Verkamaðurinn - 26.03.1954, Qupperneq 4
4
i
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 26. marz 1954
„Raunsæismennirnir" hlaupa í
felur eftir skammarstrikin
Svanberg Einarsson hefur beðið
blaðið að birta eftirfarandi
klausu, sem hann kallar yfirlýs-
ingu, en réttara hefði verið að
nefna sjálfslýsingu, a. m. k. að því
leyti sem hún gefur grátbroslega
mynd af því hvemig heiðursmað-
ur þessi umgengst sannleikann.
Yfirlýsing sú, sem Svanberg
virðist álíta að þvoi sig hreinan
af því, sem hann réttilega kallar
„alvarlegar sakir“, er svohljóð-
andi:
„YFIRLÝSING.
Vegna greinar í Verkamannin-
um 19. þ. m., þar sem eg er bor-
inn þeim alvarlegu sökum, að
hafa „ginnt óvitaböm með loforð-
um um fjárgreiðslur, 1—2 krón-
ur á hvert nafn, sem þau safna, til
þess að hlaupa með skjöl“ um
bœinn, lýsi eg hérmeð ritstjóra
blaðsins opinberan ósanninda-
mann að þeim áburði. Ennfremur
að þeim ummælum, að eg sé „að-
almaðurinn” í félagsskap raun-
sœismanna í áfengismálum hér í
bæ. Frekari svör við nefndri
grein tel eg ekki ástæðu til að
gefa á þessum vettvangi.
Svanberg Einarsson."
Til þess að auðvelda mönnum
lítillega að vita hið rétta í málinu
vill blaðið svo birta eftirfarandi
yfirlýsingar, fengnar af handahófi
af fjölda vitnisburða, sem það
hefur aðstöðu til að afla sér. En
þetta ætti að nægja til þess að
hver og einn geti séð hve gífur-
yrði mannsins standa traustum
fótum:
í' "
„YFIRLÝSING.
Eg undirritaður votta hér með
að föstudaginn 19. marz sl.
nokkru eftir hádegi kom ungur
drengur inn á afgreiðsluskrifstof-
ur bæjarstjórans á Akureyri með
undirskriftarskj al varðandi áfeng
islagafrumvarp það, sem nú ligg-
ur fyrir Alþingi Aðspurður
kvaðst drengur þessi sendur af
Svanberg Einarssyni.
Akureyri, 24. marz 1954.
Bjöm Bjarman (sign.).“
„YFIRLÝSING.
Við undirritaðir vottum hér
með að á föstudagsmorguninn 19.
marz kom ungur drengur inn í
kaffistofu tunnuverksmiðjunnar
með undirskriftarskjal um áskor-
un til Alþingis um að samþykkja
áfengislagafrumvarp það sem nú
liggur fyrir þinginu
Kvaðst drengurinn vera sendur
með skjal þetta frá Svanberg
Einarssyni og hefði hann loforð
frá honum um góða borgun, 1 til 2
krónur á hverja undirskrift, eða
eftir því hve hann færi víða.
Kvað drengurinn alla mega skrifa
undir skjal þetta sem orðnir væru
16 ára eða eldri.
Akureyri, 25. marz 1954.
Lórenz Halldórsson (sign.).
Jóhann Valdimarsson (sign.)“
Þá hefur blaðið vissu fyrir því
að skólastjóri bamaskólans hafði,
áður en Verkam. kom út 19. þ. m.,
komizt að raun um að böm úr
skólanum fengust við undir-
skriftasöfnunina og sneri sér þeg-
ar til Svanbergs til þess að fá
hann ofan af iðju sinni og síðan
til Vignis Guðmundssonar, eftir
tilvísan Svanbergs, en án árang-
urs. Það var ekkí fyrr en Vkm.
hafði skýrt frá málinu að þeim
félögum þótti hentast að leggja
árar í bát — og hlaupa í felur.
Hljóta fræðimanna-
styrk
Menntamálaráð hefur nýlega
úthlutað fræðimannastyrk skv.
15. gr. fjárlaga »g er hann frá 1000
—3000 krónur. Eru tveir Akur-
eyringar í þeim hópi, þeir Kon-
ráð Vilhjálmsson og Ólafur Jóns-
son ráðunautur.
Ku Klux Kenya
Fjöldamorðin í Kenya halda
stöðugt áfram og íslenzka út-
varpið flytur okkur daglega frétt-
ir um „árangurinn“: „20 vora
felldir — 30 voru felldir — 100
voru felldir“, en við fáum hins
vegar engar fréttir af þeirri bar-
áttu sem brezkir mannvinir og
frjálslynd öfl heyja til þess að
stöðva morðin. Blóðbaðið í Kenya
er gert að umtalsefni í ritstjóm-
argrein í Reynolds News, blaði
brezkra samvinnumanna nú ný-
lega og m. a. komizt þar svo að
orfði:
„Landnemamir, sem stöðugt
hafa staðið á mótl öllum félags-
legum .efnahagslegum og stjóm-
málalegum innbótum til handa
Afríkumönnum, eru litlu betri en
Ku-Klux-Klan".-------„Sjaldan
hefur þjóð Bretlands verið jafn
einhuga sem í gremju sinni yfir
bví, sem framið er í hennar nafni
í Kenya".
