Verkamaðurinn - 07.05.1954, Page 1
VERKfltnflÐM
XXXVII. árg.
Akureyri, föstudaginn 7. maí 1954
Verkamanniim
vantar börn eða unglinga til
I blaðburðar í nokkur hverfi bæj-
arins. Vel borgað. Upplýsingar á
afgr. Sími 1516.
16. tbl.
• ö
Sigfúsarsjóður leggur grundvöll-
inn að menningarmiðstöð
íslenzkrar alþýðu
Hefir tryggt sér glæsilegan stað í
hjarta Reykjavíkur
Minningars-jóður íslenzkrar alþýðu um Sigfús Sigurhjartar-
son hefur fest kaup á stórri lóð og húseign við Tjamargötu 20,
og er ætlunin að þar rísi „samkomuhús og starfsmiðstöð fyrir
íslenzka alþýðu og flokk
hennar, Sameiningarflokk
alþýðu — Sósíalistaflokk-
inn, og sé húsið helgað
minningu Sigfúsar Sigur-
hjartarsonar og beri nafn
hans“, eins og segir í skipu
lagsskrá sjóðsins, sem
stofnaður var fyrir tveimur
árum.
Jafnframt hefur verið
stofnuð nefnd til nauðsyn-
legrar fjáröflunar í þessu
skyni, og hefur hún sett
sér það mark að safna einni
milljón króna fyrir 17. júní
næstk. — 10 ára afmæli íslenzka lýðveldisins — ýmist í fram-
lögum þegar í stað eða loforðum, sem greiðist upp fyrir
áramót.
Á mjög fjölsóttum fundi fulltrúaráðs Sósíalistafél. Reykja-
víkur í fyrrakvöld var þessum ákvörðuniun tekið af miklum
fögnuði og eftirfarandi ályktun samþykkt með atkvæðum allra
fundarmanna:
„Fundur í fulltrúaráði Sósíalistafélags Reykjavíkur, haldinn
í Þórskaffi miðvikudaginn 5. maí 1954, lýsir mikilli ánægju
sinni yfir þeirri ákvörðun stjórnar Sigfúsarsjóðs, miðstjórnar
flokksins og stjóma flokksfélaganna í Reykjavík, að kaupa
húseignina Tjarnargötu 20 til afnota fyrir starfsemi Sósíal-
istaflokksins.
Jafnframt skorar fulltrúaráðið á alla flokksmenn og stuðn-
ingsmenn að hef jast þegar í Stað handa um víðtæka f jársöfnim,
svo að unnt verði að reisa sem allra fyrst glæsilegt og alhliða
félagsheimili á þessum stað.Fundurinn leggur sérstaka álierzlu
á að safnað verði eigi lægri upphæð en kr. 1.000.000.00 — einni
milljón króna — fyrir 17. júní 1954.
Heiðrum minningu Sigfúsar Sigxu-hjartarsonar með ötulli
framgöngu í þessu mikla nauðsynja- og menningarmáli al-
þýðunnar.“
Nánar verður skýrt frá þessum fyrirætlunum í næsta blaði.
Eining aíþýðunnar um hagsmunamálin og þjóð-
frelsisbaráttuna settu svip sinn á
1. maí-háfíðahöldin um land allt
Ingimar og Jíilíus eftir
Skákþirigi Akureyrar er nú
lokið að öðru en því, að efstu
mennirnri í meistaraflokki, þeir
Ingimar Jónasson og Júlíus Boga
son, skákmeistari Norðurlands,
eiga eftir að keppa til úrslita um
titilinn skákmeistari Akureyrar,
en báðir hafa þeir 6 vinninga af
7 mögulegum. Unnu þeir báðir 5
skákir og gerðu 2 jafntefli, þ. á.
m. hvor gegn öðrum. Næstur
þeim að vinningatölu er Jón Ingi-
marsson með 5 vinninga.
í 1. og 2 .fl. varð efstur Randver
Karlesson með 4 vinninga og í 3.
fl. Gunnlaugur Guðmundsson
með 4 vinninga af 5 mögulegum.
