stjórnarherinn fram og herskip
stjórnarinnar gerðu harðvítuga
árás á borgir uppreistarmanna í
Marokko.
Lögreglan í Reykjavik varð
þess vör i siðustu viku, að minn-
isbók Eysteins Jónssonar, ráð-
herra, er hafði horfið úr vörsl-
um hans fyrir nokkru síðan —
var komin í hendur nasista. Kom
í Ijós, að þeir ætluðu að birta
ýmislegt úr bókinni í blaði sínu.
Var þá kveðinn upp úrskurður
um, að bann skyldi lagt við þvi,
þar sem þarna var um einka-
skjöl að ræða. Prentsmiðju Stein-
dórs Gunnarssonar, sem prentar
blaðið (Steindór þessi gaf út æfi-
sögu Trotskys, íhaldið þekkir
altaf sinal), var skipað að af-
henda lögreglunni próförk af
blaðinu, áður en það kæmi út,
en prentsmiðjan hirti ekkert um
þau fyrirmæli og sveik gefin lof-
orð. Það, sem blaðið birti úr
hinni stolnu minnisbók eru að
engu leyti merkileg eða eftirtekt-
arverð ummæli. Á föstudags-
kvöldið (I fyrri viku) voru þrlr
Utanrikismálaráðherra Spánar
hefir lagt fram ákæruskjal i
Þjóðabandalaginu, á hendur
Þýskalandi, Italiu og Portugal,
fyrir stuðning við uppreistarmenn.
Stjórn uppreistarmanna í Bur-
gos tilkynti í gær að Franco
hershöíðingi væri gerður að ein-
ræðisherra á Spáni og sendi hann
Þjóðabandalaginu skjal þar sem
hann taldi upp hryðjuverk, sem
stjórnarsinnar áttu að hafa framið,
en Avenol aðalritari Þjóðabanda-
lagsins neitaði að taka á móti
þessu skjali.
að pjofnaði á einkaskjölum.
nasista-»foringjar« settir í gæslu-
varðhald. Við yfirheyrsluna bar
þessum lítilmennum ekkert sam-
an, eins og títt er um þjófa, og
báru núverandi ritstjóri og fyr-
verandi ritstjóri lygar hvor á
annan. — Var síðan þessum
uppeldissonum »Sjálfstæðisflokks-
insc slept úr varðhaldinu siðast-
liðinn mánudag.
Alstaðar, nema i herbúðum
Morgunblaðsins, er talað um þetta
framferði nasistanna með megn-
ustu fyrirlitningu, þó mönnum
binsvegar komi ekkert á óvart,
að þeir skuli stela einkaskjölum
manna. Slíkt athæfi er i fullu
samræmi við stefnu nasista og
aðrar starfsaðferðir þeirra. Feir
hafa hvað eftir annað ráðist á
andstæðinga sina og misþyrmt
þeim, þeir hafa brotist inn í hús,
kveikt i húsum, brotið rúður i