Verkamaðurinn - 08.01.1954, Qupperneq 1
vERKfltnflÐURi nn
070
lft/L
XXXVII. árg.
Akureyri, föstudaginn 8. janúar 1954
1. tbl.
Sósíalistar!
Munið fundinn í ’kvöld
kl. 8.30 í Ásgarði.
Stjómin.
Frystihúsnefnd hefur lokið sfarfi og skilað einróma áliti til bæjar-
sfjórnar um byggingu hraðfrystihúss
Útlit er fyrir að flótti sé að bresta í liði þeirra, sem
hingað til hafa staðið í vegi þessa mikla framfaramáls
Skömmu fyrir áramótin bárust
frystihúsnefnd nýjar áætlanir frá
Gísla Hermannssyni, verkfræðingi
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
um byggingu og rekstur hraðfrysti-
húss hér í bænum. Þegar er þessar
áætlanir lágu fyrir kom frystihús-
nefnd saman til funda, sem lauk
með því að nefndin, en í henni eiga
sæti Tryggvi Helgason, Friðjón
Skarphéðinsson, Helgi Pálsson og
Haukur P. Ólafsson, skilaði ein-
róma áliti til bæjarstjórnar, og er
þar lagt til að ráðist verði í bygg-
ingu frystihússins hið fyrsta.
Alit sitt rökstyður nefndin með
áætlunum þeim, sem Gísli Her-
mannsson hefur gert og munu
sanna greinilega þær röksemdir,
sem Tryggvi Helgason og aðrir
sósíalistar hafa haldið á lofti og
beitt í tveggja ára baráttu sinni
fyrir þessu stærsta hagsmunamáli
bæjarins.
í áliti sínu bendir frystihúsnefnd
á þá miklu atvinnulegu þýðingu
sem rekstur hraðfrystistöðvar
muni hafa fyrir bæjarbúa og telur
ennfremur að brýn nauðsyn sé
orðin fyrir togaraútgerðina hér að
eiga kost á þessari þriðju aðalverk-
unaraðferð fiskjarins, ef vel eigi
að fara. Þá telur nefndin einnig að
frystihús mundi auka að mun
rekstraröryggi Krossanesverksmiðj
Frá MÍR
Stórmyndin „Lífið í
skógunum“ sýnd n. k.
sunnudag
MÍR er aftur að hefja starfsemi
sína eftir jóla- og nýársfríið. N.k.
sunnudag verður kvikmyndasýn-
ing ásamt stuttu erindi í Ásgarði
(Hafnarstræti 88). Sýnd verður
myndin „Lífið í skóginum“ (sönn
skógarsaga). Myndin er í eðlileg-
um litum og fjallar um líf skógar-
dýranna í þeirra eigin heimkynn-
um, og er hún afburða skemmti-
leg og fróðleg. Eru allir hvattir
til þess að sjá hana, en einkum er
hún athyglisverð fyrir unglinga
og böm og vel fallin til þess að
vekja áhuga þeirra á dýralífinu.
Sýningin hefst kl. 4 síðdegis.
Næstk. þriðjudag verður að
öllu forfallalausu félagsfundur og
mun þá m. a. Eyjólfur Ámason
segja fréttir frá Sovétlýðveldun-
um.
unnar, með því hráefni sem það
mundi geta skapað henni. Allt eru
þetta röksemdir, sem bæjarfulltrú-
ar sósíalista, Verkamaðurinn og
aðrir talsmenn frystihúsbyggingar-
innar hafa verið óþreytandi að
beita og smám saman hafa sann-
fært yfirgnæfandi meirihluta bæj-
arbúa um réttmæti og nauðsyn
málsins, allt frá því að Sósíalista-
félag Akureyrar átti frumkvæði að
því að það var tekið á dagskrá
bæjarstjómar.
Þessar röksemdir hafa nú fengið
endanlega staðfestingu með hinum
nýju áætlunum Gísla Hermanns-
sonar, eins færsta manns sem
þjóðin hefur á að skipa í þessum
efnum og með einróma áliti frysti-
húsnefndarinnar.
Útgerðarfélagið byggi og
reki frystihúsið.
I áliti nefndarinnar er því haldið
fram, að til þess að unnt verði að
samræma sem bezt hagsmuni tog-
araútgerðarinnar og öruggan rekst-
ur frystihússins, sé hagkvæmast að
Útgerðarfélag Akureyringa h.f.
eigi frystihúsið og annist rekstur
þess. Leggur nefndin til að bæjar-
stjóm styðji félagið til þessara
framkvæmda með fjárframlögum
(aukningu hlutafjár) og á annan
tiltækilegan hátt.
Flótti brostinn í lið
andófsmanna.
Sýnt er af þeim tíðindum, að
Haukur P. Ólafsson, fulltrúi Jak-
obs Frímannssonar í frystihÚ9-
nefndinni, hefur ekki séð sér ann-
að fært en að fylgja áliti Tryggva
Helgasonar og Helga Pálssonar, að
flótti er brostinn í lið þeirra kyrr-
stöðu- og afturhaldsafla, sem fram
til þessa hafa komið í veg fyrir að
bygging hraðfrystihúss kæmizt í
framkvæmd. Allt bendir til þess að
þeir sem bera ábyrgð á því mill-
jóna tjóni, sem bæjarfélagið i heild
og verkalýðurinn í bænum sérstak-
lega hefur beðið af framkvæmda-
leysinu, þori ekki, nú þegar dómur
almennings vofir yfir þeim, að
halda fjandskap sinum til streytu
— a. m. k. fram að 31. jan.
Það er athyglisvert að ritstj.
Dags, sem nú í haust ritaði hverja
greinina af annarri, hverri annarri
heimskölegri og fyllri af heift gegn
frystihúsmálinu, hefur nú — eftir
áramótin — lagt niður skottið og
birtir nú, 6. þ. m., ágæta grein eftir
einn útgerðarmann bæjarins, þar
sem krafizt er tafarlausra aðgerða
um byggingu frystihússins.
Hræðslugæði eða sinnaskipti?
Þann flótta, sem nú er brostinn í
lið afturhaldsins, verður almenn-
ingsálitið og sá þrýstingur sem það
getur skapað — nú fyrir kosning-
arnar — að reka af öllu því afli,
sem alþýða bæjarins og aðrir þeir
sem hér eiga ríkra hagsmuna að
gæta, eiga yfir að ráða, og knýja
þannig fram raunhæfar aðgerðir
og fullkomlega bindandi skuld-
bindingar — fyrir kosningar — því
saga undangenginna ára hefur
margsannað að þeim mönnum,
sem hafa staðið í vegi þessa máls,
er ekki treystandi, ef þeir hafa
nokkra smugu til undankomu fyrir
sókn almennings, og það verður
áreiðanlega reynt að finna slikar
smugur, ef unnt er.
í sambandi við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar bæjarins fyrir þetta
ár, mun íhaldinu og Framsókn
gefast tækifæri til að sýna hvort
sinnaskipti þeirra eru alvarlega
meint eða hvort aðeins er um að
ræða hræðslugæði nú fyrir kosn-
ingamar. Skal engu spáð um það,
að sinni, hvemig þeir standast þá
raun. En víst er um það að raun-
hæfasta tryggingin fyrir framgangi
þessa stóra hagsmunamáls verður
sú að efla Sósíalistaflokkinn, sem
frumkvæðið átti að hraðfrystihús-
málinu og hefur haft fomstuna fyr-
ir framgangi þess, til sem mestra
áhrifa í bæjarstjórn á næsta kjör-
tímabili.
FIMMTUGUR:
Þorkell V. Ottesen
prentari
í dag 4 Þorkell V. Ottesen,
prentari, fimmtugsafmæli. Hann
hefur starfað að prentiðninni í
samfleytt 34 ár, því nær allan
tímann hjá Prentverki Odds
Björnssonar, en prentnám hóf
hann hjá Oddi Bjömssyni 16 ára
að aldri. Það er því orðið ærið
starf, sem liggur eftir þennan
dugmikla og hæfa iðnaðarmann,
þótt aldurinn sé ekki hærri, og
margir, sem eiga honum þakkir
að gjalda fyrir vel unnin verk. Á
það ekki sízt við um Verkamann-
inn, en Ottesen hefur sett blaðið
í 32 ár og lagt í það starf hina
mestu alúð eins og öll önnur
störf sín. Árnar blaðið þessum
ágæta starfsmanni allra heilla á
þessu merkisafmæli hans og
þakkar honum löng og ánægjuleg
samskipti. LAKÐ i' 8 0 K A S ,A r M
Áætlun Gísla Hermannssonar
BYGGINGIN.
