Verkamaðurinn - 18.08.1945, Page 3
VERKAMAÐU RINN
3
m
VERKAMAÐU RINN.
Út&efandi: Sósíalistafélag Akureyrar.
Ritstjóri: Jakob Árnason,
Skipagötu 3. — Simi 466.
Blaðnofnd: Rósberg G. Snædal,
Eyjólfur Áinason,
Ólafur Aðalsteinsson.
Blaðið kemur út hvera laugardag.
Lausasöluverð 30 auia eintakið.
Afgreiðsla í skrifstofu Sósíalistafélags
Akureyrar, Hafnarstræti 88.
Prentverk Odds Bjómssonar.
Sápukúluflokkurinn, sem á
ekkert markmið nema hrun,
mun hrynja sjálfur
Heimsstyrjöldinni ev nú lokið.
Mannkynið fagnar því, að undan-
teknum fáum einstaklingum. Erfið-
ir tímar eru þó framundan, stríðið
við að byggja upp það sem lagt var
í rústir og tryggja mönnum lífs-
nauðsynjar. Við íslenidngar slupp-
um svo vel að við þurfum ekki að
reisa borgir og bæi úr rústum eins
og fjöldamargar aðrar þjóðir þurfa
nú að gera næstu ár. Hinsvegar
þurfum við að fá ný skip í stað
þeirra rnörgu skipa, sem fórust
vegna hernaðaraðgerða þýsku naz-
istanna. íslenska þjóðin þarf næstu
ár, að einbeita kröftum sínum að
því að koma atvinnuvegunum á svo
traustan grundvöll, að þjóðin öll
geti lifað sönnu menningarlífi. Til
þess að það geti orðið, þarf að
tryggja öllum, er geta unnið, stöð-
uga atvinnu, taka nýtísku vélar,
nýjustu og fullkomnustu tækni í
þjónustu atvinnuveganna svo af-
rakstur vinnunnar verði sem mest-
ur, og framleiðsla okkar þoli sam-
anburð við framleiðslu annara
þjóða hvað verð og gæði snertir.
Það mun kosta harða baráttu að
fá því framgengt að öllum vinnu-
færum mönnum verði trygð lífvæn-
leg atvinna. Því, — þrátt fyrir langa
reynslu, — eru þeir margir, sem
vilja hjakka í sama farinu og jafn-
vel ganga afturábak. Það er meira
að segja heill flokkur í landinu,
„Framsókn“ sem trúir ekki á annað
en hrun og gerir alt sem hann getur
til þess að þessi óskadraunmr hans
megi rætast.
Við þekkjum vel hér á Akureyri
afrek „Framsóknarflokksins". Síð-
astliðinn vetur var atvinnuleysi
meira og almennara hér í bænum
en í nokkrum öðrum kaupstað
landsins. „Árangurinn af samstarfi
samvinnumanna og kaupmanna á
Akureyri er glæsilegur og til fyrir-
myndar,“ skrifaði Hriflu-Jónas
„Dag“. Þessari staðhæfingu Jónasar
hefir ekki verið andmælt af lorystu-
liði „Framsóknar" þér, enda hafa
bæjarfulltrúar „Framsóknar“ lagt á
það megináherslu, að hindra að
bæjarstjórnin beitti sér fyrir því að
atvinnuvegir bæjarins yrðu efldir
að miklum mun.
Hafnargarðsmálið er eitt skýrasta
dæmið um vinnubrögð „Framsókn-
ar“. Þar, eins og í mörgum öðrum
málum, hefir þessi svikamylluflokk-
pr látið líklega um stuðning við
málið, en svo þegar á hefir hert,
hefir hann runnið frá loforðum
sínum og glamri. Allir bæjarbúar
vita, að hann þandi sig út í dálkum'
„Dags“ í hafnargarðsmálinu eins og
grænsápubóla — og sprakk svo eins
og grænsápubóla.
