Verkamaðurinn - 21.12.1945, Side 3
VERKAMAÐU RINN
3
VERKAMAÐU RINN.
Ótjefandi: Sósíalistafélttg Akureyrar.
Ritatjóri: Jakob Ámason,
Skipatötu 3. — Simi 466.
BíaOnafnd: Rósberg G. Snædal,
Eyjólfur Árnason,
Ólafur Aðalsteinsson.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Lausasöluverð 30 auia eintakið.
Afgreiðsla í skrifstofu Sósíalistafélags
Akureyrar, Hafnarstræti 88.
Prantvark Odda Bjömaaonar.
„Langavitleysa“ afturhalds-
ins í húsnæðismálunum er
orðin allt of löng
Yst við Hríseyjargötu hér í bæ
gefur að líta hús eitt allJangt en
lágt í lofti. Hús þetta er eign Ak-
ureyrarbæjar og bygt fyrir tilstilli
núverandi bæjarstjórnar, sem á
fyrSta valdiári sínu gerði þessa litlu
tilraun til að bæta úr húsnæðisleys-
inu í bænum. Bæjarbúar hafa nefnt
byggingu þessa „Lönguvitleysu”.
Svo var fegurðarsmekkur for-
gcingumanna þessa fyrirtækis mik-
ill og sómatilfinningin rík, að ekki
mátti byggja slíkt minnismerki í
stíl við mannabústaði, heldur fjós,
og varð til þess, auðvitað, að
ganga á snið við byggingarsamþykt
bæjarins. Þá hefir ekki til þessa
mátt fullgera byggmguna innan
eða utan og hefir það e. t .v. átt að
sýna, að þessi ,,Langavitleysa“ bæj-
arstjórnarinnar væri óendanleg. —
Því miður verður þó ekki annað
sagt, en að þetta minnismerki, sem
núverandi bæjarstjórn reisti í byrj-
un síns valdatíma, er allt of íburð-
armikið og glæsilegt til þess að það
gefi rétta mynd af hagsýni og úr-
ræðurn ekkjupars afturhaldsins í
bæjarstjórninni. Síðastliðin 3 ár
hefir bæjarstjórnin ekki sýnt annan
lit á því, að bæta úr brýnasta hús-
næðisskortinum, heldur en þann,
að kaupa einn „bragga“ óg tvö æfa-
gömul timburhús og lrluta svo
þessa hjalla í sundur fyrir þá, sem
ekki eiga annars úrkosta en taka
hverju sem bíðst. Þannig kemst
bærinn yfir einar 8—10 íbúðir(l)
til viðbótar „Lönguvitleysu". En
hitt virðist svo aukaatriði í augum
afturhaldsins í bæjarstjórninni, sem
almenningi mun sýnast mestu máli
skifta, en það er, að fé það sem
bærinn er búinn að verða af með
til þessara „framkvæmda" í bús-
næðismálum, mundi hafa nægt til
að koma upp 8—10 íbúðum í nýj-
um byggingum, ef hagsýni hefði
verið við höfð. Þannig birtist for-
ystuhæfileiki ekkjuparsins, sem J.
J. talaði svo fagurlega um á sínum
„Dagvinnudögum". Slíkur er spila-
gangurinn í hinni óendanlegu
„lönguvitleysu", sem Framsókn
hefir spilað við íhaldi, í bæjar-
stjórnsalnum undanfarin fjögur ár.
Skyldi alþýða manna hér í bæ
ekki vera orðin á eitt sátt um það,
að reka þessa spilamenn frá spila-
borðinu við næstu bæjarstjórnar-
kosningar og biðja þá að spila sína
„lönguvitleysu" einhvers staðar
annars staðar og á kostnað sjálfra
sín. Það er napurt grín, sem „Dag-
ur“ gerir að sér og sínum þegar
Bœkur
sem eru alltaf
vinsælar jólagjafir:
Þrjú ævintýri,
eftir Stefán Jónsson.
Sagan af Gutta og sjö önnur
Ijóð,
eftir Stefán Jcmsson.
Jólin koma,
eftir jóhannes úr Kötlum.
Ömmusögur,
eftir jóhannes úr Kötlum.
Það er gama nað syngja,
eftir Stefán Jónsson.
Hjónin á Hofi,
eftir Stefán Jónsson.
V asasöngbókin.
