Verkamaðurinn - 07.11.1945, Page 1
XXVIII. árg. Miðvikudaginn 7. nóvember 1945 41. tbl.
7. nóv. 1917
7« nóv. 1945
Ráðstjórnarlýðveldin visa
mannkyninu veginn til
friðar og farsældar.
Þegar maður
ræðir við mann,1
sem aldrei hefir lesið annað en
Tímann, Dag eða ísafold, utn bylt-
inguna í Rússlandi, kemur fljótt í
Ijós að honurn hefir aldrei dottið í
hug að byltingin hafi átt sínar or-
sakir og þá eðlilega ekki þurft að
brjóta heilann um orsakir hennar.
Því ber ekki að neita, að þetta er
allmerkilegt fyrirbæri. þegar þess
er gætt, að meginiðaflesendmnfyr-
nefndra blaða eru bændur og
bændafólk, en byltingin í Rúss-
landi átti ekki hvað síst rót sína að
rekja til hinna ömurlegu lífskjara
rdssnesku bændanna.
Þorri bændanna hafði ekki til af-
nota jarðnæði að stærð nema 3
desjatin (1 desjatin = 1,09 hektari)
á sama tíma og fámennur hópur
stórbænda og gósseigenda áttu
landsvæði, sem var margir tugir
þúsunda desjatin að stærð. 700 stór-
bændur áttu jarðir sem voru að
meðaltali yfir 30 þús. desjatin að
stærð. Þessir 700 gósseigendur áttu
þrisvar sinnum eins stórt landflæmi
eins og 600.000 kotbændur. Þessar
tölur tala allskýru máli til þéirra,
að minnsta kosti, sem telja það
ómaksins vert að brjóta heilann um
orsakir byltingar, sem fór fram fyr-
ir 28 árum á 1/6 hluta jarðarinnar.
Margt hraklegt orðið hefir fallið
á undanförnum 28 árum í garð
þjóða þeirra, er byggja hin víð-
lendu Ráðstjórnarlýðveldi og þá
fyrst 0g fremst forystumanna
þeirra. Og það var ekki látið sitja
við orðin tóm. Hersveitir frá 14
ríkjum gerðu innrás í Ráðstjórnar-
ríkin strax eftir byltinguna. Ekkert
var spárað til að kæfa hana x fæð-
ingunni. Sú tilraun mistókst. En
baráttunni gegn Ráðstjórnarlýð-
veldunum lauk ekki þar með. Það
var gripið til þess ráðs áð íæyna að
tortíma þeim með einangrun á öll-
um sviðum, jafnframt því sem önn-
ur vopnuð herferð var undirbúin
gegn þeim. Alt. afturhaldssamasta
íhald heimsins beið með óþreyju
eftir árásinni, sem átti að molaRáð-
stjórnarríkin mélinu smærra og
kveða niður kommúnismann í eitt
skifti fyrir öll. „Leifturstríð" Hitl-
ers hófst, ægilegasta árás, sem heim
urinn hefir nokkru sinni þekt. Á
nokkrum mánuðum átti að jafna
rlki kommúnismans við jörðu. Sú
viðureign varð löng, hörð og hörm
ungar er fylgdu henni meiri en
með orðum verður lýst. Vopnin
snerust í höndum afturhaldsins.
Varnarmúrinn gegn bolsevisman-
um var jafnaður við jörðu.
Framlag Sovétþjóðanna í styrj-
öldinni gegn fasismanum verður
aldrei ofmetið. Ekkert afl nerna
Sovétríkin var þess umkomið að
stöðva og sigra lierskara Hitlers
Þýskalands. Þrautselgja, hreysti,
fórnfýsi, snilli og auðlindir Sovét-
þjóðanna bjargaði mannkyninu frá
villimensku nazisnians. Allar þjóð-
ir heims eru í þakkarskuld við
het juþjóðir Ráðstjórnarríkjanna.
Ef flóðalda fasismans hefði ekki
biótnað á stálmúr Ráðstjórnarríkj-
anna ættum vér og fleiri þjóðir
litlu frelsi að fagna í dag.
Ætla mætti því að áróðurinn,
fjandskapurinn og baráttan gegn
þjóðum Ráðstjórnarríkjanna hefði
(Framhald á 4. síðu).
Dönsku kosningarnar:
Við verðum að viðurkenna að
Kommúnistar eru sigurvegarar
kosninganna—Christmas Möller
46 höfðu 66
18 höfðu 3
38 höfðu 28
26 höfðu 31
11 höfðu 13
•3 höfðu 2
4 höfðu 3
flokkanna eru
30. f. nt. fóru fram kosningar til
Fólksþingsins í Danmörku.