Nú eru kosningar í bæjarstjórn
innan nokkurra mánaða og þing-
kosningar einnig á næsta ári. Ef að
vanda lætur mun „Framsókn“ blása
út margar sápukiilur fyrir kosning-
arnar til þess að reyna að sýnast
girnilegri í augum kjósenda. Hún
mun m. a. reyna að kaupa menn
til fylgis við sig með því að nota
yfirráð sín yfir auðæfum K.F.A. til
að láta mönnum í té nokkurra daga
vinnu. Eftir kosningarnar mun hún
svo predika hrun af öllum kröftum
og í samræmi við þá kenningu beita
sér gegn því eins og undanfarin ár,
að bærinn geri nokkrar ráðstafanir
til að efla atvinnulífið hér. Og til
að bæta úr skortinum á íbúðum
mun „Framsókn“ fúsari til að
henda miljónum króna af te verka-
nranna og bænda í hótel en að
greiða atkvæði með því að sæmileg
íbúðarhús verði bygð til að bjarga
fátækum börnum frá seigdrepandi
skorti — og dauða. Og byggi K.E.A.
ekki nýtt hótel mun þeim háu herr-
um, er tróna þar, að líkindum ekki
verða skotaskuld úr því að henda fé
K.E.A. í ný hlutafélög, til þess að
reyna á þann hátt að binda enn
fleiri starfsmenn félagsins á sam-
eiginlegan bás gróðans af hlutafé-
lögunum.
Petain dæmdur
til dauða
Dómur féll í máli Petains mar-
skálks sl. miðvikudagskvöld.
Var hann dærndur til dauða, en
um leið farið fram á að dómnum
yrði breytt í æfilangtfangelsisökum
þess hve gamall hann er orðinn, en
hann er nú 89 ára.
í forsenduiö dómsins er lýst,
hvernig Petain aðstoðaði Þjóð-
verja á allan hátt, sveik hagsmuni
Frakklands með því að láta þeim í
té bækistöðvar, sem hann hafði áð-
ur lofað, að ekki myndu falla í
hendur þeirra, með því að fyrir-
skipa frönsku hersveitunum í Sýr-
landi, Norður-Afríku og öllum ný-
lendum Frakklands, að grípa til
vopna gegn Bandamönnum og með
því að fyrirskipa líflát og pynding-
ar franskra föðurlandsvina og hann
hafi tætt í sundur stjórnarskrá hins
franska lýðveldis og komið á fót
fullkomnu einræði eftir fasistiskum
fyrirmyndum.
Petain var fluttur með flugvél til
kastala nokkurs í suðvesturhluta
Frakklands. í þessum kastala hafði
hann á valdadögum sínum látið
halda þeim Blutn, Daladier, Game-
lin og fleiri frönskum stjórnmála-
mönnum í haldi.
Tregnir herma, að hann verði
bráðlega fluttur til eyjar nókkurar
við Frakklandsstrendur og geymdur
þar í kastalanum, þar sem „maður-
inn með járngrímuna“ var í fang-
elsi í 11 ár.
Undanbrögð Japana
Yfirmáður Bandamannahersins
hafði lagt svo fyrir Japana, að þeir
skyldu senda fulltrúa til Manila
með skriflegt umboð frá keisaran-
um til að undirrita samninga um
uppgjöf. Eiga japönsku fulltrúarn-
ir að fljúga í hvítmálaðri flugvél til
smáeyjar skamt frá Okinava. Þaðan
eiga þeir að fljúga í amerískri flug-
vél til Manila. Mikill dráttur hefir
verið á komu þessara fulltrúa og
eru Japanar nteð liverskyns vöflur.
Síðustu fréttir
Tokio-útvarpið hefir skýrt jap-
önsku þjóðinni frá því, að hernáms-
lið Bandamanna muni bráðlega
koma til Japan og hefir skorað á
þjóðina að sýna stillingu.
1 Moskvu er tilkynt, að japanski
herinn í Mansjúríu sé larinn að gef-
ast upp í hópum. Ein af þeim borg-
um er. Rauði herinn tók í gær, er
165 km. frá Harbin.
Síldveiðin mjög treg
Ennþá er síldveiðin mjög treg„
Er nú orðið svo áliðið, að litlar lík-
ur virðast til jiess að úr rætist svo
muni verulega unv. Mest af því sem
veiðst hefir síðustu daga hefir verið
saltað og hefir verið saltað allmiklu
meira en á sama tíma í fyrra.
Bær brennur
S. I. laugardag brann bærinn að
Völlum í Saurbæjarhreppi, Eyja-
firði. Fólk var á engjum er eldurinn
kom upp, en það var skömmu eftir
hádegi, var eldurinn orðinn svo
magnaður er hans varð vart, að ekkí
tókst að ráða niðurlögum hans.
V
Slökkvilið Akureyrar kom á vett-
vang, en bærinn var þá brunninn
til kaldra kola, en hinsvegar tókst
slökkviliðinu að verja fjós og hey
sem voru mjög nærri bænum. Næst-
um engu varð bjargað úr bænum
öðru en innanstokksmunum úr
baðstofunni.
