Verkamaðurinn - 22.09.1945, Blaðsíða 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 22. september 1945 35. tbl.
Bæjarstjórnin samþykkir að óska eftir
því við ríkisstjórnina, að hún ætii
Akureyrarbæ 2 togara
Mjólkurafurðir hækkaðar um 9,7 %
Launastéttirnar krefjast þess, að kaupið
hækki í samræmi við það.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar
s.l. þriðjudag var samþykt í einu i
hljóSi svohljóðandi tillaga frá út-
vegsmálanefnd og fjárhagsnefnd:
„Bæjarstjórn samþ. að óska eftir að
ríkisstjórnin ætli Akureyrarbæ 2 af þeim
togurum, sem ríkisstjórnin hefir nýverið
fest kaup á í Englandi. Pöntun þessi er
miðuð við að frumvarp það, er Nýbygg-
ingaráð hefir lagt fram til breytinga á
lögum um fiskveiða sjóð, þar sem gert
er ráð fyrir fyrsta veðréttarláni, sem
nemi allt að 3A hlutum stofnkostnaðar
með 2Vi% vöxtum, nái fram að ganga,
eða ríkisstjórnin sjái fyrir öðru jafnhag-
stæðu láni til kaupanna.
Bærinn áskilur sér rétt til að láta ein-
staklinga eða félög, sem hann ávísar,
ganga inn í kaupin.“
Bæjarbúar munu fagna því, að
meirihluti bæjarstjórnarinnar hefir
nú loksins breytt afstöðu sinni í útr-
gerðarmálunum. Ber í þessu tilfelli
eins og öðrum, að gleðjast yfir iðr-
andi syndara, jafnvel þó að hann
haldi ræður eins og Jakob Frí-
mannsson gerði, til þess að reyna að
afsaka stefnubreytingu sína.
Skal þess getið hér stuttlega, í
þessu sambandi, að fyrir nokkrum
árum átti bæjarstjórnin völ á því,
að fá keyptan togarann „Imperial-
ist“ fyrir 150 þús. kr., en hið blinda
bandalag Framsóknar og Sjálfstæð-
isfl. í bæjarstjórninni, vildi ekki
líta við þ^ssu tilboði. Vita allir, er
bandalagsins hefir kostað bæjarfé-
lagið margar miljónir króna, jafn-
vel þó að ágóðinn af rekstri togar-
ans hefði orðið töluvert fyrir neðan
meðallag.
Á bæjarstjórnarfundinum voru
til umræðu og afgreiðslu tillögur
frá Verkamannafélagi Akureyrar-
kaupstaðar og verður skýrt frá af-
greiðslu þeirra í næsta blaði.
Birgir Halldórsson
hinn vestur-íslenzki söngvari,
| kom til íslands í sumar og hefir
sungið i Reykjavík, söng hér á
miðvikudagskvöldið 19. þ. m. í
Samkomuhúsinu. Hinn ágæti lista-
maður DR. VIKTOR URBANTS-
CHITSCH hljómsveitarstjóri að-
stoðaði.
Birgir Halldórsson er ungur mað-
ur, en hefir notið ágætrar söng-
kennslu og aflað sér mikillar tón-
listarmenntunar. Um það ber vott
óvenju-fágaður söngur og túlkun,
er lýsti þroskuðum listasmekk.
Ég hefi örsjaldan heyrt jafn full-
komna raddþjálfun og hjá honum,
og textaframburður mun tæpast
geta verið betri. Látbragð allt og
svipbrigði voru svo frjálsleg og
undirstrikuðu svo vel áhrif ljóðs og
Síðastliðinn laugardag hækkaði
mjólkurverðið upp í kr. 1.82 líter-
inn. Niðurgreiðslur úr ríkissjóði á
mjólkurafurðir hafa numið 25 aur-
um á mjólkurlíter og var því raun-
verulegt verð mjólkurinnar kr. 1.70
og hækkar því um 12 atira. Smjörið
hefir hækkað mest eða upp í kr.
26.50 kg. í heildsölu.
V erðlagsnefnd landbúnaðaraf-
urða rökstyður þessa hækkun á
mjólkurafurðunum með því að það
hefði stundað nám í fullkomnasta
„ballett“-skóla samhliða söngnám-
inu.
Rcidd Birgis Halldórssonar er
„lyriskur" tenor. l>eir, sem jafnan
vilja heyra bylmingsraddir, segja ef
til vill, að hann hafi litla rödd, en
svo er þó ekki. Að vísu syngur hann
ekki sterkt að jafnaði og beitir ekki
kröftum, slíkt gerir enginn góður
söngvari, en rödd hans á þó furðu-
rnikinn hljóm, og hún er mjög blæ-
fögur, minnir á strokhljóðfæri.
Þessi raddblær, hin frábæra radd-
leikni og listræna túlkun valda því,
að áhrifin af söng hans eru eigi
ósvipuð því að maður hlýði á fiðlu-
snilling, svo að hver sæmilega söng-
vinn áheyrandi hefir full not laga,
þótt hann skilji ekkert orð í textan-
um.
