Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 12.05.1945, Qupperneq 1

Verkamaðurinn - 12.05.1945, Qupperneq 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 12. maí 1945. í 18. tbl. Friður saminn í Norðurálfu! Þýski herinn gafsí upp skilyrðislausf Þýzki nazistaflokkurinn úr sögunni Tekst Framsókn að hindra byggingu spítalans i sumar? Stefán Arnason er búinn að koma með tvær tillögur á tveimur mánuðum um hvar spítalinn skuli reistur Síðastliðinn mánudag var lesin upp í Flensborgarútvarpinu til- kynning frá Dönitz flotaforingja til þýska hersins um að leggja hvar- vetna niður vopn og gefast skilyrð- islaust upp fyrir Bandamönnum. Samningurinn um allsherjarupp- gjöf þýsku herjanna var undirritað- ur í skólabyggingunni í frönsku borginni Reims, kl. 2.41 aðfaranótt sl. mánudags. Þeir, sem undir rit- uðu samninginn voru Jodl hers- höfðingi, fyrir hönd Dönitz, Smith hershöfðingi, yfirforingi herráðs Eisenhowers, sovéthershöfðinginn íslendingar fagna stríðslokum í Evrópu Friðarins í Evrópu og frelsun Danmerkur og Noregs var fagnað um gjörvalt ísland þriðjudaginn 8. þ. m. Laugardaginn 5. maí bárust fregnirnar um, að Danmörk væri laus af kúgunarklafa nazista og voru þá fánar dregnir að hún á flestum stöngum hér í bæ og víðast annarstaðar á landinu. Mánudag- inn 7. maí voru svo enn fánar dregnir að hún um alt land og verslunum lokað og vinnu víða hætt frá hádegi í tilefni af því að þá höfðu borist fregnir um skilyrð- islausa uppgjöf nazista. Þriðjudagurinn 8. maí, sigur- dagurinn, var svo hátíðlegur hald- inn um land alt eins og hjá flestum öðrum þeim. þjóðum, sem unna frelsi og friði. Hér á Akureyri voru fánar dregn- ir alment að hún strax um morg- uninn og verslanir og skrifstofur lokaðar frá hádegi og vinnu al- ment hætt frá þeim tíma. Geysimik- ill mannfjöldi safnaðist saman á Ráðhústorgi, en þar hafði gjallar- horni verið komið fyrir og hlýddi fólk þar á ræður, sem forseti ís- lands og forsætisráðherra fluttu í Reykjavík í tilefni af styrjaldarlok- unum. Lúðrasveit Akureyrar lék þjóðsöngva Norðurlandaþjóðanna og fleiri lög og Karlakór Akureyrar og „Geysir" sungu þjóðsöngva Norðurlanda. Snorri Sigfússon flutti ávarp og að þvi loknu fagn- aði mannfjöldinn stríðslokunum með ferföldu húrrahrópi. í Mentaskóla Akureyrar var sig- urdagsins minst með samkomu í há- tíðasal skólans kl. 5 síðdegis. Auk kennara og nemenda voru viðstadd- ir nokkrir gestir þ. á. m. ræðismenn Breta og Norðmanna og fulltrúar útvarps og blaða. Samkoman hófst með því, að Patoff og franski hershöfðinginn Severs. Á þriðjudagskvöldið hlaut samn- ingurinn svo staðfestingu í Berlín og skyldi öllum vopnaviðskiftum vera lokið kl. 12 á miðnætti 8. maí. Staðfestingin um uppgjöfina var undirrituð af Keitel, yfirmanni þýska herforingjaráðsins, Zhukoff marskálki, fyrir hönd Sovétríkj- anna, Tedder flugmarskálki, fyrir hönd Breta og Bandaríkjamanna og de Lattre de Tassigny hershöfð- ingja, fyrir hönd Frakka. Churchill, Stalin og Truman ávörpuðu allir þjóðir sínar í tilefni af stríðslokunum í Evrópu. Churc- hill og Truman lögðu báðir áherslu á að enn væri eftir að sigra Japani, fluttu þeir báðir ávörp sín sl. mánu- dag, en Stalin einum degi síðar og var þá sigurdagur haldinn í Sovét- ríkjunum. Andlát. Nýlega er létinn í Kristnes- haeli, Helgi Sveinsson. Var hann borinn til moldar í dag. Helgi hafði dvalið á hælinu alt frá því að það tók til starfa og oft mjög þjáður, en hann bar þessi þungbæru veikindi með alveg einstakri ró og karlmennsku og ávann sér vin- áttu og virðingu allra, er kyntust hon- um. Hann var alla tíð frjálshuga maður og gekk í Sósíalistaflokkinn er hann var stofnaður og reyndist þar ósvikinn og traustur liðsmaður. STUTTAR FRÉTTIR Fregnir herma að margir íslendingar hafi tekið þátt í dönsku skæruliðahreyf- tingunni. Jafnframt hefir sú fregn borist frá Danmörku, að danskir föðurlandsvin- ir hafi ætlað að taka Guðmund Kamban höndum, þar sem hann sat í matsölu- húsi, en hann neitað að verða við tilmæl- um þeirra um að koma með þeim og snúist til varnar, en þeirri viðureign lok- ið með því að hann var skotinn tiil bana. Talið er sannað, að hann hafi veitt nazist- um virka aðstoð. Fleiri íslendingar eru sagðir hafa haft náið samstarf við naz- ista í Danmörku og Þýskalandi og mun það betur vitnast áður en langt um líður. sunginn var sálmurinn: „Fögur er foldin“. — Þá flutti skólameistari, Sigurður Guðmundsson, ræðu. Mintist hann sérstaklega Breta og forsætisráðherra þeirra, Churchills, og kvað hann Churchill mundu verða talinn „mesta mann allra alda.