Verkamaðurinn - 10.02.1945, Blaðsíða 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 10. febrúar 1945. 6. tbl.
Aðalfundur Verkamannafélags
. Akureyrarkaupsfaðar
Röggsamlegar ráðstafanir
í ísliskmálunum
Steingrímur Aðalsteinsson kosinn formaður
Verkamannafélagið hélt aðal-
fund sinn sl. sunnudag og var hann
fjölsóttur. Fráfarandi formaður
flutti skýrslu um starfsemi félagsins
á liðnu starfsári, 1 félagið höfðu
gengið á árinu 69 menn, en 11 úr-
sagnir borizt og voru félagsmenn í
árslok um 350. Eignir félagsins
höfð vaxið á árinu um rúmlega 3
þús. kr.
Að aflokinni skýrslu sinni lýsti
formaður úrslitum allsherjarkosn-
inganna, en þau urðu á þá leið, að
A-listjnn lilaut 123 atkv., B-listinn
157, en 2 seðlar voru ógildir og 1
auður.
Hin nýja stjórn og trúnaðar-
mannaráð er þannig skipuð:
Formaður:. Steingrímur Aðal-
steinsson. Ritari: Adolf Friðfinns-
son. Gjaldkeri: Rósberg G. Snædal.
Meðstjórnendur: Loftur Meldal og
Kristinn Árnason. Varaformaður:
Bjcirn Jónsson. Vararitari: Hösk
uldur Egilsson. Varagjaldkeri: Stgr.
Eggertsson. Varameðstjórnendur:
Stefán Árnason og Tryggvi Emils-
son. Trúnaðarmannaráð: Björn
Jónsson, Stefán Árnason, Árni Þor-
grímsson, Steingr. Eggertsson, Sig
urjón Jóhannesson, Torfi Vil-
hjálmsson. Varamenn: Höskuldur
Egilsson, Pálmi Jónsson, Þórður
Valdimarsson, Þorgeir Ágústsson,
Kristján Einarsson og Áskell
Snorrason.
Að loknum umræðum um
skýrslu fráfarandi stjórnar héldu
AÐALFUNDUR
verkakvennafél. „EINING“
Verkakvennafélagið „Eining“ hélt
aðalfund sinn 4. febr. sl. — Stjórn-
ina skipa þessar konur:
Elísabet Eiríksdóttir, formaður.
Sigríður Þorsteinsdóttir, varaform.
Áslaug Guðmundsdóttir, ritari.
Lísbet Tryggvadóttir, gjaldkeri.
Elísabet Kristjánsdóttir, meðstj.
Varastjórn:
Hulda Ingimarsdóttir.
Ingunn Eiríksdóttir.
Aðalheiður Eggertsdóttir.
T rú naðar man naráð:
Margrét Vilmundardóttir.
jc'ma Gísladóttir.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir.
Guðrún Guðvarðardóttir.
Til vara:
Ólína Gunnlaugsdóttir.
Guðný Vilmundardóttir.
Rc')sa Jóhannsdóttir.
Endurskoðendur:
Guðrún Guðvarðardóttir.
Ingibjörg firíksdóttir.
aðalfundarstörf áfram. í dómnefnd
voru kosnir: Haraldur Þorvaldsson,
Áskell Snorrason, Daníel Guðjóns-
son, Stefán Árnason og Tryggvi
Emilsson. 1 liúsnefnd Verklýðshúss-
ins hlutu kosningu: Steingrr Aðal-
steinsson, Pálmi Gtiðnason og Svav-
ar Jóhannesson. Endurskoðendur
reikninga voru kjörnir: Marteinn
Sigurðsson og Sigurður Róbertsson.
Samþykt var á fundinum að
hækka árgjald félagsmanna í kr. 35
og skyldi hækkuninni, kr. 5, varið
til væntanlegrar skrifstofu verka-
lýðsfélaganna hér í bænum, en það
hefir lengi verið áhugamál Verka-
mannafélagsins að koma á fót
slíkri skrifstofu, enda hin mesta
nauðsyn.