Ingimar Jónsson er aðeins 16
ára að aldri og er frammistaða
hans því glæsileg, þar sem hann
á í höggi við þrautreynda og
ágæta skákmenn.
Skákþinginu verður slitið n.k.
mánudag í Ásgarði og verðlaun
afhent. Ennfremur verður hrað-
skákkeppni.
Orðsending frá MÍR
Á sunudaginn kl. 4 efnir
MÍR til kvikmyndasýningar í Ás-
garði, fyrir börn og unglinga. —
Verða þar sýndar fræðslu- og
skemmtimyndir. Fjallar ein mynd
in um dýralíf í skógum, önnur er
frá meistarakeppni í fimleikum
og ennfrmexu- eru skemmtilegar
teiknimyndir.
Þótt sýningin sé einkum ætluð
börnum og unglingum, eru full-
orðnir velkomnir líka, meðan
húsrúm leyfir.
Aðgangur er ókeypis.
-K MESSAÐ í Akureyrarkrikju
kl. 10 árdegis á sunnudaginn.
P. S.
Slóraukið öryggi vegna radiovitanna
Flugfélag íslauds fjölgar siórlega flugferðum
og flugdögum - Katipir nýja Dakota-flugvél
Fulltrúi Flugfélags íslands h.f.,
hr. Hilmar Sigurðsson, var stadd-
ur hér í bænum nýlega og náði
tíðindamaður „Verkam.“ tali af
honum.
„Eruð þið enn að færa út kví-
arnar,“ spyrjum vér Hilmar.
„Já, og vonum að svo geti orðið
látlaust framvegis. Vegna hinna
sívaxandi flugsamgangna hér
innanlands er flugvélakostur fé-
lagsins þegar orðinn of lítill en
við vonum að bráðlega rætist úr
þessu. Mun þá ný Douglas-flug-
vél bætast í flugvélaflota okkar
og er ætlunin að hún verði komin
til landsins snemma í sumar, og
verða þá fjórar Douglas-flugvélar
í notkun auk tveggja Katalína-
báta.
Sumaráætlun félagsins gengur
í gildi 1. maí og verð,ur haldið
uppi áætlunarferðum til 22 staða
hér innanlands í sumar.“
„Verða miklar breytingar á
flugferðum milli Akureyrar og
Reykjavíkur?“
„Já. Þeim verður fjölgað í 2
Allur undirbúningur að framkvæmd 1. maí-hátíðahaldanna
bar að þessu sinni augljósan vbtt um víðtækari einingu innan
alþýðusamtakanna en nokkru sinni áður og djarflegan og
samstilltan málflutning fyrir áhugamálum stéttarinnar, jafnt
á sviði kjaramálanna, sem sjálfstæðisbaráttunnar gegn her-
náminu og fyrir brottfultningi hernámsliðsins úr landinu. —
Samstarf verkalýðsflokkanna og efling stjórnmálalegrar og
faglegrar einingar voru uppistöður í ávörpum margra ræðu-
manna, án tillits til stjórnmálaskoðana þeirra.
daglega frá 1. maí, og frá 1. júní
verða farnar 3 ferðir fjóra daga
vikimnar, eða alls 18 ferðir í viku.
Þegar flogið verður þrisvar á dag
verður fluginu háttað þannig, að
flogið er á morgnana, eftirmið-
daginn og á kvöldin.“
„Hvað er langt síðan Flugfélag
íslands hóf áætlunarferðir milli
Akureyrar og Reykjavíkur?"
„Síðan í marz 1938. En á því
ári flutti félagið samtals 770 far-
þega innanlands, en síðastliðið
flugu 41.928 farþegar með flug-
vélum félagsins, þar af 35.4331 inn
anlands.
Á flugleiðinni Akureyri—
(Framhald á 4. síðu).
1 Reykjavík varð kröfuganga
verkalýðssamtakanna fjölmenn-
ari og glæsilegri en nokkru sinni
áður. Þúsundum saman fylkti al-
þýða Reykjavíkur sér undir kjör-
orð dagsins um bætt kjör, brott-
flutning hernámsliðsins, bann við
notkun kjarnorkuvopna, alþjóð-
lega einingu verkalýðssamtak-
anna 'og samvinnu verkamanna,
sjómanna og bænda.
