Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 24.03.1945, Side 4

Verkamaðurinn - 24.03.1945, Side 4
6 VERKAMAÐURINN Aðalfundur Pöntunarfélags verkalýðsins, Akureyri, verður haldinn raánudaginn 2. apríl (annan í páskum) í Verklýðshúsinu, og hefst kl. 1.30 e. h. DAGSKRÁ: 1. Skýrsla framkvæmdarstjóra og reikningar félagsins. 2. Rædd framtíðarstarfsemi félagsins. 3. Kosin stjórn og endurskoðendur. 4. Lagabreytingar. STJÓRNIN. Dæmdir af verkunum íslensku borgarablöðin hafa nú iagt á skipulagslausan flótta undan dómi al- mennings, síðan þau belgdu sig upp með þær lygafréttir að sósialistar á Alþingi héfðu v^ljað segja Þjóðverjum strið á hendur. Eitt þessara blaða er „Dagur“ hér á Akureyri. Ritstjórinn er nú að klóra i bakkann og afsaka frumhlaup sitt, en hann var manna fyrstur til þess, að fullyrða áðurnefnda lygi í blaði sínu. Hann heldur því fram, að almannaróm- urinn hafi komið sér til þessarar iðju og segist' ekki hafa haft við annað að styðj- ast. Sannliekurinn er nú hinsvegar sá, að „Tíminn“ mun hafa órðið fyrstur til að ríða á vaðið og er enginn vafi á því, að upphaflega er fregnin tilbúin eftir for- sögn Hermanns Jónassonar og hans le- gáta, og því þarflaust fyrir blöð Fram- sóknarflokksins að kenna almannarómn- um fregnir þessar og ritstjóri „Dags“ þykist stundum hafa svo góð fréttasam- bönd innanlands og utan, að honum hefði ekki átt að vera ofraun að afla sér sannra sagna í þessu máli hefði viljinn verið fyrir hendi. Ekki gat það verið al- mannarómurinn, sem knúði hann til að birta fregnir um það í blaði sinu, að Rússar hefðu lagt mikla áherslu á það á Krím-ráðstefnunni að íslendingar færu í stríð við Þjóðverja. Hann hafði þær frétti reftir amerískum blöðum, eftir því er hann sjálfur segir, og svo voru frétta- sambönd hans náin við New York þá, að hann vissi upp á hár hvað stóð í dag- blöðum þar, daginn sem „Dagur“ var prentaður hér! ' Síðan hefir hann ekkert rætt nánar um málið og virtist >helst kjósa að það gleymdist. Skyldi hafa verið prentvilla í þessum New York-blöðum? í síðasta „Degi“ fullyrðir þessi sami ritstjóri og stríðsfréttaritari, að það hafi „vakið almennan hlátur“ í breska þing- inu, þegar Sýrlendingar sögðu möndul- veldunum stríð á hendur! Þetta eru í meira lagi kynlegar fréttir og bitnar hlát- ur bresku þingmannanna á Bandamönn- um sjálfum, eða þeim, er sátu Krím-ráð- stefnuna og mæltust til þess við Sýrlend- inga, að þeir færu í stríð við Þjóðverja. Skyldu karlarnir þrir, þeir Stalin, Roose- velt og Churchill, hafa aðeins verið að spauga? Ritstjóri „Dags“ hikar ekki við að fullyrða það, en kannske hefir hann „dæmt þá eftir líkum“, eins og hann dæmir suma þingmenn hér uppi á ís- landi! „Dagur er kominn í það öngþveiti, vegna heimskupara sinna í utanríkismál- unum, að hann fær aldrei þvegið rit- stjórana hreina af því almenninésáliti, að aumari og illgjarnari blaðasnápar hafa aldrei staðið að nokkru stjórnmála- legu málgagni. Blaðið