Verkamaðurinn - 08.12.1945, Blaðsíða 3
VERKAMAÐURINN
3
VERKAMAÐU RINN.
Ótt»tandi: Sósíaliataféldg Akuroyrar.
Ritatjóri: Jakob Ámaaon,
Skipa£ötu 3. — Sitni 466.
BlaBnofnd: Rósberg G. Snædal,
Eyjólfur Árnason,
Ólafur ASalsteinsson.
BUSið kemur út hvern laugardag.
Lausasöluverð 30 auia eintakið.
AfgreiSsla í akrifatofu Sósíalistafélags
Akureyrar, Hafnarstræti 88.
Pnntvork Odda Bjömaaonar.
Furðuleg
embættisveiting
Vilhjálmur Þór sagði nýlega upp
starfi sínu sem bankastjóri við
Landsbankann frá næstu áramót-
um. Nokkru síðar spurðust þau
tíðindi, að Jón Árnason, frarn-
kvæmdastjóri, hafi verið ráðinn í
stað hans — og það án þess að stað-
an hefði verið auglýst laus til um-
sóknar. Jón Árnason er formaður
bankaráðs. En á bankaráðsfundi
þeim, sem þessi makalausa samþykt
er gerð voru þessir mættir: Her-
mann Jónasson, varamaður Jóns
Árnasonar í bankaráðinu, Jónas
Jónsson frá Hriflu, Jónas Guð-
mundsson, Pýramídaspámaður og
Magnús Jónsson. Ölafur Thors var
ekki mættur og heldur ekki vara-
maður hans, Jakob Möller.
Samkvæmt upplýsingum Her-
manns Jónassonar gengu fulltrúar
Alþýðufl. og Sjálfstæðisfl. í lið með
Framsókn og greiddu atkvæði með
því að veita Jóni Árnasyni banka-
stjórastöðuna.
Þessi framkoma fulltrúa stjórn-
arflokkanna tveggja, er hin furðu-
legasta. Jón Árnason er landskunn-
ur, sem einn allra argasti aftur-
haldsmaður, sem fyrirfinst í þessu
landi. Hann, eins og alt forystulið
Framsóknar á enga aðra ósk heitari
en að öll nýsköpunaráform ríkis-
stjórnarinnar renni út í sandinn.
Ástandið í Landsbankanum hefir
verið þannig, að meirihluti banka-
ráðs og allir bankastjórarnir- eru
ákveðnir andstæðingar stefnu ríkis-
stjórnarinnar og Iiafa gert alt, sem
þeir hafa getað til að torvelda ný-
sköpunarstarf hennar. Landsbank-
inn hefir t. d. þumbast í lengstu lög
við að leggja fram 300 miljónirnar,
af innstæðunum erlendis, á sérstak-
an reikning, en það var eitt höfuð-
atriðið í samningi stjórnarflokk-
anna. Ennfremur má geta þess, að í
alt haust hefir staðið yfir hörð
rimma milli Landsbankans og Ný-
byggingarráðs út af frumvarpi þess
um Fiskveiðasjóð íslands, en eins
eg kunnugt er, þá er tilgangurinn
með frumv. sá, að gera útvegsmönn-
uin kleift að fá hagkvæm stofnlán
gegn lágum vöxtum. Hefir Lands-
bankastjórnin látið uppi í þessum
átökum þá ósk, að allar tilraunir og
öll áform ríkisstjórnarinnar til að
koma íslensku atvinnulífi á traust-
an grundvöll, fari út um þúfur.
Með því að greiða atkvæði með
Jóni Árnasyni í bankastjórastöð-
una hafa Sjálfstæðisfl. og Alþýðufl.
raunverulega snúist gegn stefnu
ríkisstjórnarinnar. Þeir hafa með
þessu gengið í lið með þeim flokki
og þeim mönnum, sem nota leynt
Efndir Alþýðuflokksins
Það er auðséð á síðasta „Alþýðu-
manni“ að óðum líður að bæjar-
stjórnarkosningum hér á Akureyri.