Þá ræðir blaðið áhrifavald Mau-
Mau og segir: „Hinn harði kjami
Mau-Mau er nú 4500 á svæðinu
við Kenya-fjallið og 900—1000 í
Abardarefjöllunum. Síðan hinir
válegu atburðir hófust fyrir 17
mánuðum hafa 3536 Mau-Mau
menn verið drepnir. Það gæti því
virzt að um helmingur Mau-Mau
hefði verið þurrkaður út---en
fjöldi liðsmanna þeirra í fjöllun-
um er takmarkaður vegna mat-
vælaskorts. Það eru meira en
milljón Kikújúmanna í Kenya.
Þrjátíu prósent þeirra styðja
Mau-Mau af frjálsum vilja og
50% af ótta. Þetta þýðir 800 þús.
manna varalið Mau-Mau. — —
Sautján mánaða stríð hefur ekki
skert áhrif Mau-Mau. Þvert á
móti hafa þau aukizt og lítur út
fyrir að þau breiðist til annarra
kynþátta.... “
íslenzkir uppdrættir. Útgefandi
Halldóra Bjarnadóttir, eru ný-
komnir út. Mappan með 10 blöð-
um kostar kr. 10.00.
í: Japanir óttast að
sjórinn við landið
ii verði geislavirkur i
j: Háværar kröfur um
: að Bandaríkin hætti j
: sprengjutilraunum
sínum
Dr. Suzuki, fremsti kjam-
;j orkufræðingur Japans, hefur
; j látið svo um mælt að vera;
jj megi að stór hluti Kyrrahafs-
j: ins sé mengaður geislavirkum
i efnum eftir vetnissprengju
: Bandaríkjamanna og ómögu-
:; legt sé að segja um hvert
; hættan kann að berast. Enn
i segist dr. Suzuki óttast að
j I geislavirkur sjór berizt að;
j: ströndum Japans, ef Banda-;
:; ríkin haldi tilraunum sínum j
:; ófram næstu mánuði. ‘:
1 Japan fer skelfing íbúanna ;
!: og reiði í garð Bandaríkjanna j
:: sívaxandi vegna þessara at- ':
;; burða og víða um heim krefj-::
;; ast menn þess að hinum vit- 1;
; j firrtu tilraunum með svo geig- ;;
;: vænleg morðtæki, að enginn ;;
: getur séð fyrir um afleiðing-;;
! amar, verði hætt. Taka flest; j
! áhrifamestu blöð Bretlands !
!; mjög í þennan streng, svo sem !
; Manchester Guardian, News i;
;; Chronicle, Daily Herald og:;
; j ýmis fleirL :;
Kirkjan. Messað verður í Ak-
ureyrarkirkju kl. 5 e. h. næstk.
sunnudag. — F. J. R.
Messað í skólahúsinu í Glerár-
þorpi á sunnudaginn klukkan 5
e. h. — P. S.
Saumanámsskeið Heimilisiðn-
aðarfélags Norðurlands hefst
næstk. föstudag, 26. marz. —
Stjómin.
Hjónaefni. Sl. þriðjudag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Borg-
hildur Einarsdóttir (Guttormssonar
frá Ósi) hjúkrunarkona, og Jónas
Jónsson, kennari, frá Brekknakoti.
Dánardægur. Sl. þriðjudag varð
Aðalsteinn J. Stefánsson, verk-
stjóri, bráðkvaddur að heimili
sínu, Gilsbakkaveg 1, hér í bæ.
Hann var 63 ára að aldri. Kunnur
borgari og vel metinn.
NÝJA-BÍÓ
Mynd vikunnar:
I Sigrún á Sunnuhvoli j
| Sænsk kvikmynd gerð eftir \
\ hinni frægu sögu Bjöm- I
stjerne Bjömsson.
Um helgina:
j Z
Davíð og Batseba
i Amerísk stórmynd í eðlileg- I
| um litum samkv. frásögn f
I Biblíunnar um Davíð kon- \
ung og Batsebu.
Aðalhlutverk:
GREGORY PECK
j og SUSAN HAYWARD \
Hið nýja Shell-benzín talið taka
eldri tegundum fram
1 fréttatilkynningu, sem blað-
inu hefur borizt frá Shell h.f.,
segir m. a. svo:
„Árið 1922 fannst ný aðferð til
þess að auka notagildi benzíns
með því að blanda í það Tetraet-
hylblýi. Efni þettá eykur þjapp-
þol benzínsins, en það er mjög
þýðingarmikið, þegar tekið er til-
lit til hinnar háu þjöppunar nú-
tímahreyfla. Ný lega hafa Shell-
félögin uppgötvað nýtt benzín-
íblendi, er kemur til með að
marka tímamót í benzín-fram-
leiðslu ekki síður en uppgötvun
Tetreaethylblýs.