kemur ekki út næstk. laugard. vegna páskahátíðarinnar. NÆR OG FJÆR. (Framhald af 2. síðu). Þeir sýndu sjómönnunum líka, hvern- ig fínir menn tryggja sér meirihluta í félögum. Þeir gera það með því að láta sina menn ganga úr einu félagi i annað og taka þátt í stjórnarkosningu í báðum. Þeir fara þannig með lið sitt á einskonar húsgang milli félaga. ^ Já, það er mikið, sem þessir fínu menn leggja á sig fyrir sjóara og verka- fólk, og ekki þarf að efa tilganginn." * ♦ ' Allt í Páskabaksturinn! Sendum lieim! Pöntunarfélag verkalýðsins Tukið (’flir!. ■" ■4-k Höfum fengið úrval af Vefnaðarvörum Verð við allra hæfi. Pöntunarfélag verkalýðsins Fermingarkjólaefni nýkomin. Pöntunarfélag verkalýðsins Verkamannaskór i ágætar tegundir Barnaskór sterkir og góðir Pöntunarfélag verkalýðsins AUGLÝSING Þeir bæjarbúar, sem hafa í hyggju að fá leigð garðlönd í vor, snúi sér til skrifstofu bæjarstjóra fyrir 1. apríl n.k. Viðtalstími aðeins kl. 5-7 e. h. RÆKTUNARRÁÐUN. AKUREVRARRÆJAR Þökkum hjartanlega alla þá samúð, er okkur var sýnd við andlát og útför manns- ins míns, sonar okkar og bróður, • .-'V- . HAUKS HELGASONAR rafvirkj a. Sérstakar þakkir viljum við færa sam- starfsmönnum hans og skátafélögum, fyrir vináttu honum sýnda lífs og liðnum. i«s SVAVA INGIMUNDARDOTTIR. SIGRÍÐUR ODDSDÓTTIR. PÁLL SIGURGEIRSSON. SVERRIR PÁLSSON. GYLFI PÁLSSON. HELGA I. HELGADÓTTIR. HJARTANS ÞAKKIR til allra þeirra, sem glöddu mig á 80 J ára afmæli mínu með heimsóknum, gjöfum og skeytum. GUÐ BLESSI YKKUR ÖLL RAGNHEIÐUR JAKOBSDÓTTIR nnmg /ý" -t- <!& ÍS' ■ • '• . . T.— Viðskiptaráðið Itefút ákveðið nýtt hámarksverð á föstu fæði, og er J)að sem hér segir fyrir hvern mánuð: .■f <;<... :rí>' ' I. Fullt fæðr (morgúnverður, hádegisverður, síðdegiskaffi pg kvöldverður). Karlar . . , :, v......... . >. Kr. 320.00 Konur ". á »•••••• ;...... — 300.00 II. Hádegisverður, síðdegisverður og kvöldverður. Karlar.................... — 290.00 Konur .................... - 270.00 III. Hádegisverður og kvöldverður. Karlar.................... — 260.00 Konur .................... — 245.00 IV. Hádegisverður. Karlar.................... — 150.00 Konur..................... — 140.00 Sé innifalinn í fæðinu a. m. k. \/4 líter mjólkur til drykkjar daglega, má verðið vera kr. 12.00 hærra en að ofan segir. Sé um að ræða fullt fæði og einni máltíð fleira á dag en segir undir lið I. hér að framan, má verðið vera kr. 30.00 hærra á mánuði. Verð það, er að ofan greinir, nær til fæðis, sem selt hefir verið frá og með 1. mar/. 1945. Reykjavík, 16. marz 1945. Verðlagsstjórinn. Árshátíð Sósíalistafélags Akureyrar verður í Verkalýðshúsinu í kvöld, 24. mars, kl. 8.30 DAGSKRÁ: 1. Samkoman sett. 2. Kaffidrykkja. 3. Ræða (Sigurður Róbertsson). 4. Skemmtiþáttur. 5. ??? 6. Dans. Aðgöngumiðar eru seldir í Verklýðshúsinu í dag frá kl. 4—7 e. hádegi. — Félagar! Allir d drshdtíðina! SKEMMTINEFNDIN. i

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.