Bragi Sigurjónsson skrifar langa
grein í blaðið, um sinnuleysi meiri-
hluta bæjarstjórnar um velferðar-
mál bæjarfélagsins o. fl. í þessari
grein þykist Bragi fá ástæðu til
þess að ráðast á stefnu og starf öfl-
ugasta flokks verkalýðsins, Sósíal-
istaflokinn og varar kjósendur á
Akureyri við að kjósa verkamenn í
bæjarstjórn. Eg verð bara að segja,
að nær væri Braga Sigurjónssyni að
grandskoða sinn eiginn flokk áður
en hann ræðst á okkur verkamenn-
ina og okkar stefnu. Hafi fulltrúar
okkar í bæjarstjórn brugðist okkar
málstað, gengið á móti hagsmuna-
málum vinnandi fólks í bænum, þá
hefði Bragi haft ástæðu til að vara
kjósendur við flokknum eða full-
trúum þeirra. En þessu er ekki til
að dreifa, enda væri það æskilegt
að Bragi benti á það, hvenær full-
trúar okkar í bæjarstjórn hafa lagst
á móti tillögum sem miðuðu að
auknum framförum og aukinni
hagsæld fyrir þetta bæjarfélag, þó
ekki væri nema í eitt éinasta skipti.
En ég vil benda Braga á annað, úr
því hann fór út í það á annað borð
að ófrægja okkar menn og starf
þeirra, þá ætti hann að athuga það
hvernig fulltrúar Alþýðuflokksins
hafa staðið í stöðu sinni og efnt þau
loforð, sem þeir gáfu flokksmönn-
um sínum og kjósendum. F.g man
ekki betur en að fulltrúi Alþýðu-
flokksins lofaði þyí fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar, að „ef
hann næði kosningu í bæjarstjórn
þá skyldi hann enga samvinnu hafa
við Framsókn eða íhaldið, heldur
vinna eingöngu að velferðarmálum
alþýðunnar í bæjarstjórn“. Ef
Braga er ekki kunnugt um þetta
loforð, þá veit hann það hér með.
Fulltrúi Alþýðuflokksins komst við
illan leik í bæjarstjórn, hann var
varla kominn þar inn fyrir dyr, er
hann gerir kosningabandalag við
Framsókn og íhaldið; ef Braga er
ekki kunnugt um þessi svik, þá er
honum vorkunn.
Verkamenn í bænum hafa æði-
oft sent bæjarstjórn Akureyrar
áskoranir um atvinnuframkvæmdir
í bænum. En fulltrúi Alþýðuflokks-
ins hefir nær ætíð annaðhvort ver-
ið á móti þeim eða setið hjá við at-
kvæðagreiðslu. F.f til vill er Braga
kunnugt um þetta.
Fulltrúa Alþýðuflokksins, F.r-
lingi Friðjónssyni hefði verið innan
handar að setja þau skilyrði fyrir
kosningabandalagi við Framsókn
jóst öll tækifæri og öll völd sín
>ess að spilla eins og þeir frekast
fyrir ríkisstjórninni og ný-
gingaáformum hennar og þeir
i þá jafnframt snúist gegn þjóð-
ljanum, því það er vitað, að yf-
læfandi meirihluti þjóðarinnar
dgjandi nýsköpunarstefnu ríkis-
rnarinnar. Með því að greiða
i Árnasyni atkvæði hafa Sjálf-
íisfl. og Alþýðufl. beinlínis
ið samninginn er stjórnarsam-
tan bygðist á.
og íhaldið, að bygt yrði yfir hús-
næðislaust fólk í bænum, en mun
hinsvegar hafa haft meiri áhuga á
því að tryggja Halldóri bróður sín-
um 17 þúsund króna laun við
Vinnumiðlunarskrifstofuna. Braga
ætti að vera kunnugt um þessar
framkvæmdir.
Fulltrúar sósíalista í bæjarstjórn
hafa borið fram tillögur, sem miða
að auknu eftirliti með börnum,
barnaleikvöllum o. fl. — Síðast er
rætt var í bæjarstjórn Akureyrar
um aukið framlag í þessu skyni, sat
fulltrúi Alþýðuflokksins hjá. Bragi
ætti að vita þetta.
Og þráfaldlega hefir Alþýðu-
flokksforustan hrópað á hjálp
Framsóknar- og íhaldsmanna, gegn
hinum róttækari armi verkalýðsins.
Bragi veit þetta, en segir ekki frá
því.
Á eitt atriði enn vildi eg minnast
í sambandi við áhuga Alþýðu
flokksmanna á málefnum vinnandi
fólks hér í bænum. Allir bæjar-
menn vita, að Verkamananfélag
Akureyrarkaupstaðar og verka
kvennafélagið „Eining“ eiga Verk-
lýðshúsið, efri hæðina Strandgötu
7. Fulltrúi Alþýðuflokksins hefir
hundelt þejsi félög með málssókn-
um og hverskyns ófögnuði um
mörg ár. Ekki virðist Braga klía
við þessum vinnubrögðum, enda
hefir hann gerst málsvari þessarar
svívirðu.
