Verkamaðurinn - 11.08.1945, Síða 2
2
VERKAMAÐURINN
Fyrsfu samningar ísl. verslunarmanna
byggðir á grundvelli stétfarsamtakanna
Samningar verslunarfólksins í Eyjum hafa inni að halda
margskonar kjarabætur, sem eru alger nýmæli
í síðari hluta júlí sl. tókust samningar í Vestmannaeyjum inilli Verzl-
unarmannafélags Vestmannaeyja og Félags kaupsýslumanna í Vest-
mannaeyjum um kaup og kjör verzlunar- og skrifstofufólks.
Með samningi þessum er lokið einni hörðustu kaupdeilu, sem háð
hefir verið á síðari árum, þar sem eigi var aðeins barist um kaup og kjör
heldur samningsrétt verzlunarmanna í Eyjum.
Verzlunar- og skrifstofumenn í Vestmannaeyjum hafa með samning-
um þessum markað tímamót í samtakasögu verzlunarstéttarinnar á Is-
landi og haslað sér völl við hlið annara launastétta. — Þrátt fyrir hinn
gífurlega vöxt og aukna styrkleika íslenskra launþegasamtaka á undan-
förnum árum, hefir ekki fram til þessa tekist að fá rétt verslunar- og
skrifstofumanna, til þess að semja um kaup sitt og kjör, viðurkendan.
Hefir þar valdið mestu hinn rótgróni áróður kaupmannavaldsins um að
verslunarmenn og kaupmenn væru ein og sama stéttin og að kaupmenn
væru eilíflega sjálfkjörnir forsvarsmenn og sálusorgarar verslunarmanna.
Þar sem mörgum mun þykja fróðlegt að kynnast þessum samningum,
eru þeir birtir hér í heild, og ætti verslunar- og skrifstofufólk hér á Ak-
ureyri sérstaklega að kynna sér vel þennan samning.
SAMNINGUR
um kaup og kjör milli Verslunarmannafélags Vestmannaeyinga annars-
vegar og Félags kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum hinsvegar.
l.gr.
a) Kaupgjald kvenna við verslunar- og skrifstofustörf:
Fyrstu 3 mánuðina kr. 175.00 á inánuði
Næstu 9 mánuðina kr. 210.00 á mánuði
Eftir 1"2 mánuði kr. 225.00 á mánuði
FJtir 18 mánuði kr. 250.00 á mánuði
Eftir 24 mánuði kr. 300.00 á mánuði
b) Kaupgjald karla, 16 ára og eldri, við verslúnar- og skrifstofustörf;
Fyrstu 12 mánuðina kr. 400.00 á mánuði
Næstu 12mánuðina kr. 485.00 á mánuði
Eftir 24 mánuði kr. 525.00 á mánuði
Eftir 36 mánuði kr. 550.00 á mánuði
2. gr.
Á ofangreint grunnkaup greiðist
full dýrtíðaruppbót mánaðarlega
samkv. vísitölu kauplagsnefndar og
skal miða við dýrtíðarvísitölu
næsta mánaðar á undan þeim inán-
uði sem greitt er fyrir.
3. gr.
Vinnutími er frá kl. 9 f. h. til kl.
6 e. h. Sé unnið lengur greiðist sú
vinna samkvæmt taxta Verkalýðs-
félags Vestmannaeyja og Verka-
kvennafél. Snótar. Þó skal ekki
krefjast aukakaups þótt unnið sé
við óaflokna afgreiðslu og að venju-
legri standsetningu búðarinnar eft-
ir lokunartíma, þó ekkí lengur en
1 klst. Helgidagskaup skal greitt, ef
unnið er á helgidögum þjóðkirkj-
unnar, þjóðhátíðardögum Ve., sum-
ardaginn fyrsta, 17. júní, 1. des. frá
hádegi meðan það tíðkast í Reykja-
vík og 1. maí. Matartími skal vera
1 klst. Kaffitími 30 mín.
4. gr.
Kaupgreiðsla skal fara fram um
hver mánaðamót og þó eigi síðar en
6. næsta mánaðar. Kaupið skal
greitt í peningum.
5. gr.
Slasist meðlimur Verslunar-
mannafél. Vestmannaeyja vegna
vinnu eða flutninga til og frá
vinnustað, skal vinnuveitandi
greiða honum fult kaup í alt að 7
daga, eða þar til Slysatrygging ríkis-
ins greiðir honum dagpeninga.
