Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 09.04.1954, Side 1

Verkamaðurinn - 09.04.1954, Side 1
XXXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 9. apríl 1954 13. tbl. SPILAKVÖLD verður í Asgarði í kvöld. — Hefst kl. 8.80 stundvíslega. — Þetta verður síðasta spilakvöldið. Fjölmennið! Nefndin. Bæjarfulltrúar sósíalista leggja til: Að einn þriðji hluti atvinnutekna sjómanna verði undanþeginn út- svari og að verkamenn, sem stunda vinnu utan bæjar fái dvalar- og ferðakostnað til frádráttar út- svarsskyldum tekium Bæjarfulltrúar sósíalista, þeir Tryggvi Helgason og Bjöm Jónsson, fluttu eftirfarandi tillögu á bæjarstjóm- arfundi sl. þriðjudag: „Bæjarstjórn samþykkir að mæla með því við niðurjöfnunamefnd, að hún undanþiggi útsvari 1/3 af atvinnutekjum þeirra sjómanna. sem stund- uðu atvinnu á fiskiskipum bæjarins í 6 mánuði eða lengur á sl. ári. Ennfremur að verkamenn, sem höfðu aðaltekjur sínar af vinnu utan bæjarins, fái ferða- og dvalarkostnað dreginn frá tekjum sínum áður en útsvar er lagt á.“ Tillögunni var vísað til bæjarráðs með samhljóða at- kvæðum og skyldi það skila áliti fyrir næsta fund bæjar- stjórnar. Stjórnarflokkarnir þora ekki að veita frumvarpi Einars Olgeirsson- ar um uppsögn hernámssamnings- ins þinglega meðferð Felldu frumvarpið frá 2. umræðu og nefnd Stækkun lögsagnarumdæmis Akureyrarkaup- staðar samþ. í bæjarstjórn með 10 atkv. gegn 1 " ®Eins og frá var skýrt í síðasta blaði samþykkti Tekur Útgerðarfél. upp bæjarráð á fundi sínum þann 1. þ. m. tillögu þeirra Tryggva Helgasonar, Jóns G. Sólnes og Helga Pálssonar um sameiningu Glerárþorps og Akureyrar með 3 atkv. gegn 2 (Jakobs Frímanns- sonar og Steindórs Steindórssonar). Mál þetta kom til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn s.l. þriðju- dag og samþykkti bæjarstjórnin sameiningartil- löguna með 10 atkv. gegn 1 (Steindórs Steindórs- sonar), en Jakob Frímannsson lét varamann sinn mæta á fundinum Við atkvæðagreiðslu í neðri deild 1. þ. m. felldi stjórnarliðið og Emil Jónsson frumvarp Einars Olgeirssonar um uppsögn her- námssamningsins frá 2. umræðu og athugun í nefnd. Allir stjóm- arandstæðingar, aðrir en Emil Jónsson, greiddu frumvarpinu at- kvæði til 2. umræðu. Er af þessari dæmafáu meðferð Alþingis á stærsta máli þjóðar- innar, augljóst að hernámsmenn- imir, sem á fölsuðum forsendum ofurseldu Island erlendum her, eru nú hræddari en nokkru sinni áður við að ræða glæp sinn fyrir opnum tjöldum, er vetnissprengj- an hefur gereytt þeim tætlum, sem þeir hafa hingað til reynt að skýla sekt sinni með. Er hinn við- bjóðslegi undirlægj uháttur við hina bandarísku húsbændur hinn sami og áður. -K FRÁ LEIKFÉL. AKUREYR- AR. Síðustu sýningar fyrir páska á Skugga-Sveini verða næstk. laugardags- og sunnu- dagskvöld. V erkamannaf élagið undirbýr að koma upp hvíldar- og skemmti- heimili fyrir félags- menn sína Á 100. fundi Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar, sem um margt var hinn merkasti, bar stjóm félagins fram þá tillögu, að kosin yrði þriggja manna nefnd til „að athuga í vor og sumar möguleika á að fá keypt land- svæði, sem hentugt væri til skóg- ræktar og fyrir hvfldar- og skemmtistað félagsmanna í fram- tiðinni." Hlaut tillaga þessi hinar beztu undirtektir og var samþykkt ein- um rómi. í nefndina voru kjörnir þeir Áskell Snorrason, Stefán Ámason og Adolf Davíðsson. sólþurrkun saltfiskjar Þær tillögur bæjarfulltrúa Sósíalistaflokksins, að tekin verði upp sólþurrkun á saltfiski til at- vinnubóta fyrir konur og ung- linga, voru teknar fyrir á síðasta bæjarstjórnarfundi. Var fyrri til- lögunni frestað, þar sem upplýst var að Vinnuskólanefnd hefði þegar tekið málið til athugunar, en síðari tillagan var samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum. Var hún svohljóðandi: „Bæjarstjóm beinir þeirri ósk til stjómar Útgerðarfélags Akureyringa h.f., að í sumar verði tekin upp útiþurrkun á saltfiski, með sérstöku tilliti til atvinnuþarfa kvenna og ung- linga. Heitir bæjarstjóm að láta félaginu í té nægilega stóra lóð fyrir fiskgrindur leigulaust“ Skákþing Akuréyrar hófst sl. mánudag. Þátttakend- ur em 21 og keppa í 3 flokkum. 