Verkamaðurinn - 14.07.1945, Qupperneq 4
4
VERKAMAÐURINN
M i n n i n g a r o r ð.
Hinn 19. maí sl. andaðist að
heimili sínu, Brautai/holti í Glerár-
þorpi, Njáll Jóhannesson verka-
maður, 47 ára að aldri. Það þykir
nú sjaldan miklum 'tíðindum sæta
þó einn verkamaður falli í valinn,
héðan úr þorpinu, enda er fátt vitað
um þennan mæta mann, eins og
svo marga okkar góðu stéttarfélaga.
Mig^angar því til að rjúfa þögnina
um þennan látna vin og félaga,
enda þótt eg hafi aldrei fyr á æfinni
sett á prent nokkurt orð. Njáll var
fæddur hér í þorpinu og var hér
alla sína æfi, ungur fór hann í
Gágnfræðaskólann á Akureyri og
tók þar gagnfræðapróf eftir þriggja
vetra nám.
Eftir að hann kom úr skóla
stundaði hann barnakennslu á vetr-
um og vann æ síðan meira og
minna við það starf yfir veturinn,
en á sumrin stundaði hann alltaf
daglaunavinnu og var því verka-
maÖur í orðsins fyllstu merkingu.
En óhætt mun að fullyrða það, að
börnin og unglingarnir voru hon-
urn alltaf kærir félagar og verður
honum seint þakkað það óeigin-
gjarna starf og sá drengskapur, sem
hann sýndi í því starfi meðan heils-
an leyfði og oft minnist eg Njáls
með stóran barnahóp í kringum sig
og lá þá sýnilega vel á honum og
vona ég fastlega að meðal unglinga
hér hafi Njáll sál, sáð mörgu* því
frækorni sem síðar mun bera góðan
ávöxt, þeim og byggðarlagi þeirra
til blessunar.
Tvö voru þau stórmál og allþýð-
ingarmikil fyrir alþýðu þessa lands,
sem Njáll lét sig miklu skifta og
fylgdi þeim eftir heill og óskiftur
meðan kraftar entust enda á tíma-
bili æfi sinnar töluvert skarpur mál-
fylgjumaður. Þessi mál voru bind-
indismálið og sósíalisminn, og er
mér óhætt að fullyrða, að þetta
tvent var í huga hans og hjarta óað-
skiljanlegt. Hann gat sem sannur
maður aldrei skilið það að sósíalisti
ætti að þjóna auðvaldinu með því
að drekkja skoðunum sínum, sann-
færingu og sjálfstæði í áfengum
drykkjum og mun honum þá einn-
ig hafa verið það ljóst, að af áfeng-
inu var siðgæðinu eigi lítil hætta
búin.
Eg get búist víð, að til hafi verið
þeir andstæðingar hans, er á stund-
um hafi þótt hann all orðhvass og
jafnvel sviðið dálítið undan hans
rökföstu sókn í þessnm málum, en
þess vil eg geta í því sambandi, að
þar var barist af fullum drengskap,
fullri hreinskilni og í fullri von um
það að þetta væru þau málin meðal
þjóðarinnar, sem á sínum tíma
mundu leiða aljaýðu þessa lands inn
á þá braut, sem gæti gert þessa ver-
öld að þeim bústað, sem sæmilegur
gæti talist sönnum guðsbörnum og
mun sá hildarleikur, sem geisaði
síðustu árin hafa haft þau áhrif á
Njál, að hann sá þá greinilegast
þörfina á því áð alþýðan léti ekki
bjóða sér annað eins aftur.
Góði vinur og félagi, stutt var æfi
þín, en bjart er yfir minningu
þinni. Þökk sé þér fyrir þitt fórn-
fúsa starf í þágu allara menningar-
mála, sérstaklega bindindismálið og
verklýðsmálin. Þökk sé þér fyrir þá
fyrirmynd, sem þú gafst öðrum um
það hvernig sonur og bróðir eiga að
breyta við aldraða móður og veikl-
aðan bróður. Þökk fyrir ferskeytl-
urnar þínar, sem við oft skemtum
okkur viðá kvöldstundunum heima
hjá þér.
Þú hefir með heiðri lokið hér
þínu dagsverki, en þú hefir þá
einnig skilið mikið eftir hjá móð-
urinni, hjá bróðurnum og hjá okk-
ur félögum þínum, og það er eg viss
um, að ekki getum við á neinn hátt
betur minnst þín, svo að þér líki,
en með því að halda uppi með
drengskap og djörfung merki þinna
hugsjóna. Landið áfengislaust og
stéttalaust þjóðfélag. Eg er ekki
maður til sjá yfir það djúp, sem nú
er á milli okkar, en þó verður mér
að hugsa til þín og þinnar miklu
guðstrúar, þú kveiðst því ekki að
flytja yfir. Þú hafðir hreinan skjöld.
En eitt sýndir þú með þinni trú, að
það er hægt að vera hvorutveggja í
einu: sannur og góður trúmaður og
sannur og góður sósíalisti.
Farðu vel gamli, góði félagi og
vinur. í mínum huga mun alltaf
verða bjart yfir minningunni um
þig-
Gamall verklýðsfélagi.
ODDUR BJÖRNSSON
Framhald af 3. síðu.
konu, og lifir hún mann sinn, 83 ára
gömul. Þau eignuðust 4 börn, sem öll
lifa og eru mikils metin, en þau eru:
Bjöm, prestur að Hálsi, Sigurður,
prentmeistari á Akureyri, Þór, deild-
arstjóri hjá K.E.A. og Ragnheiður,
kaupsýslukona á Akureyri.
Hinir fjölmörgu vinir Odds minnast
hans með þakklæti og mikilli virð-
ingu og senda ættingjum hans hlýjar
samúðarkveðjur.
Á. S.
Nær og f jær
„Dagur“ er ákaflega gramur við Ríkis-
útvarpið íslenska að það skyldi ekki taka
upp í fréttir sínar kosningaræður Churc-
hills um daginn. Sérstaklega harmar
blaðið að sá kafli úr ræðum Churchills,
þar sem hann veittist að „kommúnist-
um“ skyldi ekki berast til eyrna okkar
íslendinga fyrir atbeina hins hlutlausa
Ríkisútvarps. Þannig vill „Dagur“ að
fullnægt sé öllu réttlæti — og hlutleysi.
Já, mikið var það grátlegt að útvarpið
endursagði ekki áróðurs- og æsingaræður
ihaldsmannsins Churchills um ágæti aft-
urhaldsstfnunnar bresku og hið forna og
vankantalausa lýðræði þar í landi! Það
er eins og „Dagur“ álíti að allur komm-
únismi og allur sósíalismi hefði horfið
líkt og dögg fyrir sólu ef ummæli Churc-
hills um þær stefnur hefðu verið birt í
íslenska útvarpinu.
Já, fast er nú hangið á hverju hálm-
stráinu. En það vill nú svo til að flestir
vita að hinn mikli Churchill Bretlands er
tryggur meðlimur íhaldsflokksins breska
og allatíma hefir verið mikið staðfst
djúp milli kenninga þess flokks og
kommúnista hvar í heimi sem er. Þess-
vegna kemur engum á óvart þótt Churc-
hill hafi sagt eitthvað „ljótt“ um „komm-
ana“.
„Dagur þarf ekki að vera svo barna-
legur að halda, að orð Churchills séu
nein úrslitaorð eða drottindómur í þessu
tilfelli.
★
Fyrst að „Dagur“ gefur tilefni fil, er-
ekki úr vegi að athuga örlítið hvernig
„lýðræðisást" breska afturhaldsins skín
í gegnum kosningalögin þar í landi. —
Ihaldsflokkurinn á mikið af sínum völd-
um og styrkleika á þingi að þakka rang-
látri og úreltri skipan í þeim málum.
Hann vill líka fyrir alla muni viðhalda
þessum ranglátu kosningalögum, eins og
Framsóknarflokkurjnn íslenski vildi gera
hér.
Við þingkosningarnar í Bretlandi 1935,
fékk íhaldsflokkurinn 387 þingmenn
kjörna á 10.3 miljónir atkvæða, en við
sömu kosningar fékk Verkamannaflokk-
urinn aðeins 154 þingmenn kjörna en
hlaut þó 8.3 miljónir atkvæða. Þessar
staðreyndir sýna vel, hve mikið sam-
ræmi er í atkvæðamagni og þingmanna-
tölu bresku stjórnmálaflokkanna®
Að viðhafðri hlutfallskosningu fyrir allt
landið hefði íhaldsflokkurinn átt að fá
298 þingmenn kjörna og Verkamanna-
flokkurinn 243, ða 89 þingmönnum fleira
en hann fékk. Kjördæmaskiptingin í
Englandi er hin ranglátasta eins og Jaess-
ar tölur sýna, þar eru mörg sveitakjör-
dæmi, sem hafa aðeins nokkur hundruð
kjósendur, en þau fá öll sinn þingmann
engu síður en iðnaðarborgir á stærð við
Reykjavík eða stærri. A þessu skipulagi
græðir íhaldsflokkurinn enski og vill við-
halda því, vegna þessaðhannátiltölulega
miklu meira fylgi í sveitakjördæmunum
smáu, en í iðnaðarborgunum. Framsókn-
arflokkurinn íslenski vildi hafa sama fyr-
irkomulag hér á landi, vegna þess að
ranglætið var honum í hag. Það gilti einu
um hina gömlu lýðræðisreglu, að meiri-
hlutinn réði, bara ef Framsóknarflokk-
urinn gat grætt á því, að hún væri fyrir
borð borin. Þetta er sameiginlegt með
Framsóknafflokkinn íslenska og íhalds-
flokinn breska, ásamt fleiru.
Svo ætlar „Dagur“ að telja
lesendum sínum trú um, að lýðræðið sé
fullkomið og alhliða í Eretlandi og for-
sætisráðh. og íhaldsflokksmaðurinn svo
ótviræður boðberi sannleikans á póli-
tískum vettvangi, að orð hans beri að
taka sem óskeikulan dóm yfir öðrum,
honum andstæðum, stjórnmálastefnum
og hagkerfum.
Miklir menn erum við, Churchill minn,
vildi ritstjóri „Dags“ sagt hafa.
TILKYNNING
Vegna sumarleyfa í prentsmiðj-
unni, frá 15.—31. júlí, kemur blað-
ið ekki út fyr en eftir þann tíma.
Ein aí flugvélum Flugfélags íslands
brann á flugvelli við Stóra-Kropp í Borg-
arfirði sl. mánudagskvöld. Gaus eldur
upp í vélinni, er flugmaðurinn hafði sett
hana í gang. Ryndi hann að slökkva eld-
inn með sjálfvirku slökkvitæki en fékk
við ekkert ráðið. Tveir flugmenn voru í
flugvélinni og þrír farþegar, og björguð-
ust allir slysalaust.
Kvenfélagið Framtíðin hefir beðið
blaðið að færa bæjarbúum þakkir fyrir
margvíslega hjálp og fyrirgreiðslu í sam-
bandi við Jónsmessuhátíð þess og hina
ágætu þétttöku í hétíðinni. Nettóhagnað-
ur af Jónsmessuhátíðinni nam fullum 35
þús. kr„ og hafa bæjarbúar því enn sem
fyrr sýnt örlæti sitt við fjársöfnun félags-
ins vegna sjúkrahússins.
Orðsending
Þeir meðlimir Verkamannafé-
lags Akureyrarkaupstaðar, sem
enn hafa eigi greitt árgjald sitt til
félagsins fyrir yfirstandandi ár,
eru vinsamlega beðnir að koma
á skrifstofu verklýðsfélaganna í
Verklýðshúsinu, við fyrstu hentug-
leika og greiða gjaldið.
Skrifstofan er opin daglega frá
kl. 3Í/2—6Vi e. h.
GJALDKERINN
i; í.s.í. í.b.a.
Handknattleiksmót
< > # f < ►
jj fyrir Norðlendingafjórðung, í I. fl. kvenna og karla, hefst á JJ
jj Akureyri, föstud. 27. júlí n.k. — Þátttaka tilkynnist Knatt- JJ
o spyrnufélagi Akureyrar fyrir 22. júlí. <;
< >
ö knattspyrnufélag akureyrar
Hestamannafélagið Léttir
Undirbúningsæfingar fyrir næstu kappreiðar verða á skeið-
velli félagsins, laugardaginn 14., mánudaginn 16. og loka-
æfing miðvikudaginn 18. þessa mánaðar. Æfingar hefjast kl.
8.30 hvern dag. Þátttaka tilkynnist eigi síðar en á lokaæfingu.
STJÓRNIN
| Það tilkynnist hér með,
að herra Guðjón Bemharðsson hefur látið af uinlíoðsstörfuin fyrir oss,
en herra Þórður Sveinsson, kaupinaður, Verilunin Liverpool, Akureyri,
tekið við af honum, og biðjuin vér háttvirta viðskiptavini vora að snúa
sér til hans. —
Vér viljum jafnframt vekja athygli á vomm ágætu líftryggingum
1 og þá sérstaklega bamatryggingum.
Reykjavík^ 1. júli 1945.
Líftryggingafélagið Andvaka
i
/