Verkamaðurinn - 09.04.1954, Qupperneq 1
XXXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 9. apríl 1954 13. tbl.
SPILAKVÖLD
verður í Asgarði í kvöld. —
Hefst kl. 8.80 stundvíslega.
— Þetta verður síðasta
spilakvöldið. Fjölmennið!
Nefndin.
Bæjarfulltrúar sósíalista leggja til:
Að einn þriðji hluti atvinnutekna
sjómanna verði undanþeginn út-
svari og að verkamenn, sem stunda
vinnu utan bæjar fái dvalar- og
ferðakostnað til frádráttar út-
svarsskyldum tekium
Bæjarfulltrúar sósíalista, þeir Tryggvi Helgason og
Bjöm Jónsson, fluttu eftirfarandi tillögu á bæjarstjóm-
arfundi sl. þriðjudag:
„Bæjarstjórn samþykkir að mæla með því við
niðurjöfnunamefnd, að hún undanþiggi útsvari
1/3 af atvinnutekjum þeirra sjómanna. sem stund-
uðu atvinnu á fiskiskipum bæjarins í 6 mánuði eða
lengur á sl. ári. Ennfremur að verkamenn, sem
höfðu aðaltekjur sínar af vinnu utan bæjarins, fái
ferða- og dvalarkostnað dreginn frá tekjum sínum
áður en útsvar er lagt á.“
Tillögunni var vísað til bæjarráðs með samhljóða at-
kvæðum og skyldi það skila áliti fyrir næsta fund bæjar-
stjórnar.
Stjórnarflokkarnir þora ekki að
veita frumvarpi Einars Olgeirsson-
ar um uppsögn hernámssamnings-
ins þinglega meðferð
Felldu frumvarpið frá 2. umræðu og nefnd
Stækkun lögsagnarumdæmis Akureyrarkaup-
staðar samþ. í bæjarstjórn með 10 atkv. gegn 1
" ®Eins og frá var skýrt í síðasta blaði samþykkti
Tekur Útgerðarfél. upp bæjarráð á fundi sínum þann 1. þ. m. tillögu
þeirra Tryggva Helgasonar, Jóns G. Sólnes og
Helga Pálssonar um sameiningu Glerárþorps og
Akureyrar með 3 atkv. gegn 2 (Jakobs Frímanns-
sonar og Steindórs Steindórssonar). Mál þetta kom
til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn s.l. þriðju-
dag og samþykkti bæjarstjórnin sameiningartil-
löguna með 10 atkv. gegn 1 (Steindórs Steindórs-
sonar), en Jakob Frímannsson lét varamann
sinn mæta á fundinum
Við atkvæðagreiðslu í neðri
deild 1. þ. m. felldi stjórnarliðið
og Emil Jónsson frumvarp Einars
Olgeirssonar um uppsögn her-
námssamningsins frá 2. umræðu
og athugun í nefnd. Allir stjóm-
arandstæðingar, aðrir en Emil
Jónsson, greiddu frumvarpinu at-
kvæði til 2. umræðu.
Er af þessari dæmafáu meðferð
Alþingis á stærsta máli þjóðar-
innar, augljóst að hernámsmenn-
imir, sem á fölsuðum forsendum
ofurseldu Island erlendum her,
eru nú hræddari en nokkru sinni
áður við að ræða glæp sinn fyrir
opnum tjöldum, er vetnissprengj-
an hefur gereytt þeim tætlum,
sem þeir hafa hingað til reynt að
skýla sekt sinni með. Er hinn við-
bjóðslegi undirlægj uháttur við
hina bandarísku húsbændur hinn
sami og áður.
-K FRÁ LEIKFÉL. AKUREYR-
AR. Síðustu sýningar fyrir
páska á Skugga-Sveini verða
næstk. laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
V erkamannaf élagið
undirbýr að koma upp
hvíldar- og skemmti-
heimili fyrir félags-
menn sína
Á 100. fundi Verkamannafélags
Akureyrarkaupstaðar, sem um
margt var hinn merkasti, bar
stjóm félagins fram þá tillögu, að
kosin yrði þriggja manna nefnd
til „að athuga í vor og sumar
möguleika á að fá keypt land-
svæði, sem hentugt væri til skóg-
ræktar og fyrir hvfldar- og
skemmtistað félagsmanna í fram-
tiðinni."
Hlaut tillaga þessi hinar beztu
undirtektir og var samþykkt ein-
um rómi. í nefndina voru kjörnir
þeir Áskell Snorrason, Stefán
Ámason og Adolf Davíðsson.
sólþurrkun saltfiskjar
Þær tillögur bæjarfulltrúa
Sósíalistaflokksins, að tekin verði
upp sólþurrkun á saltfiski til at-
vinnubóta fyrir konur og ung-
linga, voru teknar fyrir á síðasta
bæjarstjórnarfundi. Var fyrri til-
lögunni frestað, þar sem upplýst
var að Vinnuskólanefnd hefði
þegar tekið málið til athugunar,
en síðari tillagan var samþykkt
með 9 samhljóða atkvæðum. Var
hún svohljóðandi:
„Bæjarstjóm beinir þeirri
ósk til stjómar Útgerðarfélags
Akureyringa h.f., að í sumar
verði tekin upp útiþurrkun á
saltfiski, með sérstöku tilliti til
atvinnuþarfa kvenna og ung-
linga. Heitir bæjarstjóm að láta
félaginu í té nægilega stóra lóð
fyrir fiskgrindur leigulaust“
Skákþing Akuréyrar
hófst sl. mánudag. Þátttakend-
ur em 21 og keppa í 3 flokkum. 1
meistaraflokki eru 8 keppendur,
í 1. og 2. er sameiginleg keppni
og eru þar 7 keppendur. í þriðja
flokki eru 6 keppendur, allir á
aldrinum 11—14 ára. Keppt er á
mánudags- og fimmtudagskvöld-
um í Ásgarði, Hafnarstræti 88.