Flokkarnir fengu þingsæti eins og
hén segir:
Sósíaldemokratar
Komínúnistar
Vinstri menn
íhaldsmenn
Radikalir
Retsforbundet
Dansk Samling
Atkvæðatölur
þessar:
Sósialdem. 671.664 tapað 222.968
Radikalir 166.843 tapað 8.336
Jhaldsm. 373.854 tapað 82.000
Kommúnist. 275.142 unnið 214.290
Vinstri m. 480.000 unnið 103.150
Retsforb'. 48.412 unnið 2.042
Dansk S. 63.580 unnið 20.200
í Kaupmannahöfn skiftust at-
kvæðin þannig milli flokkanna:
Sósíaldem. 146.000 áður 241.000
íhaldsfl. 124.000 áður 136.000
Kommúnist. 115.000 áður 9.000
Radikalir 26.000 áður 33.000
Vinstri m. 19.000 áður 5.000
Dansk S. 18.000 áður 6.000
Þegar kosningaúrslitin höfðu ver-
ið tilkynt í danska útvarpinu fluttu
forystumenn flokkanna ræður. Ax-
Heildsalamálið:
Sverrir
h.f. kært
fyrir ólöglega álagningu
að upphæð kr. 270 þús.
el Larsen, formaður Kommúnista-
flokksins taldi að sti ákvöiðun Sós-
íaldemokrataflokksins, að hafna
sameiningar- og samvinnutilboðum
kommúnista hefði komið í veg fvr-
ir að verklýðsflokkarnir fengju
meirihluta á þingi.
Christmas Möller talaði fyrir
íhaldsflokkinn og sagði að allir
yrðu að játa, að kommúnistar væru
hinir raunverulegu sigurvegarar í
kosningunum. Hann og Axel Lar-
sen töldu að atkvæðamagn Vinstri
flokksins stafaði af því, að fyrver-
andi nazistar og Þjóðverjavinir og
afturhaldssömustu kjósendur í-
haldsflokksins hefði kosið hann.
«
Það, sem vekur alveg sérstaka at-
hygli í sambandi við þessi kosn-
ingaúrslit, er hið xnikla fylgishrun
(Framhald á 3. síðu).
Dómsmálaráðuneytið hefir
fyrirskipað málshöfðun gegn
einu heildsölufyrirtækinu
enn, Sverri Bernhöft h.f., og
er það hið þriðja í röðinni.
Hefir blaðinu borist' um þetta
eftirfarandi tilkynning frá Dóms-
málaráðuneytinu:
„Sakadómarinn í Reykjavík
sendi Dómsmálaráðuneytinu hinn
16. f. m. úrskrift af réttarrannsókn
í verðlagsbrotamáli heildverslunar-
innar Sverrir Bernhöft h.f. ásamt
fullnaðarskýrslu hins löggilta end-
urskoðanda, Ragnars Ólafssonar,
hæstaréttarlögmanns, er falin hafði
verið rannsókn á verðlagningu
hlutafélagsins. Samkvæmt þeirri
skýrslu nemur hin ólöglega álagn-
ings hlutafélagsins kr. 270.191.19.
Dómsmálaráðuneytið hefir hinn
29. f. m. lagt fyrir sakadómara að
Ijúka rannsókn máls þessá og höfða
síðan mál gegn framkvæmdastjóra
og stjórnendum félagsins fyrir brot
gegn verðlagslöggjöfinni, gjaldeyr-
islöggjörinni og XV. kafla hegning-
arlaganna, svo og til upptöku á
hinni ólöglegu álagningu".
Mikil hátíðahöld f
Sovétríkjunum í dag
í Sovétríkjunum fara fram mikil
hátíðahöld í dag og á morgun í til-
efni af 28 ára afmæli byltingarinn-
ar. Moskva og margar aðrar borgir
hafa verið skreyttar óvenjulega
mikið og mun hersýningin í dag á
Rauða torginu verða meiri en
nokkru sinni fyr.
Molotof utanríkisráðherra Ráð-
stjórnarlýðveldanna flutti ræðu í
gærdag í tilefni af byltingarafmæl-
inu og var bjartsýnn á horfurnar í
alþjóðamálum.
Kosningarnar í
' Ungverjalandi
í Ungverjalandi eru nýafstaðnar
þingkosningar. Samkvæmt þeim
tölum, sem þegar eru kunnar, er
Smábændaflokkurinn öflugastur,
þá Sósíaldemokrataflokkurinn og
kommúnistar þar næst. Kommún-
istaflokkurinn hefir verið bannað-
ur í Ungverjalandi í rúm 25 ár.
Verkamannafélagið skorar á bæjar-
stjórn að láta byrja nú þegar vinnu
við hafnarmannv. á Oddeyrartanga.
Á fundr Verkamannafélags Akur-
eyrarkaupstaðar sl. sunnudag voru
m. a. samþyktar eftirfarandi tillög-
ur til bæjarstjórnar:
1. „Fundur í Verkamannafélagi
Akureyi'arkaupstaðar, 4. nóv. 1945,
skorar á bæjarstjórnina að fylgja
útgerðarmálunum fast fram um
skipakaup og útveganir hagkvæmra
lána til útgerðar í bænum og vill
fundurinn benda bæjarstjórn á að
kynna sér ýtarlega tillögur Nýbygg-
ingarráðs um láns- og vaxtakjör til
skipakaupa. — Það er óvéfengjan-
leg skylda bæjarfélagsins að hafa
forgöngu um stóratvinnurekstur í
bænum, ef aðstæður til þess eru
(Framhald á 3. síðu).