Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 03.03.1945, Page 1

Verkamaðurinn - 03.03.1945, Page 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 3. mars 1945. i 9. tbl. m Áburðarverksmiðjufrumvarpinu var vísað fil nýbyggingar ráðs en ekki svæff eins og „Dagur” staðhæfir. Það var gert vegna þess að málið var svo illa undirbúið af hálfu fyrverandi stjórnar. 1 ritstjórnargrein „Dags“ 22. f. m. er vikið með nokkrum orðum að áburðarverksmiðjumálinu og laetur hið virðulega málgagn Frain- sóknar svo um mælt í sambandi við afgreið&lu áburðarverksmiðjumáls- ins á Alþingi: „Það er kunnara en frá þurfi að segja, að áburðarverk- smiðjumálinu var stungið undir stól fyrir atbeina Reykjavíkurvaldsins". Ennfremur fylgir þessu sú skýring af hálfu „Dags“ að „kommúnistarn- ir“ hafi staðið „að baki Reykjavík- urvaldinu, sem beitti sér fyrir nið- urskurði“ áburðarverksmiðjumá !s- ins. — Og ennfremur — eins og nærri má geta (sbr. hinar þrótt- miklu athafnir Framsóknar í hafn- armannvirkjunum á Oddeyrar- tanga!) er „Dagur“ svo llítillátur að geta þess að „Framsóknarmenn ein- ir“ hafi fylgt áburðarverksmiðju- málinu á Alþingi. Ætla mætti að maður eins og rit- stjóri „Dags“, sem er alinn upp af barnaskólastjóra, blæs sig út af því að hann sé kristilega sinnaður, sanngjarn og sannorður, og veifar þar að auki penna ,,Dags“ í nafni tveggja annara skólastjóra bajjar- ins, léti slíkt ekki henda sig, að fara með fleipur eitt, blekkingar og vís- vitandi ósannindi. Staðreyndirnar eru nú samt sem áður þær, að digurmæli ,,Dags“ í áburðarverksmiðjumálinu eiga við, engin rök að styðjast. Og þau eru borin fram fyrst og fremst til þess að reyna að breiða yfir algjör svik Framsóknar hér í bænum í hafnar- málinu. Karlmensku, orð og at- hafnir Framsóknar þekkja allir bæjarbúar og verður það mál því ekki rætt frekar hér í þessu sam- bandi, Framsókn hefir reynst þar taglbnýtingur Jóns Sveinssonar, Sveins Bjarnas. og annara íhalds- manna og vegið aftan að því máli að baki þeirra, svo notuð séu orða- tiltæki „Dags“. Hinsvegar mun rakin hér saga dúsumáls „Dags“ um þessar mund- ir, áburðarverksmiðjumálsins. Fyrir nokkrum árum kom opin- berlega fram sú hugmynd að áburð- arverksmiðja yrði reist í Reykjavík. Tillögu þessa átti Asgeir Þorsteins- son, verkfræðingur, sem hefir verið fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í rann- sóknarráði ríkisins. Var hugmynd hans meðal annars sú, að verk- smiðjan fengi orku frá Sogsvirkj- uninni um nætur og á iiðrum þeim tímum, þegar önnur rafmagnsnotk- un er lítil eða mun minni en vana- lega. A þennan hátt taldi hann að unt væri, til að byrja með, að fá ódýran aflgjafa og hagnýta orku, sem að ciðrum kosti var ekki notuð. En af því að til'lagan var frá Sjálfstæðismanni þótti Framsókn eðlilegt að virða hana að vettugi, enda var hægt um vik fyrir Fram- sókn að svæfa málið, þaf sem yfir- stjórn búnaðarmálanna hefir um hartnær tveggja áratuga skeið verið í höndum Framsóknar, og hefir hún notað þá aðstöðu dyggilega til að sporna eftir mætti gegn róttæk- um breytingum í landbúnaðarmál- um, og þannig átt dýpstan þátt í því með þessari nátttröllsalfistciðu sinni, að flæma fólkið úr sveitun- um og m. a. efla þá eðlilega Reykja- víkurvaldið svokallaða. Nú er það óumdeilanleg stað- reynd, að Framsóknarflokkurinn hefir haft alveg sérstaklega góða að- stiiðu til að vera búinn að hrinda áhurðarverksmiðjurnálinu í fram- kvæmd fyrir mörgum fíúih. Því auk þess sem hann hefir haft yfir- stjórn búnaðarmálanna í síntt'm höndum í nærfelt tvo áratúgi þá hefir hann átt fulltrúa í ríkisst jórn síðan 1927 og lengst af forsætisráð- herrann. Auk þessa er hann og hef- ir verið öllu ráðandi í Sambandi !s- lenskra samvinnufélaga og i flesi- utn kaupfélögum landsins, og þá síðast en ekki síst í hinu mikla gróðasöfnunarfyrirtæki KEA (sem byggir þó heidur hótél „fyrif ’ > end- ur og verkamenn‘.