Verkamaðurinn - 12.03.1954, Qupperneq 3
Föstudaginn 12. marz 1954
VERKAMAÐURINN
S
senn líður að fermingu, veljið í tíma þar sem úrvalið er mest og bezt
svo sem hina vinsælu og hentugu:
Skatholkomóður
Skrifborð
Rúmfataskápar,
stólar, stoppaðir,
J. D. Bemal, prófessor:
Svarið við vetnissprengjunni
Þetta er aðeins sá hluti sögunn-
ar„ sem unt er að segja með töl-
um. Framlag vísindamannanna er
ekki síður í framför að gæðum
en að magni. Nú þegar njóta
meira en 6,2% af öllum börnum
Sovétríkjanna æðri menntunar
og í borgimum enn fleiri. Þetta
þýðir ekki aðeins þriggja ára til-
viljunarkennt nám í líkingu við
enska háskóla eða ameríska há-
skóladeildir, heldur staðgott fimm
ára nám, sem nær sambærilegu
marki við meistaragráðu okkar í
vísindum. í Sovétríkjunum veita
háskólamir aðeins lítinn hluta af
æðri menntuninni. Hin hlut-
inn er sérfræðilegri, það eru
læknisfræðilegar og búfræðilegar
sérdeildir, skólar fyrir fjöllista-
fræðinga og verkfræðinga, vís-
indaskólar fyrir leiklist og málara
list og hljómlistarskólar. En af
öllum þessum stofnunum er kraf-
ist jafn langs námstima og til-
svarandi mikillar hæfni.
Hvernig getur verið mögulegt
fyrir Sovétríkin að fá fram slíkan
fjölda hæfileikafólks á hinum
ýmsu sviðum, þegar því er haldið
fram að allt sé uppurið hjá okkur
með 3,1% af ungum körlum og
aðeins 0,6% af ungum konum,
sem fá æðri menntun? Á þessu
eru tvær augljósar skýringar. 1
fyrstalagi að þessar tölur ha
þar verið tvöfaldaðar, með því að
veita konum aðgang að jöfnu
við karlmenn og í öðru lagi
vegna þess að háskólanemendur
og aðrir sem líkt er ástatt um eru
ekki sviftir tveim árum eða meira
af dýrmætasta námstíma sínum
eins og gert er hjá okkur. Af þeim
er ekki krafizt annars en að þeir
sinni nokkurri grundvallarþjálf-
un í háskólimum og mæti til liðs-
könnunar einu sinni á ári.
En höfuðorsökin liggur dýpra
en þær sem þegar hafa verið
nefndar; hún er viðurkenning
þeirri sósíalistisku trú að allir,
jafnt karlar og konur, geti mennt
ast og ennfremur að uppbygging
kommúnismans krefst þess að
allir hljóti æðri menntun, eins og
Stalin sagði. Það er erfitt að
sanna að menn séu óhæfir til
að menntast, en það er auðvelt
að ræna 96% af æskunni í landi
okkar æðri menntun, með því að
takmarka hjálpartæki hennar og
með svokölluðum hæfileikapróf-
um. í sosíalistisku landi er hægt
að sanna að amk.l0%eru fyllilega
hæfir til æðri menntunar og það
er gert á þann einfalda hátt að
fólkinu er gefinn kostur á mennt-
uninni og að henni lokinni eru
hæfileikar þess nýttir í þarfir
uppbyggingarstarfsins.
Ábyrgðin á kennzlunni er lögð
á herðar þjóðfélagsins og kenn-
aranna, og árangurinn af henni
hefir kollvarpað þeirri kenningu
um arfgengan vanmátt alþýð
unnar, sem menntimarkerfi okk-
ar er byggt á. Ég hefi kynnt mér
framkvæmd kennzlumála í Sovét
ríkjum ekki aðeins í Rússlandi
heldur einnig í Georgíu, sem áð-
ur var mjög eftir timanum og
undirokuð. Sem dæmi skal nefnt
að kennzlutæknin í eðlisfræði-
deild háskólans í Tiflis mundu
vekja öfimd flestra tilsvarandi
háskóladeilda í Bretlandi og
kennzlan fer fram af þeirri ná-
kvæmni og hrifningu sem erfitt
væri fyrir okkur að líkja eftir og
og 500 karlar og 350 konur njóta
kennzlu þessarar deildar, sem fer
fram á þeirra eigin tungu jafnt
bóklega sem munnlega. Þar eru
fleiri karlar við eðlisfræðinám en
við Lundúnaháskóla og meira en
fimm sinnum fleiri konur. Og
aetta er í landi sem ekki er stærra
en Wales og þar sem meiri hluti
íbúanna var hvorki læs eða skrif-
andi og þar sem ekki var til
neinn iðnaður fyrir 30 árum síðan.
Hversvegna svo margir eðlis-
fræðingar? Já og verkfræðingam
ir, efnafræðingamir, búfræðing-
arnir og læknarnir eru enn fleiri.
Þeirra ailra er full þörf. Fyrir
aeim öllum standa opnar leiðir til
atvinnu við uppbyggingu iðnaðar
og landbúnaðar landi þeirra.
Það sem verið er að sanna í
Sovétríkjunum er það, að vísind-
in skapa sósíalismanum lífsskil-
yrði og að þjóðfélagið getur ætíð
notið vísindanna, þegar það æskir
aeirra og getur notfært sér þau.
pessi lærdómur gildir ekki aðeins
í Sovétríkjunum. Hann er einnig
í gildi í Kína og alþýðuríkjunum.
