Verkamaðurinn - 21.05.1954, Side 1
VERKfltnflÐm
XXXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 21. maí 1954 17. tbl.
Vísitalan óbreytt
Framfærsluvísitalan miðuð við
1. maí hefir reynzt 158 stig og
kaupgjaldsvísitalan 148 stig.
Kaupgjald helzt því óbreytt eftir
1. júní, nema þar sem samning-
ar kunna að breytast.
Fyrsti áfanííinn að Sigfúsargarði
Húsið við Tjamargötu 20.
Frá því hefir verið skýrt hér í
blaðinu að Minningarsjóður ís-
lenzkrar alþýðu um Sigfús Sig-
urhjartarson hefir fest kaup ó
húseigninni Tjarnargötu 20 í
Reykjavík, ásamt stórri lóð á ein-
um glæsilegasta stað í höfuðborg-
inni og er hugmyndin sú að þar
rísi í framtíðinni samkomuhús og
starfsmiðstöð fyrir íslenzka al-
þýðu og flokk hennar, Sósíalista-
flokkinn.
Kaupin á Tjarnargötu 20 eru
fyrsti áfanginn að því marki og
til þess að unnt sé að ná honum
þarf samstillt átak allra sósíahsta
og annarra sem unna minningu
hins ástsæla alþýðuforingja.
Fyrsta takmarkið er að safna
einni milljón króna fyrir 17. júní
og er sú söfnun hafin um allt
land. Hefir hún þegar hlotið hin-
ar ágætustu viðtökur og eru þeg-
ar komnar inn 270 þús. krónur.
Eign sú sem hefir verið keypt
og sú veglega og nauðsynlega
bygging, sem þar á að rísa í fram-
tíðinni verður sameign allar hinn
ar sósíalistisku alþýðuhreyfingar
í landinu og því er það metnaðar-
mál að sem flestir eigi hlut að
því mikla átaki, sem hér er verið
að gera.
Hér á Akureyri tekur skrifstofa
Sósíalistaflokksins og Sigtryggur
Helgason gullsmiður við fram-
lögum í söfnunina.
GUÐRÚN Á. SÍMONAR
söng í Nýja-Bíó á vegum Tón-
listarfélags Akureyrar hinn 6. þ.
m. Við hljóðfærið var Fritz
Weisshappel.
Ungfrú Guðrún Á. Símonar
hefir stundað nám um mörg ár
hjá ágætum kennurum, síðast á
ítalíu. Hún hefir hljómmikla,
bjarta sopranrödd, framúrskar-
andi blæfagra, þýða og hreina.
Það er fljótfundið, að hún
hefir tekið nám sitt og alla list
sína mjög alvarlega og einskis
látið ófreistað til að ná sem full-
komnustum árangri, enda má
segja, að svo miklu valdi hefir
hún náð á rödd sinni og allri
meðferð hennar, að þar var eigi
að finna blett né hrukku, og urðu
hin smæstu atriðin þar eigi út
undan. En það er eitt aðalsmerki
allrar listar, að vandað sé jafnt
til hins smæsta sem hins stærsta.
Ungfrú Guðrún hóf söng sinn
með lagi eftir hið ágæta ítalska
tónskáld: G. B. Pergolesi, sem
andaðist árið 1736, aðeins 26 ára
að aldri. Þetta fagra lag, jafn
ferskt og hreint í dag og það var
fyrir meir en tveim öldum, var
flutt á þann hátt, að þegar mátti
öllum áheyröndum vera ljóst, að
hér söng bæði gófuð og vel
menntuð listakona. Næsta lag var
Lasciatemi morire eftir C. Monte-
verdi (1567—1643), höfund hinn-
ar eiginlegu óperu, — dásamlega
fagurt lag og eftir því vel sungið.
Þriðja lagið var Povera Rosa eftir
S. C. Marchesi.
Næst kom eitt lag eftir Schu-
bert og tvö eftir Brahms, hvert
öðru betur flutt. Lag Schuberts:
Dauðinn og mærin, var þannig
flutt, að ég tel vafasamt, að hægt
sé að gera það betur.
Þessu næst komu þrjú ísl. lög
eftir Pál Isólfsson, Jón Þórarins-
son og Þórarin Jónsson, öll bet-
ur sungin en ég hefi áður heyrt
þau. Þá komu tvö ensk lög og að
síðustu tvær óperuaríur: Donde
lieta úr „La Bohéme“ e. Puccini
og C’era un re, un re di Thulé,
úr „Faust“ eftir Goxmod. í óperu-
lögunum naut hin fullkomna
söngtækni söngkonunnar sín
ágætlega.