1 umræðunum á* fundinum kom
það greinilega í ljós, er rætt var um
nýafstaðnar kosningar, að verka-
menn eru staðráðnir í því að vinna
saman að málum félagsins og heill
þess, þrátt fyrir nokkurn skoðana-
mun. Þeir, sem hafa vænst sundr-
ungar eða jafnvel klofnings út af
kosningunum hafa hlakkað of
snemm aog munu verða fyrir hin-
um hverfilegustu vonbrigðum.
STUTTAR FRÉTTIR
Stjórn Pierlots í Belgíu hefir
beðist lausnar, vegna þess að ráð-
herrar sósíaldemokrataflokksins
höfðu sagt af sér, en miðstjórn
flokksins hafði samþykt þá ráðstöf-
un með 14 atkv. gegn 2.
*
Hollenska stjórnin hefir einnig
beðist lausnar. Báðar þessar stjc')rn-
arbreytingar stafa af því að almenn-
ingur í viðkomandi löndum er í al-
gjörri andstöðu við stefnu og
vinnubrögð fráfarandi stjórna, sem
setið hafa í skjóli bretska aftur-
haldsins.
STALIN, ROOSEVELT
OG CHURCHILL
-Á RÁÐSTEFNU
Hinir þrír ,,stóru“, Stalin, Roose-
velt og Churchill eru nú á ráð-
stefnu. Talið er að hún sé einhvers
staðar í nánd við Svartahaf. Algert
samkomulag hefir náðst um rekst-
ur styrjaldarinnar til stríðsloka, og
viðræður fara nú fram um vanda-
mál eftirstríðsáranna.
Mikill fögnuður ríkir í löndum
Bandamanna yfir þeim árangri,
sem þegar er kunnugt um að hefir
náðst á ráðstefnunni.
Atvinnumálaráðuneytið hefir,
samkvæmt heimild í lögum nr. 11
frá 12. febr. 1940, um sölu og út-
flutning á vörum, ákveðið að leyfa
ekki útflutning á ísuðum fiski í er-
lendum flutningaskipum, öðrum
en færeyskum, nema hann fari
fram á vegum ríkisstjórnarinnar, er
þvx öllum öðrum óheimilt að
flytja út ísaðan fisk með slíkum
skipum.
Verður sá ágóði, er verða kann af
þessum útflutningi fisksins og ann-
ari hagnýtingu aflans, eftir nánari
ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
Ástæðan fyrir því, að ríkisstjórn-
in hefir nú gripið til fyrnefndrar
lagaheimildar er sú, að nokkrir
Bvgging sjúkrahússins
hafin í vor.
Alþingi hefir samþykt frumvarp
um breytinugu á spítalalögunum.
Leggur ríkið nú fram 3/5 hluta af
byggingakostnaði sjúkrahúsa.
Mun spítalanefnd og bæjarstjórn
Akureyrar nú loksins hefjast handa
í vor með byggingu sjúkrahússins,
sem almenningur hefir beðið eftir
með óþreyju.
Ranði herinn 65 km.
frá Berlín.
Rauði herinn er nú 65 km. frá
Berlín og kominn að Oder á yfír 80
km. kafla austur af Berlín og jafn-
vel yfir fljótið samkvæmt fregnum
Þjóðverja. Þj(')ðverjar segja að
Rússar séu aðeins 56 km. frá Ber-
lin. í Slesíu eru Rússar komnir yfir
Oder á löngum kafla og hafa sótt
fiam vestan árinnar 20—30 km.
háða vegu við Breslau.
Síðustu fréttir.
1 Austur-Prússlandi eru Rússar
búnir að umkringja hafnarborgina
Elbing og eru komnir að úthverf-
um Königsberg. Þá nálgast Rússar
óðum Stettin og eru sagðir um 40
km. frá borginni.