Vestprem, langt upp í sveit í
Ungverjalandi sá ég háskóla sem
var svo nýr að vinnupallar stóðu
um helming byggingarinnar, en
innan hennar stunduðu hundruð
ungra kvenna og karla úr sveit
unum nám í efnaverkfræði, til
þess að verða fær um að vinna
við og endurbæta nýju háofnana,
olíuhreinsunarstöðvar og alumin
íumverksmiðjur sem allstaðar
þjóta upp í landinu.
í hinum sósíalistiska þriðjungi
veraldarinnar hafa menn fundið
hvernig á að opna og auka mestu
auðæfaforðabúr náttúrunnar,
hina ótakmörkuðu möguleika og
snilli mannlegs hugar. Það er
þetta, sem er að færa vísindum
og tækni þessara þjóða yfirburð-
ina umfram auðvaldslöndin, eins
og þegar er orðið á sviði vetnis-
aflsins.
Það er ekki aðeins í menntun-
inni, sem nýtt eðli sósíalistiskra
vísinda kemur fram heldur einnig
í rannsóknum og framförum.
Félagsskapur æðri vísinda, nýrr-
ar gerðar, hefir vaxið upp og læt-
ur til sín taka. Hann er lífvæn-
legur kvistur á þeirri gömlu grein
hinnar vísindalegu akademium,
sem borgarastéttin stofnaði í
fyrstu hrifningaröldu sinni yfir
vísindum 17. og 18. aldarinnar, en
hefir síðan hrapað niður í það að
vera virðulegur en algerlega
áhrifalaus félagsskapur lærdóms-
manna. Þessi félagsskapur hefur
nú öðlast nýtt líf, því að í fyrst
sinni á 200 árum hefir hann hlot-
ið mikilVæg og lífræn verkefni til
viðureignar. Vísindafélag Sovét-
ríkjanna er arftaki vísindafélags
Péturs mikla og harm mundi hafa
glaðst af því að kynnast því eins
og það er nú. Það er nú orðið
fjöldi menntafélagahópa sem
vinna saman og hafa miðstöðvar
sínar í Moskva og Leningrad.
Þessi félagsskapur nær yfir allt
landið og telur 32,000 vísinda-
menn Hann stendur ekki einn í
starfi, því hann styðst við smærri
félög vísindamanna í tólf lýðveld-
um og við sérstofnunimar land-
búnaðar- og læknavísinda.
Ég hefi fyrr á árum kynnst
nokkru af þeirri vinnu sem stofn-
anir vísindafélagsins hafa fram-
kvæmt og ég hefi í rauninni
fýlgst með framförum þeirra
sumra í meira en 20 ár, en í síð-
ustu ferð minni austur, nú nýlega
varð ég undrandi yfir hinni öru
þróun síðustu ára, bæði hvað
snertir fjölda viðfangsefna og
árangra. Það sem ég sá þar, voru
vísindalegar rannsóknir, fram-
kvæmdar á þann hátt, sem allir
góðir vísindamenn mundu óska
sér, án alls tillits til kosnaðar og
þó án óhóflegrar eyðslu. Enn
mikilvægara er það að náðst hef-
ir lifandi jafnvægi milli frum
kvæðis einstaklinganna og hug-
myndaflugs annarsvegar og skipu
lagningar fjöldasamstarfs hins
vegar. Baráttuaðferðir vísinda-
manna, sem aldrei geta samrýmst
stríðandi kröfum auðvaldsins,
hafa þar náð fullum þroska.
Skýrzlur vísindafélagsins um
vísindastörfin í sambandi við hin-
ar árangursríku 5 ára áætlanir
sanna að matið á hæfni þeirra til
lífrænna afkasta hefir vaxið ár
frá ári.
Forseti vísindafélagsins, pró-
fersor Nesmejanov, hefir í síðustu
skýrzlu sinni dregið saman í fá
um orðum baráttuaðferðimar til
þess að ná vísindalegum framför-
um. (Framhald á 4. síðu).
Opinbert uppboð
Samkvæmt kröfu Bjöms
Halldórssonar hdl., f. h. bæj-
arsjóðs Akureyrar og að und-
angengnu lögtaki 19. nóv.
1952, verður krafa H.f. Afls,
Akureyri, á hendur Dalvíkur-
hreppi, að upphæð krónur
18,000.00, boðin upp og seld
ef viðunanlegt boð fæst, til
lúkningar ógreiddum gjöld
um til bæjarsjóðs ásamt kosn-
aði upphæð kr. 13.421.60 auk
kostnaðar við uppboðið, á op-
inberu uppboði, sem haldið
verður í skrifstofu minni,
Hafnarstræti 102, Akureyri,
miðvikudaginn 24. marz n. k.
kl. 11 f. h
Bæjarfógetinn á Akureyri,
9. marz 1954.
Friðjón Skarphéðinsson.
Spilakvöld
Sósíalistafélag Akureyrar
hefir spilakvöld í Asgarði
í kvöld kl. 8,30. — Mætið
stundvíslega. — Takið
gesti með.
NEFNDIN.
Hraðskákmót
Akureyrar
hefst í Ásgarði mánudaginn
15 þ. m.
Stjórn Skákjélags
Akureyrar
Skemmtiklúbbur
„EININ G A R“
hefur félagsvist í kvöld í
Alþýðuhúsinu kl. 8,30. — Þor-
leiíur Þorleifsson stjórnar vist-
inni. — Verðlaun veitt. —
Ýmiss skemmtiatriði. — Að-
göngumiðar seldir við inn-
ganginn eftir kl. 8 e. h.
Nefndin.
Ritsafn Jóns Trausta 1-8
Með afborgunum.
Bókaverzl. Edda h.f.
Akureyri.
Fleiri gerðir smá-
borð o. m. fl.
VALBJORK H.F.
S í M 1 14 3 0