“ Einnig þakkaði hann „hin- um tveimur stórveldum öðrum“, sem hefðu lagt ómetanlegan skerf ■til þess, að hinn dýrmæti sigur náð- ist — svo og öllum, sem hefðu fórn- að sér í baráttunni við hinn grimma og hugsjónasnauða fas- isma. Skólameistari kvað ekki haegt að Bygginganefndin hefir ekkert gert í tvo mánuði af því, sem henni bar að gera, en hefir í þess stað róið að því, að spítalinn verði byggður annars staðar en þar sem bæjar- stjórn hafði einróma samþykkt Á fundi bæjarstjórnar Akureyr- ar 6. mars sl. var til umræðu og af- greiðslu fundargerð sjúkrahúss- nefndar Akureyrar frá 5. mars síðastliðnum og var fyrra atriðið í nefndri fundargerð svohljóðandi: Samsöngur Karlakórs Akureyrar Karlakór Akureyrar, undir stjórn Áskels Jónssonar, hélt samsöng í kirkjunni 28. f. m. og vegna fjöl- margra áskorana endurtók kórinn söngskemtunina 3. þ. m. í Nýja- Bíó, var aðsókn ágæt í bæði skiftin og kórnum mætavel fagnað. Á söngskránni voru m. a. þessi lög: Hátíðaljóð samvinnumanna, eftir Áskel Snorrason, Hin dimma, grimma hamrahöll, e. Schubert. Er sólin hnígur, eftir Árna Thorsteins- son, Vögguvísa, raddsett af Berens. Einsöngva sungu þeir Magnús Sig- urjónsson og Sverrir Magnússon, en undirleik önnuðust frú Þyri Ey- dal og Jóhann Haraldsson. Mér virðist kórinn enn nokkuð skorta til að ná þeirri mýkt og sam* stillingu sem hann hafði um það leyti sem hann fór til Reykjavíkur, en það ár virtist mér þroski hans vera að öllu samanlögðu mestur. Margir hafa talið það löst á þess- um kór, að hann hefir ekki getað framleitt eins hávaðasamar raddir eins og sumir aðrir kórar. Eðlilega er raddmagnið ákjósanlegt á stund- um, en það ber þá líka að gæta þess að því sé beitt þannig, að á- heyrandinn heyri söng en ekki ösk- ur, sem ekkert á skylt við músik. Samfelling raddanna og mýktin er það töframagn, sem kórar þurfa að leggja áherzlu á, þessa hlið ætti því Karlakór Akureyrar síst að van- rækja. neita því, að meðal íslendinga hefði nokkuð borið á tilhneigingu til fylgis við fasismann — en slíkt yrði að uppræta hjá íslensku þjóð- inni. Samkomunni lauk með því, að allir viðstaddir sungu þjóðsöngva Danmerkur, Noregs og íslands. „Lögd fram frumdrög að teikning- um að sjúkrahúsi því, sem um hefir verið rætt að byggja hér á Akureyri. Meirihluti nefndarirmar lagði til, að byggingin yrði reist á þeim stað, sem teikningin sýnir. Jafnframt leggur meirihlutinn til, að teikningamar séu fullgjörðar sem allra fyrst og bygg- ingarstæðið mælt nákvæmlega út, svo að hægt sé að hefjast handa með útgröft sem fyrst. Mirmihlutinn, Stefán Arnason og írú Gurmhildur Ryel, töldu staðinn óheppilegan vegna rúmfeysis og lögðu til, að byggingunni yrði valinn staður sunnan Eyrarlandstúns.“ Fundargjörðin var undirrituð af Ólafi Thorarensen, Sigríði Þor- steinsdóttur, Gunnhildi Ryel, Stef- áni Árnasyni og Guðm. Karli Pét- urssyni. Samkvæmt teikningunni, sem hér er drepið á', var gert ráð fyrir að byggja spítalann áfastan við þá ný- byggingu, sem þegar hefir verið reist á lóð núverandi spítala. Allmiklar umræður urðu um málið, en að þeim loknum sam- þykti bæjarstjórn með samhljóða atkvæðum (Brynjólfur Sveinsson sat hjá) tillögu meirihluta spítala- nefndarinnar. Samkvæmt því hafði bæjarstjórn- in þar með: í fyrsta lagi: Ákveðið hvar spítal- inn skyldli bygður. í öðru lagi: Samþykt að teikndng- arnar yrðu fulllgerðar hið fyrsta. í þriðja lagi: Samþykt að bygg- ingarsvæðið skyldi mælt nákvæm- lega út, svo unt yrði að byrja á út- greftri lóðarinnar sem fyrsit. Á næsta fundi sínum, 20. mars, samþykti svo bæjarstjórnin, sam- kvæmt tillögu frá Ól. Thorarensen, að kjósa sérstaka byggingarnefnd til að sjá um byggingu nýja spítalans. I nefndinni hlutu sæti, auk bæj- arstjóra: Stefán Árnason, Jakob Frí- mannsson, Óskar Gíslason og ól. Thorarensen. í umræðunum um þetta mál á fundi bæjarstjórnar 6. mars sl. vakti eg athygli á því, að tillaga minni- hluta sjúkrahússnefndarinnar mundi geta orðið til þess að tefja fyrir framgangi þessa máls, sem beð- (Framhald á 3. síðu.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.