Efni þetta nafnist I. C. A.
(Ignition Control Additive) og
verður eingöngu notað til
íblöndunar í Shell-benzín.
Þróunin í benzínframleiðslu
hefur, bæði fyrir og eftir síðari
heimsstyrjöld, einkennzt af til-
raunum í þá átt að hækka oktan-
tölu þess, eftir því sem þjöppun-
arhlutfall (Compression ratio)
bifreiðahreyfla hefur hækkað, en
það er skilyrði þess, að hægt sé
að framleiða öflugri, léttari og
spameytari hreyfla.
Hækkun þjöppunarhlutfallsins
leiddi þó af sér vandamál, er erf-
itt reyndist að vinna bug á. Hinn
aukni þrýstingur og hiti í bruna-
holinu olli því, að kolefnisútfell-
ingar settust til á skrokkveggina,
bulluna og á rafkertin.
Þegar útfellingar þessar hitna,
kemur fram glóðarmyndun í þeim
og rafmagnsleiðsluhæfni þeirra
eykst Ef hreyfillinn gengur
hratt, valda þessi glóðheitu úr-
gangsefni svonefndri glóðar-
kveikju. Hún gerir að nokkru
leyti vart við sig með höggum í
hreyflinum, vegna ótímabærrar
íkveikju í eldsneytishleðslunni,
og einnig með því, að hreyfillinn
heldur áfram að ganga eftir að
slökkt hefur verið ó honum. Úr-
gangsefni þessi geta einnig valdið
skammhlaupi í kertum.
Shell-benzín með I. C. A. vinn-
ur bug á þessum vandamálum.
Hið nýja benzín-íblendi breytir
efnasamsetningu úrgangsefnanna
þannig, að það dregur úr leiðslu-
hæfni þeirra og þau þurfa hærra
hitastig til glóðarmyndunar. Ár-
angurinn verður sá, að hreyfill-
inn gengur mjúkt og þægilega, og
bifreiðin ekur lengri vegalengd á
hverjum benzínlíter, þar sem
orkan nýtist að fullu....
.... Viðv íslendingar flytjum,
eins og kunnugt er, allt okkar
benzín inn frá Rússlandi og ger-
um e. t. v. um óákveðinn tíma.
Þess hefði mátt vænta, að ís-
lenzkir bifreiðaeigendur gætu
ekki fyrst um sinn notíð góðs af
þessari miklu framför í benzín-
framleiðslu.
Shell-félagið £ Englandi, sem
hefur einkarétt á þessu efni tU
blöndunar í benzín, hefur samt
sem áður góðfúslega samþykkt að
heimila H.f. „Shell“ á íslandi af-
not af einkaleyfi þessu og látiS
því í té birgðir af þessu efni til
blöndunar hér innanlands. Þetta
hefur gert Shell-félaginu hér
kleyft að gefa bifreiðaeigendum
hérlendis kost ó hinu endurbætta
benzíni.... “
Atvinnuofsóknir
í Eyjum
Ihaldsmeirihlutinn í bæjar-
stjóm Vestmannaeyja hefur nú
hafið atvinnuofsókr.ir gegn starfs
mönnum bæjarins Hefur þeim
Hrólfi Ingólfssyr.' bæjargjald-
kera og Sigurði Jórissyni hafnar-
fulltrúa verið sagt upp starfi. —
Ástæðan fyrir uppsögnum þess-
um er engin önnur en sú að þeir
Hrólfur og Sigurður eru á öðru
máli en Framsóknar- og íhiilds-
menn þeir, sem nú sýna ást sína ó
lýðræð,i og mannréttindum.
Aðalfundur
Vélstjórafélags Akureyrar
var haldinn fyrra sunnudag.
Stjóm félagsins skipa nú þessir
menn:
Kristján Kristjánsson, form.
Stefán Þorsteinsson, gjaldk.
Svavar Björnsson, ritari.
Eggert Ólafsson, varaform.
Félagsmenn eru um 80 talsins.
Það er auðvelt að sannfæra sig
um það að ameríkumenn treysta
Guði, með því að athuga hvemig
þeir aka bílunum sínum.
Flestar konur óska sér lang-
lífis, en þær vilja bara ekki láta
það sjást á sér að sú ósk þeirra
hafi verið uppfyllt
Reiðstu því ekki þótt annar
viti meira en þú. Það er ekki
honum að kenna.
Sósíalistafélagið og Æskulýðsfylkingin:
ÁRSHÁTÍÐ
í ÁSGARÐI laugardaginn 24. þ. m., hefst kl. 8.30.
TILHÖGUN :
1. KAFFIDRYKKJA.
2. ÁVARP frá form. félaganna.
3. UPPLESTUR.
4. GAMANÞÁTTUR E. K.
5. ? ? ?
6. SEGULBANDS-GETRAUN.
7. DANS til kl. 2 eftir miðnætti.
Félagar, fjölmennið og tilkynnið þátttöku ykkar
sem allra fyrst.
NEFNDIN.