Verkamaðurinn

Issue

Verkamaðurinn - 03.10.1936, Page 1

Verkamaðurinn - 03.10.1936, Page 1
YERKMHAOURiniI Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands. XVIV. árg. Akureyri, laugardaginn 3. október 1936. 79. tbl. Álmenn hervæðing í ffladrid Stjórnarherinn veitir harðvítuga mótspyrnu. Alllengi undanfarið hefir út- •varpið íslenska þvi nær eingöngu birt fréttir frá fasistunum á Spáni, eða skoðanabræðrum þeirra, uns nú 2—3 síðustu dagana að birt- ar hafa verið fregnir frá spænsku stjórninni. Fyrir nokkrum dögum síðan náðu uppreistarmenn Toledo aft- ur á sitt vald. Þessi sigur þeirra varð til þess að borgaraleg blöð hafa nú Iátið svo ummælt, að úrslitabaráttan sé alveg á næstu grösum, enda hafa uppreistar- menn ekki sparað gifuryrði i sambandi við þennan sigur sinn og tilkynna nú stöðugt, eins og þeir hafa raunar gert, alveg frá því að þeir hófu uppreistina, — að þeir muni nú taka Madrid innan fárra daga. Samkvæmt siðustu fregnum veitir stjórnarherinn öfluga mót- spyrnu, bæði suðaustan og norð- austan við borgina. Rýr stjórnarherinn sig kapp- samlega undir að verja borgina og hefir stjórnin gefið út tilskipun um almenna hervæðingu. Spænska þingið kom saman i fyrradag og sampykti þar trausts- yfirlýsingu á stjórnina. Auk þess samþykti þingið m. a. að flytja þjóðbankann úr borginni og i gær voru flutt 100 miljón ster- lingspund til Alicante og Carta- gena. Þá samþykti þingið að veita Baskahéruðunum sjálfstæði. Fyrir fáum dögum síðan undir- ritaði Ázana íorseti tilskipun um að jarðeignir allra þeirra, er veittu uppreistarmönnum stuðning, skyldu gerðar upptækar. Við Oviedo og Huesca sækir stjórnarherinn fram og herskip stjórnarinnar gerðu harðvítuga árás á borgir uppreistarmanna í Marokko. Lögreglan í Reykjavik varð þess vör i siðustu viku, að minn- isbók Eysteins Jónssonar, ráð- herra, er hafði horfið úr vörsl- um hans fyrir nokkru síðan — var komin í hendur nasista. Kom í Ijós, að þeir ætluðu að birta ýmislegt úr bókinni í blaði sínu. Var þá kveðinn upp úrskurður um, að bann skyldi lagt við þvi, þar sem þarna var um einka- skjöl að ræða. Prentsmiðju Stein- dórs Gunnarssonar, sem prentar blaðið (Steindór þessi gaf út æfi- sögu Trotskys, íhaldið þekkir altaf sinal), var skipað að af- henda lögreglunni próförk af blaðinu, áður en það kæmi út, en prentsmiðjan hirti ekkert um þau fyrirmæli og sveik gefin lof- orð. Það, sem blaðið birti úr hinni stolnu minnisbók eru að engu leyti merkileg eða eftirtekt- arverð ummæli. Á föstudags- kvöldið (I fyrri viku) voru þrlr Utanrikismálaráðherra Spánar hefir lagt fram ákæruskjal i Þjóðabandalaginu, á hendur Þýskalandi, Italiu og Portugal, fyrir stuðning við uppreistarmenn. Stjórn uppreistarmanna í Bur- gos tilkynti í gær að Franco hershöíðingi væri gerður að ein- ræðisherra á Spáni og sendi hann Þjóðabandalaginu skjal þar sem hann taldi upp hryðjuverk, sem stjórnarsinnar áttu að hafa framið, en Avenol aðalritari Þjóðabanda- lagsins neitaði að taka á móti þessu skjali. að pjofnaði á einkaskjölum. nasista-»foringjar« settir í gæslu- varðhald. Við yfirheyrsluna bar þessum lítilmennum ekkert sam- an, eins og títt er um þjófa, og báru núverandi ritstjóri og fyr- verandi ritstjóri lygar hvor á annan. — Var síðan þessum uppeldissonum »Sjálfstæðisflokks- insc slept úr varðhaldinu siðast- liðinn mánudag. Alstaðar, nema i herbúðum Morgunblaðsins, er talað um þetta framferði nasistanna með megn- ustu fyrirlitningu, þó mönnum binsvegar komi ekkert á óvart, að þeir skuli stela einkaskjölum manna. Slíkt athæfi er i fullu samræmi við stefnu nasista og aðrar starfsaðferðir þeirra. Feir hafa hvað eftir annað ráðist á andstæðinga sina og misþyrmt þeim, þeir hafa brotist inn í hús, kveikt i húsum, brotið rúður i

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.