Það verður að segja áheyröndum
til htóss, að þeir virtust kunna ve
að meta hina miklu kosti þessa lista-
söngvara. Fagnaðarlætin voru mjög
mikil, og gleðin ljómaði á andlitum
manna. Hann varð að endurtaka
sum lögin og syngja nokkur auka-
lög og hlaut fögur blóm að launum.
Á sörigskránni voru 3 lög eftir
ítalska höfunda, 1 eftir Hándel, 4
eftir Schubert, 5 eftir franska höf-
unda og 4 eftir íslenzka (eitt þeirra
sé miðað við sexmannasamkomu-
lagið, en samkvæmt því áttu búnað-
arafurðir að hækka um 9.4% sl.
raust, en Búnaðarþing féll frá
reirri hækkun. Samkvæmt sima
samkomulagi ætti verðlag landbún-
aðarafurða nú að hækka um 9.7%
miðað við verðlag sexmannant fnd-
arinnar, að viðbættri þeirri h ekk-
un, sem orðið hefði í fyrrahaust. í
þessu sambandi er rétt að benda á
það, að sexmannasamkomu’agið
féll úr gildi, er stríðinu lauk, g er
því alls ekki hægt að skoða það
lengur sem bindandi grundvö.1.
Með þessum aðgerðum er vegið
að neytendum. Eins og kunnugt er
þá er framfærsluvísitalan reiknuð
eftir verðlagi fyrsta dags hvers mán-
aðar og fari svo, að niðurgreiðslum
verði haldið áfram og sú ákvi rðun
tekin fyrir 1. okt. nk., þá getur
þessi hækkun ekki haft áhrif á
vísitöluna né kaup launþega.
V'erði hinsvegar farin sú le.ð, að
halda niðurgreiðslunum úr ríkis-
sjóði ekki áfram, en þær hafa num-
ið 20—30 miljónum kr. árlega, þá
hlýtur vísitalan að hækka allmikið,
en getur þó ekki hækkað kaup laun-
þega fyr en 1. nóv. nk., eða U/2
mánuði eftir að mjólkurvöiurnar
hækka.
Krafa launþeganna til ríkisstjórn-
ar, og þá fyrst og fremst til land-
búnaðarráðherra, hlýtur að vc ra sú,
að þeir verði ekki rændir kaup-
hækkun í réttu hlutfalli við hækk-
un landbúnaðarafurðanna.
eftir vestur-íslenzka tónskáldið
Steingrím J. Hall).
Hinn snilldarlegi undirleikur dr.
Urbantschitsch jók mjög á áhrifin
af söngnum. Þessir góðu listamenn
komu með hlýja geisla frá himni
hinnar fegurstu og göfugustu listar.
Fyrir það sé þeim þökk og heiður.
Á. S.
fylgst hafa með rekstri togaranna,
stríðsárin, að þessi fjármálaviska
lags, áð vel mætti halda, að hann
Kjöt og kartöflur hækka um 9,7 %
til bænda.
Dilkakjötið kr. 10.85 í stað 6.50 í smásölu
til neytenda. ^
Glæsileg söngskemmtun.
Verðlagsnefnd landbúnaðaraf-
urða hefir nú ákveðið verð á kjöti
og kartiiflum og er útsöluverð í
smásölu á 1. flokks dilkaltjöti og
geldf járkjöti kr. 10.85. Hækkar
verðið til bændanna um 9.7%, en
hækkunin á kjötinu til neytenda er
margfalt meiri eða á dilkakjöti úr
kr. 6.50 upp í kr. 10.85 kg„ en
heimild ríkisstjórnarinnar til nið-
urgreiðslu á kjötinu er fallin úr
gildi.
Hin gífurlega hækkun á landbún-
aðarvörunum til neytenda hlýtur
. óhjákvæmilega að hækka vísitöluna
allmikið, svo hún verður sennilega
yfir 300 stig, nema því aðeins að rík-
isstjórnin geri sérstakar ráðstafanir
til að hindra hækkun vísitölunnar.
F.nn er ekkert vitað um, hvaða
tökum stjórnin tekur á þessum mál-
um, en það eru vægast sagt alvarleg
mistök hjá landbúnaðarráðherra,
að láta þessar hækkanir koma til
framkvæmda áður en stjórnin var
búin að ákveða hvaða leiðir hún
færi til að hindra að landbúnaðar-
vörurnar hækkuðu vísitöluna.
Er það einróma krafa launþega að
ríkisstjórnin láti ekki dragast leng-
ur að gera landslýð grein fyrir
stefnu sinni í dýrtíðarmálunum. —
Þetta er alvarlegt mál, sem þolir
ekki lengri bið.
><h>0<hKbKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKHKhKhKbKh3 CKhXhj
Frá barnaskólanum
Skólinn verður settur þriðjudaginn 2. okt. n. k., kl. 2 s.d.
Börn mæti til læknisskoðunar sem hér segir:
Mánudag 24. sept.: Börn fædd 1935
Miðvikud. 26. sept.: Börn fædd 1934
Fimmtud. 27. sept.: Börn fædd 1933
Laugardag 29. sept.: Bört^ fædd 1932
Drengir mæti kl. 1 alla dagana, en stúlkur kl. 3.30.
j , Skólastjóri.
tWKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHWHKKHKHKHK