Verkamaðurinn - 08.12.1945, Qupperneq 1
VERKfllTlflÐURinn
XXVIII. árg.
Laugardaginn 8. desember 1945
45. tbl.
■fe,
Viðskiftasamningur milli Isiands og
Finnlands undirritaður
4. þ. m. var endanlega gengið frá sonar og Péturs Benediktssonar í
viðskiftasamningi í Helsinki milli Jiaust um mið- og austur Evrópu,
íslands og Finnlands, og undirrit- [sem fór svo mikið í taugarnar á Al-
aði Pétur Benediktsson, sendiherra þýðubl., Tímanum og Vísir.
í Moskva, samninginn þann dag. 1
samningnum heita m. a. báðir að-
ilar gagnkvæmum inn- og útflutn-
ingsleyfum, ennfremur heita báðir
aðilar því að greiða fyrir viðskipt-
um á milli einstakra verzlunarfyrir-
tækja í viðkomandi löndum.
Samkv. samningnum seljum við
Finnum saltsíld, hraðfrystan fisk,
lýsi og ull, en fáum í staðinn efni
í síldartunnur, blaðapappír og ýms-
ar aðrar pappírsvörur, eldspítur,
húsgögn, sportvörur, vinnuáhöld,
búshluti og fræ.
Samningur þessi er einn árangur
af ferðalagi þeirra Einars Olgeirs-
„Sovétríkin æskja
engra herstöðva
á íslandi",
segir Molotoff
Stokkhólmsblaðið Morgontidn-
ingen skýrir frá því, eftir fréttarit-
ara sínum í Moskva, að í veislu, sem
Molotoff, unt'anríkisþjóðfulltirúi
Sovétríkjanna, hélt fulltrúum er-
lendra ríkja í Moskva, að kvöldi
hins 7. nóvember sl., hafi Molotoff
drukkið skál Péturs Benediktsson-
ar, sendiherra íslands í Moskva og
sagt um leið: „Sovétríkin æskja
engra herstöðva á íslandi.“
Ráðherrafundur
þriggja stórþjóða
í Moskva
Kjarnorkumálin verða
rædd þar,
Tilkynnt hefir verið í London,,
Moskva og Washington að utanrík-
isráðherrar Stóra-Bretlands, Ráð-
stjórnarríkjanna og Bandaríkjanna
muni koma saman á fund í Moskva
mjög bráðlega til að skiftast á skoð-
unum um ýms mikilvæg mál.
Eitt af þeim málufh, sem talið er
að ráðherrarnir muni ræða eru
kjarnorkumálin.
Söfnunin í kosningasjóð
1 gærkvöldi var komið í kosninga-
sjóðinn frá söfnunardeildunum:
500 þús. kr. til heima-
vistarhúss M. A.
Skólameistari Mentaskólans á
Akureyri, Sigurður Guðmundsson,
hefir tjáð blaðinu, að sér hafi bor-
izt sú vitneskja frá mentamálaráð-
herra, Brynjólfi Bjarnasyni, að fjár-
veitinganefnd Alþingis hafi sam-
þykt 500 þús. kr. fjárveitingu til
byggingar heimavistarhúss Menta-
skólans á Akureyri.
Þá gat skólameistari þess, að
vökumaður hefði verið ráðinn að
Skólanum vegna hinnar miklu eld-
hættu í þessu stóra timburhúsi.
Ein bókaverslun í bænum,
BÓKABÚÐ RIKKU, hefir
NEITÁÐ að auglýsa í
„Verkamanninum“, mál-
gagni stærsta stjórnmála-
flokksins í bænum.
Bazar Húsmæðraskóla Akureyrar
verður haldinn á morgun (sunnudaginn
9. des.) í Verklýðshúsinu kl. 4 e. h. —
Nefndin.
1. deild kr. 175.00
2. deild kr. 200.00
3. deild kr. 215.00
5. deild kr. 460.00
6. deild kr. 170.00
7. deild kr. 485.00
8. deild kr. 150.00
9. deild kr.210.00
10. deild 100.00
11. deild kr. 200.00
12. deild kr. 100..00
14. deild kr. 195.00
15. deild kr. 180.00
Almennur fundur á Akureyri skorar á
ríkisstjórnina að láfa lögin um héraða-
bönn koma til framkvæmda
Auk þess á skrifstofuna kr. 858.00.
Almennur borgarafundur um á-
fengismáí var haldinn á Akureyri
mánudaginn 3. des. s. 1., að tilhlut-
an ýmissa félagasamtaka í bænum,
bæjarstjórnar og skóla.
Snorri Sigfússon skólastjóri setti
fundinn með ávarpi og stýrði hon-
um, en ritari var Eiríkur Sigurðs-
son kennari.