Forustumenn þriggja verka-
lýðsfélaga, sem lúta hreinni
íhaldsforustu höfðu neitað að
undirrita ávarp verkalýðsfélag-
anna, að boði húsbænda sinna og
skárust úr leik á síðustu stundu,
en alþýða Rvíkur svaraði klofn-
ingsbrölti þeirra með þí að reyn-
ast sókndjarfari en nokkru sinni
fyrr.
Hér á Akureyri heilsaði 1. maí
með kalsaveðri, frosti og norðan
strekkingi og hélzt það veður um
daginn og olli því að þátttaka í
útifundi og kröfugöngu varð
minni en vonir stóðu til, enda þótt
gangan væri allfjölmenn. Þrátt
fyrir óhagstætt veður fór allt
fram eins og ákveðið hafði verið.
Utifundur hófst við Verkalýðs-
húsið kl. 1,15 með leik Lúðra-
sveitar Akureyrar og Karlakórs
Akureyrar, en ávörp og ræður
fluttu Elísabet Eiríksdóttir, for-
maður Einingar, Jón Ingimarsson,
formaður Iðju, Jón Rögnvaldsson,
(Framhald á 4. síðu).
Verkakonur eru ráðnar í
að bæfa kjör sín
Eins og frá hefur verið skýrt
hér í blaðinu hefur Verka-
kvennafélagið Eining sagt upp
samningum sínum við vinnuveit-
endur frá 1. júní næstk. Gildir
þetta um alla samninga félagsins
nema við Fjórðungssjúkrahúsið,
en félagið gerði nú nýlega samn-
inga um kaup og kjör starfs-
stúlknanna þar og fékk kjör
þeirra bætt í verulegum atriðum,
m. a. á þann hátt að stúlkurnar
þurfa ekki að greiða aðrar mál-
tíðir en þær, sem falla á vinnu-
tíma þeirra, en, áður urðu þær að
greiða fullt fæði, hvort sem þess
var neytt að fullu eða ekki. Enn-
fremur var sumarleyfi lengt.
Það sem einkum vakir fyrir
félaginu með uppsögn samning-
anna, annað en það, að fá upp-
sagnarákvæðum þeirra breytt
eins og önnur verkalýðsfélög
hyggjast gera, er að ná fram ýms-
um lagfæringum á kaupgjalds-
ákvæðunum, sérstaklega við þá
vinnu, sem unnin er jöfnum
höndum af konum og körlum,
svo sem fiskvinnu. Eru verka-
konur orðnar langþreyttar á því
óréttlæti að standa við hlið karl-
manna við fiskverkun og fiskað-
gerð, við hin verstu vinnuskil-
yrði, og bera allt að þriðjungi
minna úr býtum, þrátt fyrir svip-
uð afköst og allmiklu minna en 14
ára unglingspiltar (kaup drengja
14—16 ára er nú kr. 11.38 á klst.,
en kvenna kr. 10.90).
Verkakvennafélagið Framtíðin
í Hafnarfirði hefur eigi alls fyrir
löngu gert nýja samninga við
vinnuveitendur og rutt brautina
um verulega hækkim á kaupi við
ýmsa fiskvinnu, svo sem umstöfl-
un á fiski, ákvæðisvinnu við fisk-
þvott, verkun á skreið o. fl. Enn-
fremur hækkun á taxta fyrir
hreingerningavinnu. Hafa ýms
verkakvennafélög á Suðurlandi
þegar náð samningum í kjölfar
Framtíðarinnar. Hefur þessum
félögum þannig miðað í áttina til
þess að kjörorðið um „sömu laun
fyrir sömu vinnu“ verði meira en
orðin tóm.
Verkakonur hér í bænum munu
eiga vísan stuðning annarra
verkalýðsfélaga í bænum í við-
leitni sinni til þess að rétta hlut
sinn varðandi launakjörin, enda
er þar um að ræða beina hags-
muni mikils fjölda alþýðuheimila.