Undirleikur Weisshappels var
í alla staði hinn prýðilegasti, svo
sem vænta mátti.
Áheyrendur, sem voru margir,
létu óspart í ljós hrifningu sína
og gleði yfir söngnum og leikn-
um, og fjöldi blóma barst. Söng-
konan varð að endurtaka sum
lögin og syngja aukalög, þar á
meðal aríu úr óperunni „Caval-
leria Rusticana“ eftir Mascagni.
Var það lag ásamt lagi Schuberts,
sem að ofan er getið, einna bezt
sungið af öllum lögunum.
Þótt rödd Guðrúnar sé „lyr-
iskur“ sopran, þá bendir flutn-
ingur hennar á þessum óperu-
lögum, sem hún söng, eindregið
á það, að hún sé eigi síður
„dramatisk" söngkona. Vonandi
fær hún bráðlega hlutverk við
sitt hæfi í Þjóðleikhúsinu.
Að öllu samanlögðu finnst mér
hún vera glæsilegasta listakon-
an, sem sungið hefir hér á Akur-
eyri. Áskell Snorrason.
Sameiginlegt málgagn Sjálfstæðismanna
og Bandaríkjðhers hefur tryllta Mac-
Carly-árás á ulanríkisráSh.
Á þriðja hundrað hafa
Ráðherrann fyrst auðmýktur á herfi
legasta hátt - síðan borinn þeim sök
um að hann sé erindreki Rússa!
Kemur Bjarni Ben. aftur?
lokið sundkeppninni
Samnorræna sundkeppnin hófst
hér í bænum að kvöldi s.l. laug-
ardags með opnunarathöfn við
sundlaugina. Þar lék Lúðrasveit
Akureyrar, Ármann Dalmanns-
son formaður ÍBA flutti ávarp- og
síðan þreytti 7 ára drengur Ólaf-
ur Hrólfsson (rafvirkja Stur-
laugssonar) 200 m sundið en
Lúðrasveitin lék þjóðsönginn á
meðan. Síðan syntu um 80 manns
og hafa nokkuð á annað hundrað
bætzt í hópinn síðan. Mikið fjöl-
menni var viðstatt opnunarat-
höfnina og spáir byrjunin góðu
um að Akureyringar láti sinn
hlut ekki eftir liggja, þrátt fyrir
slæm skilyrði til simdiðkana og
bæti hlut sinn stórlega frá síð-
ustu keppni, en þá voru þeir með
næst lægstu hlutfallstölu allra
bæja á landinu.
Tíminn afhjúpar njósnara,
sem starfa í skjóli Krisdns
„Tíminn“ birti fyrir skömmu
athyglisverða grein um hið nána
samband milli Sjálfstæðisflokks-
ins og njósnadeildar Bandaríkja-
hersins á Keflavíkurflugvelli.
Sýndi það fram á að tveir af
aðalnjósnurum hersins, Daði
Hjörvar og Hilmar Biering ann-
ast útgáfu svonefnds Flugvallar-
blaðs í vinnutíma sínum og í
húsakynnum hersins, en blað
þetta er málgagn Sjálfstæðis-
flokksins á vellinum og gefið út
af sameiginlegu hlutafélagi
Sjálfstæðismanna og Bandaríkja-
manna. Ennfremur að þeir félag-
ar hafi jafnframt það starf með
höndum að njósna um skoðanir
starfsmanna á flugvellinum og
lepja í eyru yfirmanna sinna.
Hins getur Tíminn 'að engu að
auðvitað hefði það verið skylda
utanríkisráðherrans að stöðva
slka starfsemi um leið og honum
var um hana kunnugt, en ekkert
slkt hefir verið aðhafzt og þögn-
in ríkt í herbúðum Tímamanna
þar til Flugvallarblaðið tók að
nota rúm sitt og áhrif fyrst og
fremst til þess að spilla jákvæð-
um árangri af samningum þeim,
sem staðið hafa yfir frá því í des.
s.l. milli utanríkisráðherrans og
Bandaríkjamanna, en Bandaríkja
menn hafa í þeim viðskiptum
öllum leikið sér að utanríkisráð-
i herranum og gert hann að hlægi-
legum ómerkingi í augum al-
þjóðar.
