Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 05.02.1954, Qupperneq 1

Verkamaðurinn - 05.02.1954, Qupperneq 1
vERKRimiRinn XXXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 5. febrúar 1954 5. tbl. ÞORRABLÓT EININGAR verður haldið í Alþýðuhúsinu annað kvöld, laugardag, kl. 8 síðdegis. Skemmtiatriði verða gamanþáttur, stutt kvikmynd og að lokum dans. — Að- göngumiðar afgreiddir í dag kl. 5—7 í Verkalýðshúsinu. — Kosningarnar á Akureyri: Sósíalistaflokkurinn vann á frá þingkosningunum Alþýðuflokkurinn tapaði sæti til Þjóðvarnarflokksins íhaldið stórtapaði fylgi og logar í innbyrðis deilum Kosningamar hér í bæ urðu að ýmsu sögulegar, þótt breytingar á fulltrúatölu flokkanan yrðu ekki aðrar en þær, að Alþýðu- flokkurinn tapaði öðru sæti sínu til Þjóðvamarflokksins. Sívax- andi óánægja með stjórn bæjar- ins og í garð þeirra, sem þar hafa setið að völdum, birtist í fylgis- tapi íhaldsins, en þó einkum í því að fylgismenn þess, Framsóknar- og Alþýðufl., létu gremju sína bitna á foringjum þessara flokka með því að strika yfir iiöfn þeirra á bstunum. Kvað svo ramt að þessu að 4. maður íhaldsins, Sverrir Ragnars, kolféll og verð- ur 2. varamaður flokksins. Stein- dór Steindórsson hékk á 2ja atkv. mun fram yfir Albert Sölvason og Þorst. M. Jónsson hrapaði úr 2. sæti niður í 3. sæti á lista Fram- sóknar. Logar nú glatt í glæðum innbyrðisdeilna og átaka innan flokkanna af þessum sökum og verður enn ekki séð hvem endi illdeilumar fá. Á kjörskrá hér í bæ voru 4531 og neyttu 3700 atkvæðisréttar. — Atkvæði féllu þaxmig: Alþýðuflokkurinn fékk 556 at- kvæði og 1 mann kjörinn, Stein- dór Steindórsson. Varamaður Al- bert Sölvason. Framsóknarflokkurinn hlaut 952 atkvæði og 3 menn kjörna, þá Jakob Frímannsson, Guðmund Guðlaugsson og Þorstein M. Jónsson. Varamenn: Haukur Snorrason, Stefán Reykjalín og Ríkharð Þórólfsson. Sósíalistaflokkurinn hlaut 643 atkvæði og 2 fulltrúa kjörna, þá Bjöm Jónsson og Tryggva Helgason. Varamenn: Guðrún Guðvarðardóttir og Jón Ingi- marsson. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 1131 atkv. og 4 fulitrúa, þá Helga Pálsson, Jón G. Sólnes, Guð- mimd Jörundsson og Jón Þor- valdsson. Varamenn: Sveixm Tómasson, Sverrir Ragnars, Ein- ar Kristjánsson og Gunnar H. Kristjánsson. Þjóðvarnarflokkurinn hlaut 354 atkv. og 1 mann, Martein Sigurðsson, kjörinn. Varamaður Arnfinnur Arnfinnsson. Miðað við Alþingiskosningarn- ar hefur því Sjálfstæðisflokkur- inn tapað 270 atkvæðum, Sósíal- istaflokkurinn unnið 13 atkvæði, Alþýðuflokkurinn 38, Fram- sóknarflokkurinn 75 og Þjóð- varnarflokkurinn 84. Togararnir Kaldbakur kom af veiðum sl. mánudag og lagði hér á land 170 tonn af saltfiski og 30—40 tonn af nýjum fiski til herzlu. Skipið fór aftur á saltfiskveiðar á miðviku- dagskvöld. Sléttbakur kom til Þingeyrar sl. viðvikudag til þess að bæta við sig salti. Lagði skipið þar upp hluta af afla sínum til frystingar. Saltlaust er nú með öllu. hér í bænum og varð Kaldbakur að fara á veiðar aðeins með afsalt. Saltskip mim þó vera væntanlegt næstu daga. Harðbakur er á veiðum í salt. Svalbakur