Verkamaðurinn - 29.01.1954, Blaðsíða 1
VERKflmflDURinn
XXXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 29. janúar 1954 4. tbl.
Björn Jónsson, Tryggvi Helgason,
verkamaður. sjómaður:
Guðrún Guðvarðardóttir,
frú.
Jón Ingimarsson,
bílstjóri.
Óskar Gíslason,
byggingameistari.
Guðmundur Snorrason,
bílstjóri.
Ólafur Torfason,
vélstjóri.
x C-listinn
Með því að sameinast um C-listann getur
verkalýðshreyfingin á Akureyri skapað
straumhvörl í afvinnusögu bæjarins
Það er kosið í milli framfararstefnu alþýðusamtakanna
og afturhalds- og kyrrstöðustefnu Ihaldsins og Fram-
sóknarflokksins
Jóhannes Jósepsson,
Verkalýðssamtökin eur fjölmennustu samtök í bænum með 1500 meðlimi.
Þau hafa um fjölda ára valið það fólk sem skipar lista Sósíalistaflokksins til
forustu í hagsmunabaráttu sinni og á sunnudaginn kýs hún það einnig til
þess að fara með umboð sitt í þeirri veigamiklu hagsmunabaráttu sem háð
er á vettvangi bæjarstjórnarinnar.
,J)eildu og drottnaðu“ er
það kjörorð, sem andstœðing-
ar alþýðunnar haga voþna-
burði sínum eftir bœði í þeim
kosningum, sem nú fara i
hönd og þeim sem hafa verið
háðar. Þeir vita sem er, að
gegn sameinuðu átaki hins
vinnandi fólks eru þeir van-
máttugir og vonlausir. Þvi er
eina leið þeirra sú að sundra
mœtti fjöldans með þvi að
skifta sér í marga flokka, þyrla
uþp upplognum. ágreiningi
sin í milli og reyna eftir mœtti
að hylja þá staðreynd augum
fólksins að meginstefnurnar,
sem kosið er um eru aðeins
tvœr þótt flokkarnir séu marg-
ir.
Vérkalýðssamtökin hér i
bcenum hafa um langt skeið
verið algerlega einhuga um
sína stefnu í bœjarmálunum.
Þau vita að framtíð bœjarfé-
lagsins og lifsskilyrði eru und-
ir þvi komin að gerbreyting
verði á stjórn bœjarins og að
grundvöllur verði lagður að
lifvœnlegri atvinnu til handa
hverjum vinnufœrum manni
og konu.
Þau hafa á undanförnum
árum beint hverjum tilmæl-
unum af öðrum til bæjar-
stjórnar um framkvæmdir á
öllum þeim málum, sem Sósí-
alistaflokkurinn hefur á
stefnuskrá sinni, en litla eða
enga áheyrn fengið.
NÚ er tækifærið til þess fyr-
ir verkalýðssamtökin, ekki
einasta að skapa sér áheyrn
bæjarstjórnar, heldur einnig
til að skipa þar sjálf sina eigin
fulltrúa til að tala þar máli
sinu og gera stefnu samtak-
anna að veruleika.
Verkalýðsstéttinni má ekki
sjást yfir þá mikilvœgu stað-
reynd að hún er langsamlega
fjölmennasta stétt bæjarins og
að úrslitavaldið i kosningun-
um hvílir í hennar höndum.
Sósialistaflokkurinn hefur
við undirbúning kosninganna
reynt að skaþa samvinnu á
viðtækum grundvelli um. bæ]-
armálastefnu alþýðunnar, en
þrátt fyrir eindreginn vilja al-
mennings lókst foringjum Al-
þýðu- og Þjóðvarnarflokksins
að hindra slikt. formlegt sam-
starf og sýndu með þvi að þeir
vilja heldur þjóna embættis-
mannaklíkum bæjarins en al-
þýðustéttinni.
En það er enn unnt að skapa
þá einingu í verki, sem þessir
foringjar hafa afneitað með
orðum. Það er hægt með því
að sameinast um lista Sósial-
istaflokksins, lista alþýðunnar,
C-listann. Með þvi að gera
sigur hans glæsilegan getur
verkalýðsstétt Akureyrar brot-
ið blað i sögu hagsmunabar-
áttu sinnar og i sögu bæjarins.
Við sigur C-listans eru vonirn-
ar um timabil framfara og
aukinnar velmegunar bundn-
ar.
Alþýða Akureyrar! Úrslifavaldið i kosningunum er
í þínum höudum. Notaðu það vald!
verkamaður.
Jóhann Indriðason,
járnsmiður.
Haraldur Bogason,
bflstjóri.
x C-listinn