Verkamaðurinn - 01.05.1945, Blaðsíða 6
6
VERKAMAÐURINN
r
Urskurður félagsmálaráðherra í
Rauðkumálinu á Siglufirði
Félagsmálaráðherra sendi hinn
17. apríl eftirfarandi bréf til bæj-
arstjórans á Siglufirði:
Með símskeyti, dags. 5. apríl
1945, hafa f jórir bæjarfulltrúar í
bæjarstjórn Siglufjarðar kærlt yfir
því, að 4. s. m. hafi verið kosinn
forseti og varaforseti bæjarstjórnar
Siglufjarðarkaupstaðar án þess að
leitað væri afbrigða frá fundar-
sköpum, svo og ýmsar nefndir, sem
bæjarstjórn kýs og kjósa átti í fe-
brúarmánuði. Telja þeir kosning-
ar þessar hafa verið ólöglegar af
þeim ástæðum. Þá hafa kærend-
urnir sérsltaklega mótmælt kosn-
ingu í stjórn síldarverksmiðjunnar
Rauðku, sem er eign Siglufjarðar-
kaupstaðar, en þessi kosning fór
fram á sama fundi bæjarstjórnar-
innar. Verður um þetta atriði rætt
síðar í þessu bréfi.
Það er upplýst í þessu máli, að
bæjarstjórnarfundurinn 4. þ. m.
hefir verið boðaður á rélttan liátt og
í tæka tíð. Kosningar þær innan
bæjarstjórnarinnar, sem fram fóru
á íundinum, áttu að fara fram í fe-
brúár, en höfðu dregist að því er
talið er, vegna fjarveru bæjarfull-
trúa þangað til á fundinum 4. þ.
m. í fundarboðinu var gjört ráð
fyrir að þessar kosningar færu
fram á umræddum fundi og máltti
það vera öllum bæjarfulltrúum
ljóst,, að ekki var rétt láta þessar
kosningar tefjast lengur. Það hefði
því verið með öllu ástæðulaust að
neilta um afbrigði til þess að þær
færu fram á fundinum. Ráðuneyt-
ið telur því rétt, að téðar kosningar
forseta og fastra nefnda, sem getið
var í fundarboðinu, svo og aðrar
kosningar, sem samkomulag hefir
orðið um, standi óhaggaðar.
Um kosninguna í átjórn síldar-
verksmiðjunnar Rauðku, skal tekið
fram, það sem hér fer á eftir:
í fundarboði til bæjarstjórnar-
fundarins 4. apríl er á dagskrá kosn-
ing forseta og fastra nefnda. Stjórn
verksmiðjunnar er í samþykktinni
um stjórn bæjarmála Siglufjarðar-
kaupsltaðar ekki talin til fastra
nefnda, og bar því tvímælalaust að
setja í fundarboðið, að á dagskrá
fundarins vrði kosning verksmiðju-
stjórnarinnar, ef rétt hefði verið að
láta þá kosningu fara fram. Þetta
hefir ekki verið gjöxlt og er því
kosning hennar á þessum fundi,
þegar af þessari ástæðu, ógild, þar
sem henni hefir verið mótmælt og
afbrigða frá fundarsköpum ekki
verið leitað.
Um kosningu þá, sem fram fór
á stjórn síldarverksmiðjunnar
Rauðku 17. janúar þ. á. skal það
tekið fram, sem hér segir:
Með þingsályktun, dags. 24. nóv-
ember 1944 var ríkisstjórninni
heimilað að ábyrgjaslt allt að 1 Yz
millj. kr. gegn .3. veðrétti í síldar-
verksmiðjunni Rauðku og þar
gjört að skilyrði, að stjórn hennar
yrði, auk fulltrúa ríkisstjórnarinn-
ar, skipuð mönnum, kosnum hlut-
fallskosningu af bæjarstjórn Siglu-
fjarðar. Til þess að unnt væri að
koma verksmiðjunni upp, varð að
fá þötta lán, og varð því að kjósa
stjórn hennar hlutfallskosningu,
eins og til var skilið, ef lánið ætti
að fást, en um það mun ekki hafa
verið að ræða án ábyrgðar ríkis-
sjóðs. Var bæjarstjórninni þetta
Ijóslt, svo sem sjá má af fundargerð
hennar 29. desember f. á. Kjör-
tímabil liinnar gömlu Rauðku-
stjórnar var útrunnið 15. janúar þ.
á„ en stjórn verksmiðjunnar þurfti
að taka 2 millj. kr. lán í janúar og
var m,jög eðlilegt og í rauninni
sjálfsagt, að skipa henni nýja stjórn
í þeim mánuði, svo sem fyrir var
mælt í reglugerð um hana, sem
bæjarstjórn samþykti 26. júní 1944
og ráðuneytið staðfesti 6. júlí sama
ár eftir ósk bæjarstjórnarinnar. —
Þeirri reglugerð var þó ekki hægt
að fara eftir um Itilnefningu manna
í bæjarstjórn á stjórnarmönnum,
vegna skilyrðis téðrar þingsálykt-
unar 24. nóvember f. á. um hlut-
fallskosningu. Varð því úr, að bæj-
arstjórn kaus stjórn verksmiðjunn-
ar hlutfallskosningu á fundinum
17 .janúar þ. á„ en Itil þess að leggja
frekari áherslu á það, að skilyrðum
þingsályktunarinnar væri fram-
fylgt, samþykkti bæjarstjórnin áður
breytingu í þessa átt á reglugerð
Rauðku.