veiðir í ís fyrir frysti- hús og til herzlu. Jörxmdur veiðir fyrir frystihús og í herzlu. Orðsending til starfsliðs C-listans i; Stjórn Sósíalistafélags Akureyrar þakkar öllwn þeim mörgu stuðningsmönnum C-listans, sem lögðu fram krafta ;! sína í kosningabaráttunni og veittu honum lið á einn eða • annan hátt. !! Sérstaklega þakkar stjórn félagsins því fólki, sem vann fyr- \; ir listann á kjördegi af framúrskarandi dugnaði og áhuga. !; Sósíalistafélagið býður starfsliði listans til kaffidrykkju ;; næstk. sunnudag kl. 4 í Ásgarði. Yfir borðum verður fluttur ;; gamanþáttur, stutt ávörp og að lokum verður sýnd kvik- mynd, sennilega frá Austur-Þýzkalandi. ;! STJÓRN SÓSÍALISTAFÉLAGS AKUREYRAR. \ Sósíalistaflokkurinn affur í sókn víða um land i Allar vonir afturhaldsins um áframhaldandi fylgistap Sósíalista- flokksins eru nú að engu orðnar Samfylkingarframboð vinstri flokkanna reyndusí sigur- sæl, en Alþýðuflokkurinn beið hið mesta afhroð þar, sem hann fór einn fram Bæjarstjórnarkosningamar hafa leitt í Ijós að sá stundar- ósigur, sem Sósíalistaflokkurinn beið í Alþingiskosningunum á sl. sumri, mun engin áhrií hafa í þá átt að hindra áfram- haldandi eflingu og vaxandi traust flokksins hjá íslenzkri al- þýðu. Undanhald flokksins, atkvæðalega séð, er nú því nær alls staðar stöðvað og mjög víða um land er hann aftur kom- inn í sókn og sums staðar öfluga. Hefur flokkurinn t. d. unnið sæti bæjar- og sveitastjómarfulltrúa, þar sem hann átti engin áður, svo sem í Sandgerði, Stykkishólmi, Hellissandi, Selfossi og Bolungavík. í Vestmannaeyjum bætti flokkurinn við sig 70 atkv. frá síðustu bæjarstjórnarkoshningum, á Akureyri aætti hann við sig 13 atkv. frá þingkosningunum. Á ýmsum öðrum stöðum, þar sem um nokkurt tap er að ræða frá síð- ustu bæjarstjórnarkosningum, virðist svo sem flokkurinn hafi vel haldið fylgi sínu miðað við Alþingiskosningamar, þótt ekki verði óvélengjanlega um það sagt, þar sem um hluta úr jingmannakjördæmi er að ræða. í Reykjavík hefur Sósíalista- tlokkurinn ætíð haft minna atkvæðamagn í bæjarstjórnar kosningum en við Alþingiskosningar og sýna úrshtin par því einnig að ílokkurinn er að komast í sóknaraðstööu aö nyju. Þess er þó ekki að dyljast að á einstaka stað hetur flokkur- inn enn ekki staðist æöisgengna sókn atturhatdsins, svo sem á Sigluíirði, þar sem um tiumnanlegt tap var aö ræoa. Iviun par miklu valtla um atvinnuleysi og tólksflótti úr bænum, sem lhaldinu hetur tekizt að nottæra sér til framdráttar. Samfylkingarframboð sósíalista, Alþýðuffokksmanna og sums staðar Framsóknarmanna, reyndust yfirfeitt sigursæl og stinga mjög í stúf við þau framboð sem Alþýðufl. stóö einn aö, en hann beið mest tap allra tlokka í þessum kosnmgum og tapaði m. a. sínu síðasta og sterkasta vígi, Haínarfirði, þar sem sósíalistar eru nú í oddaaöstöðu. Þjóðvarnarfl. fékk 3 bæjaríulltrúa kjörna, einn á kostnað hvers 3ja vinstri flokkanna. í einstökum kjördæmum urðu úrslitin þessi: Reykjavík Alþyoutlokkur: 4274 og tveir fulltrúar (Alþingiskosn. 4936; bæjarstjórnarkosn. 1950: 4047 at- kv. og tveir fulltrúar). F r amsóknarf lokkur: 2321 og einn fulltrúi (Alþingiskosn. 