Þessir fjórir menn fluttu stuttar
framsöguræður: Þorsteinn M. Jóns
son skólastjóri, Brynleifur Tobias
son menntaskólakennari, Jóhann
Þorkelsson héraðslæknir og Ár-
mann Dalmannsosn, form. íþrótta-
bandalags Akureyrar. Auk þeirra
tóku eftirtaldir menn til máls:
Helgi Valtýsson, Hallur Helgason,
Lárus Thorarensen, Bjarni Hall-
dórsson, Rósberg Snædal, Jónas
Jónsson og Áskell Snorrason.
Á fundinum mættu um 300
manns og kom þar fram mikill á-
hugi á að takast mætti að ráða bót
á vaxandi áfengisnautn þjóðarinn-
ar og því böli er hún veldur.
Voru þessar tillögur þar sam-
þyktar einum rómi:
1. Ahnennur borgarafundur á
Akureyri, haldinn 3. des. 1945,skor-
ar á ríkisstjórnina að láta lögin um
héraðabönn koma nú þegar til
framkvæmda.
2. Almennur borgarafundur á
Akureyri, haldinn 3. des. 1945, tel-
ur með öllu ófært að auðvelda
mönnum að ná í áfengi, með því
að fjölga útsölustöðum þess, eða
á annan hátt, og mótmælir því öll-
um ráðstöfunum hins opinbera er
stefna í þá átt.
3. Eins og nú er komið málum,
og með tilliti til þeirra aðstæðna,
sem skapast hafa vegna hinnar stór-
auknu áfengissölu og áfengisnautn-
ar hér, átelur almennur borgara-
fundur á Akureyri, haldinn 3. des.
1945, þá fyrirætlun ríkisstjórnar-
innar að ætla að stórminka fjár-
framlög til lögregluhalds á Akur-
eyri, þar sem vitanlegt er að mikið
af starfi lögreglunnar er vegna ölv-
unar, sem er bein afleiðing áfengis
verslunar ríkisins hér á staðnum.
Fundurinn lýsir sig samþykkan ný-
lega gerðri samþykt bæjarstjórn-
ar Akureyrar um þetta mál.
4. Almennur borgarafundur,
haldinn á Akureyri 3. des. 1945,
skorar á stofnanir, félög og félaga-
sambönd í bænum, að taka áfengis-
málið til rækilegrar umræðu og
athugunar, og hefja samstarf um
ýmsar úrbætur á áfengisbölinu
við alla þá aðila í bænum, sem að
því vilja vinna.
Jafnframt telur fundurinn sjálf-
sagt, að mjög beri að takmarka
vínveitingarleyfi til samkomuhalda
í bænum, að óbreyttum ástæðum.
Kosningaskrifstofa Sósíalistaflokksins
í Hafnarstræti 88 er opin alla virka daga
kl. 4—7 e. h. Komið og athugið hvort
þér eruð á kjörskránni, sem liggur þar
frammi
Kosninganefnd Sósíalistaflokksins.
Ályktun 5. þings Sósíalistaflokksins
um sjálfstæðismál íslendinga
„Fimmta þing Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins,
lýsir yfir, að það telur sjálfsagt, að Alþingi og ríkisstjórn gangi ríkt
eftir því, að stórveldi þau, sem hér hafa hernaðarstöðvar, hverfi
burtu með heri sína samkvæmt gerðum samningum.
Þingið lýsir því yfir, að flokkurinn muni beita öllum áhrifum
sínum og öllu því afli, sem hann hefir yfir að ráða, gegn því, að
nokkurt erlent ríki fái hernaðarstöðvar hér á landi, og er }>ess full-
vís, að ekki komi til mála, að Alþingi ljái máls á því, að veita
nokkru erlendu ríki slíkar stöðvar, enda hefir Alþingi ekkert um-
boð til að hefj'a samninga um afsal á landsréttindum.
Ennfremur skorar þingið á alla íslendinga, hvar í flokki sem
þeir eru, að standa sem einn maður gegn sérhverri kröfu eða ósk
erlends ríkis um ítök hér á landi og fylkja sér fast saman um sjálf-
stæði hins unga lýðveldis.
Hrísarión
fást ennþá.
Verzlun Jóns Egils.
Jólapappír
margar tegundir.
Verð 30 aura örkin.
Bókaverzlunin EDDA, Ak.
MARGAR TEGUNDIR AF
Jólakortum
nýkomnar.
Bókaverzlunin EDDA
Nýkomið!
AMERÍSKT smjör.
VÖRUHÚSIÐ H.F.
íslendinaasögurnar
alþýðuútgáfa Sigurðar Krist-
jánssonar er vaSalaust ein-
hver besta jólagjöfin.
Bókabúð Akureyrar
★ KAUPIÐ HAPPDRÆTTISMIÐA S. I. B. S. *