Nýja skólalöggjöfin hefir opnað
möguleikana fyrir verklegu námi
Athyglisverð sýning á handavinnu nemenda
Gagnfræðaskóla Akureyrar
í ræðu, sem Þorst. M Jónsson, I
skólastjóri hélt við opnun handa- j
vinnusýningar Gagnfræðaskól-
ans, fyrra sunnudag, ræddi hann
m. a. nokkuð um árásir þær gegn
fræðslulöggjöfinni, sem hafnar
eru úr ýmsum áttum. Kvað hann
þær oft byggðar á lítilli þekkingu
og sanngimi. Nefndi hann m. a.
dæmi þess er þjóðkunnur stjórn-
málamgður hélt því fram nýlega
að skólaskyldan væri 3 árum
lengri en hún í rauninni er, að
allt starf skólanna væri hneppt í
„landsprófsfjötra", og að hvert
bam væri skyldað til að læra tvö
erlend mál. Hið rétta væri að
enginn væri skyldur til að þreyta
landspróf og engin skylda væri að
nema tvö erlend mál. Hitt væri
aftur á móti staðreynd að flestir
vildu hefja eitthvert tungumála-
nám, enda væri það brýn nauð-
syn með okkar þjóð. Taldi skóla-
stjórinn rétt að hefja tungumála-
nám þegar í bemsku, þannig að
allir hefðu vald á einu máli auk
móðurmálsins.
Einn mikilvægasta kostinn við
nýju skólalöggjöfina taldi skóla-
stjórinn það, að með henni hefðu
möguleikarnir til að fara inn á
verklegt nám opnast, en verklega
námið væri sízt óvænlegra til
hollra uppeldisáhrifa en bóknám-
ið. Taldi hann að stefna bæri að
því að auka verknámið, eftir því
sem kostur væri á. Kvað hann
brýnt verkefni að auka húsa-
kost skólans með tilliti til aukins
verknáms og fjölgunar nemenda
með því að byggja eina hæð ofan
á hluta skólahússins/ enda væri
skólinn nú fjölmennasti fram-
haldsskóli landsins, utan Rvíkur.
Voru nerpendur er innritast
höfðu í skólann s.l. vetur 328 að
tölu, en á sýningunni áttu 292
nemendur samtals 1722 gripi.
Voru 584 þeirra unnir í sauma-
stofu, 209 í hannyrðum, 150 í
smíðastofu og 779 bækur voru
bundnar. Áætlað vinnuverðmæti
unninna muna var kr. 142.575.00
og er þá lágt metið og langt neð-
an við venjuleg vinnulaun. Bar
sýningin öll kennurum og nem-
endum gott vitni um alúð og
ástundun.
Við opnun sýningarinnar var
m. a. staddur Ásgrímur Stefáns-
son forstjóri Fataverksmiðjunn-
ar Heklu og skýrði hann frá því
að fyrirtæki hans hefði ákveðið
að bjóða nokkrum stúlkum úr
skólanum atvinnu, vegna þess að
reynzlan hefði sýnt, að nemend-
ur, er þar hefðu notið skólavistar,
væru jafnbetri starfsmenn en
aðrir. Með þessu vildi fyrirtæki
hans einnig gera tilraun til þess
að hefja eðlilega samvinnu milli
skóla og atvinnuvega.
Utanrikisráðherrann rússneskur
erindreki!
Síðastliðinn mánudag kastar þó
fyrst tólfimum í árásum Flug-
allarblaðsins (þ. e. Bandaríkja-
hersins og foringja Sjálfstæðis-
flokksins) á dr. Kristin. Er hann
í einni ofstækisfyllstu og haturs-
fyllstu grein sem sést hefir í ís-
lenzku blaði borinn þeim sökum
að hann styðji kommúnista til
njósna og skemmdarverka í þágu
Rússa og sendi njósnara þeirra
(Framhald á 4. síðu).
Sanmingaviðræður
hafnar í Rvik.
Fyrsti fundur samninganefnd-
ar Verkamannafélagsins Dags-
brúnar og Vinnuveitendasam-
bands Islands var haldinn s.l.
þriðjudagskvöld. Náðist ekki
samkomulag á þeim fundi.
Hér í bæ eru enn engar við-
ræður hafnar um nýja samn-
inga milli vinnuveitenda og
þeirra verkalýðsfélaga, sem
sagt hafa samningum sinum
upp, miðað við 1. júnL