Meðlimur í Verslunarmannafélagi
Vestmannaeyinga, er unnið hefir
samfleytt í eitt ár eða lengur hjá
sama atvinnurekanda, skal einskis í
missa í kaupi þótt hann sé veikur
alt að 14 dögum á ári, enda séu
veikindin sönnuð með vottorði hér-
aðslæknis, sé þess krafist.
6. gr.
Salerni skulu vera við hverja
verslun.
* 7. gr.
Uppsagnarfrestur skal vera
minnst 3 mánuðir og gagnkvæmt
milli vinnuveitenda og kaupþega
og uppsögn miðast við mánaðamót.
8. gr.
Þeir félagsmenn Verslunarmanna-
félags Vestmannaeyinga, sem
kunna að hafa hærra kaup eða betri
kjör en samningur þessi ákveður,
skulu halda hvorutveggja óskertu.
9. gr.
Samningur þessi gildir frá undir-
skrift til 1. nóv. næstkomandi. Sé
samningnum eigi sagt upp fyrir 1.
okt. næstkomandi framlengist hann
um 3 mánuði í senn með 1 mán-
aðar uppsagnarfresti.
IN6IMAR Á GEFJUN
Kveðja frá starfssystkinum
Hver finnur til — þó falli aldinn hlynur,
— þó fyrrum hafi borið litfríð blóm —
mitt í þeim leik, er lífið undir stynur,
— sem lostið væri hörðum nornadóm.
— En auða rúmið ýmsum vekur trega
þó einhver finnist, sem að merkið ber.-
Vér þráum líkn í velking slíkra vega,
sem vorið — aðeins — ber í faðmi sér.
Oft virðist svalt á verkamannastöðvum,
oft virðist dimman byrgja innri sýn.
Hversu á sá, sem vinnur meður vöðvum,
virðingu þeirra er bera klæðin fín?
Þá var oft sælt að hafa í hópi sínum
hugljúfan vin, sem létti þungan stig,
sem gleðireifur gleymdi eigin pínum
og gerði hlýtt og bjart í kringum sig.
Hann sótti ei hátt — á heimsins mælikvarða,
en hafði að marki: kyrlátt æfisvið.
Og aldrei gekk hann um með glæstan farða,
— sem ýmisr nota til að dyljast við.
— Því marga smáa munna þurfti að seðja
og miðla kröftum — fyrir heimilið—. —
Hann lét sér nægja að lifa því — og gleðja
— og lauk — með prýði — við það ,,dagsverkið“.
Þú áttir birtu innri fyrir sjónum
— sem ávalt reynist flestra meina bót.
En fagrir éimar frá þeim mildu tónum
þér færðu styrk, er þjáðu sjúkdómshót.
— Og svífur braut í sóltíð unaðslegri,
þig signi verund ljóss og eilífðar.
— Farðu svo vel til vonarlanda fegri,
þars vegir mætast — kæri Ingimar.
S. G. S.
Innilegt þakklæti til allra er sýndu okkur vinarhug og samúð
við andlát og jarðarför mannsins míns, löður okkar og tengdaföður
INGIMARS JÓNSSONAR.
Sérstaklega viljum við þakka stjórn verksmiðjunnar og verk-
smiðjustjóra, fyrir margháttaða hjálp, svo og starfsfólki Gefjunar,
sem styrktu hann með gjöfum í veikindum hans.
María Kristjánsdóttir, börn og tengdabörn.
:
Húseignin Hafnarstræfi 84
(gamla síma- og pósthúsið) er til sölu. Neðsta hæðin er þegar [
laus, en efri hæðimar verða væntanlega rýmdar fyrir 1, okt. [
n. k. Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu minni.
Tilboð sendist mér fyrir 20. ágúst n. k.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna j
öllum.
Sfmastjórinn á Akureyri, 30. júlí 1945.
Gunnar Schram.
Samningur þessi er gerður í þrem
samhljóða eintökum.
Reykjavík, 20. júlí 1945.
Alþýðusambands íslands f. h. Versl-
unarmananfélagsVestmannaeyinga.
F. h. Félags kaupsýslumanna í Vest-
mannaeyjum.
Vinnuveitendafélag Islands.
h
4
4
W*