En þrátt fyrir þessi svik Alþýðu-
flokksins hér við málstað verka-
fólks um margra ára skeið og
dyggilega þjónustu hans við Fram-
sókn og afturhaldið, þá dásamar
Bragi þetta alt saman, enda lýsir
hann því óbeint yfir, að Alþýðu-
flokkurinn vilji ekki lenda í and-
stöðu við þessa tvo flokka, ekki
skerða hár á höfði þeirra, hvað þá
meira.
Og ef afturhaldsöflin í landinu
gera allsherjarsókn á kjör almenn-
ings, eins og ýmislegt bendir til, þá
mun Alþýðuflokkurinn standa
með þeirn eins og einn maðtir.
Bragi Sigurjónsson hefir nii að
fyrra bragði ráðist með offorsi á
Sameiningarflokk alþýðu — Sósíal
istaflokkinn, — verði honum að
góðu, það hefir fyr blásið svalt um
flokkinn og það fólk, sem styður
hann, og hann hafir harkað það
af sér og eg vona að það verði einn-
ig þó Bragi blási.
En til gamans vil eg benda á það,
að eini flokkurinn, sem virðist vera
búinn að þrautprófa fylgi sitt hér
er Alþýðuflokkurinn, hann hefir
oft teflt hér fram stórum mönnum
eins og Stefáni Jóhann og Jóni
heitnum Baldvinssyni og fl„ en
ekkert orðið ágengt. Við alþingis-
kosningarnar 1937 fékk Jón Bald
vinsson 258 atkvæði, Stgr. Aðal-
•steinsson 639 atkv. Við alþingis
kosningarnar 5. júlí 1942 fékk Jón
Sigurðsson 214 atkvæði, St. Aðal-
steinsson 650, í alþingiskosningun-
um 18. október 1942 fékk Jón Sig
urðsson 181 atkv., en St. Aðalsteins-
son 746 atkvæði. Mikið má því A1
þýðuflokkurinn hér bæta við af at
kvæðum í bæjarstjórnarkosningun
um næstk., ef hann ætlar að koma
að einum manni.
^.lþýðuflokkurinn hefir altaf
verið að tapa fylgi og alt fyrir svik-
samleg störf og baráttu hans á móti
róttækari armi verkalýðsins og þeg-
ar talað er um það, að breyta um í
bæjarstjórn Akureyrar, þá er ekki
verið að spekúlera í því að hafa
skifti á Erlingi og Braga, heldur að
fækka þessum íhaldssömu og áhuga-
lausu fulltrúum afturhaldsins og
verkamennirnir í bænum vita
hvernig þeir eiga að fara að því,
þessvegna þarf ekki að segja nein-
um hvern hann á að kjósa, því allir
vita að yfirgnæfandi meirihluti
allra vinnandi manna og kvenna í
bænum velur Sameiningarflokk al-
þýðu — Sósíalistaflokkinn — við
næstu bæjarstjórnarkosningar.
Jón Ingimarsson.
Nú er fljótandi
GÓLFBÓNIÐ
komið.
Vöruhúsið h.f.
í júlabaksturinn
Rúsínur
Súkkat
Bökunardropar
Kókosmél
Möndlur
Smjörlíki
Jurtafeiti
Tólg
Ger
Eggjaduft
Vanillusykur
Skrautsykur
Hjartarsalt
Kardimommur, st., óst.
Sýróp
Hunang
Krydd
Vöruhúsið h.f.
★ Skrautritun
★ Vélritun
★ Fjölritun
RÓSBERG G. SNÆDAL
Aðalstræti 16
ORÐSENDING
Til meðlima verklýðsfélaganna.
Þessa dagana, eða til 15. desem-
ber, fer fram skýrslusöfnun um
ásigkomulag þess húsnæðis er með-
limir verklýðsfélaganna eiga við að
búa, og er afarnauðsynlegt að félag-
arnir mæti á skrifstofu Fulltrúa-
ráðsins í Verklýðshúsinu. Skrifstof-
an er opin alla virka daga frá kl.
3.30—6.30 e. h., og á laugardaga frá
3—5 e. h.
F. h. Fulltrúaráðsins.
Jón Ingimarsson.