‘ en að leggja té í áburðarverksm iðj u). En „bændavinátta“ Framsóknar, „framtak“, „karlmenska", „ábyrgð- Um nokkura daga skeið hafa Bandamenn verið í stórsókn á vest- urvígstöðvunum og hafa m. a. tek- ið borgirnar Múnchen-Gladbacli, Krefeld og Venlo og eru nú byrj- aðir stór^kotahríð á stórborgirnar Köln og Dusseldorf. Eru Þjóðverj- ar á flótta á Kölnarsléttunniogtelja fréttaritarar að þess sé skamt að bíða að orustunni um hana verði lokið. — í gær tóku Bandamenn um 17.5DO fanga. Fangar, sem hafa ver- ið yfirheyrðir, telja að stríðinu hljóti mjög bráðlega að verða lokið og segja að Þýskaland sé eins og vit- firringahæli," fjöldi manns sé þar artilfinning“, „skygnleikur", „á- ræði“ og „framfaravilji", svo notuð séu dúsuorð „Dags“, virðist ekki hafa átt sérlega djúpar rætur, þvf Framsókn notaði ekki hina sterku aðstöðu sína til að koma upp áburðarverksmiðju, heldur sat á málinu nær allan hinn þríþætta valdatíma sinn. En þegar Æsgeir kemur tneð tillögu sína varð Fram- sókn að aðhafast éitthvað til mála- mynda til þess aðfunt væri að drep i tillögu Ásgeirs eða annara í þess r máli, Sperti Framsókn nú skvndi- lega upp stélið. Vilhjálmur Þór er látinn tilkynna með pomp og pragt að amerískur verkfræðingur verði fenginn til þess að gera áætianir um stofnun og starfrækslu áburð- arverksmiðju. Á áætlunum þessa erlenda verkfræðings var svo bygt ifrumvarp fyrverandi landbúnaðar- málaráðherra um áburðarverk- smiðju, sem „Dagur“ staðhæfir að hafi verið svæft. Þetta frumvarp, sem Framsokn fæddi loksins eftir nær 20 áf3 trieð- göngutíma , er svo flaustíirslega samið og bygt á svó' ótraustft^pog ófullnægjandi athugunum, að Ei fi- jdeild Álþingis sá sér ekki fæ.'t ann- að en að afgreiða það með rök- studdri dagskrá og vísa því til ríkis- stjórnarinnar og nýbyggingaráðs, Framhald á 2. síðu. A.Jundi Verkamannafélagsins sl. sunnudag var rætt um núverandi atvinnuleysi verkamanna hér í bæ .daglega handteknir og teknir af Tíft. Á autsurvígstöðvunum hafa her- sveitir Rokossovskys brotist í gegn- um varnarlínu Þjóðverja í Pomm- ern og m. a. tekið borgina Neu- Stettin og hafa síðan sótt hratt fram til Eystrasalts og herma fregn- ir að þær séu jafnvel komnar að sjávarströndinni, miðja vegu milli Danzig og Stettin. Þjóðverjar segja,að Rússar hafi nú dregið að sér 7 heri við Oder til árásarinnar á Berlín. — í Breslau krepþa Rússar æ meir;að Þjóðverj-. um. Axel Schiöth gefur 10 þús. kr. sjóð til minningar um föður sinn. Á aðalfundi Iðnaðarmannafé- lags Akureyrar er haldinn var um síðustu helgi, var frá því skýrt að Axe-1 Sehiöth, bakarameistari, hefði á 75 ára afmælisdegi sínum, 14. febr. sl„ afhent félaginu 10 þús. kr. sjóð til minningar um föður sinn, Hinrik P. Schiöth, bakarameistara. Á að verja sjóð þessum til að styðja iðnað og iðnaðarmenn hér í bæn- um. Sigurður Eggerz SJÖTUGUR. 1. þ. m. átti Sigurður Eggerz, fyr- verandi bæjarfógeti, 70 ára afmæli. í tilefni af því héldu ýmsir bæjar- búar honum samsæti þann dag, en sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu hafði kvatt hann með samsæti sl. þriðju- dag. Sigurður Eggerz er óvenjulega vinsæll maður og hefir hlotið virð- ingu allra fyrir trúmensku sína og áhuga í sjálfstæð.ismáli þjóðarinn- ar. ‘ÞINGSLIT í DAG. Alþingi er slitið í dag kl. 18. Meðal þeirra laga, sem það hefir afgreitt, eru launalögin. Verður í næstu blöðum skýrt frá afgreiðsfu þeirra og annara helstu þingmála. og atyinnuhorfur í framtíðinni. Kom þar greinilega í ljós, að verka- menn eru orðnir langleiðir á að- gerðaleysi bæjarstjórnarinnar í at- vinnumálum hér og þeir eru stað- ráðnir í að knýja hana til einhverra þeirra aðgerða, er bæti úr böli at- vinnuleysisins er nú herjar bæinn. Eins og menn muna, sendi Verka- mannafélagið erindi til bæjar- stjórnar í janúarmánuði sl„ þéss efnis, að hafin yrði atvinnubóta- vinrta fyrir 80—100 manns, en svo margir reyndust þá atvinnulausir af meðlimum félagsins. Fólagið benti þá jafnframt á nauðsynleg verk, sem bærinn gæti látið vinna. Þessa kröfu félagsins hundsaði bæj- arstjórnin algerlega og bar brigður á, að svona mikil brögð væru að at- vinnuleysi meðal verkamanna, en taldi þó ré(t; að bæ.rinn sæi 20—30 mönnum f$rir einhveni vinnu, en sú vinna héfir naumast enn verið hafin og ekkert bendir til að bæj- arstjórn vakni til vitundar um skyldur sínar gagnvart bæjarbúum. (Framhald á 4. síðu). Bandamenn í stórsókn á vesturvígstöðvunum Byrjaðir skothríð á Köln og Dlisseldorf Verkamannafél. Akureyrarkaupstaðar skorar á bæjarstjórn að hefja nú þegar atvinnubótavinnu fyrir 80 manns og beita sér fyrir byggingu nýtísku tunnu- verksmiðju hér í bæ, sem framleiði a. m. k. 100 þús. tn. á ári.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.