Verkamaðurinn - 12.03.1954, Qupperneq 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 12. marz 1954
VERKRmflÐURlim
— vikublað —
Útgefandi:
Sósíalistafélag Akureyrar
Ritnefnd:
Björn Jónsson, ábyrgðar-
maður Jakob Árnason,
Þórir Daníelsson.
Afgreiðsla: Hafnarstræti 88. —
Sími 1516. — Pósthólf 21.
Áskriftarverð 30 kr. árg.
Lausasöluverð 75 au. eintakið.
Prentv. Odds Björnssonar h/f
Samningsrof
ríkisstjórnarinnar
ÞAÐ kunna að virðast lítil tíð-
indi að kaffið hefir hækkað um
kr. 3,40 kg. íslendingar eru orðnir
svipuðum og stórfelldari verð-
hækkunum á nauðsynjavöru van-
ir, ekki sízt síðustu árin. En hér
stendur sérstaklega á. í des. 1952
háðu 25 þúsundir íslenzks verka-
lýðs eitt harðasta verkfall í sögu
alþýðusamtakanna. Höfðuðkröfur
samtakanna náðu að vísu ekki
fram að ganga en mikilvægar leið
réttingar voru knúnar í gegn á
þann hátt m. a. að verð á nokkr-
um neyzluvörum var lækkað með
aðgerðum af hálfu ríkisstjómar-
innar. í samningunum sem gerðir
voru við atvinnurekendur eru lof
orðin um þessar verðlækkanir
gréinilega orðaðar, svo að ékki
verður um villst. Þar er ákveðið
að mjólk lækki úr kr. 3, 25 í kr.
2,71, kartöflur úr kr. 2,45 í kr 1,75
og kaffi úr kr. 45,20 í kr. 40,80.
NÚ HAFA þau- tíðindi gerzt að
samningsgrundvöllur atvinnurek-
enda og verkalýðsfélaganna hefir
verið rofinn með hækkuninni á
kaffiverðinu og áður hafði ríkis-
stjórnin að nokkru rofið ákvæðin
um kartöfluverðið. Þessar verð-
hækkanir hafa að vísu ekki stór-
vægileg áhrif á lífsstig fólks og
erú því ekki mikilvægar séð frá
því eingöngu. Hitt skiptir megin-
máli og kann að verða fyrirboði
stærri tíðinda að með þessum
hækkunum hefir ríkisstjómin
gert hvort tveggja í senn: Sýnt
verkalýðssamtökunum illþolandi
móðgun og gefið í skyn að áfram-
haldandi samningsrof séu fylli-
lega möguleg. Það væri því yfir-
sjón að gera of lítið úr þeim svik-
um, sem hér er verið að fremja
eða að sýna andvaraleysi gagn-
vart þeim.
STÆRSTU verkalýðsfélögin í
Rvík og alþýðusambandsstjóm
hafa nú þegar samþykkt mótmæli
gegn þessum aðförum, en enn er
með öllu óséð hvort þær sam-
þykktir verða teknar til greina.
Verði það ekki gert er ekki ann-
að sýnna, en að verkalýðsfélögin
verði að líta svo á að samning-
amir í heild séu rofnir og gera
sínar ráðstafanir í samræmi við
það. En vita mega stjómarvöldin
og atvinnurekendur það, að svik
þeirra við gerða samninga munu
ekki líklegt ráð til þess að draga
úr vilja alþýðusamtakanna til
þess að knýja fram þær megin-
NANKINS
FÖT
Enn ein nýjungin og endurbótin, sem
Vinnufatagerð íslands h.f. innleiðir.
Næst er þér kaupið vinnuföt, þá kjósið
\/8 0? fíjon
vönduð og sterk.
Bifyið áœétim
wa n?
FR AMLEIÐSLU
Selj
uin FOT
með AFBORGUNUJVl.
Saumastofa
Björgvim Friðrikssonar s.f.
Landsbankahúsinu,
Sími 1596.
kröfur, sem ekki náðust fram í
desemberverkföllunum. Það verð
ur gert frekar fyrr en síðar og um
leið eða fyrr verður ríkisstjóm-
inni kennt að verða langminnugri
á gefin loforð en raunin hefir
orðið á um þau sem hún gaf í
desember 1952. — b.
Til sfhugunar
Samkv. áður birtum auglýsingum um úthlutun og end-
umýjun kartöflugarða, vil ég áminna alla, sem ætla að
hafa garða sína áfrarp næsta sumar, að gera full skil á
greiðslu fyrir garðana fyrir 15 þessa mánaðar. Ég tek á
móti endurnýjun þá daga sem eftir eru, frá kl. 1 til 7 e.h.
og næstkomandi sunnudag frá 4 til 7 e. h. Eftir þann 15
marz lít ég svo á, að þeir sem ekki hafa þá gert full skil
garða sinna ætli sér eklci að halda þeim áfram og verða
þeir látnir til annara án frekari aðvarana.
Garðy rkjuráðunautur.
v
um
Sigfús Sigurhjartarson
Minningarspjöldin eru til
sölu í skrifstofu Sósíalistafé-
lags Akureyrar, Hafnarstr. 88.