Kosning verksmiðjustjórnarinn-
ar fór fram með atkvæðum allra
bæjarstjórnarmanna á löglegum
fundi, og á þann háitt sem var
tilskilið í þingsályktuninni, sbr. og
31. gr. laga nr. 81/1936. Hvort sem
sú kosning telst hafa farið fram eft-
ir reglugerðinni frá 26. júní 1944
með þeirri óhjákvæmilegu breyt-
ingu, sem leiddi af téðri þingsálykt-
un, eða , reglugerðinni 17. janúar
1945, sem ráðuneytið sltaðfesti 7.
febrúar þ. á. samkvæmt ósk bæjar-
stjórnarinnar, verður ekki séð að
bæjarstjórn hafi verið óheimilt að
kjósa síldarverksmiðjustjórnina 17.
janúar, eins og gjört var. Ráðu-
neytið sér því eftir atvikum ekki
ásltæðu til að hafa að engu einróma
samþyktir bæjarstjórnarinnar á
fundinum 17. janúar þ. á„ með því
einnig að engin mótmæli komu
fram þá á fundinum, og eigi fvr en
4. apríl.
Samkvæmt því, sem að framan
segir, úrskurðast því:
Kosningar forseta og fastra
nefnda bæjarstjórnar Siglufjarðar,
sem fram fóru á bæjarstjórnarfundi
4. þ. m„ svo og aðrar kosningar,
sem fram fórtt á fundinum og sam-
komulag hefir orðið um, skulu
standa óhaggaðar. Úrskurður for-
sdta bæjarstjf'rrnar um kosningu á
stjórn síldarverksmiðjunnar
Rauðku, sem franr fór á fundinum,
er úr gildi feldur svo og kosning sú
á síldarTerksmiðjustjórninni, sem
fram fór á þeim fundi. Ráðuneytið
sér eftir atvikum ekki ástæðu til að
fella úr gildi kosningu þá, sem
fram fór á stjórn verksmiðjunnar á
bæjarstjórnarfundi 17. janúar þ. á.
Þetlta gefst yður hérmeð, herra
bæjarstjóri, til vitundar til birting-
ar fyrir bæjarstjórninni.
(Fréttatilkynning frá ríkissltjórn-
inni).
Tek að inér
Húll-saum og
Zig-Zag-saum
Þóra Eggertsdótlir
(Verzl. Eggerts Einarssonar).
AUGLÝSING
um skoðun bifreiða og bifhjóla í Eyjafjarðar-
sýslu og Akureyrarkaupstað.
Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist hér með, að hin ár-
lega skoðun bifreiða og bifhjóla fer fram á þessu ári, sem
hér segir:
Hinn 8. maí mæti A- 1-A- 30
9.
11.
14.
15.
16.
17.
18.
22.
23.
24.
25.
28.
A- 31-A- 60
A- 61-A- 90
A- 91-A-120
A-121-A-150
A-151-A-180
A-181-A-210
A-211-A-250
A-251-A-280
A-281-A-310
A-311-A-340
A-341-A-370
A-371-A-390
Ber öllum bifreiða og bifhjólaeigendum að mæta með
bifreiðar sínar og bifhjól þessa tilteknu daga, við lögreglu-
varðstöðina, frá kl. 9—12 árdegis og kl. 1—5 síðdegis.
Þeir, sem eiga farþegabyrgi á vörubifreiðar, skulu koma
með þau til skoðunar ásamt bifreiðum sínum.
Bifreiðaskattur fyrir skattárið frá 1. apríl 1944 til 1. apríl
1945, svo og skoðunargjald og iðgjöld fyrir vátryggingu öku-
manns verður innheimt um leið og skoðun fer fram.
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir
sérhverja bifreið sé í gildi, svo og ökuskírteini hvers bif-
reiðastjóra.
Vanræki einhver að koma með bifreið sína eða bifhjól til
skoðunar og tilkynni eigi gild forföll, verður hann látinn
sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögunum.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 18. apríl 1945.
Friðjón Skarphéðinsson.
Dagslátta drottins, sagan sem átti að banna í Ameríku.
Þeir áttu skilið að vera frjálsir, sagan sem Þjóðverjar
bönnuðu í Danmörku.
Óður Bernadettu, bókin sem er að verða uppseld.
17 ára, sagan sem alt æskufólk þráir að lesa.
Byron, æfisaga enska skáldsins heimsfræga, er barðist
fyrir frelsi Grikkja.
BÓKABÚÐ AKUREYRAR.