Jólavaka,
í bókinni er alt það helsta,
sem skráð hefir verið hér á
landi um jólin.
hann birtir undir fyrirscign með sjö
leturbreytingum ,,tillögur“ Fram-
sciknarmanna í húsnæðismálum. —
Þannig ætlast blaðið víst til, að bæj-
arbúar gleymi „þætti“ Framsókn-
arafturhaldsins í húsnæðismálum
bæjarins undanfarin ár. En „Dag-
ur“ þarf ekki að halda, að menn
muni ekki „lönguvitleysu" KEA-
mannanna í bæjarstjórninni. Þeir
hafa spilað þar í fjögur ár, en aldr-
ei dottið til hugar, að koma með
tillögur til úrbóta í húsnæðisvand-
ræðum borgaranna og heldur ekki
fengist til að hlusta á og því síður
styðja tillögur sósíalista í þessum
málum. Nei, þeir virðast vera fyrst
að sjá það núna, að líklega séu nú
einhver brögð að húsnæðisleysi í
bænum! Það er fullseint séð, og þá
tekur enginn trúanlega, jcótt þeir
reyni nú að láta lxklega og rubbi
upp á elleftu stundu tillögum í hús-
næðismálum og birti þær í „Degi“
með ótal letur-sétteringum. Sama
máli gegnir um „ekkjumenn"
íhaldsins. Þeir hafa spilað ^löngu-
vitleysdna“ lon og don með KEA-
mönnunum og unað sér vel. Það er
vitað, að íhaldið bíður upp á ný
andlit við bæjrastjórnarkosningarn-
ar núna, en Jtað breytir engu. Það
eru ekki andlitin á þeim Ólafi og
Indriða, sem mgnn fordæma, held-
ur jrað, að þeir eru öruggir mál-
svarar afturhaldsins og athafnaleys-
ið er þeirra köllun vegna íhalds-
stefnu Sjálfstæðisflokksins yfirleitt.
Það eina og aðeins eina, sem
tryggt getUr að bærinn hefjist þeg-
ar handa um stórfelldar byggingar-
framkvæmdir til að leysa húsnæðis-
vandræðin, er *að sósíalistar verði
það sterkir í bæjarstjórninni, að til-
lögur þeirra nái fram að ganga.
Stefna Sósíalistaflókksins á Akur-
eyri er sú, að bærinn eigi að láta
byggja hér 20—25 íbúðir á ári
hverju, sem látnar verði við sann-
gjörnu verði til leigu eða kaups til
þeirra, sem örðugast eiga með hús-
næði. Þeir, sem á annað borð vilja
ekki „lönguvitleysuna" áfram,
fylkja sér því um stefnu og lista
sósíalista við bæjarstjórnarkosning-
arnar í janúar næstkomandi.
Atvinna
Tvær stúlkur með gagnfræðaprófi, eða hliðstæðri
menntun, geta fengið atvinnu við landssímastöðina hér,
frá 1. jan .næstk. — Eiginhandarumsóknir, þar sem get-
ið er aldurs og menntunar, sendist undirrituðum fyrir
27. þessa mánaðar.
Símstjórinn á Akureyfi, 18. desember 1945.
Gunnar Schram.
ÚTHLUTUN SKÖMMTUNARSEÐLA
fyrir tímabilið janúar—júní 1946, fer fram á Úthlut-
unarskrifstofunni dagana 28., 29. og 30. þ. m., kl.
10-12 f. h. og 1-6 e. h.
Úthlutunar skrif stof an
MH|H><HKHH!H>C>tKH><HWH>i>C><H><HKHKHCHWí>JÍCKH>C><H><H><HSÍHÍ<HSÍHÍ<HKH>í;
Frestur
til þess að telja fram til skatts er til 31. janúar 1946. —
Aðstoð við framtöl er veitt í skattstofunni, Hafnarstræti
85, 3. hæð, alla virka daga í janúarmánuði frá kl. 1.30—
3.30 og 4—7.30 e. h. Þeim, sem ekki telja fram á fyrr-
nefndum tíma, verður áætlaður skattur.
Skattstjórinn.
<ii|||<|llllllllllliliiii|iii|ii|i|iii||ii|l||||iii|i||||||||||iiiiillllllllllllllllllllllllllllllliiiiiiiiiii|il|||lllllllllllllllllllllllllllim«éH|.M^Í
Dráttarvextir
falla á tekju- og eignaskatt og tekjuskattsviðauka ársins
1945, hafi gjöld þessi ekki verið greidd að fullu í síðasta
lagi fyrir lok þessa árs. Á það, sem þá verður ógreitt,
reiknast dráttarvextir frá gjalddaga, er var 25. október
síðastliðinn.
Akureyri, 7. desember 19^.
Bæjarfógeti.
UM JOLIN
verða mjólkur- og brauðbúðir vorar
opnar svo sem hér segir:
Laugardaginn 22. des. til kl. 6 síðd.
Snnnudaginn 23. des., frá kl. 10 til kl. 2 síðd.
Aðfangadag 24. des. til kl. 4 síðd.
Jóladag 25. des. lokað allan daginn.
2. jóladag 26. des. opið frá kl. 10 til 12.
Gamlaársdag 31. des. opið frá kl. 9 til 4.
Nýjársdag 1. jan. lokað allan daginn.
Athygli skal vakin á því, að mjólkur- og brauðútsölurnar
í Brekkugötu 47 og Hamarstíg 5 verða lókaðar sunnudag-
inn 23. des. og 2. jóladag. Þessar búðir verða einnig lokaðar
dagana 2. og 3. janúar n. k„ vegna vörutalningar.
Kaupfélag Eyfirðinga
/
#