Verkamaðurinn

Útgáva

Verkamaðurinn - 05.12.1936, Síða 1

Verkamaðurinn - 05.12.1936, Síða 1
VERXftlKADURinn Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands. XIX. árg. | Akureyri, laugardaginn 5. desember 1936. 97. tbl. Sameiginlegur fundur Verkamannafél. Ak. og „Einingar“ skorar á bæjarstjórn að beiia sér fyrir byggingu íþrótfahúss. Hinn sameiginlegi fundur Verkamannafél. Ak. og verka- kvennafél. »Eining« s.l. sunnudag var sæmilega vel sóttur og voru umræður fjörugur. Fyrsta málið á dagskrá var IjáfhagsáStllM bSjaiÍDS. Hafði Steingr. Aðalsteinsson íram- sögu og lagði, fyrir hönd félags- stjórnanna allmargar breytingar- tillögur fyrir fundinn, við frum- varp fjárhagsnefndar um fjárhags- áætlun Akureyrarkaupstaðar 1937 og skýrði þær síðan ýtarlega. Voru tillögurnar samþyktar með samhljóða atkvæðum. Enn- fremur lagði framsögumaður fram eftirfarandi tillögu, er var samþ. i einu hljóði: »Fundurinn skorar á bæjarstjórn að láta þegar gera áætlun um byggingar- kostnað kartöflukjallara, sem nægja mundi til geymslu á kartöflum bæjar- búa, í náinni framtíð. Sú fjárhæð sé síðan tekin á fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár, og kjallarinn bygður fyrir næsta haust*. Næsta mál á dagskránni var bygging Ipróttahúss. Framsögumaður þorst. Þorst. rakti allýtarlega hina brýnu þörf á nýju íþrótta- húsi í bænum til afnota fyrir skóla og iþróttafélög bæjarins. Voru eftirfarandi tillögur sam- þyktar í einu hljóði: 1. Vegna hins tiifinnanlega skorts á íþróttahúsi fyrir skóla og íþrótta- félög bæjarins skorar fundurinn i bæjarstjórn Akureyrar að beita sér fyrir þvl að bygt verði nýtt, fullkomið fþróttahús á næsta sumri á þeim stað, sem því er ætlaður á skipulagsupp- drætti bæjarins eða öðrum þeim stað, sem ekki er fjær sundlauginni, og síðan útvega næga góða kenslukrafta til þess að fullnægja þörfum og kröf- um skólanna og íþróttafélaganna á því sviði. (Framhald á 2. síðu). Unpíeistam). nota eitup. Her lýdveldissinna sœkir fram. Hitler sendir Franco 5000 hermenn. Stjórnarherinn virðist hvarvetna bera sigur úr býtum í viðureign- inni við uppreistarmenn undan- farna daga og sækir víða fram, t. d. á Norður-Spáni. Vestan við Madrid hafa verið harðvítugir bardagar og er sérstaklega barist um eitt þorp í Casa del Campo. Hafa uppreistarmenn hvað eftir annað gert grimmilegar árásir i þeim tilgangi að hrekja stjórnar- sinna úr þessu þorpi, en sam- kvæmt siðustu fregnum hafa stjórnarsinnar haldið velli. I fyrradag lét stjórnin gera 3 loftárásir á vígstöðvar uppreistar- manna vestan við Madrid. Tóku 9 spreugjuflugvélar þátt í árásun- um og 14 fylgiflugvélar. Uppreist- (Framh. á 2. síðu). Ihaldsflokkurinn og Bændafl. vinna saman eins og einn maður. Undanfarið hefir verið háð harðvítyg barátta í búnaðarfélög- unum viðsvegar nm land, meðal annars hér í firðinum, um af- stöðuna til nýju jarðræktarlag- anna. Á fundum búnaðarfélag- anna hefir það komið skýrt i ljós, eins og vitanlegt var að visu áður, að ihaldsflokkurinn og Bændaflokkurinn hafa stað sam- an eins og einn maður gegn Framsókn. Atkvæðagreiðslum i Búnaðarfélögunum er ekki lokið enn um alt land, en hér i inn- firðinum hafa úrslitin orðið þau, að öll búnaðarfélögin hafa tjáð sig fylgjandi jarðræktarlögunum nýju. Svafar Guðmundsson, banka- stjóri hefir mætt á mörgum þess- um fundum, fyrir íhaldið, ef ekki öllum, og hefir auk þess haldið aukafundi með traustustu stoðum íhaldsins i firðinum, til þess að undirbúa fundina í bún- aðarfélögunum. Það er enginn efi á þvi, að Framsóknarflokkur- urinn hefir unnið altof slælega bæði hér i firðinum og annars- staðar á móti blekkingavaðli íhaldsins og flugumanna þess, ennfremur hefir hann ekki haft nægilegt samband við hina vinsri flokkana, en ef þeir hefðu allir unnið saman i þessu máli gegn

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.