2624; bæjarstjórnarkosn. 1950: 2374 og einn fulltrúi). Sósíalistaflokkur: 6107 og þrír fulltrúar (Alþingiskosn. 6704; bæjarstjórnarkosn. 1950: 7501 og fjórir fulltrúar). Sjálfstæðisflokkur: 15642 og átta fulltrúa (Alþingiskosn. 12245, en Lýðveldisflokkur 1970; bæjarstjórnarkosn 1950: 14367 og átta fulltrúar). Þjóðvamarflokkur: 3260 og einn fulltrúi (Alþingiskosningar 2730). Hafnarfjörður A-listi, Alþýðuflokkur, 1306 atkv. (1331) og 4 (5) menn kjörna, Guðmund Gissurarson, Óskar Jónsson, Ólaf Þ. Krist- jánsson og Stefán Gunnlaugsson. B-listi, Framsókn, 143 atkv. og engan kjörinn. C-listi, Sósíalistaflokkur, 266 atkv. (285) og 1 (1) mann kjör- inn, Kristján Andrésson. D-listi, Sjállstæðisflokkur, 1247 atkv. (973) og 4 (3) menn kjörna, Stefán Jónsson, Helga S. Guð- mundsson, Eggert ísaksson og Jón Gíslason. ‘ Á kjörskrá 3273 (2918), atkv. greiddu 3013 (2642), auðir seðlar 37, ógildir 14. ísafjörður A-listi, Alþýðuflokkur, 520 at- kv. (690) og 4 (4) menn kjöma, Birgi Finnsson, Björgvin Sig- hvatsson, Jón H. Guðmundsson og Marías Guðmundsson. B-listi, Framsókn, 155 (bauð ekki fram) og 1 (engan) mann kjörinn, Guttorm Sigurbjöms- son. C-listi, Sósíalistaflokkur, 108 atkv. (147) og engan (1) kjörinn. D-listi, Sjálfstæðisflokkur, 642 atkv. (585) og 4 (4) menn kjöma, Matthías Bjamason, Marzelíus Bernharðsson, Símon Helgason og Högna Þ. Þórðarson. Á kjörskrá 1556 (1587), atkv. greiddu 1447 (1456), 20 seðlar auðir, 2 ógHdir. Sauðárkrókur A-listi, Alþýðuflokkur, 114 atkv. (144) og 2 (2) menn kjöma, þá Konráð Þorsteinsson og Magnús Bjarnason. B-Iisti, Framsókn, 139 atkv. (120) og 2 (2) men nkjöma, Guð mund Sveinsson og Guðjón Ingi- mundarson. C-listi, Sósíalistaflokkur, 54 atkv. (53) og engan kjörinn (1950 engan). D-listi, Sjálfstæðisflokkur, 183 atkv. (208) og 3 (3) menn kjörna, Guðjón Sigurðsson, Sigurð P. Jónsson og Torfa Bjamason. E-listi, sjómenn, 37 atkv. og engan kjörinn. F-Usti, Þjóðvöm, 52 atkv. og engan kjörinn. Á kjörskrá voru 651 (622), at- kv. greiddu 579 (527), 2 seðlar auðir. Akranes A-Usti, samfylking Alþýðu- flokks, Framsóknar, Sósíalista flokks 760 atkv. (405, 172, 181 = 758) og 5 (5) menn kjörna, þá Hálfdán Sveinsson, Sigurdór Sigurðsson, Bjarna Th. Guð- mundsson, Guðmund Svein- björnsson og Hans Jörgenson. D-Usti, Sjálftsæðisflokkur, 612 atkv. (460) og 4 (4) menn kjöma, Ólaf B. Björnsson, Jón Árnason, Guðmund Guðjónsson og Þorgeir Jósefsson. Á kjörskrá voru 1601 (1439), atkv. greiddu 1396 (1233), auðir seðlar 24. Siglufjörður A-listi, Alþýðuflokkur, 341 at- kv. (440) og 2 (3) menn kjörna, Kristján Sigurðsson og Sigurjón Sæmundsson. B-listi, Framsókn, 256 atkv. (120) og 2 (1) menn kjöma, þá Ragnar Jóhannesson og Bjarna Jóhannsson. C-listi, Sósíalistaflokkur, 352 atkv. (519) og 2 (3) menn kjöma, Gunnar Jóhannsson og Þórodd Guðmundsson. D-Usti, Sjálfstæðisflokkur, 421 atkv. (349) og 3 (2) menn kjörna, Ólaf Ragnars, Baldur Eiriksson, Georg Pálsson. Á kjörskrá 1621 (1832), atkv. (Framhald ó 2. síðu).

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.