Á vetsurvígstöðvunum hafa her-
sveitir Montgomerys hafið nýja
sókn.
Olíuverðið hækkar
Hráolía hefir verið hækkuð úr
kr. 42 aura lítr. af geymum og
tunnum, uþp í 55 aura af geymum
og 57eyri af tunnum. Steinolía
hefir hækkað úr (i0 aurum lítr. á
1/1 tunnum upp í 81-eyri, bensín
úr 67 aurum lítr. upp í 77 aura.
í næsta blaði verður nánar rætt
um þessi mál.
braskarar í Reykjavík voru húnir
að leigja þau hretsku skip, senx not-
uð hafa verið til ísfisksflutnings
undanfarin ár, samkvæmt fisksölu-
samningnum við Breta, en Bretar
sögðu þeim samningi upp um ára-
mótin. Ætluðu braskararnir að
nota sér það vandræðaástand, sem
skapaðist við uppsögn samningsins,
til þess að græða á því stórfé og
hlupu í kapp við ríkisstjórnina um
leigu á bretsku skipunum.
Ríkisstjórnin hefir nú gert samn-
ing við Færeyinga um leigu á
fjöldamörgum færeyskum skipum
til ísfiskflutninga.
Með þessari ráðstöfun hefir rík-
isstjórnin komið veg fyrir að óþarfa
milliliðir raki saman fé á útflutn-
ingi ísfisksins á kostnað fiskeig-
enda.
Bær brennur
31. f. m. brann íbúðarhúsið að
Saurbæ í Eyjafirði. Varð eldsins
fyrst vart uppi á lofti og er talið
líklegt, að eldurinn lxafi komið upp
í þaki hússins. Húsað var bygt úr
steinsteypu, með timburskilrúmum
á efri hæð. Tjón varðá innanstokks-
munum.
Slökkvilið Akureyrar fór fram að
Saurbæ en fékk litlu áorkað, sök-
um vatnsskorts og vegna þess að
það kom seint á vettvang af eðlileg-
um ástæðum.
----------------------------—--------
r
Urslit Stórhríðarmótsins
Fyrsta skíðamót vetrarins, Stórhríðar-
mót 1945, var haldið í Búðargili á Ak-
ureyri sunnudaginn þ. 4. febr. kl. 2 e. h.
Kept var í svigi karla A-, B- og C-flokks.
Brautin var um 120 metra löng, fall 45
metrar, 12 hlið. — Keppendur í A-fl.
voru 5 og voru úrslit þessi:
1. Magnús Brynjólfsson, K. A., 40,0 sek.
2. Júlíus B. Magnússon, Þór, 40,8 sek.
3. Björgvin Júníusson, K. A., 41,3 sek.
4. Hreinn Ólafsson, Þór, 41,7 sek.
5. Eysteinn Árnason, K. A., 42,7 sek.
Kependur í B-flokki voru 7 og voru
þeir raestir með A-fl. Úrslit urðu:
1. Finnur Björnsson, Þór, 42,0 sek.
2. Sigurður Þórðarson, K. A. 44,0 sek.
3. Vignir Guðmundsson, Þór, 48,3 sek.
Keppendur í C-flokki voru 20; braut-
in, sem þeir fóru nokkru léttari en A-fl.-
brautin. Úrslit urðu sem hér segir:
1. Guðmundur Gíslason, M. A., 36,0 sek.
2. Júlíus B. Jóhanness., M. A., 37,1 sek.
3. Gunnar Sigurjónsson, Þór, 37,2 sek.
Að endingu var keppni drengja, 14—
16 ára, voru keppendur 10.
1. Kristinn Jónsson ......... 22,9 sek.
2. Jón Vilhjálmsson.......... 24,2 sek.
3, Jóhannes Sigurbjömsson .. 24,5 sek.