Verkamaðurinn - 25.08.1945, Blaðsíða 2
2
VERKAMA8URINN
Tutfugu og fimm manna búnaðarráð á að
ákveða verð á landbúnaðarafurðum
Að tilhlutun landbúnaðarráðherra hefir forseti íslands
gefið út bráðabirgðalög um skipun 25 manna búnaðarráðs
er ákveða skal verðjöfnunarsvæði og verðjöfnunargjald á
kindakjöti, mjólk og mjólkurafurðum.
„Verðlagsnefnd landbúnaðarafurða“, skipuð 5 mönnum
úr búnaðarráði, skal ákveða verðlag á landbúnaðarafurðum
á innanlandsmarkaði og annast framkvæmdir sem verið hafa
í höndum mjólkusöluneftidar, mjólkurverðlagsnefndar,
kjötverðlagsnefndar og verðlagsnefndar garðávaxta.
Bráðabirgðalög þessi fara hér á eftir:
„Landbúnaðarráðherra hefir tjáð
mér að með þvf að í lögum nr. 42,
1943, um dýrtíðarráðstafanir, sé
ákveðið, að meðan ófriðarástandið
haldist skuli verð á landbúnaðar-
vörum ákveðið í samræmi við vísi-
tölu framleiðslukostnaðar landbún-
aðarafurða, en lagaákvæði þetta sé
nú úr gildi fallið við lok styrjaldar-
innar og beri því fyrir 15. septem-
ber næstk. að ákveða að nýju verð
landbúnaðarafurða, sé nauðsynlegt
að koma nú þegar nýrri skipan á
þessi mál. Jafnframt þyki rétt, til
þess að tryggja fylsta samræmi í
verðlagi landbúnaðarafurða, að
breyta gildandi lögum á þann veg,
að einn aðili ákveði útsöluverð
mjólkur, kjöts og garðávaxta í stað
þeirra þriggja nefnda, sem nú
ákveða verðið.
Með því að eg felst á að brýn
nauðsyn sé á því að verðlagningu
landbúnaðarafurða sé nú þegar
skipað með lögum, gef eg út bráða-
birgðalög samkvæmt 3. gr. stjórnar-
skrárinnar á þessa leið:
1. gr. Landbúnaðarráðherra skip-
ar til eins árs í senn nefnd 25
manna, er nefnist „Búnaðarráð".
Nefndin skal skipuð bændum eða
mönnum, sem á einn eða annan
hátt starfa í þágu landbúnaðarins.
Heimilt er að tilnefna jafnmarga
varamenn. Ráðherra tilnefnir for-
mann ráðsins og kallar hann það
saman til fundar í síðasta lagi 5.
september ár hvert. Það er borgara-
leg skylda að taka sæti í búnaðar-
ráði og mæta á fundum þess, nema
lögleg forföll hamli.
2. gr. Fundir búnaðarráðs eru
því aðeins lögmætir, að allir nefnd-
armenn eða varamenn þeirra séu
mættir. Nú stendur svo á, að hvorki
aðalmaður né varamaður geta
mætt á fundi og skipar þá ráðherra
mann í þeirra stað meðan á forföll-
um stendur.
3. gr. Á 1. eða 2. fundi skal bún-
aðarráð kjósa 4 menn í nefnd, er
nefnist „Verðlagsnefnd landbúnað-
arafurða". Nefndarmenn skulu að
jafnaði valdir innan vébanda bún-
aðarráða, en heimilt er þó að víkja
frá því, ef heppilegt er talið. Verð-
lagsnefnd skal kosin meirihluta
kosningu og er enginn löglega kjör-
inn nema hann hafi hlotið atkvæði
meirihluta búnaðarráðsmanna. Ef
ekki næst meirihluti við endur-
tekna frjálsa kosningu, skal kosið
bundinni kosningu milli þeirra, er
flest hafa fengið atkvæði. Kjósa skal
tvo menn til vara 1 nefndina og taka
þeir þar sæti í forföllum aðal-
manna.
4. gr. Búnaðarráð gegnir enn-
fremur þessum störfum:
1. Gerir tillögur til landbúnaðar-
ráðuneytisins um setning reglna
um gæðaflokkun og verðflokk-
un landbúnaðarafurða.
2. Ákveður verðjöfnunarsvæði
samkvæmt 1. gr. 1. nr. 1,7. jan-
úar 1935 og verðlagssvæði sam-
kv. 9. gr. laga nr. 2, 9. janúar
1935.
3. Ákveður verðjöfnunargjald á
kindakjöt, mjólk og mjólkuraf-
urðir.
4. Stuðlar að hagnýtri verkun og
meðferð landbúnaðarafurða og
hagkvæmri nýtingu markaða
fyrir þær, jafnt innanlands sem
utan.
5. gr. Verðlagsnefnd landbúnað-
arafurða skal skipuð fimm mönn-
um, 4 kosnum samkvæmt ákvæðum
3. gr. laganna, en formaður búnað-
arráðs er sjálfkjörinn formaður
nefndarinnar. Forínaður kveður
nefndina til funda og stjórnar störf-
um hennar.
6. gr. Störf verðlagsnefndar eru:
1. Að ákveða verðlag á landbúnað-
arafurðum á innanlandsmark-
aði (kjöti allskonar, mjólk og
mjólkurafurðum.garðávöxtum).
