Verkamaðurinn - 07.04.1945, Síða 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 7. apríl 1945. 13. tbl.
Betur má, ef duga skal
Það vantar nokkra stóra hluti í útgerðarfélagið.
Rauði herinn hefur umkringt Vínarborg
- barist í úthverfunum
r
A vesturvígstöðvunum sækja Bandamenn mjög hratt
fram og eru komnir 155 km. austur fyrir Rín. Hafa farið
yfir Weser á breiðum kafla og stefna að Hanover.
Mikið þýzkt lið innikróað í Rurh.
Nefnd sú, sem hefir með hönd-
um undirbúning að stofnun út-
gerðarhlutafélags hér í bænum,
hefir nú leitað undirtekta bæjar-
búa, með almennri söfnun hluta-
fjárloforða. Lét hún bera í húsin
eyðublöð .fyrir hlutafjárloforð, og
hefir þeim nú verið safnað saman
aftur, að mestu leyti. Undirtektir
hafa verið sæmilega góðar að því
leyti, að á þriðja hundrað bæjarbúa
hafa tjáð vilja sinn til stofnunar
félagsins með því að lofa hlutum.
En hlutirnir hafa yfirleitt verið
smáir, svo upphæð sú, sem safnast
hefir — auk framlags bæjarsjóðs
og Útgerðarfélags KEA — nemur
aðeins ca. 240 þúsundum króna.
Vantar þá enn 200 þs. krónur til
þess að hámark það, sem bærinn
hefir lofað, fáist, og mætti þó ekki
minna vera.
Nefndin hefir þegar gert ráð-
stafanir til að reyna að fá meiri
hlutafjárloforð, og vonandi tekst
að ná það miklu fé, að félagið verði
stofnað.
,,Verkam.“ hefir fengið upplýs-
ingar um, að hlutafjárloforð þau,
sem fengin eru, skiptast þannig:
152 hlutir á kr. 500.00
46 hlutir á kr. 1000.00
8 hlutir á kr. 2000.00
6 hlutir á kr. 5000.00
1 hlutur á kr. 10000.00
Auk þess eru 60 þús. kr., sem
blaðinu er ekki kunnugt um hvern-
ig skiptist í hluti.
Hvað sýnir þessi sundurliðun?
Hún sýnir það, að ennþá sem
komið er sitja hinir fjársterkari
menn bæjarins að mestu hjá. Fram-
lögin eru enn að langmestu leyti
ffá mönnum, sem hafa áhuga fyrir
því, að hafizt sé handa um slíka
starfsemi, en eiga ekki fjármagn,
sem neinu nemur, til að leggja í at-
vinnurekstur. Hinir fjársterkari
einstaklingar gera hins vegar — enn
sem komið er — annað tveggja: Að
sitja alveg sjá — eða láta smáar upp-
hæðir, til þess aðeins að „sýna lit“.
Þessu til frekari staðfestu má
geta þess, að hæsti hluturinn, 10
þús. krónur, er frá tiltölulega
eignalitlum fjölskyldumanni, en
einn af efnuðustu borgurum bæjar-
ins lofar aðeins einu þúsundi (og
ýmsir engu).
Þetta verður að lagast.
Ef ekki fæst nokkuð af stærri
hlutum, en þeim, sem komnir
eru, verður sýnilega ekki hægt
að stofna félagið — og allt sit-
ur í sama farinu.
Og það virðist sérstök ástæða til
að ávarpa forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins í þessu sambandi.
Sjálfstæðisfélag Akureyrar átti
frumkvæðið að þeirri undirbún-
ingsstarfsemi, sem nú hefir verið
framkyæmd. Bæjarstjórnin hefir, í
fyrsta sinni, léð máls á þátttöku og
lofað einum fjórða hlutafjárins. —
Kaupfélag Eyfirðinga hefir gert
hreint fyrir sínum dyrum og lofað
einum fimmta hlutafjárins. Á
þriðja hundrað einstaklingar — þar
Lúðrasveit Akureyrar hefur nú
fengið 19 ný blásturshljóðfæri frá
Ameríku. Kostuðu þau hingað
komin um 17.400 kr. Tónlistarfélag
Akureyrar bauð bæjarstjórn og
fréttamönnum áð skoða þessi nýju
hljóðfæri og heyra Lúðrasveitina
leika á þau, 29. f. m. á Hótel KEA.
Hinn 40. maí 1943 var Tónlist-
arfélag Akureyrar stofnað af 12
Aðalþunginn í sókn Rauða hers-
ins undanfarna daga hefur verið
í Austurríki. Hann hefur nær um-
kringt Vínarborg, höfuðborg Aust-
urríkis, og í gær var tilkynnt að
barist væri í úthverfum hennar.