Bóndinn á Völlum heitir Sigur-
vin Jóhannesson, og hefir hann og
heimilisfólk hans orðið fyrir mjög
tilfinnanlegu tjóni. Býr það nú ;
tjöldum.
Vísitala framfærslukostnaðar fyrir
ágústmánuð hefir verið reiknuð út og
telst vera 275 stig eða eins og tvo und-
anfarna mánuði.
Sjötugsafmæli áttu sl. fimtudag tíbur-
arnir Kristinn Jóhannesson fyrrum bóndi
í Samkomugerði og Sigtryggus Jóhann-
esson, áður bóndi í Torfum en nú til
heimilis í Hlíðargötu 4 hér í bae.
60 ára varð í gær Jakob Karlsson, af-
greiðslumaður Eimskips hér í bænum,
og 60 ára verður næstk. mánudag Þorst.
M. Jónsson, skólastjóri. — Þá átti í gær
sjötugsafmæli Kristján Kristjánsson,
fyrv, símalagningarmaður.
Nær og f jær
„Framsóknar“mennirnir í Kjötverð-
lagsnefnd halda því fram, að nauðsyn sé
að selja dilkakjötið á kr. 14.35 kg. í smá-
sölu af því að svo lítið sé til af eldra og
ódýrara kjöti. Samkvæmt þessu ættu
verkamenn að hækka kaup sitt að sama
skapi á þeim tímum þegar lítið eða ekk-
ert framboð er á vinnuafli, þ. e. yfir sum-
artímann.
★
Vinnubrögð „Framsóknar“ í Kjötverð-
lagsnefndinni er aðeins eitt dæmi af
mörgum um það, að verk þeirra eru
þveröfug við hjal þeirra um baráttu gegn
dýrtíðinni. Meðan þeir sátu að völdum,
og síðast undir forsæti V. Þór, tókst
þeim að hækka dýrtíðarvísitöluna jafnt
og þétt. Með nokkrum kartöflupokum
tókst þeim t. d. að hækka vísitöluna um
15 stig. Nú, eftir að þeir hrökluðust fró
völdum, snauðir að öllu nema bitling-
um, hlutafélögum og fé, nota þeir að-
stöðu sína eftir mætti til að auka enn
dýrtíðina, þvi það eru þeir sem hafa unn-
ð þau afrek að setja „lága“ verðið á
kjötið og kartöflurnar.
★
Cg þeir eru svo ekki alveg ráðalausir
„Framsóknar“-garparnir, ef kjötið selst
ekki. Þeir grafa það þá bara með kurt og
\pí í Hafnarfjarðarhrauni eða sökkva því
við Oddeyrartanga, syngjandi hósianna
og kenna ríkisstjórninni um alt saman —
og heimta svo enn nokkra tugi miljóna
kr. í uppbætur á kjötið.
★
Stjórnmálaspekingar „Dags“, „Tím-
ans“ „Alþýðublaðsins" og „Alþýðumanns-
ins“ eru komnir í slæma klípu. Nýja
bretska stjórnin hefir sem sé tilkynt að
bretska stjórnin muni gjörbreyta afstöðu
sinni til grísku málanna. Stjóm Churc-
hills gerði eins og kunnugt er alt sem
hún gat og þorði að gera til að hjálpa
grískum fasistum og öðrum rótgrónum
afturhaldssinnum til að knésetja grísku
alþýðufylkinguna E.A.M. og her hennar
E.L.A.S. Jós Churchill úr sér ókvæðis-
orðum um grísku föðurlandsvinina, en
blöð „Framsóknar" og „Alþýðufl." sleiktu
út um af ánægju og réðust heiftarlega á
samtök vinstri flokkanna grísku.
Nú þegar bretska Verkamannaflokks-
stjórnin, sem bæði „Dagur“ og „Alþýðu-
m.“ hafa eignað sér og talið hold af sínu
holdi, þykir mörgum fróðlegt að vita
hvort heldur þau velja þann kostinn að
kúvenda í þessum málum og fylgja þar
sömu línu og stjórn Verkamannaflokks-
ins eða halda áfram stuðningi sínum við
grísku fasista- og afturhaldsstjómina,
sem Attlee segir að hafi svikið loforð sín.
Friði fagnað
í Reykjavík og víðar hér á landi
var verslunum og skrifstofum lokað
sl. fimtudag í tilefni af styrjaldar-
lokunum. Daginn áður var friðar-
ins einnig minst með því að fánar
voru alment dregnir að hún allan
daginn.
PÍANÓ
tíl sölu
Bókabúð Akureyrar
Símar: 495 og 466.