Þær teikningar, sem nú liggja fyrir, em miðaðar við,
að húsið sé staðsett við syðstu bryggju Tangans, svö-
nefnda Höpfnersbryggju. Ráðgert er að byggja tvær
álmur. Verður önnur álman (B-álma) 27x15 metrar,
tvær hæði, en hin ( A-álman) 25x15 m. og 5 m. af því 2
hæðir en 20 m. ein hæð. Auk þess hom 2 hæðir, þar sem
álmurnar mætast, og bygging fyrir vélar 10.5x8 m. í
krikanum á milli þeirra. Ennfremur skúrbygging 6 m.,
er tengi núverandi skúr við þá álmu, sem liggur með-
fram Sjávargötu. Núverandi skúrbygging verði fyrir alls-
herjar-fiskmóttöku. Fiskþvottur og hreistmn fari fram í
nýja skúrnum, milli núverandi skúrbyggingar og vestur-
álmu hússins. Vinnsla á flökun, snyrtingu’ og pökkun
verði á neðri hæð í B-álmu, og er henni ætlað þar 25x15
m. pláss. Uppi yfir þessu plássi er að hluta ætluð geymsla
fyrir umbúðir o. fl. 20x10 m.
Þegar varan er tilbúin, er hún flutt með lyftum upp
á aðrahæð og fryst og kössuð þar, en þaðan gengur hún
í geymsluklefa A-álmu. Á hominu, þar sem álmurnar
mætast, er ætlunin að hafa uppgöngu, snyrtiherbergi og
skrifstofu. í A-álmu em ætlaðar 2 frystigeymslur, önnur
1400 rúmmetrar, er tekur 800 tonn af frystum flökum.
Hin geymslan er 450 rúmmetrar og er ætluð fyrir 250
tonn af ís. Gert er áð fyrir, að sett verði upp ísvél, er
vinni 15 tonn af ís á sólahring. Verður hún staðsett í
turni yfir ísgeymslunni.
Húsið uppkomið er áætlað kr. 3.2 millj. með tilheyr-
andi vélum. En í sambandi við þá kostnaðaráætl. er rétt
að taka fram, að þá em vélar aðeins reiknaðar fyrir 8
tonna afköst á flökum á 12 tímum, en væm afköstin
aukin upp í 12 tonn, mundi stofnkostnaður hækka um
ca. 160 þús. kr. En í því húsrými, sem hér er ráðgert
mætti auka afköstin úr 8 tonnum upp í nær 20 tonn á 12
klst. með því einu að bæta við vélum.
REKSTURINN.
í þeirri áætlun, sem fyrir hendi er, er reiknað með
5700 tonna afköstum árlega af fiski, sem ætti að gera um
1690 tonn af flökum. Ennfremur framleiðsla á 3200
tonnum af ís. Úrgangur úr þessu fiskmagni, sem yrði að
fara til vinnslu (í Krossanesi), mundi verða um 3400
tonn. Auk þessa nokkuð af þunnildum, sem nýtt yrðu til
neyzlu.
Með þessu fiskmagni er gert ráð fyrir að rekstur húss-
ins sé tryggður.
Iðnaðarmennirnir og
bæjarsfjórnarkosningarnar
Skömmu áður en framboð voru
ákveðin ritaði Iðnaðarmannafélag
Akureyrar öllum stjómmálaflokk-
unum bréf og óskaði eftir því að
allir ilokkamir hefðu faglærðan
iðnaðarmann í öruggu sæti á list-
um sínum.
Er það að sjálfsögðu réttmætt
að iðnaðarmenn séu ekki snið-
gengnir við val bæjarfulltrúa, a.
m. k. að öðm jöfnu, og hefði vissu-
lega ekki verið ástæðulaust að aðr-
ar vinnustéttir hefðu gert líkar
ályktanir. Hitt skiptir þó að sjálf-
sögðu meginmáli fyrir iðnaðar-
mannastéttina að hagsmuna henn-
*
ar sé gætt í bæjarstjórn og sam-
ráð haft við þá um sérmál þeirra.
Enginn flokkanna hér í bæ hefur
fleiri faglærða iðnaðarmenn á lista
sínum en Sósíalistaflokkurinn, en
þar em þeir sex að tölu eða nær
þriðjungur þeirra er listann skipa.
Þessir menn eru Óskar Císlason,
byééinéameistari oé iormaBur
Múraraiélaés Akureyrar, Ólaiur
Toriason, vélstjóri á toéaranum
Kaldbak, Jóhann Indriðason, jám-
smiður, iormaður Sveinaiélaés
Framhald á 4. síðu.