Vöjn Þjóðverja er hörð í borginni
og er barist um hvert hús. Rauði
herinn tók í fyrradag járnbrautar-
borgina Bartislava fyrir austan
Vín.
A vesturvígstöðvunum sækja
Bretar og Bandaríkjamenn hratt
fram, og í gær var sagt að þeir
hefðu sums' staðar sótt fram um 90
km. Þeir hafa brotist yfit ána
Weser á mörgum stöðum og segja
varnarkerfi þýzka hersins allt í
molum austan Rínar. Hersveitir
Bandamanna eru nú 60 km. frá
Bremen, en í skotfæri við Hanover.
Hersveitir þær, sem lengst eru
komríar austur fyrir Rín (150 km.),
eru um 200 km. frá Berlín. Á síð-
mönnum, er sáu nauðsyn þess að
korna hér á auðugra tónlistarlífi og
vinna að stofnun lúðrasveitar fyrir
bæinn. Á þessu sviði var ekki hægt
um vik, því mikill skortur var á
viðunandi hljóðfærum handa
Lúðrasveitinni og einnig örðugleik-
ar á því að fá þau innflutt.
Lúðrasveit Akureyrar hefur nú
verið starfandi í næstum tvö ár,
eins og bæjarbúum er kunnugt og
á þeim tíma skapað sér öruggar vin-
sældir fyrir leik sinn við ýms hátíð-
leg tækifæri, þótt mjög skorti á að
hún hefði nægan eða góðan hljóð-
færakost. Eftir stofnun Tónlistar-
félagsins var strax farið að vinna að
útvegun nýrra hljóðfæra fyrir
Lúðrasveit Akureyrar og nú um sl.
áramót tókst félaginu að fá 19
blásturshljóðfæri frá Ameríku, sem
kostuðu samtals kr. 17.375.25. Bæj-
arstjórnin veitti 10.000 kr. styrk til
kaupanna. Á skírdag bauð Tónlist-
arfélag Akureyrar bæjarstjórn og
blaðamönnum. til kaffidrykkju á
Hótel KEA og sýndi þeim þar hin
nýju hljóðfæri Lúðrasveitinnar
sem lék nokkur lög fyrir gestina.
Var það mikið tónaflóð og virtist
leikurinn vera hreinn og samstillt-
(Farmhald á 4. síðu).
| astliðnum hálfum mánuði hefur
tala fanga á vesturvígstöðvunum
farið fram úr 300 þúsundum. í
Lundúnafréttum í fyrradag var
sagt, að Bretar og Bandarikjamenn
hefðu nú um 1 miljón hermanna
fyrir austan Rín. í Ruhr-héraðinu
er mikið, þýzkt lið innikróað ■ og
kreppir æ meir að því. Þar eru
teknir mörg þúsund .fangar á degi
hverjum.
Miklar loftárásir hafa undanfar-
ið verið gerðar á margar þýzkar
borgir og undanhaldsleiðir Þjóð-
verja. Því var haldið fram í ensk-
um fréttum í gær að liðflutningar
Þjóðverja frá Hollandi væri að
verða mjög erfiður og hefði stór-
lega dregið úr þeim.
RÚSSAR SEGJA UPP
Japan-Rússneska
griðasáttmálanum
Það var opinberlega tilkynnt í
Moskva í fyrradag, að rússneska
stjórnin hefði formlega sagt upp
griðasáttmálanum við Japani, en
hann er útrunninn á næsta ári. —
Samningur þessi var gerður 1941 og
gilti til 5 ára, en hvor aðili gat sagt
honum þá upp með eins árs fyrir-
vara. Rússneska stjórnin hefur nú
notað sér þennan rétt.
FULLTRÚARÁÐIÐ
opnar skrifstofu
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna á
Akureyri opnaði nú um mánaða-
mótin skrifstofu fyrir félögin í
bænum, sem eru í Alþýðusam. ís-
lands. Skrifstofan er í Verklýðshús-
inu og er opin daglega frá kl. 3.30
—6.30 e. h. Mun hún annast ýms
störf fyrir félögin og einstaka með-
limi þeirra (sjá nánar í orðsend-
ingu Fulltrúaráðs, á öðrum stað í
blaðinu). — Verkafólk í bænum
nrun almennt fagna þessum fram-
kvæmdum, þar sem mjög tilfinnleg
vöntun hefur verið á slíkri skrif-
stofu, eins og ræður af líkumf þar
sem verklýðsfélögin eru orðin svo
fjölmenn og starf þeirra mikið.
Sovét-skriðdrekar geisa yfir fannbreiður Austur-Prusslands i áttina^ til
Königsberg, höfuðborgar Prusslands, í lok fanúar sl. Á sama tíma
ruddust hersveitir úr Rauða hernum yfir Kafpatafjöll i Suður-Pállandi.
(Farmhald á 4. síðu).
Lúðrasveitin fær ný hljóðfæri