1 meistaraflokki eru 8 keppendur, í 1. og 2. er sameiginleg keppni og eru þar 7 keppendur. í þriðja flokki eru 6 keppendur, allir á aldrinum 11—14 ára. Keppt er á mánudags- og fimmtudagskvöld- um í Ásgarði, Hafnarstræti 88. Tillagan, sem samþykkt var, er svohljóðandi: „Þar sem samkomulag hefur núfengizt við hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps um marka- línu fyrir sameiningu Glerár- þorps og Akureyrar ennfrem- ur um rafmagnslagnir til bæj- anna innan væntanlegrar markalínu og í trausti þess, að ríkisstjómin greiði fyirr láns- fjárútvegxm til atvinnuaukn- ingar á Akureyri vegna þess f jölda verkamanna, er bætast í hóp þeirra atvinnuleitandi manna, sem nú era í bænum, samþykkir bæjarstjóra fyrir sitt leyti, að sameiningin fari fram. Jafnframt samþykkir bæjar- stjórn að fela bæjarráði að ljúka samningum við hrepps- nefnd Glæsibæjarhrepps um f jársklpti og önnur atriði varð- andi sameininguna og fela þingmanni Akurey rarkaup - staðar að bera fram á yfir- standandi Alþingi lagafrum- varp um stækkun lögsagnar- umdæmis kaupstaðarins, ef þess gerist þörf að lagaheimild þurfi fyrir stækkuninni. Framangreindar ráðstafanir séu miðaðar við það, að sam- eining Glerárþorps við Akur- eyri fari fram um áramótin 1954 og 1955“ Hreppsnefnd Glæs ibæj arhrepps hafði áður samþykkt sameining- una fyrir sitt leyti, með þeim skilyrðum sem í tillögu þessari felast. Var hún öll á einu máli um þá afgreiðslu. Stækkun lögsagnarumdæmis- ins er nánar rædd í annarri grein hér í blaðinu. Bílastöðvarnar burt af Ráðhústorgi Á bæjarstjómarfundi sl. þriðju- dag var samþ. með 9 atkv. gégn 1 tillaga bæjarráðs um að segja bifreiðastöðvunum B. S. O. og B. S. A. og Ferðaskrifstofunni upp bflastæðum sínum við Ráðús- torg og á torginu norðan Nýja- Bíós. Uppsagnarfresturinn er S mánuðir. Mun ætlunin að græða allt torgið út að götum. Bjöm Jónsson lagði til að upp- sögninni yrði frestað þar til við- ræður hefðu farið fram við eig- endur stöðvanna um framtíðar- stæði fyrir bflastöðvarnar, en sú tillaga hlaut ekki samþykki. Fimm ár munu nú liðin síðan B. S .A. var sagt upp bflastæðum sínum. Síðasta spilakvöld 1 kvöld kl. 8,30 heldur Sósía- listafélag Akureyrar síðastn spilakvöld sitt á vetrinum. Spiluð verður félagsvist og auk þess verður gott skemmtiatriði. Vönduð verðlaun verða veitt að þessu sinni. Þess er vænst að félagsmenn fjölmenni á þetta síðasta spila- kvöld vetrarins og taki gesti með sér. i Verkamannafélagið vill að tekin verði upp barátta fyrir þeim kröf- um verkalýðssamtakanna, sem ekki náðust fram 1952 Á fundi Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar sl. sunnudag var rætt um uppsögn samninga félagsins og svofelld ályktun samþykkt einróma af fundarmönnum: „Fundur Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar, haldinn 4. apríl 1954, telur nauðsynlegt og æskilegt að samningum verkalýðsfélaganna verði almennt sagt upp nú í vor, í þeim tilgangi a ðtekin verði upp barátta fyrir þeim höfuðkröfum samtakanna, sem ekki náðu fram að ganga í vinnudeilunni 1952 og til lagfæringar á ýmsum smærri samningsákvæðum. Lýsir fundurinn því yfir, að Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar er reiðubúið til þátttöku í slíkum aðgerðum, ef um þær tekst svo víðtækt og traust samstarf, sem nauðsynlegt verður að telja. Þá beinir fundurinn því til sjómannasamtakanna og Al- þýðusambandsins, hvort ekki væri sigurvænlegast að tengja saman fyrirsjáanlega kjarabaráttu sjómannastétt- arinnar og verkafólks í landi. Fundurinn telur nauðsynlegt að þegar verði kölluð saman ráðstefna með fulltrúum stærstu verkalýðs- og sjómannafélaganna til umræðna og ákvarðana um þessi mál.“

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.