Tillagan, sem samþykkt var, er
svohljóðandi:
„Þar sem samkomulag hefur
núfengizt við hreppsnefnd
Glæsibæjarhrepps um marka-
línu fyrir sameiningu Glerár-
þorps og Akureyrar ennfrem-
ur um rafmagnslagnir til bæj-
anna innan væntanlegrar
markalínu og í trausti þess, að
ríkisstjómin greiði fyirr láns-
fjárútvegxm til atvinnuaukn-
ingar á Akureyri vegna þess
f jölda verkamanna, er bætast í
hóp þeirra atvinnuleitandi
manna, sem nú era í bænum,
samþykkir bæjarstjóra fyrir
sitt leyti, að sameiningin fari
fram.
Jafnframt samþykkir bæjar-
stjórn að fela bæjarráði að
ljúka samningum við hrepps-
nefnd Glæsibæjarhrepps um
f jársklpti og önnur atriði varð-
andi sameininguna og fela
þingmanni Akurey rarkaup -
staðar að bera fram á yfir-
standandi Alþingi lagafrum-
varp um stækkun lögsagnar-
umdæmis kaupstaðarins, ef
þess gerist þörf að lagaheimild
þurfi fyrir stækkuninni.
Framangreindar ráðstafanir
séu miðaðar við það, að sam-
eining Glerárþorps við Akur-
eyri fari fram um áramótin
1954 og 1955“
Hreppsnefnd Glæs ibæj arhrepps
hafði áður samþykkt sameining-
una fyrir sitt leyti, með þeim
skilyrðum sem í tillögu þessari
felast. Var hún öll á einu máli
um þá afgreiðslu.
Stækkun lögsagnarumdæmis-
ins er nánar rædd í annarri grein
hér í blaðinu.
Bílastöðvarnar burt
af Ráðhústorgi
Á bæjarstjómarfundi sl. þriðju-
dag var samþ. með 9 atkv. gégn 1
tillaga bæjarráðs um að segja
bifreiðastöðvunum B. S. O. og B.
S. A. og Ferðaskrifstofunni upp
bflastæðum sínum við Ráðús-
torg og á torginu norðan Nýja-
Bíós. Uppsagnarfresturinn er S
mánuðir. Mun ætlunin að græða
allt torgið út að götum.
Bjöm Jónsson lagði til að upp-
sögninni yrði frestað þar til við-
ræður hefðu farið fram við eig-
endur stöðvanna um framtíðar-
stæði fyrir bflastöðvarnar, en sú
tillaga hlaut ekki samþykki.
Fimm ár munu nú liðin síðan B.
S .A. var sagt upp bflastæðum
sínum.
Síðasta spilakvöld
1 kvöld kl. 8,30 heldur Sósía-
listafélag Akureyrar síðastn
spilakvöld sitt á vetrinum.
Spiluð verður félagsvist og auk
þess verður gott skemmtiatriði.
Vönduð verðlaun verða veitt að
þessu sinni.
Þess er vænst að félagsmenn
fjölmenni á þetta síðasta spila-
kvöld vetrarins og taki gesti með
sér.
i
Verkamannafélagið vill að tekin
verði upp barátta fyrir þeim kröf-
um verkalýðssamtakanna, sem
ekki náðust fram 1952
Á fundi Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar sl.
sunnudag var rætt um uppsögn samninga félagsins og
svofelld ályktun samþykkt einróma af fundarmönnum:
„Fundur Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar,
haldinn 4. apríl 1954, telur nauðsynlegt og æskilegt að
samningum verkalýðsfélaganna verði almennt sagt upp
nú í vor, í þeim tilgangi a ðtekin verði upp barátta fyrir
þeim höfuðkröfum samtakanna, sem ekki náðu fram að
ganga í vinnudeilunni 1952 og til lagfæringar á ýmsum
smærri samningsákvæðum. Lýsir fundurinn því yfir, að
Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar er reiðubúið til
þátttöku í slíkum aðgerðum, ef um þær tekst svo víðtækt
og traust samstarf, sem nauðsynlegt verður að telja.
Þá beinir fundurinn því til sjómannasamtakanna og Al-
þýðusambandsins, hvort ekki væri sigurvænlegast að
tengja saman fyrirsjáanlega kjarabaráttu sjómannastétt-
arinnar og verkafólks í landi.
Fundurinn telur nauðsynlegt að þegar verði kölluð
saman ráðstefna með fulltrúum stærstu verkalýðs- og
sjómannafélaganna til umræðna og ákvarðana um þessi
mál.“