2. Að annast aðrar framkvæmdir,
sem hingað til hafa verið í hönd-
um mjólkursölunefndar, mjólk-
urverðlagsnefndar, kjötverðlags-
nefndar og verðlagsnefndar
garðávaxta, sbr. þó ákvæði 4. gr.
7. gr. Verðlagsnefnd ræður sér
framkvæmdastjóra og annað starfs-
fólk. Framkvæmdastjóri sér um
daglega afgreiðslu mála og annast
önnur störf, er verðlagsnefnd felur
honum.
8. gr. Á fundum verðlagsnefndar
ræður afl atkvæða úrslitum.
9. gr. Allur kostnaður er leiðir af
störfum búnaðarráðs og verðlags-
nefndar greiðist úr ríkissjóði, eftir
reikningi er ráðherra úrskurðar.
10. gr. Með lögum þessum eru úr
gildi numin:
4. gr. og 8. gr. laga nr. 1, 7. janú-
ar 1935.
1. gr. og 2. málsliður 4. gr. laga
nr. 2, 9. janúar 1935.
1. og 2. málsgrein laga nr. 31, 2.
apríl 1943.
Loks eru úr gildi numin öll önn-
ur lagaákvæði, sem koma í bága við
þessi lög.
11. gr. Lög þessi öðlast þegar
gildi."
|ORÐSENDING
til allra þeirra, er hafa leigð matvælageymsluhólf á
frystihúsi voru á Oddeyri. —
Laugardaginn 1. september verður kæling tekin
af frystihólfunum um viku tíma vegna hreinsunar
á þeim. Er mjög áríðandi að allir losi hólfin fyrir
þennan tíma og komi til viðtals við frystihússtjór-
ann. —
S J :
Framvegis verður hangikjöt eða önnur lyktarmikil
matvæli eigi tekin til geymslu í hólfin. —
Kaupfélag Eyfirðinga
X
a
lUiiuuummuiuuuHiiiuiuiuiiuiuiiiuuiiutiuuuuituutuuuiiutuiiimumitimuiuiiiiiiMuuuuiuuHiiuuuuuuuuuM*
iiuuiiiiiuuiuiiuiimuiiiiiiuiiiiiiimiiiuuumuiiuuiuiiuiiiiiiuiuuiuiuuiiuumiumumummiimmiiiiuuiumuiuiiNi‘
NOKKRAR STÚLKUR |
vantar 1 eldhúsið í Kristneshæli 1. október næstkomandi.
IJDnlvsingar gefa skrifstofa hælisins og frk. Guðrún Pálma-
dóttir, Munkaþverárstræti 3, Akureyri.
Ennfremur vantar 3 stúlkur til annarra starfa í hælinu/
Upplýsingar gefa yfirhjúkrunarkonan og skrifstofan.
Athugið, að hælið greiðir hæsta kaup.
«uuumiuuuuuuuuuiuuuuuu«umuuuuiuuuiu,uumuiuuuumuiimumuuumiiumimuuuumuuuuuuuuuuiMii*
| TILKYNNING
5 x
Viðskiptaráðið hefur ákveðið, að meðan núgildandi
verð helzt á nýju dilkakjöti, sé greiðasölustöðum
heimilt að reikna kr. 2.00 til vðbótar leyfðu há-
marksverði fyrir hverja kjötmáltíð, sem framleidd
er úr hinu nýja kjöti.
Reykjavík, 18. ágúst 1945.
VERÐLAGSSTJÓRINN |
Z 2
'•iHHiiiuuuiuiiuuiuuiiiiiumuiiiiiiuuuumiuuiHiuumiiuuuiiHuuuiiiiiiuiiuiuiuuumiiuumuiuuiuiHiiiuuuuuui*
j AKUREYRARBÆR.
| Tilkyniiing
Ár 1945, hinn 24. ágúst, framkvæmdi notarius publicus í j
I Akureyrarkaupstað 2. útdrátt á skuldabréfum bæjarsjóðs Ak- |
í ureyrar fyrir 4% láni bæjarsjóðs til aukningar raforkuveitu j
j frá Laxárvirkjun. .i
Þessi bréf voru dregin út:
I LITRAA: nr. 2-45-95- 112- 125- 148- 151 - 183- |
212 - 213 - 242 - 263 - 288 - 296 - 297 - 298. {
! LITRA B: nr. 24 — 27 — 28 — 29 — 44 — 79 — 188 — 209 —219 j
- 222 - 223 - 241 - 282 - 324 - 326 - 337 - j
339 _ 364 - 403 - 452 - 607 - 610 - 613 - 620 j
- 641 - 642 - 651 - 654 - 655 - 661 - 665 - f
668 - 682.
: :
Skuldabréf þessi verða greidd í skrifstofu bæjargjaldkerans |
i á Akureyri, eða í Landsbanka íslands í Reykjavík, hinn 2. j
Í janúar 1946. ,
\
Bæjarstjórinn á Akureyri, 24. ágúst 1945.
ÞORSTEINN STEFÁNSSON
• i
settur.
• »»HMMM»MMMMMmHMMMM*H»MMMMM»MUlM,MU»UMMIIMIMMMMHMlMMmMMIHUMM»HlllUUMHimMHIMtH»imi,l«l|IM»i»u«9
V